Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháÖ dagblað
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991.
Brandt við komuna til landsins í gær.
DV-mynd Ægir Már
Willy Brandt
á Islandi
Willy Brandt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, kom til landsins
í gær ásamt eiginkonu sinni í boði
Germaníu. Hann mun dvelja hér á
landiframásunnudagogmeðalann-
ars sitja boð Vigdísar Finnbogadótt-
ur forseta og hitta að máli nokkra
af leiðtogum íslensku stjórnmála-
flokkanna. í dag klukkan 19 mun
hann halda opinn fyrirlestur í Há-
skólabíói um sameiningu Þýska-
lands, breytingarnar í Evrópu frá
1989 og framtíð Evrópu í hinu alþjóð-
legasamfélagi. -kaa
Hús umkringt
v. við handtöku
strokufangans
Strokufanginn úr Hegningarhús-
inú, sem leitað hafði verið að frá 15.
júní, fannst í húsi í Kópavoginum
síðdegis í gær. Handtakan kom í
kjölfar einnar af fjölmörgum vís-
bendingum sem bárust til lögregl-
unnar eftir að birt var mynd af fang-
anum í fjölmiölum. Umrætt hús var
umkringt í Kópavoginum og síðan
knúð dyra. Fanginn reyndist vera
innandyra og veitti hann ekki viðn-
ám við handtökuna.__-ÓTT
Stöð 2:
Síðastafreisting
^ Kristsaf dagskrá
Hin umdeilda kvikmynd Síðasta
freisting Krists, sem sýna átti á Stöð
2 annað kvöld, hefur verið tekin út
af dagskránni án nokkurra skýringa.
Miklar deilur urðu fyrir þremur
árum um kvikmyndina sem sýnir
Jesú Krist í öðru ljósi en Biblían
greinirfrá. -HK
Þyrlanfluttídag
Þyrlu vamarliðsins, sem hlekktist
á á Snæfellsjökli, veröur flogið af
jöklinum í dag ef veður leyfir. Unnið
var sleitulaust í alla nótt við að koma
þyrlunni í lag. Undir morgun var
búið að skipta um annan mótorinn
og alla spaða þyrlunnar og reyndist
húnílagiviðprufu. -BÓl
LOKI
Kjarkur er þetta í stöðvar-
mönnum!
Slökkvilið og lögregla kannar skemmdir ettir brunann á verkstæðinu.
DV-mynd S
Einhliða veiði
heimildir koma
ekki til greina
„Ég ætla ekki að túlka þessi orð
á nokkurn hátt. Okkar samnings-
staða er skýr og henni verður ekki
breytt Við fórum ekki inn í þetta
samkomulag nema fá tollfijálsan
aögang fyrir sjávarafurðir. Það
kemur ekki til greina að við förum
að hleypa Evrópubandalaginu al-
veg tollfijálst hingaö inn, án þess
að fá tollfrelsi á móti. Einhliða
veiðiheimildir hafa ekki komið til
greina og koma ekki til greina.“
Þetta sagði Þorsteinn Pálsson al-
þingismaður þegai- DV bar undir
hann opinbera túlkun fram-
kvæmdanefndar Evrópubanda-
lagsins á niðurstöðum ráðherra-
fundar EB og EFTA sem haldinn
var í Luxemborg á dögunum.
Þar segir Jacques Poos, formaður
ráðherraráðs EB, að hann áhti að
pólitískt samkomulag um fisk hafi
náöst í Luxemborg. Tvö atriði hafi
verið lögð til grundvallar, bæði
mjög mikilvæg að mati EB-manna.
Hafi annars vegar verið um að
ræða betri aðgang sjávarafurða
EFTA-landanna að markaði EB og
hins vegar aögang fiskveiðibáta að
fiskimiðum EFTA. Eftir strangar
viðræður hafi EFTA-ríkin, þar á
meðal ísland og Noregur, fallist
afdráttarlaust á tengingu þessara
atriða sem þýði að fiskveiðimenn
bandalagsins fái aðgang, jafnvel
þótt í mjög takmörkuðum mæli sé,
að fiskimiöum EFTA-rikja innan
ramma Evrópska efnahagssvæðis-
ins.
