Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991.
Óvarinn hvolpur
- ekki óargadýr
í síðustu viku birtist klausa á 2.
síðu DV þar sem sagt var frá því
að hundur í Húsdýragarðinum
hefði bitið bam Ula í vörina.
Við lestur greinarinnar mátti
skilja að í garðinum gengi laust
óargadýr sem réðist á fólk og biti
það ef það vogaði sér að koma ná-
lægt því.
Að vonum brá öllum sem áttu
þátt i þessu óhappi þegar þeir sáu
greinina, bæði starfsmönnum Hús-
dýragarðsins, foreldrum barnsins
og öllum þeim sem eiga hunda.
Mest brá þeim sem þekkja Spora
htla, sem er sérlega ljúfur og góður
fimm mánaða gamall hvolpur,
enda hafa ófá börnin eignast góðan
kunningja í honum.
Málsbætur
Hundaræktarfélag íslands boðaði
til blaðamannafundar m.a. vegna
þessara skrifa en DV sá sér ekki
fært aö senda blaðamann á staðinn.
Þess vegna tel ég sjálfsagt að við
fáum að skýra það sem gerðist,
þannig aö þeir sem vilja fái rétta
mynd af því.
Þarna varð slys vegna ógáts og
þekkingarleysis og allir sem þekkja
eðli lifandi vera (þ.m.t. manna og
hunda) skilja það ef þeir vita
hvernig óhappið varð.
Búið var að loka Húsdýragarðin-
um og Spori var eftirlitslaus í girð-
ingunni við húsið. Honum hafði
verið fengið bein að naga, en það
má að sjálfsögðu ekki gera þegar
óvitar eru nálægir. Starfsmenn
Húsdýragarðsins hafa sér til máls-
bóta að garðurinn var lokaður og
ekki hefur verið búist við að fólk
væri enn á ferh við húsið.
Litla stúlkan og vinkona hennar
fóru inn fyrir girðinguna og ætluðu
að klappa hundinum, sem lá í mak-
indum með beinið sitt, beygja sig
yfir hann og rétta fram höndina.
Kjallariim
Jóhanna G.
Harðardóttir
form. deildar ísl. fjárhundsins
Spori glefsaði til stúlkunnar, enda
gat hann ekki skilið þetta öðruvísi
en svo að hún ætlaði að taka af
honum beinið. (Tekið skal fram að
hvolpurinn glefsaði í hana en beit
ekki - á því er mikill munur.)
Þama var margt sem stuðlaði að
því að svona fór: hvolpurinn einn
með bein, hægt að komast inn fyrir
girðinguna, stúlkurnar ekki nógu
kunnugar hundum til að vita að
ekki á að gefa sig að ókunnugum
hundum þegar þeir eru með bein
eða bundnir.
Fullkomlega eðlileg
viðbrögð
Viðbrögð hvolpsins voru fuh-
komlega eðlileg, enda var enginn
nálægur til að verja hann og beinið
hans fyrir þeirri árás sem hann
taldi sig verða fyrir. Það er langt
frá því að það komi til greina að
láta aflífa blíðlyndan og vel upp
alinn hvolp vegna raða mistaka
sem verða hjá mönnum. Þess ber
að geta að foreldrar stúlkunnar
gerðu sér strax grein fyrir hvernig
atvikiö varö og hafa fuhkominn
skilning á því, enda færðist móðir-
in undan því að skrifað yrði í blöð
um atburðinn þegar leitað var til
hennar frá DV.
Litla stúlkan hefur komið í garð-
inn síðan og á inni vikudvöl þegar
henni og foreldrum hennar hentar,
því starfsmenn garðsins vilja allt
gera til aö bæta stúlkunni upp þá
óþægilegu reynslu sem hún varð
fyrir.
Þetta atvik og skrifm um það sýn-
ir okkur ljóslega að þegar hundar
eru annars vegar má alltaf leggja
út á versta veg. Aldrei les maður
um þau óteljandi skipti sem börn
og fullorönir eru klóraðir og bitnir
af köttum, né heldur um þau skipti
sem hestar bíta eða slá. - En þegar
hundur er annars vegar horfir
málið öðruvísi við.
