Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 40
52 Afmæli___________ Jón Jónsson Jón Jónsson, fyrrv. framkvæmda- stjóri, Bogabraut24, Skagaströnd, ersjötugurídag. Starfsferill Jón fæddist í Asparvík í Stranda- sýslu og ólst þar upp. Hann stund- aði síldarmatsnámskeið, lauk minna skipstjóraprófi og stundaði ýmis önnur starfsnámskeið. Jón fluttist til Skagastrandar 1948 og hefur búiö þar síðan. Hann sá um skipaafgreiðslu á Skagaströnd í fimmtán ár en hóf störf hjá Kaup- félagi Húnvetninga 1954 og var verslunarstjóri þar til 1977. Þá var hann framkvæmdastjóri Rækju- vinnslunnar á Skagaströnd 1977-86. Jón var einn af stofnendum Rækjuvinnslunnar og stjórnar- formaður hennar til 1977. Hann hef- ur verið umboðsmaður Samvinnu- ferða-Landsýnar á Skagaströnd, for- maður Skógræktarfélags Skaga- strandar, sat í hreppsnefnd Höföa- hrepps um árabil, var stjómarfor- maður Skagstrendings hf. um tíma, sat í stjóm Félags rækju- og hörpu- disksframleiðenda 1978-87 og hefur starfað að ungmennafélags- og íþróttamálum. Fjölskylda Jón kvæntist 20.6.1947 Maríu Magnúsdóttur, f. 1.5.1919, kennara ogverslunarstjóra, en hún er dóttir Magnúsar Bjömssonar, b. og fræði- manns að Syðra-Hóli, og konu hans, Jóhönnu Albertsdóttur. Börn Jóns og Maríu era Fjóla, f. 10.11.1947, verkstjóri, gift Þór Ara- syni og eiga þau þrjú börn, Ara Jón, sem er kvæntur Sigríöi Höllu Lýðs- dóttur og era börn þeirra fjögur, Þórarin Kára, sem er kvæntur Pál- ínu Gunnarsdóttur, og Atla Þór. Magnús Björn, f. 14.4.1952, sveit- arstjóri á Skagaströnd, kvæntur Guðbjörgu Viggósdóttur og eiga þau þijú böm, Viggó, sem er kvæntur Magneu Harðardóttur, Brodda og JónAtla. Gunnar Jón, f. 23.12.1956, bifvéla- virki á Skagaströnd, kvæntur Maríu Alexandersdóttur og eru böm þeirra Róbert Freyr, María Jóna og Elva Ösp. Ragnar Hlynur, f. 28.12.1963, raf- magnsverkfræðingur. Systkini Jóns: Guðrún (hálfsyst- ir), sem nú er látin, var húsfreyja í Eyjum í Strandasýslu; Karl, dó ung- ur; Guðmundur, nú látinn, sjómað- ur í Kópavogi; Jóhannes, nú látinn, skrifstofumaður í Kópavogi; Bjarni, nú látinn, b. í Bjamarhöfn; Sigur- rós, húsfreyja í Norðurfirði á Ströndum; Halldór, smiður í Kópa- Jón Jónsson. vogi; Kjartan, nú látinn, smiður í Reykjavík; Guðrún Ingibjörg, list- málari í Reykjavík; Sigurður Karl, dó ungur; Loftur, smiður í Garðabæ; Ari, smiður í Reykjavík. Foreldrar Jóns vora Jón Kjartans- son, f. 22.7.1873, d. 1957, bóndi í Asparvík á Ströndum, og kona hans, Guðrún Guömundsdóttir, f. 18.4. 1884, d. 1956, húsfreyja. Jón var sonur Kjartans Guð- mundssonar, b. á Skarði í Stranda- sýslu, og konu hans, Guðrúnar Sig- fúsdóttur. Guðrún var dóttir Guðmundar Pálssonar, b. í Kjós á Ströndum, og Sigurrósar Magnúsdóttur. Merming_____________ Orgeltónleikar Þessa dagana stendur yfir kirkjulistahátíð í ReyKjavík þar sem boðið er upp á margvíslegt efni. Meðal ann- ars skipar tónlist þar veglegan sess. í gærkvöldi vora sem liður ,í kirkjulistahátíðinni orgeltónleikar í Bú- staðakirkju. Lék þar á orgel frægur breskur organ- isti, Nicolas Kynaston að nafni. A efnisskránni vora verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Frank Bridge, Johann Sebastian Bach, Marcel