Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1991, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1991.
31
Slakur opnunardagur í Elliðaánum:
Þetta var
sprækur fiskur
- sagði Gunnar Eydal sem veiddi fyrsta laxinn
Veidivon
Gunnar Eydal í gærkvöldi með fyrsta laxinn á þessu sumri úr Elliðaánum -
9 punda hrygnu sem tók maðk i Fossinum. DV-mynd G. Bender
Laxá í Kjós:
Talsvert betri
opnun en í fyrra
Elliðaárnar voru opnaðar í gær og
fyrsta veiðidaginn kom áðeins einn
iax á land en opnunardaginn í fyrra
veiddust sjö laxar. Það var Gunnar
Eydal sem veiddi eina lax gærdags-
ins í Elliðaánum á maðk og var það
9 punda hrygna.
Lengi vel leit út fyrir að enginn lax
kæmi á land í gær og það var ekki
fyrr en hálftíma fyrir lokun í gær-
kvöldi sem Gunnar krækti í laxinn.
„Það var um hálfníu að laxinn tók
maökinn í Fossinum. Ég reyndi að
halda honum í hylnum en hann tók
strikið niöur eftir og ég landaði hon-
um við gömlu brýrnar. Þetta var
sprækur og skemmtilegur fiskur og
kunni allar mögulegar kúnstir,"
sagði Gunnar Eydal í samtali við DV
Veiðin í Norðurá í Borgarfirði var
heldur að glæðast seinnipartinn í
gær eftir mjög dræma veiði undan-
fama daga. í fyrradag kom enginn
lax á land en í gær veiddust 6 laxar
og samtals voru 96 laxar komnir á
land úr Norðurá í gærkvöldi og líkur
á að hundraðasti laxinn veiðist þar
í dag.
„Það er mjög lítið vatn í ánni þessa
dagana. Þetta er þó heldur að lagast
og við urðum í gær varir við ein-
hverja göngu. Laxarnir sex, sem við
fengum í gær, voru allir grálúsugir
í gærkvöldi.
Davíð Oddsson, borgarstjóri og for-
sætisráðherra, hafði ekki erindi sem
erfiði í gær. Hann renndi manna
fyrstur fyrir lax í Elliðaánum í tí-
unda skipti í gær en fór fisklaus í
annað skiptið. Davíð var þó nálægt
því að ná laxi í gær því hann missti
8-9 punda fisk á Breiðunni: „Þetta
var mikil barátta við laxinn en hann
hafði betur í þetta skiptið,“ sagði
Davíð eftir baráttuna.
18 laxar voru í gærkvöldi komnir
upp fyrir teljara á móti 43 á sama
tíma í fyrra. Veiðimenn í gær urðu
varir við lax í Draugaklettum og fyr-
ir neðan og ofan Árbæjarstífluna.
Lítill fiskur er annars í Elliðaánum
sem stendur. -SK/G.Bender
og þeir tóku flestir Francis túbur,
rauðar og gular,“ sagði Jón Þ. Jóns-
son í samtali við DV í gærkvöldi en
hann var þá við veiðar í Norðurá.
Þverá gefur Norðurá lítið eftir en
þar vom 92 laxar komnir á land í
gærkvöldi og fastlega má reikna með
hundraðasta laxinum á land þar í dag
eins og í Norðurá. „Það er fiskur um
alla á, kannski enginn helhngur, en
hann er um alla ána og það er mjög
ljós punktur,“ sagði Óh Olesen, mat-
reiðslumaður við Kjarrá, í samtali
við DV í gærkvöldi. -SK/G.Bender
„Þetta var mjög skemmtilegur dag-
ur og veiðimenn hér voru mjög
ánægðir með árangurinn eftir fyrsta
veiðidag sumarsins," sagði Ólafur
Ólafsson veiðivörður í Laxá i Kjós í
samtali við DV í gærkvöldi. Alls
veiddust 22 laxar í Kjósinni í gær og
er það talsvert betri opnunardagur
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Granda, sést hér með 12 punda
nýgenginn lax sem hann veiddi á
fossbreiðunni á maðk i gærmorgun.
