Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
LífsstíU
100 u,................—....................
Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl Maf
% 400- Vínber Verð í krónum
A
/ ,77
v/
100-
Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl Maí
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Velflestar teg-
undir hækka
- verð á tómötum og gúrkum hækkar mest
Neytendasíöan DV kannaði að
þessu sinni verð á grænmeti í eftir-
töldum verslunum: Bónusi,
Hafnaríirði, Fjaröarkaupi,
Hafnarfirði, Hagkaupi, Eiöistorgi,
Kjötstöðinni, Glæsibæ, og Mikla-
garði vestur í bæ.
Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti
í stykkjatali en hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
Til að fá samanburð þar á mili er
grænmeti í Bónusi vigtað og
umreiknað eftir meðalþyngd yfir í
kílóverð.
Meðalverö á tómötum hækkaöi
töluvert frá síðustu könnun, eða um
13%, og er nú 509 krónur kílóið.
Tómatar voru á lægsta verðinu í
Bónusi á 370 en síðan komu Hagkaup
og Fjarðarkaup með 495, Kjötstöðin
499 og Mikligarður 684 krónur. Mun-
ur á hæsta og lægsta verði á tómötum
er 85%.
Neytendur
Töluverð meðalverðshækkun varð
einnig á gúrkum milli vikna.
Hækkunin er 12 af hundraði og
meöalverðiö nú 185 krónur. Lægsta
verðið var í Bónusi, 119 krónur, en
síðan komu Hagkaup, 175, Fjarðar-
kaup, 178, Kjötstöðin, 198, og Mikli-
garður, 253 krónur. Munur á hæsta
og lægsta verði er 113%.
Meðalverð á sveppum stóð í stað
milli vikna og er það 567 krónur.
Sveppir voru ódýrastir í Bónusi á 459
krónur kílóið en á eftir fylgja Hag-
kaup, 544, Mikhgarður, 545, Fjarðar-
kaup, 590, og Kjötstöðin, 699 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði á
sveppum er 52 af hundraði.
Meðalverö á grænum vínberjum
hækkaði um 1 % milli vikna og er það
nú 277 krónur. Græn vínber voru á
hagstæðasta verðinu í Bónusi þar
sem kílóverðið var 125 krónur. Næst
komu Fjarðarkaup með 267, Hag-
kaup 299, Mikligarður 314 og
Kjötstöðin 379. Munur á hæsta og
lægsta verði á grænum vínberjum
eru heil 203%.
Hækkun um 7 af hundraði varð á
meðalverði á papriku og er það nú
509 krónur. Græn paprika var á
lægsta verðinu í Bónusi en þar er
kílóverðið 314 krónur. Græn paprika
kostar 480 krónur í Kjötstöðinni, 545
í Fjarðarkaupi og Hagkaupi og 659 í
Miklagarði. Munur á hæsta og lægsta
verði á grænni papriku er 110%.
Meðalverð á tómötum hækkaði um 13 af hundraði frá síðustu viku.
DV-mynd JAK
Fjögurra prósenta hækkun varð á
meðalverði á kartöflum frá í síðustu
viku og er það nú 76 krónur. Kartöfl-
ur voru ódýrastar í Bónusi á 58, þær
ksotuðu 75 í Hagkaupi, 75,50 í
Fjarðarkaupi, 82,50 í Miklagarði og
89 í Kjötstöðinni. Munur á hæsta og
lægsta verði er 53%.
Meðalverö á blómkáli lækkaði um
1 af hundraði milli vikna og það er
nú 184 krónur. Blómkál fæst ekki í
Bónusi en lægst er verðiö í Fjarðar-
kaupi, 140 krónur kílóiö. Næst kem-
ur verðið í Hagkaupi, 193,
Kjötstöðinni, 199, og Miklagarði, 202.
Munur á hæsta og lægsta verði á
blómkáh er 44 af hundraði.
Meðalverð á hvítkáli hækkaði lítið
eitt, eða um 2%, og er nú 109 krónur
kílóið. Hvítkál var á lægsta verðinu
í Bónusi, 75, næst kom Hagkaup, 99,
Fjarðarkaup, 115, Mikligarður, 119,
og Kjötstöðin, 138. Munur á hæsta
og lægsta verði á hvítkáh er 84%.
Sjö prósent hækkun varð á
meðalverði á gulrótum frá í síðustu
viku og er það nú 136 krónur kílóið.
Lægst er verðið í Bónusi þar sem
kílóið kostar 122 en næst kemur
Fjarðarkaup með 150, Mikligarður
152, Hagkaup 159 og Kjötstöðin 197
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði er 61 af hundraði.
ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Umhverfisvaenar bleiur
og salemispappír
í Bónusi eru umhverfisvænar
Babykini maxi bleiur, 26 stk., á til-
boðsverðinu 499 krónur og sömuleið-
is umverfisvænn salernispappír frá
Munksjös, 8 rúllur, á 166. Nóa orange
sælgætisbitar, 400 g, kosta 272 og htr-
inn af mjólk og léttmjólk er á 62 krón-
ur.
Fjarðarkaup var með á tilboðsverði
Sanitas appelsín, 1 'A 1, á 128, bæði
venjulegt og sykurlaust. Það var
einnig með tilboösverð á Napolina
vörum, pitsubotnum, pitsusósum og
pastasósum. Kínverskar matvörur
frá Lotus, Amoy og Lee Kum Kee eru
á sértilboði, sósur, sojur og niðursoð-
ið grænmeti.
í Hagkaupi, Eiðistorgi, var Pfanner
eplasafinn á góðu verði, 69 krónur
lítrinn, herðatré úr plasti, 3 saman,
kosta 99 krónur, lambaframhryggur
er á 469 krónur kílóið og drykkjar-
könnur úr leir á 89 krónur stykkið.
Mikligarður hafði meðal annars á
sértilboði Eghs Sinalco, l'A 1, á 115
krónur, Nopa þvottaduft, 3 kg, á 298,
svarta ruslapoka, 70x110 cm, 10 stk.,
á 179 og Maggi kartöflumús, 125 g, á
69 krónur.
Kjötstöðin er þátttakandi í íslensk-
um vordögum og þær vörur því á
tilboði þar. Þar má meðal annars
telja Skafís frá Emmess, 2 1, á 378
krónur, grihkjöt, 1 kg, á 979 krónur,
Diletto kaffí frá O’Johnson & Kaab-
er, 250 g, á 99 krónur og lúxussíld frá
Ora, 375 g, á 169 krónur.
ÍS
TÓMATAR
+13%