Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1991, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1991.
Útlönd
Fresta frelsun ísraelsmanns
ísraelskir ferðamenn við komuna til Ný}u Delhi frá Kasmtr i gær. Einn
ísraelskur ferðamaöur beið bana og þrír aórir særðust í átökum milli
israelskra feröamanna og herskárra aðskilnaðarsinna í Kasmír sem
reyndu að rsna lerðamönnunum. Sfmamynd Reuter
Aðskilnaðarsinnar í Kasmír tilkynntu i morgun að þeir hefðu hætt við
í bráö að láta lausan ísraelskan ferðamann, Yair Yitzhaki, sem var meö-
al sjö ísraelskra ferðamanna er urðu fyrir árás mannræningja á miöviku-
daginn. Jammu-Kasmír frelsisfylkingin segir menn sína hafa tekið ísraels-
manninn burtu eftir að flórum öðrum ferðamönnum tókst aö sleppa frá
mannræningjunum eftir hörð átök. Eínn ísraelsmaður beið bana í viður-
eigninni við mannræningja.
Sjónarvottar segja að svo hafi virst sem Yitzhaki hafi faiið sig í runna
og ekkí getað flúið með félögum sínum.
Kambódíumenn hittast í Peking
Leiðtogar stríöandi fylkinga í Kambódíu hafa fallist á aö hittast í Peking
í næsta mánuði til aö reyna að jafna ágreining sinn um friöaráætlun
Sameinuöu þjóðaima, aö því er heimildarmaður innan skæruliöahreyfing-
arinnar sagði í morgun.
Það yrði i fyrsta skipti sem fylkingarnar hiítast í Kína. Stjórnvöld þar
hafa stutt viö bakið á skæruliðum í Kambódiu í tólf ára baráttu þeirra
gegn stjómvöldum í Phnom Penh sem Víetnamar komu til valda. Fiindur-
inn yrði undirbúningur að formlegum fundi þjóðarráðs Kambódíu í Bang-
kok.
Heimildarmaðurinn, sem tilheyrir stuðningsmönnum Sihanouks prins,
fyrrum þjóðarleiðtoga, sagði að Hun Sen, núverandi forsætisráöherra
Kambódíu, yrði meöal þeirra sem kæmu til fundarins í Peking. Fundinn
mundu einnig sækja fulltrúi ffá Sameinuðu þjóðunum svo og fulltrúar
frá Frakklandi og Indónesíu sem í sameiningufara með forustu í Parísar-
ráöstefnunni um frið í Kambódíu.
Syse sviptur ökusknieminu
Norska lögreglan stöövaði fyrr-
um forsætisráðherra Noregs, Jan
P. Syse, á mánudaginn vegna of
hraðs aksturs úti á landsbyggð-
inni. Var hann sviptur ökuskírtein-
inu en fær að keyra áfram með
sérstöku leyfi yfirvalda. Syse var á
87 kílómetra hraða þar sem há-
markshraðinn er 60 kílómetrar.
Hann kvaðst ekki hafa séð hraða-
takmörkunarskiltiö og hélt að há-
markshraðinn væri 80.
Syse á yfir höfði sér um þrjátíu
þúsund króna sekt. Samkvæmt
venju gildir ökuleyfissvipting
vegna hraðakstursbrota í þijá
herra Noregs. mánuði.
Skæniliðar skipuleggja ráðherradráp
Þýsklr vinstrisinnaðir borgarskæruliðar úr Rauðu herdeildinni, RAF,
eru að skipuleggja morðiö á Theo Waigel, fiármálaráðherra Þýskalands,
að því er þýska blaðið Die Weltskýrði ffá í dag. Samkvæmt frásögn blaðs-
ins sagði Klaus Kinkel dómsmálaráðherra frá þessu á ríkissfiörnarfúndi
á miðvikudag.
Blaðiö segist ekki vita hvernig Kinkel fékk upplýsingarnar sem viröast
koma ffá starfandi skæruliöum. í greininni er heldur ekki skýrt frá þvi
hvemig blaöið komst að þessu.
