Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991.
Fréttir
Heimamenn á fimdi um framtíð fiskvinnslu í Hraðfrystihúsinu í Ólafsvík í gærkvöld:
Samstaða um að leigja
rekstur þrotabúsins
- bæiarstjóri væntir niðurstöðu í vikulok - lánardrottnar hafa síðasta orðið
„Það var ákveðið að þrem aðilum
úr hópnum yrði falið að vinna rekstr-
aráætlun sem síðan er ætlunin að
leggja fyrir stjórnir þeirra félaga sem
áttu fulltrúa á þessum fundi. Hug-
myndir, sem lagðar veröa fyrir vænt-
anlegan bústjóra þrotabús Hrað-
frystihússins um rekstur fiskvinnsl-
unnar, verða að vera ítarlegar. Ann-
ars voru þetta byrjunarviðræður og
allir óbundnir ennþá. Mest var um
vert að koma umræðunum í gang,“
sagði Atli Alexandersson, forseti
bæjarstjórnar Ólafsvíkur, í samtali
við DV í gærkvöld.
Fundur fulltrúa Ólafsvíkurbæjar,
útgerðarfélaganna Útvers og Tungu-
fells og verkalýðsfélagsins Jökuls
hófst klukkan átta í gærkvöld og stóð
ekki lengi. Var boðað til fundarins í
kjölfar bréfs bæjarstjórnar Ólafsvík-
ur til útgerðarfélaganna og verka-
lýðsfélagsins. Þar var óskaö eftir
samvinnu aöilanna um leigu á þrota-
búi Hraðfrystihússins svo fisk-
■ Stefán Garðarsson, bæjarstjóri í
Ólafsvík. DV-mynd Brynjar Gauti
vinnsla þar gæti haldiö áfram og
neyðarástandi í atvinnumálum Ól-
afsvíkur yrði afstýrt.
Stjórn Hraöfrystihúss Ólafsvíkur
ákvað í gær að fara fram á gjald-
þrotaskipti fyrirtækisins hjá sýslu-.
manni seinna í dag.
Stefán Garðarsson bæjarstjóri
sagði í samtali viö DV fyrir fundinn
í gærkvöld að í meginatriðum þyrfti
að gera rekstrargrunn fyrir væntan-
legan rekstur og síðan samning við
eigendur togarans Más og bátanna
þriggja og útgerðarfélögin Útver og
Tungufell um löndun aíla fyrir Hrað-
frystihúsið. Þá þyrfti að gera samn-
ing við væntanlegan bústjóra þrota-
bús Hraðfrystihússins um leigu á
rekstrinum og síðan að stofna hluta-
félag um reksturinn.
„Eg á von á að þetta dæmi liggi
fyrir í vikulokin þar sem engin rök
eru fyrir því að tefja málið. Ég hef
skrifað Landsbankanum, stærsta
kröfuhafanum, bréf og kynnt okkar
áform. Bankinn ræður hvað gert
verður en ég reikna með samvinnu
hans þar sem þrotabúiö verður óhjá-
kvæmilega með starfsmenn og þarf
að fá einhverjar tekjur inn í búið.
Við ætlum okkur ekki með bæjarsjóð
í einhverja hít heldur fyrirtæki sem
skila mun hagnaði," sagði Stefán.
„Ef samstaða næst milli aðilanna
um leigu þrotabúsins veröur komið
formlegt tilboð um næstu helgi. Þá
mun allur afli frá bátunum og togar-
anum köma inn í þetta hús. Ef ekki
verður af þessu eru útgerðarfélögin
sjálfstæðir útgerðaraðilar eins og all-
ir aðrir hér í bænum og munu ráð-
stafa sínum fiski í samræmi við það.
