Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1991.'
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991.
17
íþróttir
Sport-
stúfar
Sao Paulo tryggöi sér
brasilíska meistarátit-
ilinn í knattspymu í
fyrrakvöld meö því að
gera markalaust jafntefli við
Bragantino í síðari úrslitaleik lið-
anna í Rio de Janeiro.
Sao Paulo vann fyrri leikinn,
1-0. Þjálfari meistaranna er Tele
Santana, fyrrum landsliðsþjálfari
Brasilíu, og hann vann þama
sinn fyrsta meistaratitil í 20
ár.
Tveir gripir til
taks í Þýskalandi
Þýska knattspymu-
sambandið hefur
neyðst til þess að láta
gera eftirlíkingu af
sUfurskálinni, verölaunagripn-
um sem fellur í skaut meistaral-
iðsins ár hvert. Fyrir lokaum-
ferðina á laugardag eiga Kaisers-
lautern og Bayern Munchen
möguleika á meistaratitlinum, og
dugar Kaiserslautern jafntefli í
Köln. Þar verður rétta sUfurskál-
in tilbúin til aihendingar en í
Munchen verður eftirlíkingin til
taks ef Kaiserslautern tapar og
Bayern nær að sigra Uerdingen.
Verði Bayem meistari fær liðið
síðan réttu skálina afhenta um
kvöldið!
Keppt í þríþraut
á Akranesi
Skipaskagi, hið ný-
stofnaða ungmennafé-
lag á Akranesi, stend-
ur fyrir fyrsta mótinu
i þríþraut, sem haldið er þar í bæ,
á sunnudaginn kemur. Keppt
verður í flokkum karla, kvenna
og unglinga og verður byrjað
klukkan 9 í unglingaflokki en
klukkan 9.30 í hinum flokkunum.
Unglingar synda 400 metra, hjóla
15 kílómetra og hlaupa 3,5 kíló-
metra en karlar og konur synda
750 metra, hjóla 20 kílómetra og
hlaupa 5 kílómetra. Skráningar-
frestur er til fimmtudags í símum
93-12204 og 93-11986. Boðið er upp
á gistiaðstöðu.
Páll á Yamaha
Villa slæddist inn í frétt um
keppni í mótorkrossi í blaðinu í
gær. Páll Melsted ekur ekki á
Hondu, eins og sagt var, heldur á
Yamaha YZ hjóli.
.v
Rakel og Ólöf unnu
í Hafnarfírði
Wella-kvennamótið í
golfi fór fram á Hva-
leyrarvelli, hjá Golf-
klúbbnum Keili, á
laugardaginn. Rakel Þorsteins-
dóttir, GS, sigraði í keppni án for-
gjafar á 86 höggum. Olöf María
Jónsdóttir, GK, varð önnur, einn-
ig með 86 högg, og Björk Ingvars-
dóttir, GK, þriðja með 88 högg. í
keppni með forgjöf vann Olöf
María á 61 höggi, Margrét Guð-
jónsdóttir, GK, varð önnnur með
68 högg og Kristjana Eiðsdóttir,
GG, þriðja með 69 högg.
KR ogÍAM.
deild kvenna
KR og ÍA mætast í 1.
deild kvenna í knatt-
spymu á KR-vellinum
í kvöld og hefst leikur-
inn klukkan 20. Bæði lið eru tap-
laus, KR hefur unnið tvo fyrstu
leiki sína og ÍA sinn fyrsta. í 3.
deild karla veröur einn leikur,
Magni og Reynir frá Árskógs-
strönd leika á Grenivík klukkan
20.
Unglingalandsleikur í knattspymu:
ísland mætir
Wales í kvöld
ísland og Wales mætast í Evrópu-
keppni unglingalandshöa í knatt-
spymu í kvöld á Varmárvelli í Mos-
fellsbæ. Þetta er þriðji leikur íslands
í keppninni og hefst hann klukkan
20. Island tapaði, 2-3, fyrir Englandi
að Varmá í fyrrahaust en gerði síðan
jafnteíli, 1-1, við Belga á útivelli.
Höröur Helgason, þjálfari íslenska
hðsins, hefur valið 16 leikmenn fyrir
leikinn og hafa fimm þeirra leikið
með meistaraflokkum félaga sinna á
íslandsmótinu í ár. Það eru Rúnar
Sigmundsson og Kristinn Lárusson
úr Stjörnunni, Helgi Sigurðsson úr
Víkingi, Hákon Sverrisson úr
Breiðabhki og Þórður Guðjónsson
frá Akranesi.
