Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1991.
19
Sviðsljós
Ebbe Rode og
Bodil Kjær
í heimsókn
Fyrir stuttu voru hér á ferö hinir
þekktu dönsku leikarar, Ebbe Rode
og Bodil Kjær, en þau teljast bæði
meðal fremstu leikara í Danmörku
og allir sem eitthvað þekkja til
danskrar leikhstar þekkja til þeirra.
Þau sýndu í Borgarleikhúsinu nýlegt
bandarískt leikrit, Loveletters, eða
Kærestebrev eins og það nefnist á
dönsku. Tvær sýningar voru á leik-
ritinu og voru báðar vel sóttar og
luku allir lofsorði á leik þeirra beggja
en þau hafa leikið þetta leikrit í tvö
ár í Danmörku.
Kvikmyndaunnendur ættu einnig
að kannast við Kjær og Rode, en þau
hafa leikið í fjölmörgum kvikmynd-
um og nú síðast voru þau bæði í
Gestaboð Babette.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, var á fyrri sýningunni og leit
til þeirra eftir sýningu og var þessi
mynd tekin við það tækifæri.
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, heilsar upp á Bodil Kjær og Ebbe
Rode. DV-mynd GVA
Michael Landpn
berst nú fyrir
lífi sínu
Leikarinn góðkunni Michael Lan-
don, sem lék m.a. föðurinn í mynda-
flokknum Húsinu á sléttunni, hefur
greinst með krabbamein í brisi sem
hefur breiðst út í lifrina. Bandaríska
krabbameinsfélagið segir að aðeins
um 1% sjúklinga sem greinst hafa
með slíkt krabbamein hafi lifað í
meira en fimm ár.
Michael Landon, sem nú er fimm-
tíu og fjögurra ára, er nú í lyfjameð-
ferð á sjúkrahúsi í New York. Lækn-
ar hans eru að reyna nýja lyfjameð-
ferð sem hefur ekki verið reynd áður
á þessa tegund krabbameins. Þó að
Landon sé fyrsti sjúklingurinn með
þessa tegund af krabbameini sem fær
sUka meðferð hafa margir aðrir
sjúklingar með aðrar tegundir af
krabbameini fengið sUka lyfjameð-
ferð.
„Mér Uður ágætlega. Ég hef reynd-
ar lést töluvert því mér gengur illa
að vinna úr fæðunni en það eru einu
óþægindin sem ég hef fundið fyrir.
Ég reyni að nýta hverja mínútu því
nú fmnst mér hvert augnablik mikil-
vægt. Ég mun ekki gefast upp heldur
beijast og ég vona að mér takist að
sigra,“ sagði Landon á blaðamanna-
fundi sem hann hélt er hann kom til
New York til að fara í lyfjameðferð-
ina.
Michael á leið inn á spitalann til að
fara i lyfjameðferðina. Hann er
ákveðinn í að berjast við þennan
illvíga sjúkdóm og segist vera bjart-
sýnn á að sér takist að sigra að lok-
Kór eldri borgara í Mosfellsbæ.
Kóra-
mót
Laugardaginn 11. maí sl. var haldið
kóramót eldri borgara í Fella- og
Hólakirkju. Kórarnir komu frá
Reykjavík, Kópavogi, Mosfellsbæ,
Akranesi og Selfossi. Einnig komu
börn frá dagheimiUnu Hálsaborg og
sungu nokkur lög.
Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og var hvert sæti skipað. DV-myndir Hanna
VOLKSWAGEN hentugur fyrir
ALLAR STÆRÐIR
FYRIRTÆKJA
0 Sparneytinn
® Gangviss
© Þægilegur í notkun
(§§) Auðveldur í endursölu
AN VSK
SÉRBÚINN SENDIBÍLL
Stgrverð kr. 718.080
Vsk kr. 141.462
= kr. 576.618
Fjöldi fyrirtækja hefur valið
VW POLO ÁN VSK