Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991. Veiðivon 39 Margir veiðimenn öngulsárir og aumir þessa dagana: - fyrstu veiðimenn fengu ekkert og sáu ekkert af laxi í Hofsá í Vopnafirði Laxveiðimenn bera sig illa þessa dagana og ekki að ástæðulausu. Þorri laxveiðiánna er hreinlega að þurrkast upp og hringinn í kringum landið bíða menn nú eftir rigningu. Það er ekki einungis fiskleysi sem hrjáir marga veiðimenn heldur eru þeir frekar hnípnir veiðimennimir sem nota mikið af ánamaðki við veiðiskapinn, enda slík kvikindi varla fáanleg á landinu eftir ótrúlega þurrkatíð undanfarið. Þeir fáu maðkar sem mjaka sér að yfirborði jarðar og hafna á milii fingra maðka- sölufólks eru seldir á uppsprengdu verði. Hæsta verð sem heyrst hefur fyrir maðkinn er 80 krónur fyrir stykkið. Það þýðir að beitan leggur sig á um 240 krónur. Kannski ekki að furða þótt menn hafi snúið sér í auknum mæli að fluguveiði undanf- arna daga. Þeir lánsömu veiðimenn sem haft hafa auraráð til að fjárfesta í þeim slímuga hafa ekki margir haft árang- ur sem erfiði. Margir veiðimenn hafa keypt veiðileyfi dýrum dómum en síðan hafa þessir veiðimenn í mörg- um tilfellum snúið til byggða öngul- sárir og aumir að flestu leyti. Enginn lax í fjóra daga í Laxá í Dölum „Héðan er nákvæmlega ekkert að frétta. Áin minnkar dag frá degi og það gerist ekkert hér nema að hann fari að rigna," sagði Gunnar Bjöms- son, matreiðslumaður við Laxá í Dölum, í samtali við DV í gærkvöldi. Aðeins 3 laxar eru komnir á land og veiddust þeir allir í opnuninni. Eng- inn lax hefur veiðst síðustu fjóra dagana. Veiðimenn hafa séð mjög mikið af laxi í Efra-Sjávarfljóti á flóði en laxinn virðist fara aftur til sjávar og ekki leggja í að ganga ofar í vatns- lausa ána. Enginn lax í Hofsá? „Hér hófu menn veiðar í gær en fyrsta hálfa daginn veiddist ekkert og veiðimenn sáu engan lax í ánni,“ sagði Sverrir Sigfússon, veiðivörður í Hofsá í Vopnafirði, í gærkvöldi en veiði hófst í ánni í gær. „Það er frek- ar lítið vatn í ánni og laxinn virðist ekki vera kominn. Það vantar rign- ingu hér eins og víða annars stað- ar,“ sagði Sverrir ennfremur. Við fréttir af veiði í Hofsá er því að bæta að silungsveiði á silungasvæði Hofs- Hér sjást glaðir veiðimenn sem veiddu fallega laxa við Laxfoss í Norðurá á dögunum. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurður Guðjónsson, Anna K. Sig- þórsdóttir og Sigfús Þ. Eliasson. DV-mynd SAM ár hefur gengið treglega það sem af er. „Menn taka þessu karlmannlega“ „Það hefur aðeins verið að lifna yfir þessu síðustu dagana en það vantar tilfmnanlega vatn í ána sem er mjög heit. Annars taka veiðimenn þessu karlmannlega," sagði starfsstúlka í veiðihúsinu við Grímsá í gærkvöldi. Þá vom komnir 45 laxar á land og hafa þeir veiöst til jafns á flugu og maðk. Stærsti laxinn enn sem komið er vó 13 pund. Glímt viðrisa í Myrkhyl í Austurá Veiöimenn, sem em við veiðar í Mið- fjarðará, settu í risastóran fisk í Myrkhyl í Austuránríi í gær en hann fór af eftir snarpa viðureign. Að sögn veiðimanns, sem ekkert hafði fengið í gær, var þetta fiskur vel yfir 20 pund. Hoflið, sem nú er við veiðar í Miöfjarðará, hafði í gærkvöldi fengiö 8 laxa og heildartalan úr Miðfjarðará var nálægt 40 laxar. Mikill lax kominn í Hvolsá og Staðarhólsá Enn er veiði ekki hafin í öllum veiði- ám landsins en þær síðustu verða opnaðar á mánudaginn, 1. júlí. Þar má nefna Hrútafjarðará og Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. Af Hvolsá og Staðarhólsá er það að frétta að mikill lax hefur þegar sést í ánni og er hann mjög vænn. Hafa menn séð mikið af laxi frá 10 til 19 pund eða þar um bil. Þá hafa menn séð mikið af