Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 18
Menning
ÞRftftflMGlimWMÁHMlR'I
PI
18
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
MAGNÚSmS. BLÖNDAHLH/F
S. 12358. 13358, FAX 25044
AÐ GEFT1U TILEFNI
•n
Cöte
SÆLQÆTI
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ
STÓRSENDING!
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Lögmanns- & fasteignastofa
REYKJA VÍKUR
Skipholti 50C, sími 678844
Fasteign er
okkar fag
Einbýli - raðhús
Hentugt fyrir hestamenn
í nágrenni Reykjavíkur
Ca 200 m'2 mjög sérstakt einb. ásamt ca
150 m2 útihúsi. Ca einn hektari lands.
Stórkostl. útsýni. Hentar vel fyrir hesta-
menn.
Laugarás
Stórglœsii. ca 290 m2 parhús meft
innb. bíkkúr. Húsið cr alit hid
vandaftasta: sérsmíðaðar innr., 4
svefnherb., biómaskáli, arinn í
stofu. Ákv. sala. Ath., eignaskipti
koma til greina.
Grafarvogur
Neðri hæð er 140 m2 ásamt bílsk. Aíh.
fullb. að utan, fokh. að innan.
Mosfellsbær Einbýli, ca 180 m2, á
einni hæð. Aíh. tiib. u. tréverk og fullb.
utan. Frábær staðsetn.
Keflavík Stórglæsilegt einbýii, ca
190 m2 með bíiskúr. Húsið er á einni
hæð.
Vesturfold Ca. 180 m2 einbýli á
einni hæð. Ath. Fullbúið að utari, fok-
helt að innan.
!ja- 5 herb.
Álftamyri Stórgóð, 3 herbergja
íbúð á 2. hæð. íbúðin er öll endumýjuð.
Hagst. áhv. lán. Ákv. sala.
Austurströnd 3 herb. íbúð ásamt
bílskýli. Ákveðin sala.
Rauðilækur Rauðilækur, ca 85 m2
íbúð. Góð jarðhæð, 2 gcð svefnh.t ser-
inng. Ákv. sala eða skipti á eign í sama
hverfi.
Bugöulækur Snotur kjallar-
aíbúð í góðu umhverfi, hentug óhv.
lón. Ákv. sala.
Ljósheimar 3 herb. íbúð í lyftu-
blokk. Mikið útsýni. Skipti á stærri
eign eða bein sala.
Suðurgata, Hf. Stórgl. 4ra
herb. íb. í 4-býlishúsi ósamt stórum
bílskúr. Afh. fiillb. en íb. tilb. il
tréverk. Ath., til afh. strax.
Stelkshólar 4ra herb. íb. ásamt
bílsk. Ib. í prýðisástandi.
Háaleiti Ca 110 m2 endaíb. í
blokk. Gott útsýni. Suðursv.
Breiðholt Ca 110 m2 stórgóð íb., 3
svefnherb. Góðar suðursv. íb. er öll
parketlögð. Ákv. sala.
Rekagrandi Stórgóð íb. á 2
hícðum, gott útsýni. Bílskýli.
Eignaskipti koma tii greina á góðu
einbhúsi á Álítanesi/Seltjnesi.
Miðbær Ágæt 60 m2 íb. á 2. hæð á
besta stað í bænum. Áhv. 2 millj. Verð
4,4 millj.
Hraunstígur - Hf. Góð 3ja
herb. risíb. á góðum stað í Hafnar-
firði. Áhv. veðdeild 1 millj. Verð 5
millj.
Engihj alli Ca. 80 m2 stórgl. 3ja herb.
íbúð, öll endumýjuð. Ákv. sala.
Bræðraborgarstígur 3ja herb.
mjög góð kjíb. Laus fljótlega.
Laugarnes 2ja herb. kjíb. í rólegu
og góðu umhverfi.
Krummahólar 3ja herb. íb. með
góðu útsýni, bílskýli. Laus fljótlega.
Álfholt Ca 120 m2 íbúð á 1. hæð.
Afh. tilb. u. tréverk, sameign frágengin.
Áhv. nýtt V.D., ca 4,9 m.
