Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991. Útlönd ThatchertilMoskvu Fyrrum forsætisráöherra Bret- lands, Margaret Thatcher, kom til Moskvu í gær og mun hún meðal annars eiga viðræður við Mikhail Gorbatsjov Sovétforseta í dag. í Moskvu nýtur Thatcher sömu virðingar og væri hún ríkjandi þjóðarleiðtogi og er Gorbatsjov umhugað um að txjóta stuðnings hennar. Hann reynir nu að fá millj- arða dollara fjárhagsaðstoö hjá Vesturlöndum til aö geta haldið áfram umbótaáætlunum sínum. Thatcher mun einnig eiga viðræð- ur við Valentin Pavlov, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, og Dmitry Jazov vamarmálaráöherra. Þó svo að um einkaheimsókn sé isráðherra Bretlands, við komuna aö ræða dvelur Thatcher í breska til Moskvu I gaer. sendiráðinu í Moskvu. Símamynd Reuter EldgosíJapan Eldgos hófst í eldfjaliinu Unzen á Kyushueyju i Japan í gær og flúðu um þrjú þúsund og ftmm hundruð manns sem búa í grennd við fialliö. Greint hefur verið frá því að einn haft slasast í eldgosinu. í morgun var hraun úr eldfiallinu aðeins í nokkur hundruð metra fiarlægð frá úthverf- um Shimabaraborgarinnar. í nóvember siðastliðnum varð eldgos í þessu sama fialli en það hafði þá sofið i nær tvö hundruð ár. Mikið gos varð i fiallinu 1792 og létu þá fimmtán þúsund manns lífið. Geimfarartiljarðar Breska konan Helen Sharman kom til jaróar í gaer ásaml sovésku geim- iörunum Afanasyev og Manavov. Simamynd Reuter Sovéska geimskipið Soyuz TM-11 lenti í Kazakhstan í gær. Um borð voru bresk kona, sem er fyrsti Bretinn sem fer í geimferð, og tveir sovésk- ir geimfarar. Breska konan, Helen Sharman, var átta daga í geimnum um borð i sovésku geimstööinni Mir þar sem hún aðstoðaöi við visinda- rannsóknir. Með henni til jarðar komu geimfararnir Afanasyev og Manavov sem höfðu verið um borð í Mir-stöðinni í meir en ftmra mánuöi. Tveir aðrir sovéskir geimfarar tóku við rannsóknarstörfum þeirra fyrir viku og var það með þeim sem Sharman hélt út í geiminn. Skotinnísjálfsvörn Nítján ára grænlenskur unglingur var aðfaranótt laugardags skotinn í sjálfsvörn samkvæmt skipun lögreglu. Unglingurinn lést á leiðinni í sjúkrahús í Angmagssalik þar sem atburðurinn átti sér stað. Unglingurinn hafði gengið berserksgang á fóstudagskvöld og skotið í kringum sig með rifHi. Haföi hann hleypt af þrjátíu skotum og hitt tvo áður en hann var hæfður sjálfur. Unglingurinn hafði efnt til veislu á heimili fóður síns á fóstudagskvöld. Eftir rifrildi og slagsmál greip hann riffil og hótaði að drepa víðstadda. Varð undir skriðdreka Slóveni lét lífið á fóstudaginn er júgóslavneskir hermenn á skrið- dreka keyrðu inn í hóp mótmæl- enda í bænum Maribor, nálægt landamærum Austurríkis. Júgóslavneski herinn, sem er mótfallinn aðskiinaðaráætlunum Slóveniu, greip einnig á föstudag- iim háttsettan slóvenskan foringja í heimavamarliði. Honum var sleppt eftir að slóvensk yfirvöld höfðu tekið af rafmagnið til allra herstöða í iýðveldinu. dúgóslavneski herlnn kvaðst hafa handtekinn varðliðsforingj- ann þar sem hann bæri ábyrgð á handtöku tveggja júgóslávneskrá hermanna á fimmtudagmn. Leiðtogar Slóveníu hafa sagst ætla að lýsa yfir sjálfstæði lýðveld- isins í júni. Herinn vill áfram nú- verandi ríkjasamband. Reuter, Ritzau Vegfarendur við lík Slóvenans sem varð ursdir skriðdreka