Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991. Viðskipti Flugferðir-Sólarflug: uppseld í leiguflugi „Þaö gengur vel aö selja ferð- irnar til Kaupmannahafnar og London, öll miðvikudagsflug til Kaupmannahafnar eru fullbók- uð til hausts og búið að bæta við ferðum á fóstudögum út ágúst,“ segir Guðni Þórðarsons, framkvæmdastjóri Flugferöa- Sólarflugs. En ferðaskrifstofan býður einhver ódýrustu flugfargjöldin á markaðnum í dag og segir frarakvæmdastjórinn að um 9.000 sæti séu í boði. „Það er flogið til London einu sinni í viku og þar eru margar feröir fullbókaðar og mikið bókaö 1 aðrar. Það er eldra fólkið sem fer til Kaupmannahafnar, fólk sem er komíð um fertugt og þaðan af eldra og svo er mikið um að skólahópar fari þangað. Yngra fólkið, sem er á aldrinum 20 til 40 ára, fer hins vegar til Lon- don,“ segir Guðni. -J.Mar Aílamiðlun: Níu bátar sviptir útflutningsheimildum Grunur leikur á að fluttur hafi verið út ferskfiskur umfram heimildir Aflamiðl- unar í þessari viku. Níu bátar af um 120, sem sóttu um leyfi til ferskfiskútflutnings í þessari viku, fengu ekki útflutningsheimild- ir þar sem talið er að þeir hafi flutt út umfram heimildir í síðustu viku. Er hér að hluta til um sömu aðila að ræða og fóru fram úr útflutnings- heimildum á síðasta ári. í síðustu viku voru flutt út 1070 tonn af þorski og ýsu á Bretlands- markað en einungis höfðu verið gefnar heimildir fyrir 900 tonnum. í kjölfarið varð verðfall á mörkuðun- um. „Við erum búnir að finna út úr því hverjir fluttu út umfram heimildir í síðustu viku. Stjórn Aflamiðlunar mun ljalla um máhð í næstu viku og þá verður ákveðið hvaða viðurlögum verður beitt,“ segir Vilhjálmur Vil- hjálmsson, framkvæmdastjóri Afl- amiðlunar. „Þeir sem voru uppvísir að gáma- svindh í fyrra fengu ekki heimildir til að flytja út næstu þrjár vikur þar á eftir. Hella: Áform um að byggja byssuverksmiðju - máliðeráfrumstigi,segirsveitarstjórinn „Menn eru að velta því fyrir sér að framleiða veiðibyssur hér á Hellu. Hugmyndin er sú að flytja inn hálf- unna hluti í byssurnar, fullvinná þá hér og setja síðan skotvopnin saman. Við höfum átt í viðræðum við rúss- neska fyrirtækið Baikal um að það yrði hráefnisuppspretta fyrir okkur. Byssurnar yrðu framleiddar með leyfi frá þvi og undir vörumerki þess,“ segir Guðmundur Ingi Guð- mundsson, sveitarstjóri í Rangár- vallahreppi. Baikal er gamalgróið skotvopna- fyrirtæki sem og þekkt á sínu sviði. Byggðastofnun veitti 360 þúsund króna styrk til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir byssuverk- smiöjuna og hreppurinn mun leggja fram álíka upphæð í sama tilgangi. Á Hellu er vannýtt atvinnuhúsnæði sem talið er að gæti hentað til að hýsa verksmiðjuna. Ef af uppsetn- ingu hennar verður munu um 30 ný atvinnutækifæri skapast í hreppn- um. Veiðibyssurnar yrðu fluttar út til Bandaríkjanna, Kanada og Mið- og Suður-Ameríku en þar eru taldir góðir markaðir fyrir skotvopn af þessu tagi. „Þessar hugmyndir eru á algeru frumstigi. En þegar hður aðeins lengra á sumarið munum við fara aö vinna í þessum málum og í haust æth að hggja fyrir hvort eitthvert vit er í þessu,“ segirGuðmundurlngi. -J.Mar Verðfall á erlendum mörkuðum Nú hefur orðið verófall á fiskmörk- uðum erlendis og er það bæði í Bret- landi og Þýskalandi. Verðfall hefur orðið á gámafiski, sem öðrum fiski, þó hann hafi haldið betur verði. Bor- ist hefur meira að af fiski en áður og munar þar mest um afla úr togur- um sem veitt hafa við Grænland og í Barentshafi, en góð veiði hefur ver- iö á þar að undanfornu. Menn ræða nokkuð um auðlinda- skatt og í því felst að útgerðin greiði fyrir að fá að veiða innan íslenskrar landhelgi. Mér hefur sýnst að útgerð- in hafi barist í bökkum. Lengst af hefur