Það er ekkert augljóst að þessi áform
gangi upp og ekki laust við að menn
séu dálítið svartsýnir. Þetta fer allt
eftir lánardrottnunum, fyrst og
fremst Landsbankanum og Byggða-
sjóði. Ég geri þó frekar ráð fyrir að
þeir vilji fá tekjur inn í þrotabúið og
leysa atvinnumál bæjarins," sagði
Ólafur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, fyr-
ir fundinn í gærkvöld. Ólafur er
einnig stjórnarformaður í útgerðar-
félaginu Útveri sem á togarann Má
og Tungufell. Tungufell stofnaði Ól-
afur fyrir um ári í kring um tvo 100
tonna báta sem áður tilheyrðu Hrað-
frystihúsinu. Landsbankinn mun líta
svo á að bátunum og meðfylgjandi
kvótum hafi veriö skotiö undan eig-
um hraðfrystihússins.
„Bátarnir voru seldir í janúar 1990.
Þá lá ekkert fyrir um þá stöðu sem
nú er og bátarnir voru seldir á eðli-
legu verði,“ sagði Ólafur.
Óvíst er um verkaskiptingu í hluta-
félagi sem mögulega yrði stofnaö um
leigu þrotabúsins en Stefán sagði aö
bæjarsjóður yrði þar leiðandi aðili.
Fleiri fundir aðilanna eru fyrirhug-
aðir í vikunni en auk þeirra funda
verður einnig fundur bæjarstjórnar
meö þingmönnum kjördæmisins í
félagsheimilinu Klifi í dag. Þar mun
bæjarstjórn gera grein fyrir stöðu
mála og óska eftir stuðningi þing-
manna sinna. -hlh
Kristin Bjargmundsdóttir trúnaðarmaður fyrir utan Hraðfrystihús Ólafsvíkur.
DV-mynd Brynjar Gauti
Örtröð atvinnulausra á bæjarskrifstofum Ólafsvíkur:
Fólkið er í sjokki
- segir Kristín Bjargmundsdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks
„Fólk er í hálfgerðu sjokki og getur
ekkert gert nema beðið. Hér er ekk-
ert fyrir okkur aö hafa nema fisk-
vinnu og við getum ekkert farið.
Örfáir, þeir ungu og heilsuhraustu,
geta farið í saltfiskvinnu. Ég hef ekki
trú á að þaö takist að semja fljótt um
framhald starfsemi Hraðfrystihúss-
ins". En ef þaö dregst mjög á langinn
að atvinna hefjist þar á ný fer að
syrta verulega í álinn hjá mörgum
fjölskyldum. í sumum tilfellum
vinna báðar fyrirvinnur heimilisins
hjá frystihúsinu. Þegar ekkert er að
hafa nema atvinnuleysisbætur og
þar sem dýrt er að búa hér er ekki
erfitt að ímynda sér það ástand sem
verður þá á heimilunum," sagði
Kristín Bjargmundsdóttir, trúnaðar-
maður starfsfólksins hjá Hraðfrysti-
húsi Ólafsvíkur, í samtali við DV.
Upp undir eitt hundrað manns hafa
að jafnaöi unnið hjá Hraðfrystihús-
inu, þar af um tuttugu Pólverjar,
menn og konur, við beitningu. Mest-
ur hluti þess fólks sem hefur unniö
reglulega hjá Hraöfrystihúsinu hefur
aldrei kynnst því aö verða atvinnu-
laust þar sem húsinu hefur ekki ver-
ið lokað frá stofnun þess 1939 nema
í stuttan tíma vegna sumarleyfa. Við-
brögðin urðu þvi misjöfn þegar fólk-
inu var ráðlagt aö skrá sig á atvinnu-
leysisskrá í gær. Velflestir gerðu það,
í fyrsta skipti á ævinni, en nokkrir
brugðust illa við og sögðust ekki ætla
að sækja neinar „aumingjabætur" til
bæjarins. Á föstudag voru um 10
manns á atvinnuleysisskrá í Ólafsvík
en í gær haföi örtröðin á bæjarskrif-
stofunum sexfaldað þá tölu. Pólverj-
arnir fara flestir aftur til Póllands
en veriö var að útvega þeim farseðla
heim í gær.
Ólafsvíkingar vissu af erfiöleikum
hjá Hraðfrystihúsinu en fréttin um
yfirvofandi gjaldþrot kom þeim flest-
um í opna skjöldu.
