Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Side 17
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 1991.
17
Fréttir
TÓNLISTARSKÓLI FLATEYRAR
StytoceWj
1 1 Ui|
Sáð í nýja gróðurhúsinu á Egilsstöðum.
DV-mynd Sigrún
Erfiðleikar við byggingu stóra gróðurhússins á Egilsstöðum:
Ein milljón plantna
úr fyrstu sáningunni
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Sáningu lauk fyrir hvítasunnu í
nýja gróðurhúsinu á Egilsstöðum.
Sáð var í 18.000 bakka og eingöngu
lerkifræi. Gróðurhúsið er 2000 m2 að
flatarmáh og búið sjálfvirkum vökv-
unartækjum og áburðarblandara. Að
sögn Einars Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Barra hf„ sem á og
rekur húsið, má búast við að ein
milljón plantna fáist úr þessari
fyrstu sáningu og verða þær tilbúnar
til gróðursetningar í ágúst.
Ýmsir erfiðleikar komu fram í
byggingu hússins. Sökkullinn var
ekki til friös og seig önnur langhhðin
en því var kippt í lag. Þegar búið var
að klæða húsið með polucarbonat-
plötum kom í ljós að þær sneru allar
öfugt. Sú hliðin inn sem átti að snúa
út. Einnig þaö var lagfært snarlega
og nú er sem sagt sáningu lokið og
verið aö ganga frá ýmsu smálegu í
húsinu.
Tónlistarskóli Flateyrar auglýsir eftir skólastjóra fyrir
næsta skólaár. Æskilegt er að viðkomandi geti kennt
á sem flest hljóðfæri. Ibúð fyrir hendi. Umsóknarfrest-
ur er til 30. maí '91. Upplýsingar veitir skólanefnd í
síma 94-7770, 94-7656, 94-7837.
Skólanefnd Tónlistarskóla Flateyrar
PAUL McCARTNEY
NÝJA PLATAN
Nýja platan með Paul McCartney sem var tekin upp í sjónvarpsþættinum
„Unplugged" á MTV er komip í búðir núna.
Á þessari plötu flytur Pttul McCartney klassisk Bítlalög og gamla rokkstand-
arda í órafmögnuðum útgáfum. lnniheldur einnig fyrsla lagið sem Paul
McCartney samdi, lag sem aldrei áður hefur heyrst á plötu.
Kfinglynni • Laugavegi 33 • Laugavcgi 96
SK-I-F-A-N
Austurríki, margrómuð náttúru- og útivistarparadís í hjarta Evrópu.
Þú flýgur beint með Flugleiðum til Salzburg og dvelst í Zell am See eða
við Walchsee. Hinn vinsæli fararstjóri, Rudy Knapp, verður þér innan
handar allan tímann. Þér gefst kostur á ókeypis leið-
sögn í tennis, golfi eða á seglbrettum, þú getur lært á skíði á sól-
björtum jöklum í nágrenn- inu eða leikið
nil lf „ , FRAKR. 39.950
golf á fyrsta flokks golfvöllum (vallargjald 1000-2500 kr.). flug og gisting í hálfan mánuð*
Skipulagðar gönguferðir undir leiðsögn eða þú tekur þér sjálfur prik í
hönd og röltir um fjöll og dali. í nærliggjandi borgum ríkir mið-evrópsk
stemning með _ fjörugu mannlífi og ekki er langt að fara
til Ítalíu, Sviss og Þýskalands. Nánari upplýsingar í
síma 690300, 'Í á söluskrifstofum okkar, hjá umboðs-
monnum og hjá ferðaskrifstofum. FLUGLEIÐIR
*stgr. m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára) og gistingu í Ilgerhof íbúðahótelinu.