Það kæmi öllum betur að skrif
um hunda í fjölmiðlum væru á öðr-
um nótum en núna, í staö
hræðsluáróðursins, sem rekinn er,
væri nær að kenna mönnum að
umgangast hunda þannig aö vel
fari á með þessum tveimur skepn-
um sem eiga svo ótrúlega margt
sameiginlegt.
Fyrst af öUu þetta: Kennið börn-
um ykkar að hundurinn á að koma
til mannsins en ekki maðurinn til
hundsins. Allra síst eiga börn að
ganga að ókunnugum hundum sem
annaðhvort eru bundnir eða með
einhvers konar bráð, því undir
þeim kringumstæðum verja þeir
sig.
Kennið börnunum að hlaupa
aldrei undan hundi því hundurinn
heldur oftast að það sé leikur og
eltir barnið.
Jóhanna G. Harðardóttir
„Kennið börnunum að hlaupa aldrei undan hundi þvi hundurinn heldur
oftast að það sé leikur og eltir barnið.“
.. í stað hræðsluáróðursins, sem rek-
inn er, væri nær að kenna mönnum
að umgangast hunda þannig að vel fari
á með þessum tveimur skepnum sem
eiga svo ótrúlega margt sameiginlegt.“
Andlát
Hólmfríður Magnúsdóttir, Efsta-
sundi 16, andaðist í Landspítalanum
24. júní sl.
Ingibjörg J. Helgadóttir, Miklubraut
50, lést í Borgarspítalanum 27. júní sl.
Björn S. Markússon trésmíðameist-
ari, Vogatungu 95, Kópavogi, lést á
heimili sínu þann 26. júní.
Árni Einarsson, Áltheimum 31, lést
í Landakotsspítala 26. júni.
Jarðarfarir
Guðmundur Jónsson, Syðra-Velli,
verður jarðsunginn frá Gaulverjar-
bæjarkirkju laugardaginn 29. júní kl.
14.
Helgi Þórðarson, sem andaðist á
Garðvangi 22. júní, verður jarðsung-
inn frá Keflavíkurkirkju laugardag-
inn 29. júní kl. 14.
Guðmundur Jónsson, Vesturgötu 15,
Ólafsfirði, verður jarðsunginn frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 29.
júní kl. 14.
Jóhann Ingi Sigurgeirsson, lést 21.
júní. Útfórin veröur gerð frá Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 29. júní
kl. 14.
Guðbjartur Jónsson fyrrverandi
skipstjóri, Hlíf II, ísafirði, sem lést í
sjúkrahúsi ísafjarðar 22. júní sl.,
verður jarðsunginn frá ísafjarð-
arkapellu laugardaginn 29. júní kl.
14.
Einar I. Guðmundsson, Hlíðarenda,
ísafirði, veröur jarðsunginn frá ísa-
fjarðarkapellu laugardaginn 29. júní
kl. 16.30.
ísak Fannar Jóhannesson, lést í
Barnaspítala Hringsins 20. júní.
Minningarathöfn fer fram í Laugar-
neskirkju í dag, fóstudaginn 28. júní,
kl. 16. Útfórin verður gerð frá Búðar-
kirkju, Fáskrúðsfirði, mánudaginn
1. júlí kl. 14.
Jón H. Guðmundsson lést 20. júní sl.
Hann var fæddur 3. desember 1913,
sonur hjónanna Guðrúnar Magnús-
dóttur og Guðmundar Einarssonar.
Utfór Jóns verður gerð frá Kópavogs-
kirkju í dag, fóstudaginn 28. júní, kl.
13.30.
Myndgáta dv
Fræðimannsibúð
í Danmörku
úthlutað
Fræðimannsíbúð samkvæmt reglum um
Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna-
höfn hefur verið úthlutað fyrir timabiliö
1. sept. til 31. ág. 1991. Úthlutun fengu dr.
Hjalti Hugason, til að afla gagna fyrir rit
um sögu kristni á íslandi í 1000 ár, dr.
Hrafnhildur Ragnars til aö vinna að sam-
anburðarrannsóknum á skilningi ís-
lenskra og danskra barna á hugtökum
og orðaforða yfir fjölskylduvensl, dr.
