Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991. 15 Willy Brandt á íslandi Berlín í nóvember 1989. - Það er búið að opna múrinn og fólkið kemst loksins þangað sem það vill komast. Framan við ráðhúsið í Schöneberg eru nokkrir stjórn- málamenn að tala viö fólk í nóv- embermyrkrinu: þarna er Kohl og þarna er Momper og þarna er Brandt. Og hann talar í löngum setning- um eins og alltaf, dregur dálítið seiminn, hann er hás, hann teygir á textanum, hangir á orðunum og enginn veit hvenær setningunni lýkur, þetta er hálfgerður þulustíll, þannig magnast upp spennan, þetta er gamla bragðið hans, þetta er hans stíll, kanslarans fyrrverandi og borgarstjórans og það vita allir á þessum stað að þetta er hans dag- ur: hans framlag er veigamest af öllum til að gera Berlín að einni borg í staðinn fyrir tvær. Pólitíkus frekar en marxisti Hann er fæddur í Lubeck 1913 og öðlaðist fljótlega póhtískan áhuga óhkt skólabræðrum sínum: hann var reyndar feiminn í bernsku og sérstaklega var hann feiminn við að segja að hann væri vinstrimaður - hræddist að halda á lofti minni- hlutaskoðun í bekknum. Hann var enginn sérstakur „marxisti" á ung- um aldri, leit frekar á sig sem „póh- tíkus“, studdist ekki við hug- myndafræði. Hann tekur þátt í að stofna nýjan flokk í Lubeck árið 1932, sem á að sameina jafnaðar- menn og kommúnista, en hlýtur lítið brautargengi, - þá er boð tímans í Þýskalandi: nasismi. Hann flýr til Noregs árið 1933 og dvelst í útlegð fram til 1946, seinni stríðsár- in í Svíþjóð. Hann snýr svo aftur til Þýska- lands, gengur í jafnaðarmanna- flokkinn og verður einn af forvígis- mönnum hans í Berlín, verður þingmaður og loks, borgarstjóri 1957. Og hann er borgarstjóri þegar KjaUaririn Einar Heimisson háskólanemi Freiburg, Þýskalandi ráðherra, Karl Schiller verður við- skiptaráðherra. Og árið 1969 verður Brandt loks kanslari, fyrsti jafnaðarmaðurinn í sögu sambandslýösveldisins. í stefnuræðunni segir hann: „Við viljum meira lýðræði!" En fyrst og fremst: Sambandslýð- veldið verður að breyta samskipt- um sínum við nágrannaríkin, eink- um Austur-Þýskaland og Pólland. Nú hefst nýr tími í utanríkismál- um, hörkustefna Adenauers, stefna þagnar og afskiptaleysis, er orðin hluti af fortíðinni - núna er loksins talað við Austur-Þjóðveija. „Fortíðin kvelur okkur“ Árið 1970 verður sögulegra en flest önnur í sögu sambandslýð- veldisins, fundir Brandts og Stophs, forsætisráðherra Austur- „Willy Brandt vill breyta þar sem hann telur breytinga þörf og ólíkt flestum öðrum lætur hann sér ekki nægja að tala um breytingarnar, hann gerir þær líka að veruleika.“ Berlínarmúrinn er reistur 1961 og verður að tákni andstöðunnar við hann en á samt sem áður htla sig- urmöguleika gegn Adenauer og gegn Erhard: hann tapar tvisvar sem kanslaraefni 1961 og 1965. „Við viljum meira lýðræði“ En 1966 fellur kanslarinn Erhard og mynduð er ný ríkisstjórn jafnað- armanna og kristilegra, svonefnd stórstjórn. Sumir myndu kalla þetta taktískt bragð jafnaðar- manna: þeir urðu að sýna að þeim væri treystandi fyrir landstjórn- inni, stórstjórnin varð upphafið að því: Willy Brandt verður utanríkis- Þýskalands, mynda upphaf nýs tíma en síðast en ekki síst: