Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991. 19 Fréttir * Krókskran- inn f luttur I I I Þórhaflur Asmundssan, DV, Sauðárkróki: Það fór aldrei svo að gamli löndun- arkraninn á Sauðárkróki, sem skemmdist á síðasta hausti, komi ekki einhverjum að gagni. Nýlega keypti Fljótahreppur hann á 50 þús. krónur og fyrirhugað er að hann verði settur á bryggjuna í Haganes- vík, þegar viðgerð hefur farið fram. Kraninn kengbognaði þegar togari var að leggjast að bryggju og rakst utan í hann. Þar sem fyrir lá að öflugri krana þyrfti á Króknum til frambúðar var ekki talið borga sig að gera við þann gamla. Fyrirhugað er að taka kranann af hafnarbakkanum hér fyrir 1. júní, en Öm Þórarinsson, oddviti Fljóta- hrepps, vonast til að frestur fáist, eða þar til sauðburði lýkur. Trillukarlar í Haganesvík hafa til þessa þurft að beita ýmsum tilfær- ingum við að koma gráslepputunn- um og öðrum afla úr bátum og upp á bryggjuna. Það verður því væntan- lega önnur og betri löndunaraðstaða sem þeir fá áður en langt um líður. Frá fundinum i Valaskjálf. Frá vinstri: Emil Björnsson, Hans Taushe Olsen, Martin Olsen og Dinna Jensen. DV-mynd Sigrún Egilsstaðir: Vináttutengsl við Rúnavík í Færeyjum Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum: Góðir gestir frá Rúnavík í Færeyj- um vom í héimsókn á Egilsstöðum dagana 7.-10.maí. Það voru Hans Taushe Olsen, forseti bæjarstjórnar Rúnavíkur, Martin Olsen, formaður menningarmálanefndar, og Dinna Jensen bæjarstjóri sem hingað voru komin til að stofna til vináttutengsla milli bæjanna. Þegar Emil Björnsson, íþrótta- kennari og formaður Norræna fé- Rúnavík í vetur hreyíöi hann þessu máh sem frændur okkar þar tóku strax vel í og nú var þessum sam- skiptum komið á með heimsókn þeirra þriggja merkismanna frá Rúnavik. Gestirnir skoðuðu bæinn og fyrir- tæki. Einnig hittu þeir forsvarsmenn hinna ýmsu félagasamtaka á fundi í Valaskjálf og var þar lagður grunnur að frekari samvinnu og heimsóknum í framtíðinni. Rúnavík er á Austurey. í byggðar- laginu eru um 2500 íbúar. Frá Haganesvík - séð inn í Flókadalinn. DV-mynd Þórhallur Feróagetraun Skilafrestur 1. júní FARVÍS TÍMARIT FERÐAMANNSINS E S S E M M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.