Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991.
Útlönd
Flestír héldu að eitthvert grin væri í gangi þegar Radio Finland byrjaöi
aö senda út fimm mínútna fréttaþætti á latínu, tungumáli sem allir héldu
að væri fyrir löngu útdautt. Svo reyndist þó ekki vera og eftir næstum
tveggja ára útsendingar eru latnesku fréttaþættirnir orðnir heimsþekktir
og gífurlega vinsælir, segir í Sunday Times. „Þetta er ein besta hugmynd
sem viö höfum fengið," sagði Juhani Nihústö, yfirmaður erlendu deildar
Radio Finnland. „Ennþá eru milljónir manna í Evrópu sem skilja lat-
ínu.“ Þýskur kennari sagði að þetta væri frábær hugmynd: „í fyrsta
skipti á ævinni hefur latínukunnátta mín komið að einhverju gagni.“
Eitt vandamál hefur þó komið upp innan útvarpsstöðvarinnar varðandi
fréttaþættina. Sárlega vantar latnesk orð yflr nútíraafyrirbæri eins og
flugskeyti og annað slikt. Bmgðið hefur verið á það ráö að fá málfræðinga
í Belgíu til að smíða nýyrði þegar svoleiðis vandamál koma upp.
Lik Marcosar til Filippseyja í október?
Imelda Marcos. fvrrum forsetfrú
Filippseyja, stendur enn í stappi
við yfirvold þar i landi viö að koma
liki eiginmanns sins i filippscyska
jörð. Ríkisstjórn Corazon Aquino
hefur bannað flutning á líki fyrrum
einræðLsherrans til eyjanna. Liig-
maður Imeldu sagði aö þetta bann
Aquino rynni út í lok september
og þá yrði hægt að flytja líkið til
Filippseyja til greftunar.
„Eg krefst þess aö líkami hans
verði grafmn á Filippscyjum Guð
let hann I'æðast þar og þvi eru það
ekki bara sjálfsögð mannréttittdi
að þar fái Marcos að hvíla heldur
Lögmaður Imeldu Marcos berst guðleg réttindi hans,“ sagði Imelda
með öllum ráðum fyrir þvf að fá sem býr í útlegð í New York, Lík
að grafa Ifk Marcosar, fyrrum for- Marcosar er nú geymt i grafhvelf-
seta og einræðísherra Filippseyja, ingu á Hawaii en þar dó hann árið
þarflandi. Símamynd Reuter 1989.
Noregur:
Tveir handteknir grunadir um sölu há-
tæknibúnaðar til kommúnistaríkis
Tveir Norðmenn hafa verið handteknir, grunaðir um brjóta reglur um
takmarkaðan útflutning á tölvubúnaði tíl kommúnistaríkja. Annar mann-
anna er starfsmaöur norska tölvufyrirtækisins Norsk Data en að sögn
lögreglu er fyrirtækið sjálft á engan hátt tengt málinu.
Mennimir tveir eru grunaðir um að brjóta reglur nefndar sem hefur
þann starfa að samhæfa útflutningshömlur og var sett á laggirnar á
meðan kalda stríðið stóð sem hæst. Japan, Ástralía og allar aöildaþjóðir
NATO utan ísland eiga aðild að nefhdinni. Þessar reglur takmarka sölu
á hátæknibúnaði til kommúnistaríkja.
Að sögn norsku lögregiúnnar eru mennirnir grunaðir um að hafa selt
hugbúnað og auk þess að haí'a gefíð utanríkisráðuneytinu falsaðar útflutn-
ingsskýrslur. Lögreglan vildi ekki segja til hvaða lands hugbúnaöurinn
heföi verið seldur en annar mannanna var handtekinn við heímkomu
sína frá Moskvu
Belgíusijórn treg að rífa höf uðstöðvar EB
Verið getur að höfuðstöðvar Evrópubandalagsins fái að standa óhreyfð-
ar enn um tima þar sem rlkisstjórn Belgíu vex í augum sá kostnaður
sem mun hljótast af aó rifa husiö.
