Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1991, Qupperneq 40
52 MÁNUDAGUR 27. MAÍ1991. Merming Páll postuli Óratorían Páll postuli eftir Felix Mendelsohn-Bart- holdy var flutt í Hallgrímskirkju á fostudagskvöld. Flytjendur voru Mótettukór Hallgrímskirkju og Sinfó- níuhljómsveit íslands undir stjóm Harðar Áskelsson- ar ásamt einsöngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran, Alinu Dubik messósópran, Frieder Lang tenór og Andreas Schmidt baríton. Loftur Erhngsson og Ragnar Davíðsson sungu bassasóló. Óratorían byggir á sögu Bibhunnar um Sál frá Tars- us og segir frá fjandskap hans við söfnuöi kristinna manna, sinnaskiptum og baráttu fyrir kristni eftir það. Fyrirmyndin aö verkinu er komin frá Bach og Hándel og gildir það ekki aðeins um form heldur einn- ig tónhstina sjálfa. Er hún mjög undir barrokkáhrifum og koma þau meöal annars fram í löngum fúguköflum sem víða bregður fyrir. Andi rómantísku stefnunnar svífur þó yfir vötnum ásamt persónulegum einkennum Mendelsohns sem gefa verkinu á köflum örlítið síróps- sætan blæ og nær það af þeim sökum aldrei fyhilega sömu dýpt og t.d. Mattheusarpassía Bachs. En fyrr má rota en steinrota og verkið er ágætt þótt ekki nái það hæðum Bachs eða afslöppun Hándels. Kemur þar til m.a. fagleg þekking Mendelsohns sem er upp á það besta auk þess sem mörg atriðin eru einfaldlega mjög faUeg tónlist. Meðal þess má nefna atriðið þar sem Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Kristur birtist Sál sem var mjög áhrifamikið í þessum flutningi. Það kostar atgervi, áræði og vinnu að ráðast í það stórvirki að flytja verk af þessu tagi og aðstandendur eiga hrós skUið fyrir framtakið en einnig fyrir það aö flutningurinn tókst í öUum meginatriðum mjög vel. MikUl mannfjöldi var mættur og kirkjan allt að því full. Þetta hafði jákvæð áhrif á hinn ofvirka hljómburð kirkjunnar þótt ekki dygði það til að gera hann fylli- lega góðan. Einsöngvararnir skiluðu alhr sínu hlut- verki með ágætum. Einkum voru Sigrún Hjálmtýsdótt- ir og Andreas Schmidt áberandi góð. Hörður Áskels- son stjórnaði þarna töluvert meiri mannafla en hann er vanastur og tókst prýðilega að halda öllu saman. Svo virtist sem kórfólk og hljóðfæraleikarar skemmtu sér ágætlega við flutninginn og smitaði það út frá sér til áheyrenda sem þökkuðu hresshega fyrir sig með langvarandi lófataki í lokin. Fréttir Listagil á Akureyri: Bæjarstjóra faliðað skrifaundir samning Gyifi EristjánsBon, DV, Akureyri: Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa falið Halldórí Jónssyni bæjar- stjóra að skrifa undir samning um kaup bæjarins á huseignum Kaupfélags Eyfirðinga í Grófar- gUi, en húsin sem um ræðir verða notuð undír Uststarfsemi í bæn- um og GrófargU fær þá væntan- lega um leiö nafnið ListagU. Um er að ræða húseignimar nr. 23 og 25 sunnan götunnar og hús Mjólkursamlagsins og kétilhús norðan götunnar ásamt eignar- lóðum, en GrófargU er giUð sem liggur frá Hafnarstræti upp með Hótel KEA og Akureyrarkirkju aö noröanveröu. Kaupverðiö nemur 70,8 mUljónum króna. Áformað er aö í ListagUi verði miðstöð Usta á Akureyri. Þar er Myndlistarskólinn þegar til húsa með sína starfsemi og eru uppi ýmsar hugmyndir um nýtingu þeirra husa sem Akureyrarbær kaupir nú í gilinu. Er rætt um vinnustofur ýmiskonar, sýning- arsaU, tónUstarsali og fleira i þeim dúr auk veitingastaða og sölubúða. Stærsta flugvél sem skráð er hér á landi flaug útsýnisflug fyrir Reykvíkinga seint í gærkvöldi en hún er breiðþota af tegundinni Lockheed 1011 Tri Star. Flugfélagið Atlanta tók hana á leigu í 6 mánuði til pílagrímaflugs. DV-mynd S Andlát Guðrún Schiöth Lárusdóttir, áður til heimilis á Langholtsvegi 2, lést á öldrunardeild Borgarspítalans fimmtudaginn 23. maí. Sigríður Svava Valfells, andaðist að- faranótt laugardagsins 25. maí. Klara Sveinsdóttir, Melbrún, Fá- skrúðsfirði, lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 24. maí. Jarðarfarir Gíslína Helga Magnúsdóttir frá Hrauni í Grindavík, til heimilis á Sæbólsbraut 28, Kópavogi, lést í Landspítalanum að kvöldi dags 22. maí sl. Jaröarfórin fer fram frá Kópa- vogskirkju miðvikudaginn 29. maí kl. 13.30. Gunnar Eggertsson, Granaskjóli 38, er látinn. Útförin hefur farið fram. Jóna S. Guðmundsdóttir, Lækjar- götu 10, Hafnarfiröi, verður jarö- sungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. maí kl. 13.30. Guðjón Guðjónsson, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Víðistaða- kirkju þriðjudaginn 28. maí kl. 15. Ragnheiður Jónasdóttir, áður til heimilis á Hrannargötu 1, ísafirði, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. maí. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. maí kl. 10.30. Útfór Fjólu Ágústu Ágústdóttur, Langholtsvegi 114, fer fram frá Lang- holtskirkju þriðjudaginn 28. maí kl. 13.30 . Geir Arnesen efnaverkfræöingur, sem andaðist 16. maí, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 28. maí kl. 13.30. Stefán Jónsson, Kleppsvegi 58, Reykjavík, sem andaðist 19. þ.m., veröur jarðsunginn frá Áskirkju í dag, 27. maí kl. 13.30. Útför Brynhildar Svölu Einarsdóttur, sem lést 15. maí, verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, 27. maí kl. 13.30. Gísli Benjaminsson múrari, Logafold 26, verður jarðsunginn frá Bústaöa- kirkju í dag, 27. maí, kl. 13.30. Helga Gunnarsdóttir tónlistarfræð- ingur lést 16. maí. Hún var fædd 15. apríl 1943, dóttir Sigríöar Einarsdótt- ur og Gunnars Steindórssonar. Helga útskrifaðist frá Kennaraháskólanum og síðan framhaldsnámi í tónlistar- og þjóðfræðum í Svíþjóð. Hún var stundakennari við Kennaraháskóla íslands á árunum 1982-88, en starfaði sem lektor viö skólann 1983-84. Hún var kennari í tónmennt, tónlistar- sögu og söng og var kórstjóri við Leiklistarskóla Islands frá 1983 til dauðadags. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Sigurgeir Steingrímsson. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. ÚtíÖr Helgu verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 15. Ottó J. Gunnlaugsson lést 20. maí. Hann fæddist í Dalhúsum i Skeggia- staðahreppi 24. júní 1922, sonur hjón- anna Oktavíu Jóhannesdóttur og Gunnlaugs A. Jónssonar. Ottó starf- aði ýmist viö verslunar- eða verka- mannastörf en lengst við sælgætis- gerð. Útför hens verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Sveinn Valdemarsson skipstjóri lést 18. maí. Hann fæddist 16. maí 1930 Myndgáta ■“Vw Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Lausn gátu nr. 36: Hitium frostmark. að Kollugeröi í A-Húnavatnssýslu. Hann stundaði lengst af sjómennsku. Eftirlifandi eiginkona hans er Elísa- bet Jónsdóttir og eignuðust þau fimm börn. Útför Sveins verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag kl. 13.30. Tilkynningar Hjónaband Gefm hafa veriö saman í hjónaband af séra Pétri Sigurgeirssyni í Langholts- kirkju Sœrún Jónasdóttir og Kjartan Sigurösson. Heimili þeirra er aö Álfatúni 25, Kópavogi. Ný skartgripaverslun 9. maí sl. opnaði Katrín Didriksen nýja skartgripaverslun aö Skólavörðustíg 17b, Reykjavik. Katrín hefur farið í ýmsu inn á nýjar brautir við gerö skartgripa. Hún vinnur úr silfri, kopar og stáli en sér-- staka athygli hefur vakið að hún vefur skartgripi og notar stundum hrosshár og jafnvel hörgam. Katrín lærði gullsmiöi hjá Reyni Guðlaugssyni gullsmið hjá verslun Guðlaugs A. Magnússonar og stundaði síðan nám við hinn fræga Guldsmedehoiskole í Kaupmannahöfn. Var lokaverkefni hennar þar m.a. höfuð- djásn ofið úr stáli. Verslun Katrínar er hönnuð af henni og Hafdísi Hafliðadóttur arkitekt. Opið virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-14. Verkstæði Katrínar er á sama stað. Minningarkort Skálatúns Vinafélag Skálatúns vekur athygli á minningarkortum Skálatúnsheimilisins í Mosfellsbæ. Kortin má panta í síma Skálatúnsheimilisins, s. 666248, og hjá Styrktarfélagi vangefmna, s. 15941. Safnaðarstarf Hallgrimskirkja. Fyrirbænaguðsþjón- usta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Námskeið Jóganámskeið Dídi Sukriti Av., sem er sérlærður jóga- kennari frá Filippseyjmn og hefur margra ára þjálfim og reynslu í jóga, verður með jóganámskeið fyrir konur á vegum Ananda Marga fimmtudaginn 30. maí kl. 20. Þátttakendum verða kynntar slökunaraðferðir og hugleiðsla og rætt verður um skilning jóga á tilgangi and- legra æfinga. Kostnaði verður haldið í lágmarki. Námskeiðið verður haldið í leikskólanum Sælukoti, Þorragötu 1. Upplýsingar í síma 27050. Fundir JC Mosfellsbær heldur almennan borgarafund í Hlégarði í kvöld, 27. maí, kl. 20. Fjallað verður um tilboö Reykjavíkurborgar á Blikastaða- landinu. Tónleikar Ljóðatónleikar í Hafnarborg W. Keith Reed og Bjami Þ. Jónatansson halda ljóðatónleika miðvikudagskvöldið 29. maí kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Vaughan Williams, Wolf og Schum- ann ásamt lögum eftir ítalska, franska og íslenska höfunda. Keith kennir söng við Söngskólann í ReyKjavík og Nýja tón- listarskólann. Hann hefur einnig sungið með íslensku óperunni. Bjami starfar sem píanókennari við Nýja tónlistarskól- ann. 03»« •EVÞOR—Á-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.