júgóslav- neska hersins á föstudagsins. Simamynd Reuter Björgunarmenn að störfum þar sem austurríska farþegaþotan af geröinni Boeing 767 fórst í Tælandi í gær- kvöldi. Myndin er tekin af sjónvarpsskjá. Simamynd Reuter Tæland: 223 fórust í flugslysi - sprengjan sögð ætluð annarri flugvél Maður, sem hringdi til flugvallar- ins í Vín í morgun, tilkynnti að sprengjan, sem grandaði austurrísku Boeing 767-300 flugvélinni yfir Tæ- landi í gærkvöldi, hefði átt að fara í aöra flugvél. Alls létu tvö hundruð tuttugu og þrír lífið í tilræðinu í gærkvöldi. Kappaksturshetjan Niki Lauda, sem stofnaöi flugfélagið sem átti þot- una, tjáði austurríska útvarpinu í morgun að maðurinn, sem kvaðst hringja frá Þýskalandi, hefði sagt að sprengjan heföi verið ætluð flugvél frá flugfélaginu United Airlines. Að sögn Lauda var flugtak farþega- þotunnar, sem var á leiðinni frá Hong Kong til Vínar með viðkomu í Bangkok, eðlilegt og hafði hún flogið í tuttugu og fimm mínútur og náð eðlilegri hæð. Hvorki flugmaðurinn né flugumferðarstjórn í Bangkok hefðu tilkynnt um að neitt væri að. Flugvélin fórst yfir Suphan Buri sem er í 160 kílómetra fiarlægð norðvest- ur af Bangkok. Að sögn sjónarvotta varö vélin að eldhnetti, síðan heyrð- ist sprenging og líktist vélin flugeldi er hún skall til jarðar í skóglendi. Farþegar um borð voru tvö hundr- uð og þrettán en flugliðar tíu. Áttatíu og átta farþegar komu um borð í véhna í Bangkok, þijátíu og átta Tælendingar, þrjátíu og fiórir Aust- urríkismenn, sjö Svisslendingar, fiórir Þjóðverjar, tveir Júgóslavar, Breti, Ungverji og Ástralíumaður. Margir Kínveijar voru um borð í vélinni auk Hong Kongbúa. Fjöldi barna var meðal farþega. Snemma í morgun höfðu björgun- armenn fundið á annað hundrað lík og voru þau nær öíl svo illa leikin að ekki hægt var hægt að þekkja þau. Björgunarstarf gekk erfiölega vegna þess að þúsundir manna þyrptust að slysstaðnum í leit að ein- hveiju verðmætu. Niki Lauda, sem hélt til Tælands í morgun, sagði að farþegaþotan hefði verið í notkun á átján mánuði. Sér- fræðingar frá Boeing-verksmiðjun- um eru einnig á leiðinni til Tælands. Reuter Svíþjóö: Nýi óánægjuflokkurinn þriðji stærsti f lokkurinn Nýi óánægjuflokkurinn í Svíþjóð, Nýtt lýðræði, er orðinn þriðji stærsti flokkur landsins samkvæmt niður- stöðum skoðanakönnunar sem birt var í gær. Nýtur flokkurinn fylgis 11,7 prósenta kjósenda og hefur auk- ið fylgi sitt um 2,6 prósent frá því í apríl. Mikill órói er nú innanbúðar í stóru flokkunum vegna þess mikla stuðnings sem forystumenn Nýs lýð- ræðis, skemmtigarðseigandinn Bert Karlsson og greifmn Ian Wachtme- ister, njóta. Hvorki Hægri flokkurinn, sem hlýtur 21,7 prósent atkvæða, né Þjóð- arflokkurinn, sem hlýtur 10,1 pró- sent, geta hugsað sér að vinna með nýja flokknum. Þeir tapa báðir fylgi samkvæmt skoðanakönnuninni en fylgi jafnaðarmanna eykst í fyrsta skipti í hálft ár. Er fylgi þeirra nú 30,2 prósent. Svo virðist sem Nýtt lýðræði hafi lokkað.til sín kjósendur úr öllum stóru flokkunum. Meðal verka- manna undir 29 ára aldri nýtur flokkurinn jafnmikils stuönings og jafnaðarmenn. Mikil breyting virðist vera á stuðn- ingi fólks miðað við síðustu kosning- ar. Aðeins annar hver kjósandi, sem kaus 1988, ætlar að kjósa sama flokk og þá. TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.