Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Qupperneq 10
í>j8iÐtíúbÁ&íÍR 'íi.' Mf iöði.
ro
Útlönd dv
Innbrotið í Watergate, sem
leiddi til þess að Ríchard Nixon
sagði af sér forsetaembætti í
Bandaríkjunum á sínum tíma,
var undirbúið af helsta ráðgjafa
Hvíta hússins, John Dean.
Þetta kemur fram i nýúkominni
bók sem ber heitiö „Hljóðlátur
snilldarleikur", ■ en höfundar
hennar iullyrða að þeir haii leyst
hið dularfulla Watergate-mál.
{ bókinni er Dean sagður hafa
skipulagt innbrotið í höfuðstöðv-
ar Demókrataílokksins í þeim til-
gangi að reyna að íinna sönnun-
argögn sem tengdu háttsetta
demókrata við ákveðinn vændis-
hring.
Þar er einnig fullyrt að starfs-
mannastjóri Níxons, Alexander
Haig, haíi veriö sá aðihnn sem
„lak“ upplýsingum í dagblaðið
The New York Post, en það voru
blaðamenn þess sem komu upp
málinu á sínum tíma.
Talsmaöur Haigs segir bókina
vera þvætting frá upphafi til enda
og John Dean, sem nú er virtur
viðskiptamaður í Kalifomíu, hef-
ur einnig alfarið neitað því aö
hafa átt nokkurn þátt í innbrot-
inu.
Fyrsta upplag bókarinnar hefur
verið gefiðút í þrjú hundruð þús-
und eintökum, sem bendir til þess
að útgefendur hennar telji aö hun
rauni ijúka út og jafnvel komast
á lista yfir mest seldu bækumar.
Rfui+tir
tunguna til
aðforðast
illdeilur
Rúmlega tvuugur kínverskur
bóndi tók til þess bragðs að khppa
úr sér tunguna þegar þess var
kraíist af honum að hann tæki
málstað annars aðhans í rifrildi
eiginkonu hans og foöur.
I stað þess að blanda sér í deil-
una og taka afstöðu tók Cao
Hyngxi sér næstu skæri í hönd
og klippti af sér tunguna því hann
vissi ekki með hvorum aðilanum
hann átti að standa.
Rjölskylda hans og vinir vöfðu
tunguna í skyndi í kálblað og
fluttu Cao á næsta spítala, en allt
kom fyrir ekki, samkvæmt heim-
ildum dagblaðsins á staðnum
tókst læknunum ekki að bæta
skaöann.
Reuter
íbúar Sovétríkj-
anna fá ferðafrelsi
Sovéska þingið samþykkti í gær ný
lög um ferðafrelsi landsmanna sem
gefur flestum þeirra leyfi til að
ferðast til annarra landa. Lögin
taka þó ekki gildi fyrr en í janúar
1993.
Hingað til hafa íbúar í Sovétríkjun-
um ekki mátt fara úr landi nema
með sérstöku leyfi, en samkvæmt
þessum lögum fá þeir allir ný vega-
bréf og geta ferðast út fyrir landið
eins og þeir vilja.
Bandaríkjamenn segjast fagna
þessari ákvörðun og íhuga að veita
Sovétríkjunum svokalla MFN við-
skiptastöðu gagnvart Bandaríkjun-
um sem setur þau í forgangshóp yfir
viðskiptaaðila Bandaríkjanna.
„Við ætlum þó að bíða og sjá hvern-
ig þessum nýju lögum reiðir af því
enn eiga þau eftir að yfirstíga annaö
þrep í dómskerfi Sovétríkjanna,"
sagði Marlin Fitzwater, talsmaður
Hvíta hússins.
Fitzwater sagðist ekki vita hvort
einhver skilyrði fylgdu þessum nýju
lögum eða hvort þeim fylgdu önnur
Eftir að sovéska þingiö samþykkti að veita Sovétmönnum ferðafrelsi íhugar
Bandaríkjastjórn að setja Sovétríkin í forgangshóp viðskiptaaðila sinna.
Símamynd Reuter
vandamál og fyrr en það er komið á af hálfu Bandaríkjastjórnar.
hreint verður engin ákvörðun tekin Reuter
Forsetakosningar í Rússlandi:
Reynt að breyta tillögu
um kosningareglur
Fulltrúaþingiö í Rússlandi kom
saman í Moskvu í gær til að setja
reglur um fyrstu beinu forsetakosn-
ingarnar í landinu 12. júní næstkom-
andi. Er þetta í annað skipti á stutt-
um tíma sem fulltrúarnir eru kahað-
ir til sérstaks þings.
í marslok komu fuhtrúarnir saman
samtímis því sem tugþúsundir her-
manna voru sendar til Moskvu til að
koma í veg fyrir göngu stuðnings-
manna Boris Jeltsin, forseta rússn-
eska þingsins. Þá komu fulltrúarnir
saman að kröfu harðlínumanna inn-
an rússneska kommúnistaflokksins
sem reyndu að bola Jeltsin.frá. En í
staðinn ákvað fulltrúaþingið aö láta
fara fram forsetakosningar eins og
Jeltsin hefur óskaö eftir.