Liðið er annars skipaö þessum leik-
mönnum:
Markveröir:
Friðrik Þorsteinsson, Fram
Eggert Sigmundsson, KA
Aðrir leikmenn:
Amar Arnarsson, Fram
Auðunn Helgason, FH
Einar Baldvin Árnason, KR
Flóki Halldórsson, KR
Hákon Sverrisson, Breiðabliki
Helgi Sigurðsson, Víkingi
Kári Sturluson, Fylki
Kristinn Lárusson, Stjörnunni
Óskar Þorvaldsson, KR
Pálmi Haraldsson, Akranesi
Rúnar Sigmundsson, Stjörnunni
Rútur Snorrason, ÍBV
Sturlaugur Haraldsson, Akranesi
Þórður Guðjónsson, Akranesi
Staðan í riðlinum er þannig:
England.........4 3 1 0 7-2 7
Belgía..........3 0 3 0 2-2 3
ísland..........2 0 113-41
Wales...........3 0 12 1-5 1
-VS
1. deildin í knattspymu:
Frestun á
tveimur leikjum
Vegna unglingalandsleiks íslands
og Wales í kvöld hefur tveimur leikj-
um í 1. dehd karla i knattspyrnu, sem
fram áttu að fara annað kvöld, verið
frestað um einn og tvo daga.
Leikur Stjörnunnar og Víðis fer
fram í Garðabæ á fimmtudagskvöld-
ið klukkan 20 og Breiðabhk mætir
FH í Kópavogi á fóstudagskvöldið
klukkan 20. Það verður því aðeins
einn leikur í dehdinni annaö kvöld,
ÍBV og Víkingur mætast í Eyjum
klukkan 20. •
Frestunin er til komin vegna þess
að tveir meistaraflokksmenn Stjörn-
unnar eru í unglingalandsliðinu og
einn úr Breiðabliki.
-VS
Fijálsaríþróttir:
Landskeppni
í Skotlandi
- áöur en haldiö veröur til Portúgals
Landsliðíslandsífriálsumiþrótt- í Portúgal keppa karlarnir við
um tekur þátt í landskeppni í Skot- Dani, HoUendinga, íra, Norðmenn
landi á sunnudaginn og mætir þar og Portúgah en konumar við Aust-
írum, Norður-írum, Skotum og urríkismenn, Dani, HoUendinga,
Walesbúum. Þaðan fer Uðið th íra, Norðmenn og PortúgalL
Portúgals og tekur þar þátt i C- Karlamir, semkeppaí Skotlandi,
riðh Evrópubikarkeppninnar dag- eru Einar Þ. Einarsson, Gunnar
ana 22.-23. júní. Guömundsson, Friörik Larsen,
Finnbogi Gylfason, Jóhann Ingi-
bergsson, Hjörtur Gíslason, EgiU
Eiðsson, Daníel Smári Guðmunds-
son, Ólafur Guðmundsson, Jón
Oddsson, Einar Kristjánsson, Sig-
urður T. Sigurðsson, Pétur Guð-
mundsson, Vésteinn Hafsteinsson,
Unnar Garðarsson og Guðmundur
Karlsson.
Hjörtur og Unnar
ekki til Portúgals
Hjörtur og Unnar fara ekki th Port-
úgals en í hópinn í stað þeirra bæt-
ast Jón Stefánsson og Sigurður
Einarsson.
Konumar, sem keppa í Skot-
landi, eru Súsanna Helgadóttir,
Guðrún Amardóttir, Þuríður Ing-
varsdóttir, Ólöf Þ. Magnúsdóttir,
Fríða Rún Þórðardóttir, Martha
Emstdóttir, Ingibjörg ívarsdóttir,
Sunna Gestsdóttir, Þórdís Gísla-
dóttir og íris Grönfeldt Ingibjörg
• Siguröur T. Sígurðsson keppir fer ekki th Portúgals en hópurinn
fyrir hönd islands í stangarstökki er óbreyttur að öðm leyti.
