Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991. Fréttir Bankamir þörfnuðust vaxtahækkunarinnar: Búist við gjaldþrotameti Sérfræðingar telja, að í ár verði slegið met i gjaldþrotum. Gjaldþrot verði í ár enn meiri en í fyrra. Bank- ar og sparisjóðir hafa búið sig undir þetta ástand með því að leggja fé í afskriftasjóði, en talið er, að það muni engan veginn duga tú. Staða bankanna var orðin slík, að vaxtahækkunin um mánaðamótin var þeim nauðsynleg. Arðsemi í Sjónarhom Haukur Helgason bankakerfmu var ekki ásættanleg, að dómi sérfræðinga. Hefði afkoma bankanna haldist svipuð áfram, hefði borgað sig frekar fyrir innláns- stofnanir að ávaxta eigið fé sitt í rík- isskuldabréfum en aö halda venju- legum bankarekstri áfram. Landsbankinn og íslandsbanki voru reknir með tapi síðustu mánuði Hlutdeild í heildarinnlánum og verðbréfaútgáfa banka og sparisjóða 40 10 o ... ' ; . ; : 1989 ■xmmmm .........:•:•:•:•:•:•:•:•:•:•:•:•:•:• i-ií-i-:-:-:-:-: feSSííí íííiíiííiíffií mmm : . ■ ■; - illll Landsbanki íslandsbanki Sparisj. vélstj Sparisj. í Keflavík Búnaðarbanki SPRON Sparisj. Hafnarfj. Grafið sýnir hlutfallslega stærð helstu banka og sparisjóða. fram að vaxtahækkuninni. Búnaðar- bankinn og sumir sparisjóðir högn- uðust nokkuð. Lausafjárhlutfall nokkurra banka og sparisjóða var undanfarna mánuði innan þeirra marka, sem Seðlabankinn setur, og borguðu þessar innlánsstofnanir því þung viðurlög til Seðlabankans. En með ráðstöfunum í byrjun þessa mánaðar jókst vaxtamunur, mis- munur innláns- og útlánsvaxta bank- anna, og gæti það hafa bjargað bönk- unum úr þessari klemmu. Landsbankinn varði í fyrra um fjórðungi rekstrartekna sinna til af- skrifta og framlags í afskriftasjóð. Þetta var mikið átak, sem stafar af ótta við tapaðar skuldir. Alls settu bankar og sparisjóðir tvo og hálfan milljarð króna í afskriftasjóði í fyrra. Bankastofnanirnar hafa nú alls sett um fimm milljarða í sjóði til að mæta útlánum, sem búist er við að tapist, eins og DV hefur áður greint frá. Árið í ár verður lánastofnunum þungt enda fréttir nær daglega af stórum gjaldþrotum. Arið í fyrra var bönkunum hins vegar þolanlegt, ágóði banka og fjögurra stærstu sparisjóðanna var rúmlega 800 millj- ónir króna. Þetta var þó mikil minnkun frá árinu á undan, eða um 40 prósent lækkun að raunvirði. Margrætt er, að vaxtahækkunin um síðustu mánaðamót var nauð- synleg til að mæta þenslu og halda veröbógu í skefjum. Þenslan hafði verið afleiðing aðgerða ríkisins, sem hafði valdið vanda á lánsfjármarkaði með uppskrúfuðum lánsfjárlögum. Þenslan nær til hluta efnahagslífs- ins, meðan annar hluti er í vanda sakir íjárskorts. Vaxtahækkunin nú gerir þó mörgum erfitt fyrir og hlýt- ur að stuðla að því, að ýmsir skuldar- ar fara fyrr á höfuðið en ella. Það sem hér er sagt um afkomu bankanna gefur til kynna, að einnig hafi verið nauðsynlegt bankanna vegna að hækka vexti og auka vaxtamun. Skagafiörður: Þýskirsjón- varpsþættir kvikmyndaðir Þórhallur Ásmundsson, DV, Sanðárkr: I Skagafiröi er nú verið að kvik- mynda tvo þætti úr vinsælli þýskri framhaldsþáttaröð sem heitir Fast im Sattel og mætti útleggja á íslensku sem Á baki. Þættirnir, sem aðaliega fjalla um ævintýri hesta og hestafólks, hjóta mikilla vinsælda í þýska sjónvarpinu og hefur íslenska sjónvarpið nu fest kaup á sýning- arréttinum. Tökur hafa farið fram víða um Skagafjörðinn, á Hellulandi, Löngumýri, á Kirkjutorginu á Króknum auk ýmissa hestaatriða hingað og þangað um fjörðinn. Vel hefur gengiö að kvikmynda enda hefur veðrið