Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991. Udönd Suarezsegirafsér Albanía: Demókratar virtust ætla að tapa talsveröu fylgi í bæjar- og sveitar- stjómarkosningunum í gær á Spáni og sagði leiðtogi þeirra, Adolfo Suarez, af sér formennsku flokksins í kjölfariö. í kosningun- um 1987 fengu sósíalistar, flokkur Gonzales forsætisráðherra, 37,2 prósent og virðist allt benda til að þeir haldi því fylgi, íhaldsmenn, undir forystu Maria Aznar, juku fylgi sitt úr 20,3 pró- sentum í á milli 26 og 28 prósent. Bandalag vinstri manna jók einnig fylgi sitt úr 6,9 prósentum í 10 pró- sent. Spánar. Reiknlng Lurie Flytja kjamavopn frá Eystrasaltslöndum Sovétríkin hafa flutt hluta kjarnorkuvopna sinna frá Eystrasaltsríkjun- um. Sænski ráöuneytisstjórinn Pierre Schori kveðst hafa þetta eftír „áreiöanlegum" heimildum. Um er að ræða kjamorkuvopn sem eyða á samkvæmt afvopnunarsamningum. Sovésk yfirvöld haía nú kosiö aö flytja vopnin frá Eystrasaltslöndunum af ótta við aö þau verði notuð gegn þeim. Svipaðir vopnaflutningar em sagðir hafa átt sér staö í öðmm lýðveldum þar sem óróa gætir. Árásir hafa verið gerðar á kjamorkuvopnageymslur sums staðar í Sovétríkjunum þar sem róstur hafa átt sér stað. Fyrirskipar endalok blóðbaðs Zwelithini, konungur Zulumanna, og Buthulezi, leidtogi Inkathamanna, í Soweto í Suður-Afriku (gær. Slmamynd Reuter Konungur Zulumanna í Suður-Afríku, Zwelithiní, heíur fyrirskipaö mönnum sínum að binda enda á blóðug átök í blökkumannahverfum og vinna í staðinn að einingu meðal svartra. Zulumenn skipa sér aðallega í tvær fylkingar, þá sem styðja Inkatha hreyfinguna og þá sem fylgja Af- ríska þjóðarráöinu. Um átján hundrað manns hafa látiö lífið í úthverfum Jóhannesarborg- ar síöastliðna níu mánuði í átökum milli þessara fylkinga. Afríska þjóðar- ráðiö sakar stjórnvöld hvítra um að taka afstöðu með Inkathahreyfing- unni til að koma í veg fyrir að ráðið komist til valda. Koskotas framseldur Gríski bankamaðurinn George Koskotas, sem verður aðalvitnið í réttar- höldunum gegn Andreas Papandreou, fyrmm forsætisráðherra Grikk- lands, veröur framseldur frá Bandaríkjunum í þessari viku. Þangað flúði hann 1988. Papandreou og tveir ráðherra hans eru sakaðir ura að hafa þegið mút- ur ffá Koskotas sem átti Krítarbanka. Koskotas kvaðst hafa tekiö pen- inga úr eigin banka til að múta ráðherrum sósíalistastjórnarinnar gegn því aö þeir þegðu yfir ólöglegri starfsemi hans. Fuliyrðir Koskotas að hann hafi þurft að greiöa Papandreou sem svarar 42 miiljónum íslenskra króna. Papandreou neitar öúum sakargiftum. Uppstokkun í Suður-Kóreu Forseti S-Kóreu, Roh Tae-woo, skipti um fjóra ráðherra í gær í tii- raun sinni tO aö binda enda á stjórnmálákreppuna sem ríkt hef- uri landinu í mánuð. Daglegahefur verið efnt til mótmælaaðgerða í Suður-Kóreu og sjö manns hafa framið sjálfsmorð til aö mótmæla því að lögreglan barði til bana tví- tugan námsmann 26. apríl síðastl- iöihn. Mótmælendum hefur hins vegar ekki tekist að afla sér stuðnings miðstéttarinnar eins og 1987 þegar stjórnvöld neyddust til aö boða beinar kosningar. Nýi forsætisráðherrann í S- Kóreu, Chung Won-shik, hét þvi í morgun aö beiti sér fyrír eflingu lýðræðis og efnahagsumbótum en stjómarandstaðan hélt áfram mótmælum gegn útnefningu hans. Segjar stjómarandstæðingar að hann sé einn harðlínumaðurinn í viöbót. Reuter.TT Ung kona tét lifiö í óeiröum i Seo- Ul í S-Kóreu á laugardaginn. Simamynd Reuter Víðir Sigurðsson, DV, AJbaníu: Námuverkamenn í Valias námunni noröan við Tirana, höfuðborg Alban- íu, fóru í hungurverkfall á laugar- daginn og lokuðu sig niðri í námun- um. Þeir hafa hvorki neytt vatns né matar síðan og lýsa sig reiðubúna að svelta sig í hel eða jafnvel sprengja sjálfa sig og námurnar í loft upp ef ekki verður gengið að kröfum þeirra. Kröfurnar eru þær sömu og óháöu verkalýðsfélögin hafa sett fram og eru liður í baráttu þeirra til að koma stjóm Verkamannaflokksins frá völdum. Námuverkamennimir söfnuðust saman í íþróttahöllinni í Tirana á laugardagsmorguninn klukkan 11. Þar voru saman komin um tvö þús- und manns og eftir mótmæli gegn stjómvöldum var gengið fylktu Uði til námanna þar sem hungurverk- fallið hófst klukkan 12.30. Lögreglan í Tirana kom þegar á staðinn og lokaöi öllum aðgönguleið- unum. MikUl fjöldi fólks reyndi að komast niður í námumar og taka þátt í aðgerðunum en var meinaður aðgangur af lögreglunni. Seinnipart- inn í