i tandskeppninni i Skotlandi. -VS
• Bjarni Sigurðsson, markvörður Vals, hirðir knöttinn af kolli Ríkharðs Daðasonar i leik liðanna á Laugardalsvellinum i gærkvöldi. Á innfelldu myndinni gengur
Bjarni af velli til leikhlés en rétt áður hafði verið gert að sárum hans á höfði. Á myndinni virðist Bjarni bera sig vel. DV-mynd GS
íslandsmótið í knattspymu:
Valur trónir á toppnum
með fullt hús stiga
- eftir sigur á Fram, 0-1, sem byrjar mótið mjög illa
Uppskera íslandsmeistaranna í Fram
er rýr þegar þremur umferðum er lokið
á íslandsmótinu í knattspyrnu. Fram
hefur aðeins hlotið eitt stig úr leikjum
sínum og er í næstneðsta sæti deildar-
innar. Fram beið ósigur fyrir Val á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi, 0-1.
Með sigrinum eru Valsmenn í efsta
sætinu, hafa unnið alla leiki sína þrjá
á mótinu og þaö sem meira er, liðið
hefur enn ekki fengið á sig mark. Vörn
Valsmanna er sterk og með Bjarna Sig-
urðsson fyrir aftan, mjög öruggan í
markinu. Þetta var þriðja viðureign lið-
anna á tímabilinu og hafa Valsmenn
borið sigur úr býtum í öllum viðureign-
unum, fyrst á Reykjavíkurmótinu, síö-
an í meistarakeppninni og loks á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöldi.
Valsmenn voru öllu frískari á upp-
hafsmínútum leiksins en leikurinn var
annars tilþrifalítill framan af. Bæði lið-
in voru að þreifa fyrir sér og tóku enga
óþarfa áhættu. Anthony Carl Gregory
fékk stungusendingu inn fyrir vörn
Fram á 2. mínútu en Birkir bjargaöi
meö góðu úthlaupi.
Bjarni varði í tvígang
á meistaralegan hátt
Framarar fóru síðan að sækja meira
og með stuttu millibili fengu Baldur
Bjarnason og Ríkharður Daðason ágæt
færi th að skora úr. Bjarni í marki Vals
varöi mjög vel hörkuskot Baldurs og
skalli Ríkharðs fór rétt yfir markið.
Valsmaðurinn Steinar Adolfsson fékk
einnig ágætt færi en Birkir Kristinsson
varði vel skallabolta með því að slá
knöttinn frá markinu.
Hættulegasta færi fyrri hálfleiks
fengu Framarar á 38. mínútu. Pétur
Arnþórsson átti þá firnafast skot að
markinu, Bjarni varöi vel en hélt ekki ~
knettinum. Sævar Jónsson kom aðvíf-
andi og hreinsaði frá en svo óheppilega
vhdi th í öllum látunum að fótur Sæv-
ars snerti höfuö Bjarna og lá hann um
tima óvígur eftir. Stöðva varð leikinn
um tíma meðan gert var að sárum
Bjama th bráðabirgða. Hann lék síðan
allan leikinn en fór á slysavarðstofuna
að leik loknum þar sem sauma þurfti
nokkur spor í höfuð Bjarna.
Síðari Kálfleikur var lengstum ekki
mikið fyrir augað. Framliðinu gekk afar
hla aö skapa sér marktækifæri. Það var
eins og allan broddinn vantaði th að
reka endahnútinn á sóknirnar. Rík-
harður Daðason komst næst því að
skora þegar hann fékk fallega sendinu
frá Þorvaldi Örlygssyni en Bjarni var
enn eina férðina á réttum stað og varði
meistaralega. Valsmenn áttu síðan af
og til hættulegar skyndisóknir.
Á 75. mínútu
dregur til tíðinda
Á 75. mínútu dregur til tíðinda. Jón
Sveinsson, varnarmaður Framliðsins,
átti misheppnaða sendingu aftur th
Birkis markvarðar og boltinn fór aftur
fyrir endamörk og Valsmenn fengu
hornspyrnu. Þegar boltinn barst fyrir
markið virtist Birkir hafa hendur á
honum en missti hann klaufalega frá
sér. Boltinn barst til Ágústs Gylfasonar
sem þakkaði fyrir sig og skoraði á auð-
veldan hátt frá markteig, 0-1.