í des- ember 1970 fer Brandt til Varsjár og krýpur við minnismerki um myrta gyðinga í gettóinu: Hann segir: „Enginn getur flúið sorgina, for- tíðin kvelur okkur“. Og mörgum finnst Þjóðverjar í fyrsta sinn hafa gengist við fortíð sinni. Árið 1971 hlýtur Brandt friðar- verðlaun Nóbels en þrátt fyrir það er hann enn um sinn umdeildur heima fyrir og tekst naumlega að standa af sér vantrauststillögu í þinginu árið eftir. En það verður Willy Brandt, fyrrv. kanslari í Vestur-Þýskalandi. - Valdaskeið hans var styttra en efni stóðu til, segir m.a. í greininni. Símamynd Reuter upphafið að enn frekari sigrum Brandts - í nóvember vinnur flokk- ur hans mesta sigur sinn í þing- kosningum fyrr og síðar, hlýtur 45,2 prósent atkvæða. En valda- skeið Brandts verður styttra en efni standa til: vorið 1974 segir hann af sér kanslaraembætti, sakir þess að einn af nánustu samstarfs- mönnum hans varð uppvís að njósnum fyrir Austur-Þjóðverja. Allir vita að Willy Brandt er ekki aðeins verkmaður og athafnamað- ur, hann er líka tilfinningamaður og lífsnautnamaður og stundum hafa einkamál hans vakið meiri athygli en ötul störf hans að vel- ferðarmálum landsins og heimsins. Hann lét af formennsku í jafnaðar- mannaflokknum 1987 en hefur samt sem áður látið til sín taka í umræðu um málefni Þýskalands og Evrópu - sérstaklega þegar sam- eining Þýskalands var á döfinni. Willy Brandt vill breyta þar sem hann telur breytinga þörf og ólíkt flestum öðrum lætur hann sér ekki nægja að tala um breytingarnar, hann gerir þær líka að veruleika. Einar Heimisson Ey md í arf „Niðurgreiðslustefna Evrópubandalagsins á landbúnaðarvörum er þvi beint tilræði við okkur sem útflutningsþjóð á matvælum ...“ Evrópubandalagið er að verða meiri háttar vandamál í alþjóða- viðskiptum. Ef ekki verður gripið í taumana setur það hikstalaust fótinn fyrir hinar stórmerku við- ræður innan GATT sem kenndar eru við Uruguay og eru einar af hinum merku lotum innan alþjóða- viðskipta, sem miða að því að efla þau á allan hátt og þannig heims- velferð. Eftir síðari heimsstyrjöldina höfðu Bandaríkjamenn þvíÚka yf- irburðaaðstöðu í alþjóðaviðskipt- um að þeir gátu sett leikreglur sem allir aðrir sættu sig við og fóru eft- ir. Þannig jókst heimsverslun gíf- urlega og alþjóða hagvöxtur. Nú eru Bandaríkin ekki jafnafgerandi sem áöur. Evrópubandalagið gegn fríverslun Ríki Evrópubandalagsins treysta sér greinilega ekki að hugsa um heimsviöskipti meðan þau eru að takast á við yandamálið: landa- mæralaus Evrópa eftir rúmt ár. Á síðasta ári, þegar leiðtogar sjö- veldanna hittust skorti ekki fögur orð um mikilvægi GATT. Þá var sagt að Uruguay-viðræðurnar „hefðu algjöran forgang á sviði al- þjóðaefnahagsmála" og „við felum samningamönnum okkar að ná ár- angri“. Þetta kom í kjölfar þess að Bandaríkjamönnum lenti saman við Evrópubandalagið út af styrkj- um þeirra síðarnefndu við land- búnað. Þá máttu aðeins líða fimm mán- uöir, annars yrði viðræðunum hætt. Mánuðirnir liðu og ekkert KjaUarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur gerðist. Þrátt fyrir mikilvægi við- ræðnanna fóru samningamennirn- ir einfaldlega ekki eftir fyrirmæl- um sínum. Því miöur er von á því aö í