DV-mynd G. Bender
en í fyrra. Stærsti fiskurinn var 13
pund.
21 laxanna veiddist á maðk en Frið-
rik Sophusson fékk eina flugulax
dagsins á Rauðan Francis númer 8.
Laxarnir veiddust um alla á að sögn
Ólafs og virðist sem sá fiskur sem
kominn er í.ána hafi dreift sér mjög
víða. „Það veiddust til að mynda þrír
laxar í Pokafossi, einn í efri gljúfrun-
um fyrir ofan Pokafoss og tveir í
Bugðu. Það er ekki mikill fiskur fyr-
ir neðan Laxfoss enn sem komið er
og fyrstu fiskarnir virðast hafa rokiö
upp eftir allri á og dreift sér vel. Það
er í sjálfu sér mjög gott mál,“ sagði
Ólafur.
- Eru menn bjartsýnir á góða veiði
í sumar í Kjósinni?
„ Já, það held ég. Eins árs laxinn fer
að láta sjá sig undir mánaðamótin
og ef seiðasleppingin frá því í fyrra
skilar sér vel ætti að geta orðið gam-
an hjá mörgum veiðimanninum hér
í surnar."
- Nú er lítið vatn í Laxá í Kjós. Eru
menn farnir að óttast vatnsleysi í
sumar?
„Það er rétt að vatnið er mjög lítið
í dag og ef ekki rignir af og til í sum-
ar gæti þetta endað með ósköpum,“
sagði Ólafur veiðivörður.
-SK/G.Bender
Sá stærsti á land í Laxá í Aðaldal:
„Hann óð um alla
„Þetta var mjög erfiður fiskur og 21 pund og að sjálfsögðu var það í
hann óð um alla Kistukvíslina. Ég Laxá í Aöaldal. Það finnast hvergi
var um 20 mínútur að landa honum svona boltafiskar nema hér,“ sagði
en hann tók um klukkan ellefu um Jón Helgi í samtali við DV i gær-
morguninn,“ sagði Jón Helgi kvöldi.
Björnsson á Laxamýri en hann Alls veiddust9fiskarfyrirhádegi
krækti í þann stóra í Laxá i Aðal- í gær, 8-19 pund, en fjórir eftir há-
dal í gærmorgun. Jón Helgi veiddi degi, afiir undir 10 pundum.
þá 19 punda hrygnu á maðk í Kístu- Vigfús Jónsson á Laxamýri var
kvísl og er það stærsti lax sumars- við veiðar fyrir hádegi í gær og
ins til þessa. Alls veiddust 13 laxar hann sagði í gærkvöldi: „Við sáum
í Laxá í Aðaldal í gær og er það töluvertaffiskiogerumbjartsýnir
mjög svipaður fjöldi og veiddist á framhaldið.“
fyrsta veiðidaginn í fyrra. Ahir Allir laxamir 13 veiddust fyrir
fiskarnir tóku maðk. neðan Æðafossa - 12 hrygnur og 1
Jón Helgi, sem er 24 ára, hefur hængur - og langflestir í Kistu-
áður sett í stórlax í Laxá í Aðaldal: kvísl.
„Stærstilaxinnseméghefveittvar -SK/G.Bender
Kemur 100. laxinn á land í dag?
Fjölimdlar
Það eru sennilega engar ýkjur aö
mun minna er horft á sj ónvarp þeg-
ar sól hækkar á lofti. Ekki virðist
heldur mikið reynt til að halda í
áhorfendur. Á hveiju vori gerist það
sama. Innlend dagskrárgerð, sem
dregur að sér flesta áhorfendur,
hverfur nánast af skjánum.
Laugardagskvöld rikissjónvarps-
ins em heldur betur döpur síðan
Stöðin hætti að vera á staönum. Og
ekkert er sjónvarpsáhorfendum
boðiö upp á í staöinn. Þátturinn
Fólkið í landinu er týpískur sunnu-
dagsþáttur og fáránlegt aö bjóða upp
á slíka þætti á laugardagskvöldum.