Unnsteinn Stefánsson til að vinna að riti
um haffræði og afla heimilda í sambandi
við rannsóknir á íslenskum vötnum sem
sjór gengur inn í, dr. Sigfús A. Schopka
til að ljúka ritgerð um þorskstofninn við
ísland á tímabihnu 1930-1990 og athuga
í samvinnu við grænlensku fiskirann-
sóknastofnunina í Kaupmannahöfn sam-
spil íslenska þorskstofnsins og græn-
lensku þorskstofnanna, Grétar Unn-
steinsson til að afla heimilda í Danmörku
um upphaf íslenskrar garðyrkju og
kynna sér fræðslu og menntun í um-
hverfismálum. Alls barst 41 umsókn um
íbúðina. í úthlutunarnefndinni eiga sæti
Guðrún Helgadóttir alþingismaður, Ingvi
S. Ingvarsson, sendiherra í Kaupmanna-
höfn og formaður stjómar Húss Jóns Sig-
urðssonar, og dr. Þórir Kr. Þórðarson
prófessor.
Ferð yfir Sprengisand
Leiðin yfir Sprengisand hefur nú verið
opnuð fyrir umferð í ár. Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónssonar hf., sími 683222,
mim sjá um áætlunarferðir yfir Sprengi-
sand tíl Mývatns í sumar eins og mörg
undanfarin ár. Fyrsta ferð sumarsins
verður laugardaginn 29. júní. Lagt verður
af stað frá BSÍ kl. 8. í sumar veröur farið
tvisvar í viku, á miðvikudögum og laug-
ardögum kl. 8, frá BSÍ og til baka frá-
Mývatni, Hótel Reynihlið, á fimmtudög-
um og sunnudögum kl. 8.30. Verðið er
kr. 6.000 önnur leiðin og kr. 10.500 báðar
leiðir. Innifahð í verðinu er nestíspakki
ásamt leiðsögn.
Nýjar bækur frá íslenska
kiljuklúbbnum
Íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá
sér þrjár nýjar bækur. Milljón prósent
menn er skáldsaga eftir Ólaf Gunnars-
son. Hún fjallar um þá óborganlegu per-
sónu Engilbert Ármannsson sem bragð-
aði vin í fyrsta sinn á fermingardaginn
og drakk eftir það sleitulaust þegar hann
komst yfir vín. í bókinni er lýst samskipt-
um hans og ungs frænda hans sem er að
byrja að fást við skáldskap. Sagan kom
fyrst út árið 1978 en nú hefur höfundur
stytt hana og lagfært til samræmis við
fyrstu gerö hennar. Bókin er 119 bls.
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson
gerði kápu. Eva Luna er skáldsaga eftir
Chileönsku skáldkonuna Isabel Allende.
Söguhetjan, Eva Luna, missir ung móður
sína, er þá komið fyrir hjá ókunnugum
og lendir brátt í æsilegum atburðum í
tengslum við stjómmálabaráttu í heima-
landi hennar. Tómas R. Einarsson þýddi
bókina sem er 336 bls. Heimir Guðmunds-
son hannaöi kápu. Leyndir þræðir er ný
spennusaga eftír enska höfundinn Colin
Dexter. Bókin fjallar um Morse lögreglu-
fulltrúa sem er sjónvarpsáhorfendum að
góðu kunnur. Sif Gunnarsdóttir þýddi
bókina sem er 236 bls. Hugsjón hannaði
kápu. Allar voru bækumar pre'ntaðar i
Skotlandi.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu, Hverfisgötu 105, í dag,
fóstudag, kl. 13-17. Bridge og ftjáls spila-
mennska. Laugardagsganga Göngu-
Hrólfa verður úti í Viðey ef veður leyfir.
Mætíng á Hverfisgötu 105 kl. 10.
Tónleikar
Tónleikar í Listasafni Sigur-
jóns
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni Sig-
uijóns Ólafssonar þann 2. júli nk. kl. 20.30
flytja Finndís Kristinsdóttir fiðluleikari
og Vilhelmína Ólafsdóttir píanóleikari
tónlist eftir Brahms, Debussy, Beethoven
og Saint-Saens.