Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Qupperneq 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1991.
Fréttir
„Féllum algjörlega
fyrir þessu húsi“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þegar ekiö er inn í bæinn og eftir
aöalgötunni á Hvammstanga birt-
ist hús á vinstri hönd sem merkt
er „Hótel“. Það hús lætur ekki mik-
ið yfir sér, er ekki neitt „hótellegt"
ef svo má segja, en þegar inn er
komið er aðra sögu að segja.
Hótel Vertshúsi eða „Vertinum"
eins og hótelið er kallaö á Hvamms-
tanga stýra hjónin Birna Lárus-
dóttir og Gísli Jónsson. Það fer ekki
á milli mála að þau leggja rækt við
það sem þau eru að gera, innan-
dyra er hótelið ákaflega snyrtilegt
í hólf og gólf og það hefur greini-
lega ekkert verið til sparaö til að
gera allt sem huggulegast.
Komu frá Súgandafirði
„Ég er Gaílari en kynntist Birnu
í Reykjavík. Hún er reyndar fædd
á Hvammstanga en hafði veriö í 15
ár í Mosfellssveit. Eftir að við
kynntumst dró ég hana með mér
vestur á Súgandafjörð en þar rák-
um við bensínstöð og grillskála í
mörg ár,“ segir Gísli.
„Það var algjör tilviljum að við
keyptum hótehð hér á Hvamms-
tanga,“ segir Birna. „Við vorum í
heimsókn hjá systur minni sem á
heima hérna fyrir norðan þegar
það barst í tal að hótelið væri til
sölu. Það varö úr að við skoðuðum
húsið og við féllum algjörlega fyrir
- segja hjónin sem reka Hótel Vertshús á Hvammstanga
hafa hér eitthvað um að vera, héld-
um veislur, vorum með það sem
við köllum „fótaíjör", við höfum
fengiö hingað skemmtikrafta og
þetta hefur allt gengið upp. Við
ætlum að halda áfram á sömu
braut og bjóða upp á eitt og annað
í sumar fyrir gesti okkar.
Birna Lárusdóttir og Gisli Jonsson í veitingasal hótelsins sem tekur um 100 manns í sæti.
því.“ „Við vorum reyndar komin
að Staðarskála á leiðinni suður
þegar við ákváðum að snúa við og
kíkja á þetta og eftir það var ekki
aftur snúiö og við opnuðum hér 7.
desember á síðasta ári,“ bætti Gísli
við.
Gekk vel í vetur
„Svona rekstur þarf að byggja að
DV-mynd gk
verulegu leyti upp á heimamönn-
um og fólki hér í sveitunum, a.m.k.
yfir vetrartímann, og við getum
ekki sagt annað en að þetta hafi
gengið vel í vetur. Við reyndum að
Bjartsýn varðandi sumarið
„Við erum auðvitað bjartsýn á
sumarið fyrst veturinn gekk svona
vel,“ segja þau hjón. „Við höfum
reyndar sáralítið auglýst en höfum
þó reynt að koma okkur á fram-
færi á ýmsan hátt. Hér er eitt og
annað fyrir ferðafólk að gera og
skoða, hér er mjög góð sundlaug
og við-bjóðum öllum okkar hótel-
gestum í sund. Hér er mjög gott og
fallegt tjaldstæði „uppi í Hvammin-
um“. íþróttaaðstaða er góð héma
og þá verður það alltaf vinsælla hjá
fólki að stoppa hér á leið sinni og
aka síðan Vatnsneshringinn sem
er ákaílega falleg leið. Það er því
eitt og annað hægt að gera hér.“
Það vekur athygli hversu glæsi-
legt Þetta „sveitahótel“ er. Allt er
ákaflega snyrtilegt og öllu vel við
haldið, húsgögnin glæsilegri en
gerist og gengur og full ástæða til
að benda fólki á Hvammstanga og
Hótel Vertshús á „þeysireið" sinni
um V-Húnavatnssýslu.
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri Eysteinn Helgason, formaður bygg-
inganefndar Víkings, Hallur Hallsson, Davíð Oddsson, og Júlíus Hafstein,
formaður íþróttaráðs borgarinnar. DV-mynd GVA
Stórframkvæmdir Víkings 1 Fossvogi:
Samitingur upp á
175 millj. króna við
Reykjavíkurborg
Þeir Davíð Oddssoh borgarstjóri,
fyrir hönd Reykjavíkurborgar, og
Hallur Hallsson, formaður Knatt-
spymufélagsins Víkingur, undirrit-
uðu miðvikudaginn 8. maí samning
um byggingu íþrótta- og vallarhúss
við Stjörnugróf í Fossvogi.
Samkvæmt samkomulaginu greið-
ir Reykjavíkurborg 175 milljónir
króna á næstu fjórum ámm til þess-
ara framkvæmda og veröur íþrótta-
hús Víkings formlega tekið í notkun
2. nóvember næstkomandi.
Davíð Oddsson tók fyrstu skóflu-
stunguna að íþróttahúsi Víkings 2.
mars sl. Hagvirki sér um byggingu
hússins, sem mun rúma 1100 manns.
Nú er verið að ljúka við aö reisa út-
veggi þess. Hægt verður að skipta
íþróttasalnum í tvo minni.
Þá verður félagsaðstaða tekin í
notkun í vallarhúsi, svo og skrif-
stofu- og fundaherbergi og búnings-
klefar.
Bolungarvík:
Minnisvarði um merkishjón
Guðný, sem var fædd á Gilsbakka
í Dalasýslu, var m.a. ein af stofn-
endum kvenfélagsins í Bolungar-
vík.
Pétur setti á fót verslun í Bolung-
arvík árið 1900 og varð fljótlega eft-
ir það helsti athafnamaður staðar-
ins. Hann var meðal annars í
hreppsnefnd til fjölda ára, sýslu-
nefndarmaður í 30 ár og hrepp-
stjóri og oddviti í áratug. Þá var
hann einn af stofnendum Spari-
sjóðs Bolungarvíkur 15. apríl 1908
og sparisjóðsstjóri fyrstu tvo ára-
tugina.
Minnisvarðinn var gefinn Bol-
ungarvíkurkaupsstaö til ævarandi
eignar og umsjár. Höfundur hsta-
verksins er Ríkey Ingimundardótt-
ir, myndhöggvari í Reykjavík.
reisa um þau hjónin Guðnýju
Bjarnadóttur (1861-1922) og Pétur
Oddsson (1862-1931) en þau voru
hér í fararbroddi um langa hríö á
nýrri öld framfara í Víkinni.
Sgurður Ægisson, DV, Bolungarvík:
Sumardaginn fyrsta var afhjúp-
aður hér minnisvarði sem Spari-
sjóður Bolungarvíkur hefur látið
Nokkrir afkomenda Péturs og Guðnýjar við afhjúpun minnisvarðans ásamt forráöamönnum sparisjóðsins.
DV-myndir SÆ