Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Síða 9
MÁNUDAGUR 27. MAÍ1991.
9
Utlönd
Hálfblind eldri kona af gyðingaættum er hér borin út úr flugvélinni við kom-
una til ísraels. Um 18 þúsund gyðingar voru fluttir þangað frá Eþíópíu um
helgina þegar uppreisnarmennirnir fóru að nálgast höfuðborgina.
Símamynd Reuter
Vesturlandabúar flýja Eþíópíu:
Uppreisnar-
menn loka f lug-
vellinum
Þýsk þota lenti í Frankfurt í morg-
un með yflr tvö hundruð Þjóðverja
og aðra Vesturlandabúa frá Eþíópíu
þar sem uppreisnarmenn nálgast nú
óðum höfuðborgina.
Margir farþeganna sögðust hafa
tekið ákvörðun um að fara frá Addis
Ababa einungis nokkrum klukku-
stundum áður en vélin fór í loftið þar
sem bardagar urðu æ algengari og
sá orðrómur hafði komist á kreik að
uppreisnarmennirnir ætluðu að loka
flugvellinum.
í útvarpsávarpi í gærkvöldi vöruðu
uppreisnarmennirnir flugmenn við
því að reyna aö lenda á flugvellinum
eða fara þaðan í loftið þar sem hann
væri vel innan skotfæris þeirra.
Hundruð útlendinga hafa flogið frá
borginni undanfarna daga og enn
hafa ekki allir komist í burtu sem
vilja. Ehm þeirra sem flúðu sagði að
skortur væri á mat og að flóttamenn
væru því famir að flykkjast til höfuð-
borgarinnar.
Uppreisnarmennirnir eru nú inn-
an seilingar frá höfuðborginni. Flug-
her landsins er óvirkur eftir að upp-
reisnarmennirnir hertóku Debre
Zeit, stóra flugstöð um 50 kílómeta
suðaustur af höfuðborginni, og um-
kringdu þar með borgina.
Á innan við viku hefur bæði stjórn-
ar- og flugherinn verið gerður óvirk-
ur og stór hluti sjóhersins er flúinn
yfir Rauða hafið til Yemen.
Uppreisnarmennirnir neita vopna-
hléi en segjast þó ekki ætla að her-
taka borgina nema ef fyrirhugaðar
friðarviðræður mistakast. Þær eiga
að fara fram í London síðar í dag á
milli uppreisnarmanna og fyrrum
ríkisstjórnar landsins.
ísraelskur embættismaður segist
halda aö enn séu tugir þúsunda
svartra gyðinga eftir í Eþíópíu þrátt
fyrir að nú eigi flestir þeirra að vera
komnir til ísraels.
Um helgina voru a.m.k. átján þús-
und gyðingar fluttir frá Eþíópíu til
ísraels þar sem heimili þeirra verður
í framtíðinni.
Reuter
Kosningar í Georgíu:
Útlit fyrir sigur
Gamsakhurdia
- sex lýðveldi heQa samstarf um sjálfstæði
Samkvæmt fyrstu tölum forseta-
kosninganna í Georgíu, sem haldnar
voru í gær, verður hinn þjóðemis-
sinnaði leiðtogi, Zviad Gamsakhurd-
ia, mjög líklega næsti forseti lands-
ins.
Þessar fyrstu tölur koma frá öllum
landshlutum, en í sumum þeirra fékk
Gamsakhurdia 75 til 85% allra at-
kvæðanna.
Ef hann nær kjöri verður þessi 52
ára gamh fyrrum póhtíski fangi
fyrsti forseti lýðveldisins sem kjör-
inn er í lýðræðislegum kosningum.
Hann hefur alltaf notið mikillar hylli
almennings í landinu.
í kosningabaráttunni sökuðu mót-
heijar hans hann um að vera einræð-
isherra en hann hefur leitt ríkis-
stjóm lýðveldisins síðan hreyflng,
sem hann var í forystu fyrir, hrakti
kommúnista frá völdum í kosning-
unum í október síðastiiðnum.
Alla tíð síðan hefur Gamsakhurdia
sóst eftir sjálfstæði Georgíu frá mið-
stjóm Sovétríkjanna.
Þjóöemishópar í sex Sovétlýðveld-
um, í Georgíu, Armeníu, Moldavíu,
Eistlandi, Lettlandi og Litháen, til-
kynntu í gær að þeir heföu komist
að samkomulagi um að starfa saman
í baráttu sinni fyrir sjálfstæði land-
anna.
Sameiginlegt nafn þeirra verður
hér eftir Kishinyov-hópurinn, nefnd-
ur eftir höfuðborg Moldavíu þar sem
hópurinn kom saman um helgina.
Lýðveldin sex neituðu í síðasta
mánuði að ganga í Uð meö níu öðmm
lýðveldum Sovétríkjanna sem sam-
þykktu að fallast á svokaUaðan sam-
bandssamning. Samningurinn, sem
skýrir út hvernig vald skuli skiptast
á milU sovésku lýðveldanna og mið-
stjórnarinnar, er enn mjög umdeild-
ur.
Kishinyov-hópurinn ætlar hér eftir
aö koma saman a.m.k. einu sinni í
mánuði til að samræma aðgerðir sín-
ar og skipuleggja sameiginlega póU-
tíska áæflun.
Reuter
V.V.WAV.V
v.v.v.v.v;*;
SUMAR
tilboð
•••••••••••••
.V.V.V.V
v.v.w;.
•.v.v.v.v
•:•:•:•:•:•:•:•:•
i3°/‘
PANASONIC NV-MS70
FULLKOMIN S-VHS STERIO
VIDEOUPPTÖKUVÉL
99.800.
SONY CCD-F350
8mm VIDEOUPPTÖKUVÉL
EINFÖLD OG ÞÆGILEG í
NOTKUN
73,900.-
59.980.
PANASONIC NV-MC20
VHS VIDEOTÖKUVÉL MEÐ
TÖSKU
PANASONIC NV-S1
SNILLDARLEGA HÖNNUÐ
VIDEOUPPTÖKUVÉL MEÐ
INNBYGGÐUM
TITRINGSJAFNARA
90
84.800.
JAPIS
BRAUTARHOLTI 2, OG KRINGLUNNI SIMI 625200