laxi fyrir utan árnar og er hann þegar farinn að ganga af krafti. Má því búast við fjörlegri opnun í Hvolsá og Staðarhólsá en vatn í ánum mun vera fyrir ofan meðallag. Laxinn kominn í Laxá og Bæjará í Reykhólasveit Fréttir hafa borist af miklum laxa- göngum viö norðanvert Snæfellsnes. Þá má geta þess að talsvert hefur sést af laxi í Laxá og Bæjará í Reyk- hólasveit og í nágrenni við ósa ánna hefur orðið vart við töluvert magn af bleikju og virðist hún ætla að verða óvenju snemma á ferðinni eins og laxinn á þessum slóðum þetta sumarið. Veiði er nýhafm í Laxá og Bæjará og eru 3 laxar komnir á land, sá stærsti 14 pund. Lítið af veiðimönnum en mikiö affiski „Það er frekar lítið að frétta af veið- inni hér þessa dagana. Hér hafa fáir veiðimenn verið við veiðar síðustu dagana og virðist sem fólk fari um lengri veg til veiða á þessum árs- tíma,“ sagði bóndinn á Elliðavatni í gærkvöldi í samtali við DV. Þeir sem hafa rennt í Elliðavatn undanfarna daga hafa sumir hveijir veitt vel og veiðimaður, sem kastaði lítilli púpu neðan við bæinn að Elliðavatni á dögunum, fékk 12 silunga í beit á fluguna. -SK „Þaö var gaman aö fá fyrsta laxinn i Soginu og skemmtilegt að hann skyldi taka fluguna," sagði Jón Þ. Einarsson sem veiddi 9 punda lax á Rauða franses á Öldunni á dögun- um og sést hér með laxinn. DV-mynd GG 1 Ttmaiit fyrir aua Fjölmiðlar ■— m m mtm m u m M Piooin i hnolskurn ■ wii ■ ■ IIIIVvifllfHfl ■■ Það er kannski að bera í bakka- : fullan lækinn að gagnrýna þá út- varpsþaittiþar sem þióðin færútrás fyrireðlið. Þjóðarsálin, Meinhornið og Landiö og miöin. Allt eru þetta þættir á rás 2 og aliir bjóða þeir landanum upp á að nöldra, kvarta, kveina, skammast, hrósa og elskast. Ýmsir telja þetta svo nauðsynlega þætti að þeir megi alls ekki missa : sig. Efþeir væru ekki á dagskrá myndu sálfræðingar landsins fara á taugum vegna yfirvinnuálags og þyrftu sjálflr að ganga til geðlæknis. En hvað er það í þessu margumtal- aöa þjóðareðli sem gerir það að : verkumaöþað krefst þess aðhafa slíka þætti? Og hvaöa hluti þjóðar- innar er þaö sem nýtirsérþessa ókeypis sálfræðiaðstoð? Þeir sem hringja eða skrifa i þessa þætti virð- ast eiga það sameiginlegt að þeir kvarta eða hrósa sömu atriðum. Ef einn byijar að kvarta yflr einhverj u veröur þátturinn eins og sagan um kýrnar. Ef ein byijar að pissa fara aflar að pissa. Ef Stefán Jón Haf- stein er skammaöur fyrir hortug- heit koma fimmtán manns á eftir ogviljalfka skamma hann. Ég held að það vanti hugmyndaflug í þjóð- Landið og raiðin er afar sérstakur þáttur og ég held að Sigurður Pétur sé líka afar sérstakur maður. Það hlýtur aö þurfa sérstákan persónu- leika til aö halda úti þætti fy rir fufl- orðið fólk sem sendir ástsjúkar, mergjaðar og útfrikaðar kveðjur millilandshluta. Saumaklúbbar, sjómenn og knattspyrnulið eru á útopnu hjá Sigurði Pétri. Ég veit ekki hvort hann velur sjálfur þá tónlist sem spfluö er eða hvort það er þjóðin sjálf. Ef það er hann sem velur þá hefur hann alveg ótrúlega uhdárlegán tónlistarsmekk. En éf það er fólkiö sjálft sem velur þá er máliöhálfuverra. En eins og sagt er að framan er það sennilega að bera í þennan margumtalaða bakkafulla læk að nöldra yfir þessum ást-haturs þátt- um. Þetta virðist vera það sem þjóð- in vill. Þessír þættir njóta mestrar hlustunar og Siguröur Pétur var meiraaðsegja næstum þvi kosinn maður ársins á dögunum. Þetta er þjóðin í hnotskurn og þannig vill húnsjásigogheyra. Nauna Sigurdórsdóttir Veður Vestan- og suðvestangola eða kaldi og smásúld vest- an til á landinu en viða bjart austanlands og í inn- sveitum norðan- og sunnanlands. Hiti frá 7-20 stig þegar liður á daginn, hlyjast