Styr stendur á núlli ríkisstjórnar Belgiu og Evrópubandalagsins um
hvort rífa eigi hygginguna sem hýsir höfuðstöðvar bandalagsins. Evrópu-
bandalagið vill sem kunnugt er láta rífa húsið en Belgíustjórn er hikandí
um málið og hefur nú lagt til að frekar skuh ráðist í viðgerðir. Ágreining-
urinn er aöallega um þann gífúrlega kostnað sem hljótast myndi af að
rífa það.
Evrópubandalagið segir að hús höfuðstöðvanna, sem heitir Berlaymont
og myndar (jórarma stjömu, sé orðið alltof Iítið og vill byggja miklu
hærra hús sem rúmað gæti tvöfalt fleiri starfsmenn. Nú starfa i húsinu
um 3300 manns. Bandalagið hefur bent, móli sínu til stuðnings, á að bygg-
ingin sé full af hættulegu asbesti. Ríkisstjórn Belgíu hefur þó ekki látið
sannfærast og telja menn að ein af ástæðum þess sé aö fundist hefur
asbest í mörgum opinberum byggingum í Brussel, meðal annars í þing-
inu. Niðurrif höfuðstöðva Evrópubandalagsins gæti því leitt til gífurlegra
framkvæmda og fjárútláta fyrir rikisstjómina.
ísrælskur gísl látinn laus
AðskOnaðarsinnar, sem beijast gegn yfirráöum Indlands í Kasmírhér-
aði, létu í dag lausan ísraelskan gísl sem tekinn var í síðustu viku og
veriö hefm’ í haldi hjá tveimur mismunandi frelsishreyfingum síðan. isrel-
inn Yitzhaki var afhentur blaðamönnum sem síðan fóru með hann til
sendinefndar frá Sameinuöu þjóðunum i Srinagar í Kasmír.
Yitzhaki var einn af sex ísraelskum ferðamönnum sem rændir voru
siðastliðínn þriöjudag af heittrúuðum íslömum. Einn feröamannanna dó
í átökunum og fjórum tókst að flýja. Frelsishreyfing Kasmír, sem krefst
sjálfstæöis Kasmírhéraðs frá Indlandi og hefur verið í fararbroddi upp-
reisnanna í Kasmírhéraöi síðastiiðna 18 mánuöi, náði Yitzhaki síðan þar
sem hann var á flótta irá islamahreyfingunni. Fjöldi annarra uppreisnar-
hópa hafa stundað mannrán undanfama mánuöi í Kasmírhéraði. Sumir
þeirra vilja sjálfstæöi Kasmir en aðrir viija að héraðið fari undir pakist-
anskastjóm. Reuter, ttiuau
Skriðdrekar sambandshersins í Júgóslavíu fara yfir akur á leið til búða sinna í Zagreb í gær.
Símamynd Reuter
Slóvenar óttast
frekari árásir
- viðræður um heimkvaðmngu sambandshersins hófust í gær
Slóvenar segja að ný „raddaleg
árás“ júgóslavneska sambandshers-
ins sé yfirvofandi í dag þó svo að
sambandshermenn og slóvenskar
varnarsveitir séu famar að draga sig
burt frá átakasvæðunum. Brynvarin
farartæki sambandshersins yfirgáfu
stöðvar sínar í Slóveníu á friðsamleg-
an hátt í gær eftir að yfirstjórn hers-
ins hafði fyrirskipað vopnahlé.
„Allar sveitir júgóslavneska hers-
ins hafa fengið fyrirskipun um að
hætta átökum," sagði Andrija Raseta
hershöfðingi, næstæðsti maður hers-
ins í Slóveníu og Króatíu. Ekki höfðu
þó borist neinar fréttir af því að stór
lest brynvarinna farartækja, sem
send var í átt til Slóveníu í gær, hefði
verið kvödd til baka.
En Milan Kucan, forseti Slóveníu,
sagði fréttamönnum að vamarsveit-
irnar byggjust við „mddalegri árás á
hverri stundu“.
Lýst var yfir vopnahléi á sama tíma
og júgóslavnesk stjórnvöld vora und-
ir auknum þrýstingi erlendra ríkja
um að hafa hemil á hernum sem virt-
ist vera stjómlaus.