„Við áttum að fá launin okkar um
hálftíuleytið á föstudagsmorguninn
en þar sem launin komu ekki niður
frá skrifstofunni var farið að athuga
málið. Þá var sagt að launin kæmu
ekki niður fyrir hádegi. Það var síðan
um hálfljögurleytið að pósturinn
kom niður og tUkynnti fólkinu að
ekki yrði borgað út. Líklega yröi
þetta síðasti vinnudagurinn þar sem
útlit væri fyrir að fyrirtækið væri
að fara í gjaldþrot. Fólk var auðvitaö
mjög slegið yfir þessum tíðindum.
Það vissi um ákeðna erfiðleika en
ekki aö þeir væru svona alvarlegir."
-hlh
Ólafur Gunnarsson um gjaldþrotið:
Unnum eftir tillög-
um Landsbankans
„Ég hef reynt að fá svör við hug-
mundum um endurbætur á rekstrin-
um frá Byggðastofnun og Atvinnu-
tryggingasjóði síðan í apríl en þau
svör hafa ekki borist. Þessar hug-
myndir eru að mestu leyti komnar
frá Landsbankanum þannig að við
höfum verið að vinna eftir línu bank-
ans þennan tíma. Síðan gerist það á
fundi lánardrottnanna fyrir helgi að
þeir líta svo á að reksturinn gangi
ekki upp. Þeir falla frá þeim hug-
myndum sem fyrir voru og ákváðu
að fara gjaldþrotaleiðina," sagði Ól-
afur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, við
DV i Ólafsvík í gær.
Ólafur sagðist ekki geta svarað því
hvað það var sem allt í einu kom upp
á hjá lánardrottnum Hraðfrystihúss-
ins sem neyddi það í gjaldþrot. Hann
bætti við að umræddur fundur lánar-
drottnanna á fimmutdag hefði verið
fyrsti sameiginlegi fundur þeirra um
þennan vanda Hraðfrystihússins.
Skuldir Hraðfrystihúss Ólafsvíkur
munu nema um 500 miljónum.
Stærstur lánardrottna er Lands-
bankinn, sem á yfir 200 milljónir hjá
Símsvarar vísa á símsvara
- fólk þarfaö hringja í þijú númer áöur en samband næst
Ný símanúmer tóku gildi um síð- var að hringja í.
ustu mánaðamót. Fimm stafa núm- Ef hringt er i gamla fimm stafa
er sem byrjuðu á 82, 83 og 84 urðu númerið ansar símsvari sem segir
að sex stafa númerum og byrja á hringjanda að hringja í númer sem
81 i staö 8. Ekki vildu þó allir sem byrjar á 81. Þar er lika simsvari
fyrir þessari breytingu uröu sætta sem segir fóltó að hringja i nýjasta
sig við nýja númerið og fengu þeir númerið, eða það sem byrjar á 68.
þá tölustafinn 6 fyrir framan gömlu Fólk þarf því stundum að hringja
áttuna. Númerin byrja því á 68 í íþijúsímanúmertilaðfásamband.
stað81einsogauglýsterínýútko- Samkvæmt upplýsingum frá
minni símaskrá. Pósti og síma er þetta tilkomið þar
Aö vonum hefur þetta ruglað sem sum fyrirtæki hafa ekki viljað
margan símnotandann. Þannig 81 sem fyrstu tölur. Þegar nýju
hafa til dæmis þeir sem ektó eru númerin voru tekin í gagnið var
búnir að fá sér nýju símaskrána settur símsvari á öll gömlu fimm
orðið aö hringja tjölda símtala og stafa númerin sem fengu 81 og ekki
eiga í samskiptum við nokkra sím- er hægt aö taka út einstök fyrir-
svara áður en þeir hafa loks náð tæki sem ektó vilja það númer og
sambandi viö þann sem ætlunin setja i staðinc nýja númerið. -ns
Olafur Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Hraófrystihúss Ólafsvikur.
DV-mynd BG
fyrirtækinu, og Byggðasjóður sem á
yfir 100 milljónir.
-hlh