á Norðaustur- og Aust- urlandi. Akureyri léttskýjað 8 Egilsstaðir léttskýjað 9 Keflavíkurflugvöllur skúr 8 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 11 Raufarhöfn heiðskírt 8 Reykjavik alskýjað 9 Vestmannaeyjar skýjað 9 Bergen hálfskýjað 10 Helsinki þokumóða 13 Kaupmannahöfn alskýjað 14 Ósló alskýjað 13 Stokkhólmur hálfskýjað 15 Þórshöfn léttskýjað 11 Amsterdam skúr 13 Barcelona hálfskýjað 16 Berlín skýjað 10 Chicagó heiðskírt 24 Feneyjar heiðskírt 18 Frankfurt skúr 12 Glasgow þoka 10 Hamborg rigning 11 London mistur 12 LosAngeles hálfskýjað 17 Lúxemborg skýjað 11 Malaga þokumóða 22 Mallorca léttskýjað 20 Montreal alskýjað 24 New York skýjað 26 Nuuk þoka 4 Orlando léttskýjað 24 Paris skýjað 12 Róm heiðskírt 22 Valencia skúr 21 Vin léttskýjað 15 Winnipeg léttskýjað 12 Gengið Gengisskráning nr. 120. - 28. júní 1991 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 62,890 63,050 60,370 Pund 102,256 102,516 104,531 Kan. dollar 55,058 55,198 52,631 Dönsk kr. 9,0036 9,0265 9.2238 Norsk kr. 8,9161 8,9388 9,0578 Sænsk kr. 9,6272 9,6517 9,8555 Fi. mark 14,6785 14,7158 14,8275 Fra. franki 10,2652 10,2914 10,3979 Belg. franki 1,6893 1,6936 1,7168 Sviss. franki 40,3723 40,4750 41,5199 Holl. gyllini 30,8776 30,9562 31,3700 Vþ. mark 34,7795 34,8680 35,3341 it. líra 0,04673 0,04685 0,04751 Aust. sch. 4,9432 4,9558 5,0239 Port. escudo 0,3988 0,3998 0,4045 Spá. peseti 0,5548 0,5562 0,5697 Jap. yen 0.45538 0,45654 0,43701 Irskt pund 93,093 93,330 94,591 SDR 82,7249 82,9353 81,2411 ECU 71,4745 71,6563 72,5225 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Fiskmarkaðimir Faxamarkaður 27. júní seldust alls 112,547 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meðal Lægsta Hæsta Blandað 0,016 10,00 10,00 10,00 Grálúða 0,590 75,00 75,00 75,00 Karfi 19,057 31,20 29,00 36,00 Keila 0,143 25,00 25,00 25,00 Langa 2,700 21,69 20,00 36,00 Lúða 0,788 291,29 220,00 340,00 Rauðmagi 0,023 20,00 20,00 20,00 Saltfiskflök 0,175 165,00 165,00 165,00 Skata 0,433 90,00 90,00 90,00 Skarkoli 0,206 56,85 52,00 77,00 Skötuselur 0,340 180,00 180,00 180,00 Steinbítur 0,974 42,56 32,00 45,00 Þorskur, sl. 65,201 77,47 40,00 92,00 Ufsi 5,568 43,13 41,00 48,00 Undirmál. 4,560 57,95 53,00 62,00 Ýsa, sl. 11,772 76,79 35,00 -89,00 Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 27. júní seldust alls 181,072 tonn. Smáufsi 0,281 24,00 24,00 24,00 Rauðm./gr. 0,083 20,00 20,00 20,00 Þorskur, st. 5,344 88,00 88,00 88,00 Keila 7,374 30,64 28,00 31,00 Smár þorskur 1,830 53,00 53,00 53,00 Lúða 0,276 212,15 150,00 315,00 Ýsa 73,786 75,70 50,00 89,00 Ufsi 19,969 46,15 44,00 48,00 Þorskur 60,547 82.07 77,00 88,00 Langa 3,562 61,66 39,00 64,00 Koli 0,996 67,19 30,00 79,00 Karfi 8,021 30,80 30,00 32,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 27. júni seldust alls 225,501 tonn. Lýsa 0,010 15,00 15,00 15,00 Keila 0,104 26,00 26,00 26,00 Skötuselur 0,225 395,04 100,00 415,00 Skata 0,054 87,00 87,00 87,00 Ýsa 35,876 80,15 50,00 109,00 Þorskur 45,928 83,98 35,00 100,00 Langa 1,300 40,46 38,00 42,00 Undirmál. 0301 42,17 20,00 44,00 Ufsi 78,902 43,09 21,00 45,00 Karfi 58,182 31,18 27,00 38,00 Steinbítur 0,392 37,67 25,00 46,00 Sólkoli 0,341 58,28 52,00 59,00 Lúða 3,886 209,79 85,00 445,00 Fiskmarkaðurinn Þorlákshöfn 27. júní seldust alls 7,157 tonn. Karfi 2,064 24,36 24,00 30,00 Keila 0,030 20,00 20,00 20,00 Langa 0,013 30,00 30,00 30,00 Lúða 0,157 190,00 190,00 190,00 Steinbítur 1,120 22,49 20,00 32,00 Þorskur, sl. 0,922 83,94 72,00 87,00 Ufsi 2,801 49,16 46,00 50,00 treewaviz MARGFELDI 145 é PÖNTUNARSÍMI • 653900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.