Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Síða 27
•MÁtoUD AGEJKF 27. MM/1991
fS9
Diana prinsessa faömar að sér börn, sem eru smituð af eyðni, i heimsókn á spítala í borginni Sao Paulo á
ferð sinni um Brasilíu.
Díana
pnnsessa
berst gegn
fáfræði um
eyðni
Karl prins og Díana prinsessa af
Wales hafa verið í opinberri heim-
sókn í Brasilíu. Þetta er í fyrsta
sinn sem Diana kemur þangað og
er hún mjög ánægð með þær hlýju
móttökur sem hún hefur fengið
hvarvetna sem hún hefur komið.
Þau ferðuðust víða um landið en
Díana prinsessa sagði að áhrifa-
mesta heimsókn hennar hefði verið
er hún heimsótti heimili fyrir börn
sem eru að deyja úr eyðni.
Undanfarin fimm ár hefur Díana
látið mikið til sín taka í baráttunni
gegn fáfræði og hræðslu við þenn-
an sjúkdóm og sama dag og hún
hélt til Brasilíu sat hún ráöstefnu
í London um börn er höíðu smitast
af eyðni.
Á ferð sinni um Brasilíu óskað
hún eftir að fá aö heimsækja stofn-
un fyrir börn sem eru smituð af
þessum sjúkdómi og er hún var í
borginni Sao Paulo var henni leyft
að skoða spítala þar sem vistuð eru
slík börn.
Er hún gekk um stofnunina var
henni sagt, af einum af sjálfboðaliö-
unum sem vinnur þar, að þetta
væru börn vændiskvenna eða eit-
urlyfjaneytenda. Um leið og hún
ræddi við umönnunarfólkið tók
hún börn upp úr rúmum sínum og
faðmaði þau að sér og sýndi með
því í verki þá miklu umhyggju sem
hún ber gagnvart þessum börnum.
Þegar hún var spurð að því
hvernig henni fyndist að koma inn
á slíka stofnun sagði hún að það
væri átakanlegt að sjá öll þessi litlu
börn smituð af eyðni. En það væri
mikilvægt að láta þau ekki finna
fyrir neinni vorkunnsemi heldur
brosa við þeim, taka þau í fangið
og sýna þeim umhyggju.
Einn blaöamaður, sem fylgdi
prinsessunni á ferð hennar, sagði:
„Hún er miklu fallegri í eigin per-
sónu heldur en á nokkurri mynd
af henni.“
Gerið hv
Giænv ýsar smáiúða. karfi,
rauðspretta og steinbitur
gpriklantli nýf 1'^ á
iíluri'Júf
T.I RHif) i OFNiNNi PONNURETTIR i ÚRVALI
iionmvr önviwi
í i a-voi
Ýsa í sinnepssosu
ýsa í karrýsósu
Ýsa í aspassósu
Ýsaí sveppasosu
Ýsa í kryddsosu
Ýsa í hvítlaukssosu
Austurlensk fiskipanna
AGrinmetisfiskip^
yy\.
Skhupsiabui
IMJODD
AIIKLIG4RDUR
ALLAR BÚÐIR