Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991.
Flensborgarskólinn i Hafnarlirði
Laus ritarastaða
Flensborgarskólinn óskar að ráða skólaritara í hálft
starf frá og með 1. ágúst 1991
Umsóknarfrestur er til 3. júlí nk. Allar nánari uppl.
veitir skólameistari í síma 650400 eða 50560 næstu
daga eða eftir 21. júní.
Skólameistari
Auglýsing
frá bæjarsjóði Selfoss!
Hér með er skorað á fasteignaeigendur á Selfossi
að greiða nú þegar ógreidd fasteignagjöld ársins
1991 innan 30 daga frá birtingu auglýsingar þessarar.
Að þeim tíma liðnum verður beðið um nauðungar-
uppboð á þeim fasteignum sem fasteignagjöld hafa
ekki verið greidd af, sbr. 1. gr. laga nr. 49 frá 1951
um sölu lögveða án undangengins lögtaks.
Innheimta bæjarsjóðs Selfoss
- námskeið fyrir sjálfboðaliða
í byrjun júlí er væntanlegur hópur flóttamanna
hingað til lands. Fimmtudagana 13. og 20. júní
verður haldið námskeið að Þingholtsstræti 3 frá
kl. 20-23 fyrir þá sem áhuga hafa á að aðstoða
Rauða kross íslands við að undirbúa móttöku
flóttafólksins og styðja það eftir komuna.
Fjallað verður um flóttafólk á fslandi, skipulag
flóttamannamóttöku, reynslu af sjálfboðaliða-
starfi, ólík menningarsamfélög, starfið
framundan og fleira.
Skráning fer fram í dag og á morgun á
skrifstofu Rauða kross íslands í síma 26722.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - simi: 91-26722
Utlönd
Shamir haf nar
enn málamiðlun
artillögu
- sendir Levy til Washington
Utanríkisráöherra ísraels, David
Levy, heldur til Bandaríkjanna í dag
til aö útskýra hvers vegna ísraelsk
yfirvöld hafa hafnað málamiölunar-
tillögu sem miöar aö því að haldin
veröi ráöstefna um frið í Miöaustur-
löndum.
Bush Bandaríkjaforseti fór þess á
leit við Yitzhak Shamir, forsætisráö-
herra ísraels, í síöustu viku aö hann
samþykkti þátttöku Sameinuöu þjóð-
anna aö einhverju leyti á friðarráð-
stefnu sem haldin yröi á hálfs árs
fresti. Shamir hafnaði þessari hug-
mynd og bætti við nýju skilyrði, því
aö ísraelar fengju neitunarvald um
hverjir yrðu fulltrúar Palestínu-
manna. Israelska dagblaöið Maariv
birti í gær innihald bréfanna og
heimildarmenn innan Bandaríkja-
stjórnar hafa staöfest aö það sé rétt.
Bush lagði fram þá málamiölunar-
tillögu að Hussein Jórdaniukonung-
ur samþykkti kröfu ísraela um að
Palestínumenn yrðu hluti af jórd-
önsku sendinefndinni í friöarviðræö-
unum ef ísraelsk yfirvöld hættu aö
byggja yfir gyöinga á herteknu svæð-
unum. Ef ísraelsk yflrvöld sam-
þykktu þetta ekki þyrftu þau aö hna
á andstööu sinni viö þátttöku Sam-
einuðu þjóðanna. Bush tók þaö fram
aö tillögur Bandaríkjanna nú væru
byggðar á hugmyndum ísraela en
ekki araba.
Reuter
Filippseyjar:
Búist við sprengi-
gosi á hverri stundu
Þrýstingur hélt áfram að aukast í
PinatuboeldijaUi á Filippseyjum í
morgun og á hverri stundu er búist
við öflugu sprengigosi sem mundi
Bandarískir hermenn flúðu undan Pinatuboeldfjalli í sex þúsund bíla lest
í gær. Símamynd Reuter
þeyta hrauni og ösku yfir Clarkflug-
stöö bandaríska hersins skammt frá
fjallinu.
Raymundo Punongbayan, for-
stöðumaður elflallastöðvar Fihpps-
eyja, sagði í útvarpsviðtali í morgun
að hraunið hlæðist upp á toppi flalls-
ins og væri að safna kröftum fyrir
stórfellt gos.
Borgarstjórinn í Angeles, sem er
við Clarkflugstöðina, sakaði Banda-
ríkjamenn um að vera of fljóta á sér
þegar þeir fluttu á fimmtánda þús-
und manns burt frá flugstöðinni í
gær í sex þúsund bíla lest. Hann sagði
að flýtir Bandaríkjamanna hefði
valdið ónauðsynlegum ótta. „Bærinn
hefur áætlanir um brottflutning íbú-
anna ef þörf krefur. En Bandaríkja-
mennimir valda ótta,“ sagði hann.
Bandarísku hermennimir og flöl-
skyldur þeirra slökuðu á í flotastöð-
inni í Subicflóa í morgun á meðan
yfirvöld veltu því fyrir sér hvort
senda ætti einhveija heim til Banda-
ríkjannavegnaplássleysis. Reuter
íranskir leiðtogar:
íraksher ræðst á ff lóttamenn
Talsmaður vamarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna kvaöst í gær ekki
geta staðfest frétt írana um að her
Saddams Hussein íraksforseta hefði
ráðist á hundruð þúsunda flótta-
manna shíta í suðausturhluta íraks.
Að sögn talsmannsins hafa verið
smávegis átök milli íraskra her-
manna og shíta á þessu svæði und-
anfarnar vikur. Hins vegar væm
engar sannanir fyrir meiri háttar
árás.
íranska sjónvarpið greindi frá því
að sprengingar hefðu heyrst í íran
skammt frá landamærunum við ír-
ak. íranskir leiðtogar og írakar í út-
legð höfðu áður lýst því yflr að þeir
óttuðust flöldamorð á shítum og að
hermenn Saddams kynnu að beita
eiturgasi.
Hundruð þúsunda flúðu íraskar
borgir í mars síðasthðnum þegar
íraskir hermenn bældu niður upp-
reisnina gegn Saddam. Bandamenn
hafa nú yfirgefið suðurhluta íraks
þangað sem mannflöldinn flúði.
Reuter
FLJUGÐU A VIT ÆVINTYFANNA
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
FLJOTT, FLJOTT
TIL AMSTERDAM EÐA LUXEMBURGAR
verðdæmi: Amsterdam 1 víka pr. mann 18.550*
Luxemburg 19.250*
* míðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára i bíl í D-flokkí.
hwngdo OG B0W®«
^652266