næsta mánuði verði enn reynd undan- brögð, þrátt fyrir „algjöran for- gang“. Ýmislegt virðist núna standa hjarta stjórnmálamann- anna nær en heimsvelferð. Afleið- ingar stríðsins í Persaflóa, kosning- ar í Bretlandi, sameiningarvand- ræði í Þýskalandi, draumar um einingu Evrópu og vonir um frí- verslunarsvæði allrar Norður- Ameríku, frá Kanada til Mexíkó - allt þetta virðist standa hjarta stjórnmálamannanna nær, heldur en skýrar línur í heimsviðskiptun- um og þannig velferð aUs heimsins. Síðan er auðvitað hið erfiða vandamál um aðstoð við Austur- Evrópu og hvernig eigi aö bregðast við gestinum fræga og fátæka, Gorbatsjov forseta, sem alltaf er tilbúinn í ferðalög. - Allt er betra en að hlusta á væhð heima fyrir. Viðskiptafrelsið grund- völlur sjálfsbjargar Því miður fyrir leiðtogana duga engin vettlingatök lengur. Að henda einhverjum styrkjum í kommúnistaríkin og þriðja heim- inn og láta það bara duga er líkt og að pissa í skóinn sinn. Aðeins aukið viðskiptafrelsi og það eitt getur bjargað þessum ríkjum til lengdar. Viöskiptin opna þeim nefnUega markaði fyrir það eina sem þau eiga, landbúnaðarafurðir og frumframleiðslu. Viðskipta- frelsið kemur þannig undir þau fótunum og styrkir þau til sjálfs- bjargar. Einungis sjálfsbjargarviö- leitnin fær bjargað þeim til lengdar og þá geta þau ef til vUl orðið sam- keppnisfær í iðnaðar- og tækni- vöru. Brjótum ísinn Fjórir af helstu leiötogum sjö- veldanna, George Bush, Toshiki Kaifu, Helmut Kohl og John Major ættu sérstaklega á leiðtogafundin- um að lýsa yfir stuðningi sínum við fríverslun. Þeir saman ættu að brjóta ísinn í Uruguay-viðræðun- um. Evrópumennirnir verða svo að gera eitthvað í C AP - hinni sam- eiginlegu landbúnaðarstefnu Evr- ópubandalagsins, sérstaklega í styrkjakerfinu sem mest hefur áhrif á heimsmarkaðsverð á land- búnaðarafurðum. Kaifu verður að taka til hendinni á tveim stöðum, leyfa innflutning á rís og breyta afstöðu Japana yfir- leitt til kaupa á innfluttum varn- ingi sem þjóðarsálin í Japan virðist hafa ímigust á. Það sem Bush gerði best væri að slá í verndarstefnu Bandaríkjanna á iðnaðarsviðinu, sérstaklega í vefnaði og stáli og síð- an að gerast baráttumaður í anda fyrirrennara síns fyrir frjálsri verslun yfirleitt og heimsvelferð. Augljóst er að GATT viðræðurn- ar skipta okkur íslendinga höfuð- máli. Við viljum fríverslun um alla veröld með okkar góða fisk, en auðvitað getum við ekki gefið hann eða þolað stjórnlausar niður- greiðslur á matvörum meðan við verðum að flytja inn rándýrt fjár- magn og iðnaðarvörur. Niður- greiðslustefna Evrópubandalags- ins á landbúnaðarvörum er því beint tilræði við okkur sem útflutn- ingsþjóð á matvælum og heims- byggðina alla. Ef tekst að leiörétta kúrsinn frá Brussel mun heims- byggðin og komandi kynslóðir ekki hljóta eymd í arf, þá er mikið hag- vaxtarskeið framundan, fátæku ríkin munu blómstra og veröldin öll sem og við íslendingar, verður rík. Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Ríki Evrópubandalagsins treysta sér greinilega ekki til að hugsa um heims- viðskipti meðan þau eru að takast á við vandamálið: landamæralaus Evr- ópa...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.