Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Side 11
ÞRIÐJUÐAGUR 11. JÚNÍ1991.
11
Sviðsljós
Madonna sést hér með bróður sínum, Christoper, sem hún sveik með því
að tilkynna öllum að hann væri hommi.
Madonna svíkur bróður sinn
í enn einni tilrauninni til að vekja
á sér athygli hefur Madonna nú að
margra áliti gengið of langt. Hún til-
kynnti blaðamanni alþjóðlegs tíma-
rits fyrir samkynhneigða fyrir
nokkru að bróöir hennar, Christop-
her Ciccone, væri öfugur.
Þegar blaðamaðurinn spurði hana
hvort hún sýndi samkynhneigðum
einhvern skilning í verkum sínum
sagði hún: „Það er ekki af ásettu ráði,
það bara gerist. Christopher bróðir
minn er öfugur og það erum við sem
höfum haldið hvað mestu sambandi
innan fjölskyldunnar."
Og svo hélt hún áfram: „Þegar
hann var lítill var hann svo fallegur
aö allar stelpurnar hópuðust um
hann. Ég gerði mér grein fyrir því
að eitthvað væri öðruvísi en venju-
lega en vissi ekki hvað það var.“
Hún sagðist fyrst hafa komist aö
hinu sanna þegar hún tók hann með
sér í balletttíma og kynnti hann fyrir
kennaranum sínum sem var hommi.
„Ég sá bara strax að eitthvað var
á milli þeirra og komst þá að því að
honum líkaði líka við karlmenn."
Christoper, sem er þrítugur, brá
illilega í brún er hann komst að því
að systir hans hafði komið upp um
leyndarmálið en hann á nú á hættu
að verða útskúfaður af foreldrum
sínum og fjölskyldu.
Hann þrábað ristjóra tímaritsins
að taka nafnið sitt út úr greininni en
allt kom fyrir ekki.
„Christoper er stoltur af því að
vera hommi, hann vill bara ekki að
allur heimurinn viti af því og sér-
staklega ekki fjölskylda hans í Mic-
higan,“ sagði einn vinur hans.
„Pabbi er mjög gamaldags," er haft
eftir Madonnu í viðtalinu, „hann er
mjög líklega ekki sáttur viö þetta."
Vinir Christopers segja hann held-
ur ekki vera sáttan við þá staðreynd
að systir hans hafi brugðist trúnaði
hans en það eina sem hann fór fram
á var að fá að halda einkalífi sínu
út af fyrir sig.
Danska leikkonan Brigitta Nielsen
gengur, ásamt vini sínum, inn í há-
tíðarsalinn þar sem verðlaunaaf-
hendingin á kvikmyndahátíðinni í
Cannes fór fram. Simamynd Reuter
George Bush forseti tekur hér um
andlitið eftir að hafa slegið upphafs-
höggið á golfvellinu við Arundal
klúbbinn í Mains en hann er nú í
löngu helgarfrí i sumarhúsi sinu þar.
Simamynd Reuter
Nemendur sem eru að Ijúka námi
frá tiskuhönnunarskóla í London
voru með sýningu á leikhúsgrímum,
sem þeir hafa gert, nú í vikunni.
Eins og sjá má á þessari mynd voru
þær f jölbreyttar og skemmtilegar.
Simamynd Reuter
Hægt er að panta
Urvalsbækur
í síma 62-60-10
Þegar Sunny nálgast það
markmið að finna Alex
Markoff kemur i Ijós að
hún kaliar sjáif yfir sig
mikla hættu.
Leikurinn berst vítt um
heim -'San Fransiskó,
England, Noregur,
Kanada.
í leit sinni að Alex
Markoff er hún
kötturinn sem ieitar
músarinnar; gagnvart
óljósum ofsækjendum
er hún músin á
flótta undan
köttunum. Þetta
er leikur upp á
iif og dauða -
úrvals spennusaga.
Sunny Sinciair
hefur ekki séð
Aiex Markoff
síðan heimsstyrj-
öldinni síðari lauk.
Þá voru þau bæði
starfandi njósnarar
og um skeið elskendur.
Þvi er nú löngu lokið.
En mörgum áratugum
síðar rifjast þetta
gamla, eldheita ævintýri
upp með óvæntum
hætti.
Hún verður að finna
þennan gamla elskhuga
sem raunar hefur lengi
verið talinn af.
En nú kemur hroilkaldur
veruieikinn æ skýrar i ijós
með hverju skrefi sem hún
tekur - hann er ekki bara lif-
andi heldur er hann sennilega
líka í miklum háska staddur.