Bíómy ndir hafa heldur ekki verið
upp á marga fiska undanfarnar
helgar.
Kostnaður við innlenda dagskrár-
gerð er mikill - allir vita það. En er
kostnaður við endursýningar jafn-
mikill? Ekki veit ég svarið við því
en reikna þó með að borga þurfi því
fólki sem hlut á að máli einhverja
peninga vegna endursýninga. Væri
ekki hægt aö semja við fólk þannig
í upphafi að inni í launagreiðslum
væri endurbirtingaréttur í eitt
skipti.
Þessu er slegið hér fram þar sem
tiltölulega auðvelt væri fyrir sjón-
varpið að vera með hálftíma endur-
sýnda innlenda skemmtiþætti á
laugardagskvöldum ef ekki er hægt
að hafa slíka þætti frumsýnda allt
árið um kring.
Stöð 2 hefur einnig dregið sína
innlendu framleiðslu saman ef ekki
beinlínis þurrkaö hana út. Þannig
virðast bæöi Edda Andrésdóttir og
Helga Guðrún Johnson dottnar úr
dagskránni og ekki annað komið í
staðinn. Á hitt ber að líta að maður
ræður hvort greitt er aí'notagjaldiö
af Stöðinni og allt í lagi að sleppa
því yfir sumartímann. Hins vegar
verður að greiða afnotagjaldið af
ríkissjónvarpinu og þess vegna eiga
áhorfendur heimtingu á bitastæðu
efni á hvaða tíma ársins sem er. Ef
ekki nýju skennntiefni þá endur-
sýndui sárabætur. Að minnsta kosti
verður að létta upp laugardags-
kvöldin - þaö fara ekki allír út úr
bænumumhelgar...
Elín Albertsdóttir
Veður
Á Suðurlandi verður austankaldi og víða skúrir
dag, einkum austan til. Norðanlands verður norðan
og norðaustankaldi eða stinningskaldi, skýjað og
búast má við einhverjum skúrum, einkum við strönd
ina. Á Norðausturlandi verður dálitil rigning með
köflum en vestanlands verður að mestu leyti þurrt
og bjart. Hiti verður á bilinu 5-12 stig.
Akureyri skýjað 6
\Egilsstaðir skýjað 5
Keflavíkurflugvöllur skýjað 6
Kirkjubæjarklaustur skýjað 6
Raufarhöfn alskýjað 5
Reykjavík úrkoma 6
Vestmannaeyjar skúr 6
Bergen skýjað 10
Helsinki rigning 11
Kaupmannahöfn þokumóða 13
Ostó skýjað 11
Stokkhólmur þokumóða 11
Þórshöfn skúr 8
Amsterdam skýjað 12
Barcelona skýjað 17
Berlín alskýjað 13
Feneyjar þokumóða 19
Frankfurt skýjað 12
Giasgow skýjað 9
Hamborg alskýjað 12
London léttskýjað 10
LosAngeles skýjað 15
Lúxemborg skýjað 11
Madrid heiðskírt 13
Maiaga þokumóða 18
Maiiorka léttskýjað 19
Montreal skýjað 23
New York skýjað 27
Nuuk hrímþoka -1
Paris léttskýjað 10
Gengið
Gengisskráning nr. 108. -11. júní 1991 kl.-S.t5
Eining Kaup Sala Tollgeng
Dollar 61,900 62,060 60,370
Pund 103,249 103,516 104,531
Kan. dollar 54,040 54,180 62,631
Dönsk kr. 9,1096 9,1332 9,2238
Norsk kr. 8,9756 8,9988 9,0578
Sænsk kr. 9,7480 9,7732 9,8666
Fi. mark 14,8317 14,8700 14.8276
Fra. franki 10,3339 10,3606 10,3979
Belg. franki 1,7020 1,7064 1,7168
Sviss. franki 40,9839 41,0898 41,6199
Holl. gyllini 31,0891 31,1695 31,3700
Vþ. mark 35,0163 35,1068 35,3341
It. líra 0,04720 0,04732 0,04761
Aust. sch. 4,9777 4,9906 5,0239
Port. escudo 0.3968 0,3978 0,4045
Spá. peseti 0,5662 0,5677 0,5697
Jap. yen 0,43744 0,43857 0,43701
írskt pund 93,763 94,005 94,591
SDR 81,8312 82,0427 81,2411
ECU 72,0485 72.2347 72.5225
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
10. júni seldust alls 206,904 tonn.