Helsti keppinautur hans er fyrrum
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
Nikolai Ryzhkov, sem rússneski
kommúnistaflokkurinn hefur opin-
berlega lýst yfir stuðningi við.
í framboði eru einnig fyrrum inn-
anríkisráðherra SovétrUcjanna, Vad-
im Bakatin, og herforinginn Albert
Makatsjov. Þeir njóta báöir talsverðs
stuðnings og veikir það stöðu Ryzh-
kovs.
Ef breytingartillaga kommúnista um kosningareglur verður samþykkt mun
Jeltsin veitast örðugra að ná kjöri sem forseti Rússlands i fyrstu umferð.
Jeltsin er hér ásamt einum leiðtoga rússneska repúblikanaflokksins, Vladim-
ir Leesienko.
Kommúnistar vilja breyta tillögum
um kosningareglur sem gera ráð fyr-
ir að sá frambjóðendanna sem hlýtur
50 prósent greiddra atkvæða verði
forseti Rússlands. Vilja kommúnist-
Simamynd Reuter
ar aö úrslit Uggi ekki fyrir fyrr en
einhver frambjóðenda hefur hlotið
50 prósent allra atkvæða. Þaö myndi
torvelda Jeltsin að ná kjöri í fyrstu
umferð. tt
Færeyingar
mótmæla
afhendingu
nanania
Heimastjórnin í Færeyjum hef-
ur borið fram mótmæli vegna
samkomulags milU Danmerkur
og Noregs um aíhendingu sögu-
legraskjala. Samkomulagið verð-
ur undirritað í Osló í dag. Fær-
eysk yfirvöld gera tilkall til nokk-
urra þeirra skjala sem Danir æfia
nú að aíhenda Norðmönnum.
í samkomulaginu milli Dan-
merkur og Noregs, sem náðist i
fyrravor, er kveðið á um afhend-
ingu sex þúsund skjala frá árun-
um 1380 til 1814: þegar Noregur
var hluti af danska konungsrík-
inu.
Menningarmálaráðherra Dæi-
merkur,: Grethe Rostböll, segir
Færeyinga ekki þurfa aö hafa
áhyggjur. Um sé að ræða formlegt
samkomulag og ekki hafi verið
tekin ákvörðun um hvert einasta
skjal. Ráðherrann tekur það
eimúg fram að öll handrit, sem
flutt verði til Noregs, veröi áfram
dönsk eign og að Danir hafi áfram
umráðarétt yfir þeim. Ritzau
Kúvæskur
lögmaður
gagnrýnir
réttarhöld
Kúvæskm* verjandi kvaðst í
morgun myndu draga sig úr rétt-
arhöldunum yfir tuttugu mönn-
um, flestum Palestinumönnum,
ef sannanir gegn þeim yrðu ekki
endurskoðaðar. Yfir tuttugu
manns koma fyrir rétt í dag fyrir
að hafa tekið þátt í útgáfu frétta-
blaðs, hliðholls írak, eftir að Irak-
ar réðust inn í Kúvæt.
Að sögn verjandans misþyrmdi
lögregla og her nokkrum þeirra
sem kveðinn var upp dómur yfir
á sunnudaginn og þvingaði þann-
ig fram játningar. Það væri ólög-
legt. Fjórir írakar hlutu 15 ára
fangelsisdóm á sunnudaginn.
Verjandinn kvaðst vera þeirrar
skoðunar að yfirheyrslurnar
væru eins réttlátar og mögulegt
væri samkvæmt heriögum en
ekki væri hægt að byggja sannan-
ir á þeim yfirlýsingum sem lög-
reglu og her væru gefnar.
Ymis mannréttindasamtök og
sum Vesturlönd hafa sakaö kúv-
æsk yftrvöld um ofsóknir gegn
Palestínumönnum eftir að banda-
menn frelsuðu Kúvæt. Bush
Bandarikjaforseti hvatti í gær
kúvæsk yfirvöld til að sýna mis-
kunn þrátt fyrir biturleika vegna
innrásar fraka.
Reuter
ADEGISVEISLAN
Þríréttaður nádegisverður með forrétti og eftirrétti
Qlokkfiskur að hætti Gullna Hanans
með rúgbrauði og smjöri kr. 890,-
[Blandaður salatdiskur með túnfiski
og suðrænum ávöxtum kr. 920,-
lÍliÚDristaður skötuselur „Orly"
með tartarsósu kr. 1090,-
Qryddsteiktir grísastrimlar
í tómat-baconsósu kr. 1120,-
frá krónum 890,-
Forréttur að eigin vali (innifalið)
Súpa dagsins
Fylltir tómatar „Provenscale"
Graflaxatoppur á grænum bala
Jurtakrydduð svartfuglsbringa
Eftirréttur að eigin vali (innifalið)
Blandaður ostadiskur
Vanilluís með ferskju
kr. 1120,- Laugavegur 178, við hliðina á Ríkissjónvarpinu, s. 34780