Kópavogur Ca 90 m2 íbúð í sambýl-
ishúsi. Parket, bílskúr.
Grænatún, Kópavogi 3-4
herb. risíbúö í tvíbýli. Smekkleg
eign. Verð 5,6 m.
Annað
Söluturn - myndbanda-
leiga Mjög góð myndbandaleiga
vel staösett í bænum.
Sumarbústaðaland í Vatnaskógi (Eyrar-
skógi).
Sjávarlóðir undir einbýli í nágrenni
Reykjavíkur. Ýmsar eignir í Hvera-
gerði.
Vantar fyrirtæki og eignir á söluskrá.
Ólafur örn, Páll Þórðars., Friðgerður Friðriksd. og Sigurberg Guðjónss. hdl.
RúRek ’91:
Fimmtíu uppákomur
á einni viku
Aðstandendur RúRek ’91 fyrir aftan merki hátíðarinnar, talið frá vinstri:
Guðmundur Emilsson, Árni Scheving, Vernharður Linnet, Pétur Grétars-
son, framkvæmdastjóri hátiðarinnar, Sigurður Flosason og Friðrik Theó-
dórsson.
Þaö verður mikiö um að vera fyrir
unnendur sveiflunnar í Reykjavík í
næstu viku en þá hefst djasshátíöin
RúRek ’91 með þátttöku fjölda er-
lendra og innlendra hljóöfæraleik-
ara. Fyrir um þaö bil níu mánuðum
komu fulltrúar frá djassdeild F.Í.H.
að máli viö tónlistarstjóra RÚV og
skýröu frá hugmyndum sínum um
aö halda djasshátíð á vegum þessara
aðila vorið ’91. Fljótlega varð ljóst að
um stórvirki yrði að ræða ef hátíðin
mætti vera eins og þessum aðilum
fannst sæma og var ákveðið að
kynna hugmyndina fyrir fulltrúum
frá Reykjavíkurborg sem þegar tóku
málaleituninni vel og varð úr að
Reykjavík gerðist aðili að hátíöinni
með myndarlegum styrk sem gerir
það að verkum að hátíðin getur verið
með þeim glæsibrag sem vonast
hafði verið til.
Að sögn forsvarsmanna hátíðar-
innar er tilgangurinn aö kynna sem
flestar tegundir djasstónlistar og
vekja athygli á djassi sem listformi
og hluta af menningu þjóðarinnar.
Auk þess er stefnt aö því að bæta
afkomu djassleikara með samstilltri
kynningarherferð.
Hátiðin fer fram innandyra sem
utandyra og verða um það bil fimm-
tíu uppákomur í eina viku víðsvegar
um bæinn frá og með næsta sunnu-
degi. Öll kvöld verður boðið upp á
lifandi tónlist á fimm veitingahúsum,
Djúpinu, Duus húsi, Kringlukránni,
Púlsinum og Tveimur vinum. Auk
þess verða tónleikar á Hótel Borg
flesta hátíðardagana bæði að kvöldi
til og yfir kvöldverði. Þá er ógetiö
þáttar Ríkisútvarpsins en útvarpað
veröur á hverjum degi frá hátíöinni
svo aö landsmenn sem ekki komast
til Reykjavíkur eiga þess kost að
heyra snilhngana leysa úr læðingi
ævintýralega tóna djassins. Guö-
mundur Emilsson, tónlistarstjóri út-
varpsins, sagði að ráðgert væri að
dreifa upptökum frá hátíðinni á út-
varpsstöðvar út um allan heim.
Frábærir norrænir
djassieikarar
Erlendu gestirnir eru allir frá
Norðurlöndum, enda hátíðin styrkt
af Nordjazz og í anda þeirrar sam-
vinnu er lögð áherla á að listamenn
frá hverju landi leggi saman krafta
sína. Erlendir hstamenn koma frá
öllum Norðurlöndunum og eru þeir
alls fimmtán. Má þar nefna New
Jungle Trio frá Danmörku sem er
eins konar útibú stærri frumskógar-
hljómsveitar þar í landi. Þeir halda
tónleika á Hótel Borg 29. maí. Auk
þess ætlar forsprakki sveitarinnar,
Pierre Dörge, að æfa samnorræna
fjórtán manna sveit sem mun leika
á lokatónleikum RúRek í Borgarleik-
húsinu 2. júní.
