Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Síða 18
€48
MÁNUDTAGUK 27. M'AÍ ;f9&j.
Fréttir
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga:
Heildarvelta hátt í 3 milljarðar
Júlia Imsland, DV, Hö6u
Hagnaöur Kaupfélags Austur-
Skaftafellssýslu af reglulegri starf-
semi á liðnu ári nam 65.508 þúsund
krónum. Þetta kom fram í árs-
reikningi félagsins sem lagður var
fram á aðalfundi þess 27. apríl sl.
Hlutdeild félagsins í afkomu dótt-
ur- og samstarfsfyrirtækja er hins
vegar tap að tjárhæð kr. 12.316 þús-
und nú en var kr. 38.960 þúsund
1989. Heildarniðurstaða er kr.
53.192 þúsund en var kr. 27.533 þús-
und 1989.
Eigið fé er kr. 604.283 þúsund en
var kr. 459.776 þúsund í árslok 1989.
Heildarskuldir kaupfélagsins
lækkuðu um rösklega 30 millj.
króna á síðasta ári. Heildarvelta
félagsins var kr. 2.761 milljón og
var hækkun milli ára um 10,2%.
Afkoma verslana félagsins batnaði
á árinu og var hagnaður kr. 4.632
þúsund en 1989 var tap kr. 7.709
þúsund.
Á árinu 1990 voru greidd laun til
875 einstaklinga, þar af voru 182
utanhéraðsmenn. Að meðaltali
voru 130 manns á mánaðarlaunum
og verkafólk á vikulaunum var að
meðaltali 260.
Breyting varð á stjórn félagsins.
Örn Eriksen formaður og Gunnar
Ásgeirsson varaformaður gáfu
ekki kost á sér í stjóm og í þeirra
stað komu Árni Stefánsson og Þóra
Jónsdóttir. Aðrir í stjórn eru Birnir
Bjarnason, Ingólfur Björnsson,
Þorsteinn Geirsson og Öm Bergs-
son. Kaupfélagsstjóri er Hermann
Hansson.
Félagsmenn i Austur-Skaftafells-
sýslu voru um síðustu áramót 758
og 172 á svæðinu austan Lónsheið-
ar.
Hressir Oddfellow-kappar við hreinsun fjörunnar við Króka
DV-mynd Sigurður
HótelDjúpavík:
Met í bókunum
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra
Djúpuvík, segir aö aldrei áður hafi
verið bókað jafn mikið og nú á hótel-
ið hjá henni. Þaö verður því mikið
um gesti á Ströndum í sumar.
Fyrsti hópurinn kemur 7. júní.
Hótelið getur hýst 16 manns í rúmum
og 18-20 í svefnapokapláss að auki.
60 manns getur hún haft í mat í einu.
Vegir eru ekki færir ennþá á
Ströndum en verða það fljótlega eftir
að hinn snjalli vegaverkstjóri Magn-
ús Guðmundsson verður búinn að
fara yfir þá.
Nýr veitingastaður á Akranesi:
Þrír vinir og einn í baði
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Nýr veitingastaður, Þrír vinir og
einn í baði, var opnaður fyrir stuttu
við Stillholt á Akranesi. Eigandi er
Magnús Kari Daníelsson. Fjórir
fastráðnir starfsmenn vinna þar.
Magnús Karl sagði í stuttu spjalli
við DV að viðtökur hefðu verið góðar
þann skamma tíma sem opiö hefði
veriö og að sér litist vel á reksturinn.
Hann sagðist myndu reyna að höfða
til ferðamanna í sumar, m.a. með
sjávarréttum, en þegar liði að hausti
ætlaði hann sér að bjóða upp á rétti
sem hæfðu pyngju fjölbrautaskóla-
nema en staðurinn er steinsnar frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Akranes:
Tvö hundruð manns
í Ijöruhreinsun
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Góð þátttaka var í fjöruhreinsun
sem efnt var til á Akranesi. Lætur
nærri að hátt í 200 manns hafi lagt
hreinsuninni lið, jafnt félagar í ein-
stökum klúbbum og samtökum sem
almenningur. Fyrirkomulag var
þannig að félög og félagasamtök tóku
að sér ákveðinn hluta strandlengj-
unnar hvert og nutu síðan aðstoðar
þeirra bæjarbúa sem lögðu þeim liö.
Hreinsunin tókst mjög vel og safn-
aðist saman mikið drasl sem starfs-
menn Akranesbæjar óku á haugana.
Að hreinsuninni lokinni var efnt til
grillveislu á íþróttavelhnum.
Magnús ásamt þremur starfsstúlkum á Þremur vinum.
DV-mvnd Árni S. Árnason