leikið viö bæði leikara og kvikmyndatökumenn. Greinilegt er að þegar þar að kemur munu sjónvarpsáhorfend- ur fá að sjá hln tilþrffamestu atr- iði. Héraðsvötn voru til dærais sundriðin, konur fóru í hópreiö við Garössand og slegið var upp grillveislu meö tilheyrandi söng á eftir. Vélhjólaslysi Fljótunum Helgi Jónaaon, DV, Ólafafiröi: Alvarlegt umferðarslys varð í Fljótunum um kvöldmatarleytið á þriðjudag. Þá fór vélhjól út af veginum með þeim afleiðingum að tæplega tvítug stúlka lær- brotnaði og rúralega tvítugur maður, sem ók þjólinu, slasaðist einnig, en þó mixma en stúlkan. Þau eru bæði frá Ólafsfirði en munu hafa veriö á leiö heim frá Siglufirði. Þau voru flutt á Fjórð- ungsgúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum þeirra. Stúlkan gekkst undir aðgerð á miövikudag. Líðan þeirra er eftir atvikum. Fáksfélagar drjúgir við verðlaunasöfnun Það þóttu ekki góð tíðindi á land- námsöld þegar hópar hestamanna riðu um héruð með vígalátum. En margt hefur breyst á þúsund á’rum og nú eru þeir hestamenn, sem ferð- ast á hestum á leið á fjórðungsmótið á Gaddstaðaílötum á Rangárbökk- um, aufúsugestir. Veðurblíðan og frábært skipulag gerir fólki kleift að slappa af og njóta þess sem hestamót bjóða upp á, hesta og félagslíf. í gær var dæmt á þremur völlum í einu allan daginn. 65 B-flokks gæð- ingar frá 16 hestamannafélögum voru dæmdir, 58 gæðingar í bama- flokki og töluverður hópur sex vetra hryssna. Einnig fór fram töltkeppni um kvöldið. Það stefnir í að knapar frá hesta- mannafélaginu Fáki í Reykjavík hirði megnið af verðlaununum í gæð- ingakeppninni. Fákm- áfjóraaf fimm efstu gæðingunum í B-flokki og fimm af þeim átta sem eru í úrslitum. Hörður í Mosfellsbæ á tvo fuUtrúa og Sleipnir frá Selfossi einn. í bamaflokki á Fákur þrjá fulltrúa af átta í úrslitum, Hörður á þijá, Smári á Skeiðum og í Hreppum einn og Geysir í Rangárvallasýslu einn. Sami knapi með tvo efstu hestana Fákur kemur vel út í B-flokks keppninni. Fjórir af þeim fimm hest- um, sem vom í einu af fimm efstu sætunum á hvítasunnukappreiðun- um í vor, endurtaka ævintýrið hér. Gunnar Amarson og Sigurbjörn Bárðarson em báðir með tvo hesta í úrslitum eins og á hvítasunnukapp- reiðunum. Gunnar er með tvo efstu hestana eftir dóm í B-flokknum. ís- ak/Fákur er efstur með einkunnina 8,91 og stóðhesturinn Hektor/Fákur er með einkunnina 8,89. í þriðja sæti er Pjakkur/Hörður með einkunnina 8,80. Knapi er Ragnar Ólafsson. í ísak frá Litla-Dal og Gunnar Arnarson á fljúgandi tölti, efstir í B-flokkskeppninni eftir dóma. DV-mynd EJ ijórða sæti er Kraki/Fákur og Sigur- bjöm Bárðarson með 8,78, í fimmta sæti Vignir/Fákur og Sigurbjörn Bárðarson með 8,87, í sjötta sæti At- geri/SÍeipnir og Einar Öder Magnús- son með 8,59, í sjöunda sæti Sörli/F- ákur og Ragnar Hinriksson með 8,52 og í áttunda sæti Baldur/Hörður og Trausti Þór Guðmundsson með 8,51. í bamaflokki er Sigfús B. Sigfússon /Smári efstur á Skenk með 8,55 í ein- kunn, Birkir Jónsson/Geysir, á Ljúf er með 8,52, Alma Ölsen/Fákur á Sörla er með 8,51, Guðmar Þ. Péturs- son/Herði á Mána er með 8,51, Sölvi Sigurðsson/Herði á Geysi er með 8, 42, Lilja Jónsdóttir/Fáki á Gáska er með 8,39, Davíö Jónsson/Fáki á Snældu er með 8,38 og Sveinbjörn Sveinbjörnsson/Herði á Hvelli er með 8,38. Úrsht í gæðingakeppnun- um fara fram á sunnudaginn. -EJ flsrunD SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS Háaleitisbraut 68 Austurver Sími 68 42 40 Áhorfendur skemmta sér vel í brekkunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.