Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 9
• leei IAM .12 HUOACíUl,am<I
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAI1991.
Utlönd
Tugir þúsunda Albana tóku þátt í göngu til stuðnings verkfallsmönnum um
helgina. Simamynd Reuter
Verkfalliö í Albaníu:
Stjórnin neyðist
til að gefa eftir
- segir albanskur þingmaður í viötali við DV
Víðir Sigurðsson, DV, Albaníu:
Verkfallið, sem óháðu verkalýðs-
félögin í Albaníu lýstu yfir á fimmtu-
dag, stendur enn. Allar samgöngur
innanlands liggja niðri, járnbrautar-
lestir og almenningsvagnar ganga
ekki og flestöll framleiðslufyrirtæki
landsins eru lömuð.
Svona aðgerðir eru áhrifameiri í
Albaníu en víðast annars staðar því
til skamms tíma var almenningi ekki
leyft að eignast bifreiðir og fólk er
því mjög háð þjónustu í samgöngum.
Þegar blaðamaður DV kom til
landsins í gær mátti vel merkja áhrif
verkfallsins, mikið var af fólki á göt-
um úti og á þjóðveginum milli flug-
vallarins og höfuðborgarinnar Tir-
ana, sem er um tuttugu kílómetra
leið, voru margir gangandi vegfar-
endur „að ferðast á puttanum".
Vörubílar voru sums staðar komnir
í hlutverk helstu samgöngutækjanna
og sjá mátti nokkra slíka með fjölda
fólks á pallinum.
DV ræddi í gærkvöldi við Edmond
Budina, þingmann Demókrata-
flokksins, sem er í stjórnarandstöðu
og styður dyggilega við verkfallsað-
gerðimar. Hann sagði að þegar hefði
náðst nokkur árangur.
„Ríkisstjórnin er í þeirri stöðu að
hún verður að ganga að öllum kröf-
um verkalýðsfélaganna. Hún hefur
engan stuðning lengur og við bíðum
og sjáum hvað setur. Okkur liggur
ekkert á aö binda enda á aðgerðirnar
og þær gætu staðið lengi enn. Ríkis-
stjórnin vill ekki gefa frá sér völdin
en hún er í mikilli klemmu vegna
ljárhagsörðugleika landsins og and-
stöðu fólksins og vonandi neyðist
hún til að segja af sér innan tíðar.
Við í Demókrataflokknum erum j
sterkri stöðu á þinginu og tímimi
vinnur með okkur,“ sagði Edmonc
Budina.
Þegar DV spurði Budina hvorl
hætta væri á að stjórnin beitti her-
valdi til að bæla niður andspyrnum
svaraði hann: „Nei, ekki lengur. Þat
hefði verið hægt en eftir umræðun;
um morðin í Shkoder 2. apríl, þegai
lögregla skaut íjóra mótmælendur ti
bana, hætta stjórnvöld ekki á að slík
endurtaki sig. Auk þess eru fjölmarg
ir stuðningsmenn Demókrataflokks
ins í hernum og þeir myndu aldre
ráðast gegn fólkinu," sagði Budina.
DV ræddi einnig við lögreglumann
inn Muharrem Abazi. Hann sagði ai
lögreglan í landinu væri óháð, stæð
ekki með stjórnvöldum og vemdað
hinn almenna borgara gegn ofbeldis
verkum. „Það sést best á því aö í daj
voru mótmælagöngur í öllum helsti
borgum landsins og lögreglan gerð
ekkert til aö stöðva þær. Við stöndun
vörð um öryggi hins almenna borg
ara, sama hvar í flokki hann stend
ur,“ sagði Abazi.
Með verkfallsaðgerðunum er kraf-
ist 50 til 100 prósenta kauphækkunai
en jafnframt þrýst á að þeir sen
stóðu fyrir morðunum í Shkodei
verði látnir svara til saka. Kujtin
Cahsku, varaformaður mannrétt-
indasamtaka Albaníu, sagði í samtali
við DV í gærkvöldi að sérstök nefnd
sem skipuð var til að rannsaka morð-
in, segði að fjórtán manns væru við-
riðnir þau. „En á okkar lista eru tutt-
ugu og þrír sem þarf að leiða fyrir
rétt og því er greinilegt að sumir
hlutir eru enn faldir á bak við tjöldin
í Albaníu," sagði Cahsku.
Bandarðkjamenn
refsa Júgóslövum
Bandaríkjamenn hafa ákveðið að
hætta í bili öllum fjárstuðningi við
Júgóslavíu til þess að mótmæla því
að Serbar skyldu hindra tilnefningu
Króatans Stipe Mesic í embætti for-
seta.
Bandaríkjamenn ætla einnig að
beita sér fyrir því að alþjóöa lána-
stofnanir láni Júgóslövum heldur
ekki fjármagn vegna aðgerða Serba.
Yfir 90 prósent Króata greiddu at-
kvæði með sjálfstæði lýðveldisins í
þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag-
inn:
Forseti Króatíu, Franjo Tudjman,
kvaðst í gær vilja nýtt bandalag full-
valda ríkja ef mögulegt væri. Sagði
hann Króatíu, Slóveníu, Makedóníu
og Bosnía-Herzegovinu hafa sam-
þykkt í grundvallaratriðum að
mynda nýtt bandalag fullvalda ríkja
efMesicyrðiekkiforseti. Reuter
PANASONIC NV-MS70
FULLKOMIN S-VHS STERIO
VIDEOUPPTÖKU VÉL
ItQiSÖÖ-
SUMAR
VIÐ BYRJUDUM í MORGUN MED
SUMARTILBOÐ SEM ENGINN ÆTTI
AD LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA.
HÉR AD NEDAN ERU SÝNISHORN AF
VIDEOVÉLUM SEM VID BJÓDUM UPPÁ Á
FRÁBÆRU TILBOÐSVERDI.
SONY CCD-F350
8mm VIDEOUPPTÖKUVEL
EINFÖLD OG ÞÆGILEG í
NOTKUN
73,
59.980.
PANASONIC NV-MC20
VHS VIDEOTÖKUVÉL MEÐ
TÖSKU
'Wm
69m9
Cio
PANASONIC NV-S1
SNILLDARLEGA HÖNNUÐ
VIDEOUPPTÖKUVÉL MEÐ
INNBYGGÐUM
TITRINGSJAFNARA
gmsúúm-
84.800.
,GEISLADISKAR
FRÁ KR.590.
JAPISS
BRAUTARHOLTI 2, OG KRINGLUNNI SIMI 625200