Dupré og Max Reger. Tónleikamir hófust á Fantasíu í f-moll eftir Mozart, fógra verki þar sem Mozart sýnir vald sitt á kontra- punkti meö glæsibrag. Þá vora fluttir tveir þættir úr orgelverki eftir Bridge, sem annars er þekktastur fyr- ir aö vera kennari Benjamins Brittens. Þetta er þekki- leg tónlist í rómantískum stíl. Öllu markvissari tón- smíð þó er Prelúdía og fúga eftir Bach í C-dúr þar sem glaðværð prélúdíunnar skapar skemmtilega andstöðu við hinn lærða glæsileik fúgunnar. Suite Bretonne eftir Dupré minnti að nokkru á þjóðlög eða danstón- list, en er engu að síður skemmtilega frumlegt verk upp á léttan máta. Síðasta verkið var Phantasia und Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Fugue uber B.A.C.H. eftir Reger. Þetta fræga stef fellur vel inn í hina hákrómatísku hljómfræði Regers og verkið er áhrifamikið þótt á köflum sé það í tyrfnara lagi. Fúgan er sérlega vel skrifuð. Það var áberandi á þessum tónleikum hve vel organ- leikarinn litaði tónlistina með hljóðavali sínu. Var þetta gert af mikilli smekkvísi og þar sem stíllinn leyfði var litadýrðin mikil, eins og t.d. í verkum Bridges og Duprés. Flutningurinn að öðru leyti var mjög góður. Á einstaka stað mátti finna að nákvæmni í hljóðfalli, einkum framan af, en það spillti lítið fyrir ágætri heildarmynd. Andlát Lára Laufey Sigursteinsdóttir, Heið- mörk 1, Selfossi, andaðist á Sjúkra- húsi Suðurlands aðfaranótt laugar- dagsins 18. maí. Stefán Þ. Sigurjónsson, Brautarlandi 24, Reykjavík, andaðist í Borgar- spítalanum 16. maí. uos RAUTT LJÓS! ÁSKRIFTARSÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6270 - talandi dæml um þjónustu Jardarfarir Ólafur H. Sigurjónsson lést 3. maí. Útfórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðmundur Rafn Kaaber, Garða- hömrum 13, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. maí kl. 15. Þuríður Guðmundsdóttir, Tjarnar- bóli 14, Seltjarnamesi, veröur jarð- sungin frá Neskirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 15. Hafsteinn Halldórsson, Rituhólum 9, andaðist 11. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. maí kl. 15. Sigurjón Axelsson, Laugateigi 33, verður jarðsunginn frá Laugames- kirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30. Jensína Kristín Guðmundsdóttir, Grettisgötu 20b, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 10.30. Útfor Björns Sigfússonar, fyrrum háskólabókavarðar, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. niaí kl. 13.30. Sigurrós Sveinsdóttir, fyrrum for- maður Verkakvennafélagsins Fram- tíðarinnar í Hafnarfirði, sem lést á Sólvangi 13. maí, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag- inn 22. maí kl. 13.30. Ingibjörg Björnsdóttir, Ægisíöu 50, er látin. Hún var fædd 23. maí 1912 og ólst upp á Bessastööum í Miö- firöi. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Jón Sigurðsson, skipstjóri frá Görðum. Utfór Ingibjargar verður gerð frá Neskirkju í dag, þriðjudag- inn 21. maí, kl. 15. Finnbogi Þorsteinsson, Meistara- völlum 21, sem lést 13. maí verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, 21. maí, kl. 13.30. Emilía Vigfúsdóttir, Sunnuhlíð, Kópavogi, lengst af til heimilis í Hóf- gerði 12, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni nk. fimmtudag, 23. maí, kl. 13.30. ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1991. Myndgáta w ©03 Z .. --EYÞ'oR-a Myndgátan hér að ofan lýsir kvenkynsnafnorði. Lausn gátu nr. 31: Milli steins og sleggju. © 03/ ■evþ'op.—---- Pétur Ottesen Jónsson lést 14. maí. Hann fæddist á Syðri-Rauðamel í Kolbeinsstaðahreppi 6. nóvember 1904. Foreldrar hans voru hjónin Jón Einarsson og Helga Jónsdóttir. Pétur fór til náms á Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan 1929. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og útskrifaðist sem rakarameistari 1934. Hann opnaði eigin rakarastofu á Sólvallagötu ,9 og síðar á Laugavegi 10 þar sem hann starfaði í áraraðir. Eftirlifandi eiginkona hans er Krist- ín Ingibjörg Ehasdóttir. Þau hjónin eignuðust eina dóttur. Útför Péturs verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. Tilkynniiigar Húsmæðraorlof í Kópvogi Orlofsdvölin verður að Hvanneyri í Borg- arfirði 23.-29. júní. Skráning hjá Ólöfu, s. 40388, og Sigurbjörgu, s. 43774. Fundir Framtíð þjóðarsáttar Landsmálafélagiö Vörður og Málfundafé- lagið Óðinn boða til opins fundar á Hótel Borg miðvikudagmn 22. mai kl. 17.15 um framtíð þjóðarsáttarinnar. MálsheQend- ur verða þeir Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSÍ, Karl Stemar Guðnason, alþingismaður og varaformaður Verka- mannasambands íslands, og Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. Fundar- stjóri verður Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður. Fyrirspumir og umræð- ur verða eins og tíminn leyfir en áætlað er að ljuka fundinum fyrir kl. 19. Tónleikar Lokatónleikar nemenda Söngskólans í Reykjavík Söngskólinn í Reykjavík útskrifar að þessu sinni einn söngkennara, Ragnheiði Lárusdóttur. 7 nemendur luku prófi úr almennri deild, 8. stigi og halda þessir 8 söngvarar nú sina lokatónleika. í dag, 21. maí, kl. 20.30: Ehn Guðjónsdóttir, sópran, og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, sópran, ásamt píanóleikurunum Elínu Guð- mundsdóttur og Hólmfriði Sigurðardótt- ur. Miðvikudaginn 22. maí kl. 20.30.: Alda Ingibergsdóttir sópran og Guðrún Finn- bjarnardóttir contra-alt ásamt Ólafi Vigni Albertssyni píanóleikara. Fimmtu- daginn 23. maí kl. 20.30: Auður Gunnars- dóttir sópran og Loftur Erlingsson barí- ton ásamt Katrínu Sigurðardóttur píanó- leikara. Þriðjudaginn 28. mai kl. 20.30: Ellen Freydis Martin, sópran, og Ragn- heiður Lárusdóttir, mezzo-sópran, ásamt píanóleikurunum Ólafi Vigni og Jórunni Viðar. Allir tónleikamir verða í Tón- leikasal Söngskólans í Reykjavík að Hverfisgötu 44, og er aðgangur ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Hljómsveitin Glott á Tveimur vinum Hljómsveitin Glott heldur burtfarar- prófstónleika á skemmtistaðnum „Tveir vinir og annar í fríi“ miðvikudagskvöldið 22. maí og hefjast þeir kl. 23. Hljómsveit- ina skipa: Valgarður Guðjónsson söngv- ari, Stefán Guðjónsson trommuleikari, Kristinn Steingrímsson gítarleikari, Ell- ert Ellertsson bassaleikari og Karl Guð- bjömsson, hljómborðsleikari. Aðgangs- eyrir er kr. 200.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.