ekki verið um auðugan garð að gresja og margir hafa orðið gjald- þrota. Ekki hef ég trú á að auðlinda- skattur eigi eftir að bjarga útgerð- inni. Það er algengt að seld séu veiði- leyfi þegar erlend skip fá að veiða innan landhelgi annars ríkis. Það er alþekkt og undrar engan, en hér eru menn ekki að tala um að láta þá út- lendinga greiða veiðileyfi sem nú veiða í fiskveiðilögsögu íslands. Von- andi fmna menn aörar lausnir á skiptingu veiðiheimilda en þá leið sem hér hefur verið rædd. Ekki verð- ur þetta mál rætt frekar í þessum pistlum. Árið 1985 lét bandaríska landbún- aðar og sjávarútvegsráðuneytið gera áht um möguleika fiskeldis í framtíð- inni og þá aðallega laxeldis. Mér finnst að flest það sem sagt var um framtíð laxeldis hafi komið fram og hefði skýrslan getað verið góður leið- arvísir fyrir þá sem ætluðu sér í lax- eldi. En það er of seint að byrgja brunninn þegar bamið er dottið ofan í. En ef menn hefðu sýnt varkárni og velt vel fyrir sér framtíðinni hefði mátt koma í veg fyrir mörg gjaldþrot- in. Þrjú skip seldu í Bretlandi Þijú skip hafa selt afla sinn í Bret- landi að undanfómu. Bv. Guðmundur Kristján seldi í Grimshy 19. júní alls 97 tonn fyrir 9,8 milljónir króna. Þorskur seldist á 111,84 kr. kg, ýsa á 139,53, ufsi 68,74, karfi 68,80 og blandað seldist á 79,00 kr. kg. Bv. Skarfur seldi afla sinn í Hull 20. júní alls 70 tonn fyrir 8,4 milljón- ir króna. Þorskur seldist á 126,03 kr. kg, ýsa á 133,62, ufsi á 84,95, karfi 84,96 og blandað seldist á 89,14 kr. kg. Gámasölur í Englandi 17.-21. júní 1991 Þorskur 119,61 kr. kg, ýsa 131,85 kr. kg, ufsi 83,27 kr. kg, karfi 87,44 kr. kg, koli 114,49 kr. kg, grálúða 133,46 kr. kg, blandað 108,77 kr. kg. Vigri seldi í Þýskalandi Bv. Vigri seldi afla sinn í Bremer- haven 24. júní. Mikið var um fisk á markaðnum, sérstaklega var mikið um gámafisk frá íslandi, löglegan eða ólöglegan. Kvartaö hefur veriö yfir þvi að ekki væri nægilegt eftirlit með útflutningnum og hefur gengiö mis- vel fyrir Aflamiðlunina að fylgjast með honum. Þegar fram kemur hverjir það em sem flytja í óleyfi út fisk verður þeim refsað, en það er of seint því skaöinn er skeður. Verð- ið hjá Vigra féll nokkuð miðað við verð að undanfömu. Verðið var eft- irfarandi: Þorskur 111,06 kr. kg, ýsa 130,72 kr. kg, ufsi 93,21 kr. kg, karíi 80,74 kr. kg og blandað 114,04 kr. kg. Dutch Harbor meö mestan afla Dutch Harbor-Unalaska, Alaska, var með mestan afla árið 1990 af 10 aflahæstu höfnum í Bandaríkjunum, Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson fyrir löndun á sama magni. Laxveiði- mönnum hefur verið tilkynnt um aukagjald að upphæð 5 cent og verð- ur þá gjald fyrir löndun 15 cent á lb. Það þýðir að 3000 dollara þarf að greiða af 20.000 dollara verömæti. 10 löndunarháfnir með mestan afla af botnfiski og skelfiski Höfn 1989 1990 1. Dutch Harbor-Unalaska 504,9 509,9 2. Pascagoula-Moss Point 282,1 303,9 3. Kodiac 213,2 272,5 4. Empire-Venicia 352,7 244,2 5. Cameron 352,7 232,6 6. Intercoastao Coty 207,2 173,0 7. Dulac-Chauvin 210,9 164,4 8. Morgan City-Berwik 68,1 146,5 9. LosAngeles 217,2 133,8 10. Gloucester 96,5 126,2 Allar tölur eru i milljónum Ibs. samkvæmt upplýsingum National Ocanica Administration. Aukning í afla, sem landaö er í höfninni, er aðallega alaskaufsi. Landað var alls 509,9 milljónum lbs. New Bedfort er með mesta aflaverðmætið og tók á móti afla fyrir 160,4 milljónir dollara. 5 hafnir í Alaska voru meðal 10 efstu löndunarhafna í Bandaríkjunum. Löndunarkostnaður þrefaldast Áætlað er að löndunarkostnaður í Oregon á vesturströnd Bandaríkj- anna þrefaldist á næsta ári. Að með- altali hafa verið greiddir 2500 dohar- ar fyrir landanir á 500.000 lb. Nú geta menn fljótlega staðið frammi fyrir því að þurfa að greiða 8.750 dohara Ríkið er að hugsa um að leggja nið- ur tvær klakstöðvar og spara með því 900.000 dohara. Skip, sem stundaö hafa lýsuveiðar, yfirgefa nú veiði- svæðin. 