Morðtilraunin á Waigel var áformuö um miðjan júli og tveir aðrir lægra
settir menn Innan ríkisstjóraarinnar vom einnig á skotíista skærulið-
anna sem hafði fundist.
Á ríkissfiómarfundinum fyrirskipaði Kohl kanslari að mennimir fengju
fleiri lifverði og aö öryggisgæsla yfir þeim yröi hert.
Suniimi fullur iðrunar
John Sununu, starfsmannasfióri
Hvíta hússins, segist ekki geta
kennt neinum öðrum en sjálfum
sér um deilumar sem hafa blossað
upp vegna þeirra ferðafríðinda sem
hann hefúr veitt sér. Innanbúöar-
menn segja aö deilan hafi haft áhrif
til hins verra á samband hans viö
George Bush forseta.
Sununu hefur veriö staðlnn aö
því aö nota farartæki i eigu ríkis-
stjómarinnar í eigin þágu. Starfs-
maunastjórínn baöst afsökunar á
ffamferði sínu í gær og um leið
reyndi hann að draga úr spennu
sem komin er upp milli hans og John Sununu, starfsmannasfjóri
ieiötoga gyðinga sem hann er sagð- Hvíta hússins, kennir bara sjálfum
ur hafa kennt um síðustu ófarir aér um ógðngumar sem hann er
sfnar. Reuter kominn f. Sfmamynd Reuter
Jan P. Syse, fyrrum forsætisráö-
Skriðdreki úr júgóslavneska sambandsrikjahernum ekur á vöruflutningabil sem lagt hafði verið þvert yfir veg til
að hindra för hersins. Símamynd Reuter
Slóvenía:
Hundrað fallnir
í skotbardögum
- íbúar höfuöborgarinnar búa sig undir árás sambandshersins
Ibúar í Ljubljana, höfuðborg júgó-
slavneska lýðveldisins Slóveníu,
bjuggu sig í gærkvöldi undir bar-
daga. Vopnaðir menn úr heimavarn-
arliðinu og nýstofnuðum her lýð-
veldisins voru á verði á götuhornum
og í dyragættum, viðbúnir árás hðs-
manna úr sambandsríkjahernum.
Samtímis bar sambandssfiórn Júgó-
slavíu fram málamiðlunartillögu um
að Slóvenía og Króatia, sem bæöi
lýstu yfir sjálfstæði sínu á þriðjudag-
inn, frestuðu sjálfstæðisyfirlýsing-
unum í þijá mánuði. Sfiórnin til-
kynnti að ef tillagan yrði samþykkt
yrði júgóslavneski herinn kallaður
heim til herstöðva sinna. Svar innan-
ríkisráðherra Slóveníu, Jelkos Kac-
in, sagðist vilja herinn burt fyrst.
í tillögunni er gert ráð fyrir aö á
meðan á vopnahlénu stendur verði
samningaleiðin reynd. Stungið er
upp á aö Króatinn Stipe Mesic verði
strax leiðtogi forsætisráðs Júgóslav-
íu. Samkvæmt fyrirkomulagi um
skiptingu embættisins milli lýðveld-
anna er róðin nú komin að honum
en Serbía hefur hingað til verið mót-
fallin útnefningu hans.
Vamarmálaráöherra Slóveníu,
Janez Jansa, sagði í gær að lýöveldið
ætti í stríði eftir að hafa tilkynnt að
hundrað manns hefðu fallið eða
særst í hörðum skotbardögum. Varn-
armálaráðuneytið tilkynnti síðar að
sex þyrlur júgóslavneska sambands-
ríkjahersins hefðu verið skotnar nið-
ur, ein þeirra yfir miðborg höfuð-
borgarinnar. Samtímis voru Slóven-
ar sagðir hafa eyðilagt sex af skrið-
drekum Júgóslavíuhers með eld-
flaugum. Álitið er að Slóvenar geti
búið fiörutíu þúsund manns vopnum
en þeir hafa ekki yfir að ráða flugvél-
um, þyrlum eða skriðdrekum.
