Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991.
Útlönd
J3V
Með skotvopn í bílnum:
Dæmdur í f immtán
ára fangelsi
Shevardnadze hvetur til
Fimmtíu og fimm ára gamall
Jórdani var í gær dæmdur í
fimmtán ára fangelsi af herlaga-
dómstóli í Kúvæt fyrir að hafa
haft skotvopn undir höndum.
Jórdaninn grét og kvaöst ekkert
vita um vopnin sem fundust í bíl
hans. Kvaöst hann vera saklaus
eins og allir hinir hundraö sem
koraið hafa fyrir rétt undanfarn-
ar þrjár vikur vegna meints sam-
starfs viö íraka.
Sendiherra Kúvæts í Washing-
ton varði í gær herlögin í Kúvæt
og réttarhöldin. í sjónvarpsviö-
tali sagði sendiherrann einnig aö
kosningum i Kúvæt hefði verið
frestað þar til í október 1992 tíl
að stjórnin gætí' fyrst komið
ástandinu í landinu í rétt horf.
Beuter
Eistland:
Landamæraverðir
fái vopn
Þingiö í Eistlandi hefur nú til
athugunar tillögu um aö leyfa
landamæravöröum að bera vopn
í kjölfar siöustu árásanna á
stöðvar þeirra. Eistneska frétta-
stofan ETA hefur greint frá þvi
aö stjórn Eistlands sé að ihuga
aö mynda sérsveit lögreglu sem
myndi samanstanda af fyrrum
sovéskum fallhlífarhermönnum
og hermönnum sem þátt tóku í
stríöinu í Afganistan.
Vopnaöir menn eyðilögðu tvær
landamærastöðvar í Eistlandi og
Lettlandi á laugardaginn. Sovésk
yfirvöld segja landamærastöðvar
Eystrasaltsríkjanna ólöglegar.
Reuter
stofnunar lýðræðisf lokks
Eduard Shevardnadze hvatti lýðræðisöflin i Sovétríkjunum til að
fylkja liði i ræðu í Vín í gær. Teikning Lurie
Eduard Shevardnadze, fyrrum utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, hefur hvatt tíl þess
að stofnaður veröi breiður lýðræöisflokkur
til að berjast fyrir hraðari efnahags- og félags-
legum umbótum.
I fyrirlestri, sem hann hélt í Vínarborg í
gærkvöldi, lýstí hann hugmyndum sínum um
flokk „verka, athafna og vona“ og hvatti lýð-
ræðisöflin í gjörvöllum Sovétríkjunum tíl að
fylkja hði.
„Ef hægt er að mynda slíkan flokk fær land-
ið þing sem með skapandi og mikilvirkum
kröftum getur framkvæmt andlega og efna-
hagslega endurfæðingu samfélagsins," sagði
Shevardnadze við áheyrendur sína í Vín.
„Ég trúi að hægt sé að framkvæma þaö. Það
sem meira er, lýðræðisöfl landsins eru skyld-
ug til þess.“
Shevardnadze, sem enn er félagi í miðstjórn
kommúnistaflokksins, sagði að þetta væri í
fyrsta skipti sem hann viðraði slíka hugmynd
opinberlega. Hann lét af störfum utanríkis-
ráðherra í desember síðastíiðnum efir harð-
orða ræðu í sovéska þinginu þar sem hann
varaði við hættunum á nýju einræði og réðst
á íhaldssama andstæðinga umbótastefnu
Gorbatsjovs.
Hann sagði í ræðu sinni 1 gær að þingið, sem
var kosiö 1989, hefði verið valið á þeim tíma
þegar „markaðurinn var í raun bannorð" og
aö fáir þingmenn hefðu forsendur tíl að þrýsta
í gegn þeirri markaðsstefnu sem Sovétríkin
þörfnuðust. Hann sagði að hraða yrði umbót-
unum og koma þyrfti framsæknu fólki á þing,
fólki sem ekki væri hrætt við hið nýja.
Shevardnadze vísaði óbeint til afsagnar-
ræðu sinnar og sagði að enn væri hætta á
einræði í Sovétríkjunum en að landið hefði
fjarlægst það mikiö þá „ómanneskjulegu
harðstjórn" sem Gorbatsjov tók í arf til að
slíkt einræði gæti lifað lengi.
Reuter
Indland:
Óvístumúrslit
kosninganna
Sonja Gandhi, ekkja Rajivs
Gandhis, fyrrum forsætisráð-
herra Indíands og leiðtoga
Kongressflokksins, hvattí í gær í
bréfi félaga flokksins til að láta
draum manns hennar um öflugt
Indland rætast.
Hlé var gert á kosningunum á
Indlandi í kjölfar morðsins á
Gandhi 21. maí síðastliðinn. Næsti
hluti kosninganna fer fram á
morgun en síöasti hlutinn 15. júni.
Mikil óvissa ríkir um úrslitin.
Fréttaskýrendur velta því nú fyr-
ir sér hvort Kongressflokkurinn
fái þau samúðaratkvæði sem
hann vonast eftír eða hvort kjós-
endur snúi baki við flokknum þar
sem sýnt þykir að hann hafi ekki
sterka forystu. ' Reuter
Albanía:
Uppgjörum
fortíðina
Kommúnistaflokkur Albaníu,
sem nú heitír Verkamannaflokk-
urinn, hélt í gær síðasta lands-
fund sinn, aö því er líklegt þykir.
Um fjórtán hundruð fulltrúar
hlýddu á aðalritara flokksins lesa
upp skýrslu um mistök síðustu
áratuga sem leiddu tíl þess að
Albanía er á barmi gjaldþrots.
Ekkja Envers Hoxha, Nexhmije
Hoxha, sem sat landsfundinn,
tjáðí fréttamönnum í fundarhléi
að hún væri ekki ánægö með
gagnrýnina á mann sinn. Nex-
hmije hefur veriö svipt sæti í
stjórnmálaráðinu en situr enn i
miðstjórn flokksins. Gert er ráð
fyrir að hún missi einnig það
sæti. Reuter
Par sem myndirnar fást!
IVI- YNDIR
Útgáfa
lO.júm
myndbandaleigur
KRINGLAN 4, S: 679015 • REYKJAVÍKURVEGI 64, S: 651425 • ÁLFABAKKA 14, MJÓDD, S: 79050 • SKIPHOLT 9, S: 6261-71
13. júa' . - hestu og
í fúlustu
alvöru,
tómt
grín
/ • / /•
í jum!