Magn í
tonnum
Verð í krónum'
Meöal Lægsta
Blandað 0,117 17,81 8,00 90,00
Karfi 4,543 28,61 20,00 40,00
Langa 0,327 43,18 20,00 46,00
Lúða 1,384 270,61 230.0C 300,00
Rauðmagi 0,013 75,00 75,00 75,00
Skarkoli 1,229 60,00 60,00 60,00
Steinbítur 0,921 43,70 30,00 46,00
Þorskur, sl. 189,417 76,15 74,00 81,00
Ufsi 1,511 51,93 50,00 53,00
Undirmál. 1,607 60,51 46,00 61,00
Ýsa, sl. 5.825 74,18 40,00 130,00
Fiskmarkaður Hafnarfiarðar
10. júní seldust alls 301,459 tonn.
Smáufsi 0.325 46,00 46,00 46,00
Smáýsa 0,986 72,44 50,00 76,00
Smárþorskur 9,521 71,49 64,00 73,00
Vsa 14,905 95,86 37,00 112,00
Ufsi 5,145 31,59 25,00 48,00
Þorskur 247,505 78,43 60,00 118,00
Steinbítur 6,997 47.86 45,00 51,00
Skötuselur 0,074 155,00 155,00 155,00
Skata 0,015 72,00 72,00 72,00
Lúða 2,188 215,81 150,00 300,00
Langa 2,118 55,00 55,00 55,00
Koli 7.148 53,99 40,00 60,00
Keila 0,996 41,00 41,00 41,00
Karfi 3,527 32,14 25,00 51,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
10. júni seldust alls 242,983 tonn.
Langlúra 0,591 60,00 60,00 60,00
Skata 0,123 90,49 90,00 92,00
Blandað 0,235 29,00 29,00 29,00
Blálanga 1,444 54,57 42,00 60,00
Skötuselur 0,518 229,73 175,00 400,00
Náskata 0,023 5,00 5,00 5,00
Koli 1,118 61,95 60,00 62,00
Undirmál 1,212 62,25 59,00 63,00
Ufsi 15,064 45,39 29,00 49,00
Sólkoli 0,483 77,00 77,00 77,00
Karfi 12,447 37,63 30,00 40,00
Steinbítur 0,983 43,62 43,00 44,00
Skarkoli 0,017 50,00 50,00 50,00
Öfugkjafta 0,302 23,00 23,00 23,00
Vsa, sl. 23,981 83,85 55,00 110,00
Þorskur, sl. 182,679 77,86 54,00 111,00
Lúða 0,649 230,17 200,00 310,00
Langa 0,463 44,36 20,00 49,00
Keila 0,649 40,90 26,00 48,00
:iskmarkaöurinn i Þorlákshöfn
10. júni seldust alls 29,937 tonn.
Karfi 4,081 34,27 32,00 36,00
Keila 0,499 35,00 35,00 35,00
Langa 2,305 60,69 35,00 78,00
Lúða 0,591 208,27 110,00 220.00
Öfugkjafta 0,434 30,00 30,00 30,00
Skata 0,182 70,00 70,00 70,00
Skötuselur 3,416 230,50 160,00 390,00
Sólkoli 0,061 60,00 60,00 60,00
Steinbitur 1,627 20,00 20,00 20,00
Þorskur, sl. 9,952 83,17 70,00 95,00
Þorskur, smár 0,438 74,00 74,00 74,00
Ufsi 3,875 48,69 20,00 49,00
Vsa.sl. 2,476 75,83 74,00 103,00
tyeewmz
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI* 653900