Þúsundir sambandsríkjaher-
manna komu sér fyrir á mikilvægum
stöðum eftir að hafa keyrt með skrið-
drekum á bíla Slóvena sem lagt hafði
verið þvert á vegi viðs vegar um lýö-
veldið til að hefta för hersins. Herinn
er sagður hafa tekið tólf af tuttugu
og sjö stöðvum á landamærum Slóve-
níu. í skotbardögunum hafa austur-
rískar landamærastöðvar verið
hæfðar og lofthelgi Austurríkis rofin
hvað eftir annað af þyrlum sam-
bandsríkjahersins. Langar raðir
ferðamanna og annarra voru beggja
megin við landamærin við Austur-
ríki eftir að flestum helstu stöðvun-
um hafði verið lokað. Til að komast
hjá vegatálmunum veröa menn að
aka eftir sveitavegum.
Austurrísk yfirvöld lýstu í gær yfir
reiði sinni yfir að Evrópubandalagið
hefði ekki breytt afstöðu sinni til
kreppunnar í Júgóslaviu. Bandalagið
er mótfallið því að viðurkenna sjálf-
stæði Slóveníu og Króatíu og eru
margir þeirrar skoðunar að júgó-
slavneski herinn hiki þess vegna
ekki við að beita valdi.
Vegna ástandsins í Júgóslavíu
krafðist Evrópuþingið þess að utan-
ríkisráðherrar Ráðstefnunnar um
öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE,
kæmu saman til fundar. Austurrísk
yfirvöld beittu í fyrsta skipti í gær
ákvæði RÖSE um hernaöaraðgerðir.
Hafa þau krafið Júgóslavíustjórn um
skriflega útskýringu á „óvenjulegum
hernaðaraðgerðum" við landamæri
ríkjanna. Ungverjar tilkynntu sam-
tímis að tveimur stöðvum á landa-
mærum Slóveníu og Ungverjalands
hefði verið lokað.
Slóvenar lögðu á það mikla áherslu
í gær að að minnsta kosti tíu menn
úr sambandsríkjahernum hefðu
gerst liðhiaupar eða gengið í lið
þeirra. Hafa Slóvenar treyst því að
herinn leysist upp vegna þeirra
mörgu þjóðarbrota sem í honum em
ef til borgarastyijaldar kemur. Leið-
togar Króatíu hafa hvatt alla í króa-
tíska hemum til þess að berjast ekki
viö Slóveníu. Margir Króatar Mta á
sambandsríkjaherinn sem serbnesk-
an her.
Forseti Króatíu, Franjo Tudjman,
sem óttast árás júgóslavneska hers-
ins, sagði í gærkvöldi að króatísk
yfirvöld myndu svara öllum árásum
með reisn og eins og siðuðum mönn-
um sæmdi. Kvað hann yfirvöld
myndu reyna að leysa öll vandamál
á lýðræðislegan hátt. Mikill ótti greip
um sig í bænum Osijek í Króatíu í
gær er júgóslavneskir herbílar óku
þar í gegn en að sögn fréttamanna
vom þeir á leiö til landamæra Slóve-
níu. Bresk fréttastofa greindi frá því
í gærkvöldi að leiötogar Króatíu
hefðu efnt til skyndifundar til að
ræöa hjálparbeiðni frá Slóveníu.
Bandarísk og bresk yfirvöld og
Evrópubandalagið hafa hvatt yfir-
völd í Júgóslavíu til að binda enda á
kreppuna með viðræðum til að forð-
ast frekara blóðbaö.
Ritzau, Reuter
Slóvenskur lögreglumaður gengur fram hjá skriödreka sambandsríkjahers-
ins við höfuðborg Slóveníu, Ljubljana. Simamynd Reuter