gær ákvað síðan lögreglan að hverfa af vettvangi en gekk áður frá samkomulagi við námuverkamenn- ina að fleirum yrði ekki hleypt niður í námurnar. Áætlað var í gærkvöldi að um hundrað manns væru þar niðri. „Það þýðir ekki fyrir lögregl- una að reyna að fara niður í námurn- ar. Hún kann ekki á tækjabúnaðinn þar og verkfaUsmenn hóta að sprengja sjálfa sig og námurnar í loft upp ef lögreglan gerir tilraun til að brjótast til inngöngu," sagði Cashku, varaformaður mannréttindasam- taka Albaníu, í samtali við DV í gær en hann hefur fylgst náið með að- gerðunum og var við námurnar í all- an gærdag. „Námuverkamennirnir eru tilbún- ir til að deyja fyrir málstaðinn og það er útilokað að segja fyrir um hvernig málin þróast næstu daga, það byggist Söfnun fer fram f Albaniu handa fjölskyldum verkfallsmanna. Sfmamynd Reuter aUt á viðbrögðum stjórnarinnar. Ástandið í landinu er orðið mjög al- varlegt og allt gæti gerst,“ segir Cas- hku. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að aðgerðir námuverkamannanna séu algjörlega ólöglegar. Verkfall verka- lýðsfélaganna er nú á tólfta degi og ekkert útUt virðist fyrir lausn þess í bráð. Mikil mótmæli gegn ríkis- stjórninni brutust út í borginni Kavaje á laugardaginn en hún er eitt af höfuðvígjum Lýðræðisflokksins í landinu. íslendingar sem fóru gegn- um borgina í gær sáu mikinn íjölda fóUcs á götum þar, flutningabOl lok- aði leiðinni á einum stað, múrsteinar á götunni báru vitni um aö götuvígi hefðu verið reist. Lögreglan beindi umferð framhjá bænum síðar á laug- ardaginn. Matarbirgðir í Albaníu fara minnkandi og farið er að skammta matinn. Starfsmaöur á hótelinu, þar sem blaöamaður DV hefur dvalist síðustu vikuna, sagði í gær að hann fengi einn lítra á mjólk á dag fyrir ellefu mánaða gamla dóttur sína og þeir sem ekki ættu börn fengju enga mjóUc lengur. Yfirvöld lýstu því yfir á laugardag- inn aö áhrif verkfaUsaðgerða á heU- brigðisþjónustuna hefðu haft í fór með sér dauðsfoU meðal barna. Námuverkamenn í hungurverkfalli Jarðarför Gandhis afstaðin: Kongressf lokkurinn velur sér bráðabirgðaforseta - leitin að morðingjanum heldur áfram Syrgjendur Rajivs Gandhi, fyrrum leiðtoga Kongressflokksins á Ind- landi, leggja í dag af stað frá Nýju Delhi í lokaferðina meö jarðneskar leifar þessa þekkta leiðtoga í þeim tUgangi að sökkva duftkerinu, sem hefur aö geyma ösku Gandhis, í heU- agt vatn. Það er trú Hindúa að ef ösku manna er sökkt þar sem hinar heil- ögu ár Ganges og Jamuna mæta hinni goðsagnakenndu Saraswati þá frelsist sál viðkomandi og för hans til næsta lífs geti hafist. Hin ítalska eiginkona Gandhis, Sonja, og böm þeirra tvö, Rahul og Priyanka, koma til með að vera með í þessari hinstu för leiötogans. Nú, þegar útséð er um að Sonja ætlar ekki að taka boði fulltrúa Kongresstlokksins um að taka við forystu hans að Gandhi látnum, hafa flokksmennimir komið sér saman um Narasimha Rao, fyrrum utanrík- isráðherra landsins; sem bráða- birgðaforseta flokksins. Rao, sem er sjötugur að aldri, varð fyrir vaUnu þar sem hvaö flestir gátu sætt sig við forystu hans og einnig vegna þess að hann vegur ekki þungt Sonja og Priyanka, eiginkona og dóttir Rajivs Gandhi, horfa hér á jaröneskar leifar Gandhis eftir að þeim hefur veriö komið fyrir í kopar- keri. Símamynd Reuter í póUtíkinni og því verður ekki of erfitt að setja hann af í hugsanlegri valdabaráttu eftir kosningamar. Fyrir dauða Gandhis var Kon- gressflokkurinn, sem stjórnaö hefur Indlandi frá því að landiö fékk sjálf- stæði árið 1947, ef frá eru talin fimm ár, taUnn nokkuð öruggur um aö fá mesta fylgið. Nú vilja flokksmenn hans því forðast valdabaráttu innan flokksins af ótta við að missa niður fylgið. Seinustu tveimur umferöum kosn- inganna var frestað tíl 12. og 15. júní eftir að hafa einungis staðið yfir einn dag, síðastliðinn mánudag. í borginni TamU Nadu í suðurhluta landsins leitar lögreglan nú að tveimur mönnum og konu sem talin eru hafa verið í vitorði með morð- ingja Gandhis. Konan, sem talin er hafa myrt Gandhi, hafði sprengiefni í sérstöku belti um mitti sér sem hún sprengdi í loft upp þegar hún beygði sig niður við fótagafl leiðtogans til að votta honum virðingu sína. Vitni segjast hafa séð þessa ákveðnu konu koma að kosninga- fundinum þar sem Gandhi ætlaði að halda ræöu í för með annarri konu og tveimur mönnum sem lögðu á flótta eftir morðið. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.