Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 27. MAl 1991. 49 Waterboys, myndin er tekin á Hróarskelduhátiðinni 1986. Waterboys - The Best of the Waterboys ’81-’90 Tvískiptur ferill Ferill bresku hljómsveitarinnar Waterboys er óneit- anlega nokkuö sérstakur. Höfuðpaurinn, Mike Scott, kemur frá Skotlandi en stofnar hljómsveitina í London 1982. Þar starfaöi hún framan af en síðar barst leikur- inn til Dublin á írlandi og þar var hljómsveitin síðast þegar fréttist. Hún veröskuldar því fremur öðrum sveitum að kallast bresk hljómsveit. í upphafi ferilsins léku Waterboys tiltölulega hráa rokktónhst þar sem mikil áhersla var lögð á kraftmik- inn saxófónleik auk þess sem píanó var áberandi hljóð- færi í lögum sveitarinnar. Á þessum árum, var auk Mike Scotts, Karl nokkur Walhnger einn af máttar- stólpum Waterboys og segir mér hugur að hann hafi að mestu ráðið ferðinni hvað tónlistarstefnuna varð- ar. I það minnsta varð algjör kúvending í stíl og stefnu sveitarinnar þegar hann yfirgaf hana um mitt ár 1985. Þá kom th hðs viö Waterboys, Steve Wickham, mað- ur með rætur í aht annarri tónlistarmold en Karl Wahinger og hann fær hljómsveitina með sér til ír- lands þar sem þarlend þjóðlagatónhst setur mark sitt Hljómplötur Sigurður Þór Salvarsson á tónhst Waterboys og hefur gert æ síðan. Þessi merkilega kúvending á stíl hljómsveitarinnar veldur því að þessi plata, með því besta gegnum árin, er algjörlega tvískipt. Sex fyrstu lögin eru frá Wallin- ger tímabilinu ef svo má kalla það og hin sex síðari eru frá Wickham tímabhinu. Samt sem áður er Mike Scott aðallagasmiður hljómsveitarinnar öll árin og virðist geta samið lög í hvaða sth sem verða vhl. Og það sem er kannski enn meira virði: allt eru þetta mjög góð lög og þessi yfirlitsplata því eigulegasti grip- ur ein og sér fyrir utan að vera fyrirtaks heimild um sérstæðan feril Waterboys. Michael Bolton - Time Love & Tendemess Hittir aftur í mark Fáir söngvarar hafa slegið jafn glæsilega í gegn og Michael Bolton gerði með plötunni Soul Provider árið 1989. Af þeirri plötu tíndi hann hvert lagið á fætur öðru inn á vinsældalista um allan heim og eru þau síðustu nýlega horfin af hstum. En það kom svo sem ekki á óvart að Michael Bolton skyldi slá í gegn því annar eins fantasöngvari hefur Hljómplötiir Sigurður Þór Salvarsson ekki komið fram í bandarískum poppheimi í háa herr- ans tíð. Og þegar maðurinn er mjög frambærhegur lagasmiður í ofanálag verður vart hjá því komist að slá í gegn. Og nú sendir Michael Bolton frá sér aðra plötu og tæpast verður vegur hans minni viö það því hún gefur þeirri sem á undan fór ekkert eftir. Reyndar eru þær um margt mjög líkar; uppbygging þeirra er svipuð, tónlistin og útsetningar á svipuðum nótum, það eina sem skhur verulega að er nýr upptökustjóri. Sem fyrr semur Michael Bolton obbann af lögunum sjálfur en hann nýtur oftast einhverrar aðstoðar; th að mynda frá Diane Warren sem semur fleiri smelh árlega en flestir tónsmiðir gera á hehli ævi. Svo má geta þess að eitt lagið á þessari plötu semur Bolton í samvinnu við ekki ómerkari mann en Bob Dylan. Aðrir nafntogaðir gestir á plötunni eru saxófónleikar- inn Kenny G og söngkonan stórkostlega Patty LaBelle. Lögin eru eins og áður sagði í svipuðum dúr og á Soul Provider, svolítiö soul-kennd popplög, melódísk og grípandi og rétt eins og á Soul Provider flýtur eitt gamalt og gott lag með, þá var það Georgia on My Mind í stórkostlegum flutningi; hér er það When a Michael Bolton, vinsæll söngvari. Man Loves a Woman í álíka stórkostlegum flutningi. Og það eru einmitt rólegri lögin sem mér finnast hæfa rödd Boltons hvað best en þéttari lögin síður. Þar finnst mér bera á því að hann píni röddina of hátt á köflum og fyrir vikið hverfur þessi hási sjarmi sem er aðalsmerki hans