„Hitt er annað mál að alveg £fá
1976 hefur verið til umræðu að gera
tvíhliða samskiptasamning á sviði
sjávarútvegsmála, þar sem íjallaö
yrði um samskipti við vísindarann-
sóknir og mengunarvarnir, upplýs-
ingagjöf af ýmsu tagi og gagn-
kvæmar veiöiheimildir," sagði Þor-
steinn. „Við erum reiðubúnir til að
Ijúka þeim samningi í tengslum við
þennan væntanlega EES-samning.
En samningsstaða okkar er alveg
klár og ætti að vera Evrópubanda-
laginu Ijós.
Ef þetta er rétt eftir Poos haft þá
er það á miklum misskilningi byggt
af hans hálfu. Ég trúi ekki að honum
séekkiljóssamningsstaöan." -JSS
Veðriðámorgun:
Hæg, breytileg
áttoghlýtt
Á morgun verður fremur hæg
breytileg átt um allt land. Skýjað
verður vestast á landinu og sums
staðar smásúld við ströndina en
víðast léttskýjað austan til. Hiti
verður á bihnu 8-18 stig.
Sólborg á Akureyri:
Starfsmaður
stunginn með
hnífiíhálsinn
Starfsmaður á vistheimilinu Sól-
borg var stunginn með hnífi á háls-
inn um klukkan tíu í gærkvöldi. Vist-
maður á heimihnu, sem er fyrir van-
gefna, hafði náð í hníf og lagt til hans.
Starfsmaðurinn var á ferð í bænum
með vistmanninn og fóru þeir í heim-
sókn í hús. Þar átti atburðurinn sér
staö. Starfsmaðurinn var íluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert
var að sárum hans. Meiðsl hans eru
ekki alvarleg. Að sögn lögreglu er
ljóst að litlu munaði að illa færi.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur málið til meðferðar. Vistmað-
urinn, sem er ósakhæfur, var eftir
atburðinn fluttur aftur á vistheimil-
ið. -ÓTT
Evrópumótið í brids:
Íslendingarí
3.-4. sæti
íslendingar eru í 3.-4.sæti á Evr-
ópumótinu í brids eftir 24 umferðir.
í gær vann sveitin íra, 21-9, og gerði
jafntefh við ítali, 15-15. Sveitin mæt-
ir Hollendingum og Belgíumönnum
í dag en í síðustu umferð mótsins á
morgun er leikið við Dani.
Bretar eru enn efstir á mótinu með
487,5 stig, Svíar hafa 478, íslendingar
og Pólverjar 442 og Hollendingar eru
í fimmta sæti með 441 stig. -GRS
skemmdust
íeldi
Talsverður eldur varð laus á bif-
reiðaverkstæði við Vagnhöfða um
miðnættið. Sjö bifreiðir voru innan-
dyra sem urðu fyrir skemmdum.
Talið er að eldurinn hafi kviknað
út frá logsuðutæki sem verið var að
vinna með. Starfsmaður reyndi að
slökkva eldinn með handslökkvitæki
en það tókst ekki. Þegar slökkvilið
kom á staðinn reyndist talsverður
eldur vera innandyra og mikinn reyk
lagði frá húsinu. Eldurinn breiddist
einnig út að geymslulofti. Fjórir
reykkafarar voru sendir inn með
háþrýstibúnað og tókst þeim að ráða
niðurlögum eldsins. Reykkafararnir
urðu að taka gaskúta sem voru inn-
andyra og forða þeim út.
Slökkvistarf tók rúmlega eina
klukkustund en vakt var við húsið í
nótt. Skemmdir urðu á húsnæðinu
vegna sóts og reyks og tjón varð á
bílunum vegna hita og reyks.
-ÓTT
^oVBtLASr0 ▼ ▼
ÞRDSTU 68-50-60 VANIR MEN R N
TVÖFALDUR1. vinningur