Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Blaðsíða 21
^íÐJUÐ AGUfRj £1'- rMjýíljS^ll.
æ
Fréttir
Aðalfundur Kaupfélags Fáskrúðsfírðinga:
HAMMERITE er ryðbindandi lakk, sem
bindur fast og þurrt ryð og stöðvar
ryðmyndun. Það er sjálfgrunnandi
og fljótþornandi háglanslakk, borið á
án undanfarandi grunnmálunar.
HAMMERITE hefur mjög háan
yfirborðsstyrk, þ.e. höggþol, skrapþol,
hitaþol og veðrunarþol. Ýtarlegri upp-
lýsingar fást hjá söluaðilum og í bækl-
ingnum „Béint á ryðið“og einblöðungnum
„Nú má lakka yfirryðið“sem eru fáanlegir
hjá þeim.
HAMMERITE FÆST í MÁLNINGAR-
OG BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
HAMMERITE lakkið fæst
í fjölda lita. Skoðaðu litakort
hjá söluaðila.
Tugmilljóna
hagnaður
frystihússins
Gísli Jónatansson kaupfélagsstjóri
með viðurkenningarskjöldinn sem
Hraðtrystihús Fáskrúðsfjarðar fékk.
HUMA lÆAWIR Hm
Ægir Krisdnsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Aðalfundur Kaupfélags Fáskrúðs-
firðinga var haldinn í félagsheimil-
inu Skrúð laugardaginn 11. maí. í
ræðu Gísla Jónatanssonar kaupfé-
lagsstjóra kom fram að hagnaður
verslunar var 1,9 millj. króna og
hafði aukist um 2% frá fyrra ári.
Sláturfélag Suðurfjarða á Breið-
dalsvík tók að sér slátrun búijár fyr-
ir kaupfélagið en sláturhús þess var
úrelt í árslok 1989. Stærsti innleggj-
andi landbúnaðarafurða voru Gests-
staðir. í öðru sæti Brimnes II.
Á fundinum kom fram að hagnaður
Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar var
67,5 millj. króna á sl. ári. Innlagður
bolíiskur var 5.993 tonn, hafði aukist
um 733 tonn frá ’89. Aflaverðmæti
togaranna Ljósafells og Hoffells var
332,2 milljónir 1990. Tap á saltfisk-
verkun varð 4,7 milljónir. Samtals
voru úthaldsdagar togaranna 450 á
árinu. Fjárfesting HFF 1990 var 180
millj. króna og munar þar mestu um
kaupin á Rósu h/f á Hvammstanga.
Gunnar Jónasson, sem hefur verið
í stjórn HFF og KFFB í rúma tvo
áratugi, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. í hans stað var Jens Pétur
Jensen, skrifstofustjóri félagsins,
kosinn eftir nokkurn barning. Hrað-
frystihús Fáskrúðsfjarðar fékk ný-
lega viðurkenningu frá Iceland Sea-
food fyrir tveggja punda fiskpakkn-
ingar. Annað frystihúsið á landinu
sem slíkt fékk, hitt er á Dalvík.
Kaupfélagsstjórinn, Gísli Jónatansson, flytur skýrslu sína á aóalfundinum.
DV-mynd Ægir
Búseti
á Akra-
nesi
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Búseti-Landssamband tók fyrir
stuttu yfir byggingu sex íbúða
sem Húnæðisnefnd Akraness
hafði með höndum í samvinnu
við Trésmiðjuna Akur í fjölbýlis-
húsi viö Lerkigrund. Samningar
þar að lútandi voru undirritaðir
nýverið.
Þar með hefur Búseti hafið inn-
reið sína á Akranes svo um mun-
ar. í haust var gerð tilraun til
þess að stofna Búsetafélag á
Akranesi en áhugi reyndist þá
ekki nægur. Til stendur að boöa
til annars fundar á næstunni til
þess að koma á formlegum félags-
skap hér á Skaga.