númer eitt, tvö og þrjú. Fyrir mína parta hefði ég mikiö gaman af því að heyra Bolton syngja blús og hver veit nema að því komi einhvern- tíma. Menning Fagur f iðluleikur Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleik- ari héldu tónleika í íslensku óperunni á laugardag. Á efnisskránni var fjöldi smáverka eftir ýmsa höfunda en viðamesta verkið var Sónatína eftir Schubert í D dúr. Þrátt fyrir að píanóið væri með í öllum verkunum voru þetta fyrst og fremst fíðlutónleikar og verkin vahn með það fyrir augum að fiðlan fengi að njóta sín. Th er töluvert magn af slíkum smáverkum, mörg eftir fræga fiðluleikara, sem samin eru af miklu næmi fyrir sál fiðlunnar auk þess sem allir tæknilegir möguleikar eru hagnýttir til hins ýtrasta. Þessi tón- list er oft litrík, glæsheg og hrífandi í höndum fiðlusnillingsins, þótt ekki Tónlist Finnur Torfi Stefánsson þurfi hún að vera að sama skapi mikil á dýptina. Tónlistin á tónleikunum var vel valin út frá þessum sjónarmiðum en inn á milli var skotið efnis- ríkari verkum eins og fyrrgreindri sónatínu Schuberts sem er fuh af hinni afslöppuðu laglínusmíð sem þessum höfundi er svo eiginleg. Þá var flutt verk eftir Mozart með mjög sakleysislegu yfirbragði og undir nafninu Rondó, sem reyndist vera ólgandi af sköpunargleði. Ungverskur dans nr. 1 eftir Brahms er mjög snjöh tónsmíð þótt stutt sé. Það er ekki auðvelt hlutverk að kjósa sér að verða einleikari á fiðlu. Ekkert vestrænt hljóðfæri á sér eins langa sögu mikilla afreka og hefðin sem ungir fiðluleikarar taka við er jafnþung og hún er auðug. Það fer ekki fram hjá neinum að Sigrún Eövaldsdóttir hefur alla þá hæfileika sem þarf til stórra sigra í fiðluleik. Tóneyra hennar er frábært og þess utan hefur hún skapandi túlkunarhæfileika sem stöðugt gæöa flutning hennar lífi. Spurningin er frekar sú hvort hún hafi náð öllu því tæknhega valdi sem svo mikið er lagt upp úr nú th dags, enda þótt hún hafi náö langt á því sviði einnig, en þar er alltaf hægt að bæta sig með vinnu og aga. Þær stöllur virtust báðar vera í essinu sínu á þessum tónleikum. Efnið var greinilega vel undirbúið, samleikur mjög góður og flutningurinn í hehd músíkalskari en menn eiga að venjast. Svo var að heyra sem Sigrún væri komin með nýtt hljóðfæri, a.m.k. hljómaði fiðlan hennar mjög fal- lega. Fylgja henni bestu óskir um gott gengi í hinum í senn harða og ljúfa heimi fiöluleiksins. Húsnæði óskast Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhúsnæði ÍSAFIRÐI. á Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b. 150-200 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu. Tilboð, er greini stærð, byggingarár- og efni, fasteigna- og brunarbótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhend- ingartíma, óskast send eignadeild fjármálaráðuneytis- ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní 1991. Fjármálaráðuneytið, 24. maí 1991 * Borgarnes jf smm, Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vesturlandi leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Borgar- nesi. Um enað ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, af- hendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár- málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 10.júní 1991. Fjármálaráðuneytið, 24. maí 1991 Mosfellsbær - skipulag Flugvallarsvæði á Tungubökkum Tillaga að deiliskipulagi flugvallarsvæðis á Tungu- bökkum í Mosfellsbæ auglýsist hér með samkvæmt ákvæðum skipulagslaga og reglugerðar gr. 4.4. nr. 318/1985. Skipulagsuppdráttur verður til sýnis á skrifstofu Mosfellsbæjar, Hlégarði, kl. 8.00-15.30 alla virka daga frá 27. maí-1. júlí 1991. Athugasemdum og ábendingum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, innan ofangreinds kynningartíma. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.