í næstu sókn vildu Framarar fá víta-
spyrnu en þeir vhdu meina að Steinar
Guðgeirsson hefði verið fehdur innan
vítateigs. Eyjólfur Ólafsson, dómari
leiksins, sá hins vegar ekkert athuga-
vert og lét leikinn halda áfram.
Valsmenn voru nærri því að bæta við
öðru marki tíu mínútum fyrir leikslok
þegar Anthony Carl Gregory átti hjól-
hestaspyrnu í slána. Fram sótti síðasta
kafla leiksins en allt kom fyrir ekki og
Valsmenn fógnuðu sigrinum.
Valsmenn léku af skynsemi í leiknum,
vörnin var sterk og Bjarni Sgurðsson
var öryggið uppmálað í markinu. Sæv-
ar Jónsson harðist af hörku í vörninni.
Anthony Carl var hættulegur í sókn-
inni og virkar mjög frískur um þessar
mundir. Valsmenn hafa byrjað mótið
glymjandi vel og hafa alla burði til að
halda áfram á sömu braut.
Á hinn bóginn byija Framarar mótið
afar iha. Fram sýndi þó á köflum í
gærkvöldi að liðið getur hrist af sér
slenið og leikið vel. Aðeins þremur
umferðum er lokið og aht getur gerst
ennþá. Þorvaldur Örlygsson lék sinn
fyrsta leik með Fram og virðist þurfa
meiri tíma til að falla inn í leik liðsins.
Steinar Guðgeirsson og Pétur Ormslev
voru hestu menn liðsins.
-JKS
íþróttir
Sagteftirleiklnn:
Deildin rétt
að byrja
- segir Ingi Bjöm Albertsson
„Auövitað er ég ánægður með sig-
urinn í þessum leik. Leikurinn þró-
aðist meö þeim hætti sem ég átti von
á. Leikaöferð okkar gaf Fram-liðinu
færi á að sækja og það kallaði fram
vissa pressu. Fram var meira méð
boltann en við áttum okkar tæki-
færi. Ég er mjög ánægður með leik
strákanna. Við tökum aðeins einn
leik fyrir í einu og vonandi munu
stigin þrjú úr þessum leik skila sér
þegar upp verður staöið," sagði Ingi
Björn Álbertsson, þjálfari Vals-
manna, eftir sigurinn gegn Fram í
gærkvöldi.
„Við verðum að hafa í huga að
dehdin er rétt að byrja. Næsti leikur
okkar gegn KR á eftir að gefa vissa
vísbendingu. Það er hins vegar mjög
áríðandi að byija vel eins og við ger-
um. Framliðið á eftir að bíta frá sér.
Þetta er aðeins spurning um tíma,“
sagði Ingi Björn.
Ásgeir Elíasson
„Fyrir mér var aðeins hð á vellinum.
Við verðum að skora mörk en á sama
tíma erum við að fá á okkur aula-
mörk. I þessum leik kom margt gott
fram en til aö vinna leik verður aö
• Ingl Björn segir það mjög árið-
andi að byrja vel en mikiö sé eftir
af mótinu enn.
nýta færi og það gerðum við ekki að
þessu sinni. Öftustu menn eru að
klúðra sendingum og setja sjálfan sig
um leið í vandræði," sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Fram-liösins, eftir
leikinn.
„Við verðum bara að sjá hvað setur
í þessum efnum. Ef við lögum leik
okkar th batnaðar vinnum viö öh Uö.
Ég er hvergi banginn um framhald-
ið,“ sagði Asgeir Elíasson.
Þorvaldur Örlygsson
„Við geröum allt nema að skora. Við
áttum sphið í leiknum en það sem
ghdir í fótboltanum er aö skora
mörk. Við vorum klaufar að gera
ekki út um leikinn í fyrri hálfleik.
Þetta vih oft fara á þennan veg þegar
tækifærin eru ekki nýtt,“ sagði Þor-
valdur Örlygsson sem lék sinn fyrsta
leik fyrir Fram eftir að hann kom th
liðsins frá Nottingham Forest.
„Mér fannst gaman að leika með
Fram-liðinu og þetta á eftir að ganga
betur áður en varir. Það tekur tíma
fyrir mig að falla betur inn í liðið en
ég er bjartsýnn á framhaldið," sagði
Þorvaldur Örlygsson.
-JKS
• Ásgeir segir að Fram-liðið verði
að nýta tækifærin til að vinna leiki.
