Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 8
8 ( ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1991. LJ.LJ-í '! J Utlönd__________________________________ Kosningamar á Indlandi: 50 manns hafa lát- ið lífið í óeirðum Aö minnsta kosti fimmtíu manns létu lífiö á Indlandi í gær þegar fyrsta umferð þingkosninganna fór fram í landinu. Óttast er að sú tala eigi eftir aö hækka því enn eiga um 60% þjóð- arinnar eftir að kjósa. Alls hafa 514 milljónir manna kosn- ingarétt í þessu stærsta lýðræðisríki heims og útlit er fyrir að þetta verði jöfnustu kosningar sem haldnar hafa verið á Indlandi síðan landið fékk sjálfstæði frá Bretlandi, árið 1947. Kosið verður í þremur umferðum, sú fyrsta fór fram í gær en næstu tvær verða næstkomandi fimmtudag og sunnudag. Talning atkvæða hefst svo ekki fyrr en 27. maí. Þrír flokkar bjóða fram lista, Kon- gress-flokkur Rajivs Gandhi sem er miðjuflokkur, Hægri flokkur hindúa og Bandalag þjóðemissinnaðra und- ir forystu fyrrum forsætisráðherra landsins, Vishwanaths Prataps Singh. Ekki er búist viö að neinn þeirra nái meirihluta á þingi en flestir spá því að Kongress-flokkurinn verði stærsti flokkurinn. Kosningarnar hafa einkennst af óeirðum og átökum á milli íslama og hindúa hér og þar í landinu, þó mest í norðurríkjunum Uttar, Pradesh og Bihar sem samanlagt bjóða fram 139 Búist er við að Kongress-flokkur Rajivs Gandhi fái mesta fylgið í Vopnaðir öryggisverðir standa vörð við alla kjörstaði á Indlandi en alls kosningunum þótt engum flokki sé hafa 50 manns látið lífið í fyrstu umferð þingkosninganna. Símamynd Reuter spáö meirihluta. Teikning Lurie fulltrúa af alls 545 sem komast á þing. Ein og hálf miUjón öryggisvarða hefur verið kölluð út til að reyna að hafa hemil á átökunum og lýst hefur verið yfir útgöngubanni í nokkrum borgum af ótta við að átök bijótist út. Fresta þurfti kosningunum í tveimur ríkjum þar til í næsta mán- uði, Assam og Punjab, svo hægt sé aö herða öryggisgæslu þar. Reuter DV Lofafrelsi sænsku gíslanna Svíamir tveir, sem rænt var í Kasmír í Indlandi um páskana, verða látnir lausir eftir tvær vik- ur. Þetta tilkynnti leiðtogi sam- taka er mannræningjarnir til- heyra á sunnudaginn. Var það tekið fram að Sviunum verði sleppt þó svo aö framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna verði þá ekki farinn að kanna ástand mannréttindamála í Kasmír. Að sögn leiðtogans er þaö nægi- legt að Indland fái stöðugri stjórn sem neyðist til að taka upp mál Kasmírs. TT Átjánárafang- elsifyrlr heróínsmygl Dómstóll i Bangkok í Thailandi dæmdi í morgun bresku stúlkuna Patricia CahiU, sem er átján ára gömul, í 18 ára og 9 mánaða fang- elsi fyrir heróínsmygl. Var Cahill fundin sek um að hafa reynt að smygla 26 kílóum af heróini út úr Thailandi en eiturlyfin fund- ust í ferðatösku heimar á flug- veUinum í Bangkok í júlí í fyrra. Cahill neitar öllum sakargiftum. Vinkona hennar og ferðafélagi, Karyn Smith, sem er nítján ára, játaði sekt sína og var dæmd í 25 ára fangelsi í desember siðast- liönum. Stúlkurnar, sem voru í fyrstu utanlandsferð sinni í fyrrasumar, sögðu að thaUensk- ur eða kínverskur karlmaður hefði gabbað þær til að taka við heróíninu sem var komið fyrir í matarumbúðum og shampóbrús- um. Reuter CHARTON Iwrin CLAIRBOIS K n ‘f rc QtæsG Kaupmenn - innkaupastjórar Aldrei meira úrval af sumarleikföngum. Einnig eru frábæru ejafavörurnar okkar nýkomnar. INGVAR HELGASON hf. BJARKEY Heildverslun, Sævarhöfða 2 112 Reykjavík, © 674280 og 674151

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.