Aðrir sem heiðra okkur með komu
sinni eru Karin Krog sem er ein virt-
asta djassöngkona Norðurlanda og
er af mörgum talin ein sú besta í
heiminum. Mun hún koma fram með
samnorrænu sveitinni á lokatónleik-
unum og mun Per Husby stjórna
sveitinni í lögum sem hún syngur.
Þau munu einnig koma fram á tón-
leikum á Hótel Borg 30. maí. Bent
Jærdig er danskur tenórsaxófónleik-
ari sem hefur um árabil veriö í
fremstu línu danskra djassleikara,
sænski trompetleikarinn Ulf Adaker
mun koma hingað í annaö skiptið á
stuttum tíma og finnski klarinett-
leikarinn Pentti Lassanen kemur
ásamt tveimur félögum sínum og
munu þeir leika með innlendum
djassleikurum. Þá má nefna fær-
eysku fusion hljómsveitina Plúmm
sem hefur undanfarin ár verið full-
trúi Færeyinga víða á Norðurlönd-
um. Má geta þess að þrír félagar
hennar stunda nú nám við djassdeild
F.Í.H.
Útitónleikar á
hverjum degi
Allir helstu djassieikarar okkar
munu leika á hátíðinni og sagði Pétur
Grétarsson, framkvæmdastjóri Rú-
Rek ’91, að það væri háttur íslenskra
djassleikara aö leika í fleiri en einni
hlljómsveit en tekist hefði að raða
niður dagskránni á þann veg að sami
maður væri ekki að leika á tveimur
stöðum í einu. Auk reykvískra djass-
leikara má nefna að utan af landi
munu koma kunnir menn eins og
Árni ísleifsson og Viðar Alfreðsson,
kunnir djassleikarar sem leikið hafa
í mörg ár.
Það er óhætt aö segja að það verður
sveiflan sem ræður ríkjum í borginni
í næstu viku. Djass mun verða leik-
inn víða um borg, allt frá því klukkan
fjögur um daginn fram yfir mið-
nætti. Það verður ekki bara leikinn
djass innandyra heldur eru ráögerðir
útihljómleikar víðs vegar um bæinn
á hverjum degi. Þeir eru þó þeim
takmörkunum háðir aö veður get-
ur ráðið hvort af þeim verður eða
ekki. X
Nú er sem sagt kominn tími fyrir
alla djassáhugamenn að skipuleggja
næstu viku því fjölbreytni er mikil
og gæðin eftir því og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
-HK
Tröllaborg gefin
Listasaf ni Islands
Tröllaborg eftir Svavar Guðnason. Á myndinni eru ekkjur Stefáns Hilmars-
sonar og Magnúsar Jónssonar, Sigriður Thors og Ingibjörg Magnúsdóttir,
og ekkja listamannsins, Ásta Eiriksdóttir.
Bera Nordal, forstöðumaöur Lista-
safns íslands, veitti í síðustu viku
viötöku gjöf frá Búnaðarbanka ís-
lands. Var þaö málverkið Tröllaborg
eftir Svavar Guðnason. Svavar mál-
aði verk þetta í Kaupmannahöfn áriö
1944 og er það málaö á fijóasta tíma-
bili í listsköpun málarans. Málverkið
er gefið í minningu tveggja látinna
bankastjóra Búnaðarbankans, Stef-
áns Hilmarssonar og Magnúsar
Jónssonar.
Ekkjur bankastjóranna, Sigríður
Thors, ekkja Stefáns, og Ingibjörg
Magnúsdóttir, ekkja Magnúsar, voru
viðstaddar afhendinguna ásamt
ekkju Svavars Guönasonar, Ástu Ei-
ríksdóttur.
Bera Nordal þakkaði gjöfina og
sagði hana ómetanlega viðbót viö
þau verk er safnið ætti fyrir eftir
Svavar Guðnason. -HK