Samskipadeild
Fram - Valur 0-1 (0-0)
0-1 Ágúst (75).
Lið Fram: Birkir, Baldur, Kristj-
án, Pétur, Viðar (Jón E. 84), Krist-
inn, Pétur A., Þorvaldur, Jón S.,
Steinar, Ríkharður.
Lið Vals: Bjarni, Örn, Þórður (Jón
H. 81), Magni, Einar, Sævar, Ág-
úst, Steinar, Anthony (Gunnar
M. 88), Jón Grétar, Baldur.
Gult spjald: Þorvaldur, (Fram).
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 1826 greiddu að-
gangseyri.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson.
Skhyröi: Skýjað að mestu, gola
og frekar kalt í veðri. Völlurinn
þungur eftir rigningar fyrr um
daginn.
Staðan:
Valur........3 3 0 0 5-0 9
KR...........3 2 1 0 8-1 7
UBK..........3 2 1 0 7-4 7
ÍBV..........3 2 1 0 6-3 7
Víkingur....3 1 0 2 5-7 3
KA...........3 1 0 2 3-5 3
Stjaman.....3 10 2 1-4 3
FH...........3 0 2 1 3-5 2
Fram.........3 0 1 2 3-5 1
Víðir........3 Ó 0 3 1-8 0
Markahæstir:
Steindór Elíson, UBK...........4
Guðmundur Steinsson, Vík.......3
Leifur Hafsteinsson, ÍBV.......3
Anthony K. Gregory, Val........2
Grétar Steindórsson, UBK.......2
Hörður Magnússon, FH...........2
Ragnar Margeirsson, KR.........2
Knattspyrna:
Keflavík
áfram í
3. umferð
- eftir sigur á UMFG
Ægir Mar Káxason, DV, Suðumesjum:
Keflvíkingar sigruðu Grindvík-
inga í nágrannaslag, 1—0, í 2. um-
ferð bikarkeppni KSÍ í gær-
kvöldi. Keflvíkingar tryggöu sér
um leið þátttöku í 3. umferð en
Grindvíkingar eru úr leik.
Baráttan var í fyrirrúmi í leik
heggja liða og af þeim sökum var
leikurinn ekki mikið fyrir augað.
Óli Þór Magnússon skoraði sigur-
markið fyrir Keflvíkinga á 75.
mínútu leiksins. Óli átti síðan
undir lok leiksins alla möguleika
á að bæta við öðru marki en brást
bogalistin í upplögðu tækifæri.
Grindvíkingar fengu sín tæki-
færi til að skora en Keflvíkingar
voru öhu ágengari.
„Aðstæður voru
mjög erfiðar"
„Taugaveiklun einkenndi leik
þessara liða og eins voru aðstæð-
ur erfiöar að leika knattspyrnu,"
sagði Kjartan Másson, þjálfari
Keflvíkinga, eftir leikinn í sam-
tali við DV.
3. umferð bikarkeppni KSÍ:
kMAliaiM # riifi ■-
PrOnllr TðDr
ÍBK í heimsókn
- leikimir fara fram 25. júní
í gær var dregið um þaö hjá KSÍ hafa leikið vel í 3. dehd, fá efsta liö
hvaða lið eigast viö í þriðju umferö 3.deildar, Leiftur frá Ólafsfirði, í
bikarkeppninnar í knattspymu. heimsókn.
Þrjár innbyrðisviöureignir eru á Þróttur frá Reykjavík leikur á
milli 2. deildar liða og má búast viö heimavelli sínum við Sæviðarsund
hörkuviðureignum á þeim víg- gegnKeflvikingumogerþaðaðlík-
stöðvum. um lætur stærsta viðureign um-
feröai-iimar. Skagamenn, sem eru
Nágrannaslagur í efsta sætinu í 2. deild, leika gegn
á Seyðisfirðí Fylki á Akranesl
Huginn frá Seyðisíirði fær ná- Loks drógust Haukar gegn 3.
granna sína í Þrótti frá Neskaup- dehdar liði IK úr Kópavogi.
stað i heimsókn. Þór frá Akureyri Leikirnir í 3. umferð fara ahir
fékk heimaleik gegn Tindastóh frá fram þriðjudaginn 25. júni.
Sauðárkróki. Dalvíkingar, sem -JKS
nDIADORA