30 skip hafa stundað þessar veiðar og segja forsvarsmenn þeirra að ekki sé grundvöhur fyrir útgerð- inni þar sem olía hafi hækkað úr 61 centi gallonið í einn dohar. Veiðiþjófum sleppt íranska stjómin hefur falhst á aö sleppa öllum fiskiskipunum, sem tekin voru í landhelgi írans 1988 og 1990, og áhöfnum þeirra. Mann- skapnum hefur verið haldið í sér- stökum búðum, aUs 500 manns, en nú er von til þess að skip og menn komist heim áður en langt um hður. Heimildir Fishing News International. Þaö er ástæða til að ætla að það hafi verið flutt út umfram heimhdir í þessari viku en það er ekki ljóst hverjir það eru sem hafa gert það eða hve mikið hefur verið flutt út fyrr en sölutölur hggja fyrir." -J.Mar Peníngamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLÁN ÖVERÐTR. Sparisjóðsbækurób. 5-6 lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 5-9 Sp 6mán. uppsögn 6-10 Sp Tékkareikningar, alm. 1-3 Sp Sértékkareikninqar 5-6 Lb.lb ViSITOLUB. REIKN. 6mán.uppsögn 3-3,75 Sp 15-24 mán. 7-7,5 Sp Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisb. reikningar í SDR6.4-8 Lb Gengisb. reikningar í ECU 8,3-9 Lb ÖBUNDNIR SÉRKJARAR. Vísitölub. kjör, óhreyföir. 3-4 Bb Óverðtr. kjör, hreyfðir 12-13,5 Sp BUNDNIR SKIPTIKJARAR. Vísitölubundin kjör 6,25-7 Bb óverötr. kjör 15-16 Bb INNL. GJALDEYRISR. Bandarikjadalir 4,5-4,75 Bb Sterlingspund 9,5-10,1 SP Vestur-þýskmörk 7,5-7,6 Sp Danskar krónur 7,5-8,1 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLÁN OVERÐTR. Almennirvíxlar(forv.) 18-18,5 Bb Viðskiptavíxlar(forv) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 18,5-19 Lb.Sp Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLAN VERÐTR. 21,25-22 Bb Skuldabréf 9.75-10.25 Lb.Bb AFURÐALAN isl. krónur 17,75-18,5 Bb SDR 9.5 Allir Bandaríkjadalir 7.75-8,25 t Lb Sterlingspund 13,2-13,75 Sp Vestur-þýskmörk 10,5-10,75 Ib.Bb Húsnæðislán 4.9 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverötr. frá mars 91 15,5 Verðtr. frá apríl 91 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajúní 3093 stig Lánskjaravísitala maí 3070 stig Byggingavisitala júní 587,2 stig Byggingavisitala júní 183,5 stig Framfærsluvisitala júní 152,8 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun 1 april VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,707 Einingabréf 2 3,065 Einingabréf 3 3,742 Skammtímabréf 1,906 Kjarabréf 5,598 Markbréf 2,995 Tekjubréf 2,150 Skyndibréf 1,664 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,737 Sjóðsbréf 2 1,884 Sjóðsbréf 3 1,892 Sjóðsbréf 4 1,649 Sjóðsbréf 5 1,140 Vaxtarbréf 1,9550 Valbréf 1,8120 Islandsbréf 1,188 Fjórðungsbréf 1,117 Þingbréf 1,186 Öndvegisbréf 1,172 Sýslubréf 1,120 Reiðubréf 1,159 Heimsbréf 1,098 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Ármannsfell hf. 2,38 2,50 Eimskip 5,50 5,72 Flugleiðir 2,31 2,42 Hampiðjan 1,80 1,90 Hlutabréfasjóöur VlB 1,03 1,08 Hlutabréfasjóðurinn 1,60 1,68 Islandsbanki hf. 1,62 1,70 Eignfél. Alþýðub. 1,62 1,70 Eignfél. Iðnaðarb. 2,33 2,42 Eignfél. Verslb. 1,73 1,80 Grandi hf. 2,55 2,65 Olíufélagið hf. 5,45 5,70 Olís 2.15 . 2,25 Skeljungur hf. 6,00 6,30 Skagstrendingur hf. 4,20 4,40 Sæplast 'X 7,20 7,51 Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05 Otgerðarfélag Ak. 4,20 4,35 Fjárfestingarfélagið 1,35 1.42 Almenni hlutabréfasj. 1,05 1,09 Auðlindarbréf 1,01 1,06 fslenski hlutabréfasj. 1,06 1,11 Síldarvinnslan, Neskaup. 2,52 2,65 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, lb = Islandsbanki Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.