Jelko Kacin, upplýsingamálaráð-
herra Slóveníu, tilkynnti frétta-
mönnum síðdegis í gær að þriggja
manna slóvensk sendinefnd hefði
hitt embættismenn frá vamarmála-
ráðuneytinu og hemum til að ræða
um heimkvaðningu sambandsher-
manna í búðir sínar. Ráðherrann
sagði ekki hvar viðræðumar færu
fram.
Kacin sagði að allar sambandsher-
sveitir sem gætu farið af frjálsum
vilja ættu að gera svo og hægt yrði
að flytja þungan búnað á brott. Marg-
ar hersveitir höfðu verið umkringd-
ar slóvenskum vamarsveitum en
Kacin sagði að flestar þeirra gætu
nú farið.
„Það er ekki ljóst hvenær sam-
Júgóslavnesk móðir faðmar son
sinn sem er í hernum.
Simamynd Reuter
komulag næst,“ sagði Kacin og bætti
við að slóvensku vamarsveitirnar
hefðu náð öllum landamæram hér-
aðsins á sitt vald.
Evrópubandalagið, sem hefur verið
að reyna að koma á varanlegum friði
í Júgóslavíu, hugleiddi það í gær að
viðurkenna sjálfstæði Slóveníu og
Króatíu nema stjórnin í Belgrad léti
af öllum hernaðaraðgerðum, að því
er talsmaður hollenska utanríkis-
ráðuneytisins skýrði frá. Utanríkis-
ráðherrar bandalagsins koma saman
tíl sérstaks fundar á morgun til að
leita leiða til að leysa deiluna í Júgó-
slavíu og sanna þar með að það geti
leikið stórt hlutverk á alþjóðavett-
vangi.
Bandaríkin, sem vom dyggir
stuðningsmenn Júgóslavíu á tímum
kalda stríðsins, sögðu í sameiginlegri
yfirlýsingu með Evrópubandalaginu
að þau væm að íhuga að hætta
vopnasölu til Júgóslavíu og taka fyr-
ir alla aðstoð til landsins vegna að-
gerða hersins. Bretar höfðu áður til-
kynnt að þeir ætluðu að hætta að
selja Júgóslövum vopn og hátækni-
búnað.
Ráðstefnan um öryggi og samvinnu
í Evrópu, RÖSE, hvatti til þess á
fundi sínum í Prag í gær að vopna-
hléi yrði tafarlaust komið á og fór
fram á tryggingu fyrir því að júgó-
slavneski herinn væri undir stjóm
stjórnmálamanna.
Ekki var ljóst hvort hótanir vestur-
veldanna hefðu átt þátt í því að her-
inn lýsti yfir vopnahléi.
Mæður úr allri Júgóslavíu fjöl-
menntu til Zagreb, höfuðborgar
Króatíu, í gær og hvöttu til þess aö
endi yrði bundinn á bardagana milli
hersins og þjóðernissinna.
„Mæður úr öllum lýðveldum, sam-
einumst til að bjarga saklausum
börnum okkar,“ sagði á borða í mót-
mælunum á aðaltorgi borgarinnar.
Margir hinna fimmtán hundruð
viðstaddra táruðust þegar serbnesk-
ar mæður, sem komu með rútum frá
Belgrad, köUuðu á friö í landinu.
Mæðurnar, sem eru sameinaðar í
hatri sínu á ofbeldinu milU þjóðar-
brotanna, sögðu að þær ætluðu að
halda norður til Slóveníu í dag til að
finna syni sína og færa þá heim.
Rauði krossinn í Slóveníu sagði í
gær að rúmlega eitt þúsund hermenn
hefðu verið handteknir og meira en
sjö hundruð hefðu flúið undan
merkjum á fyrstu viku átakanna.
Ekki er ljóst hversu margir hafa lát-
ið lífið en Rauði krossinn sagði að á
þriðjudag hefðu 29 manns fallið.
Dimitrij Rupel, utanríkisráðherra
Slóveníu, sagði í viðtali við breska
útvarpið BBC sem verður flutt 10.
júlí að Slóvenía ætti að vera fullvalda
ríki í sameinaðri Evrópu en ekki
hluti af Júgóslavíu.
„Við erum reiðubúnir að gefa eftir
hluta af fullveldi okkar, en ekki til
Belgrad, ekki til sambandshersins,"
SagðÍRupel. Reuter
Shevardnadze segir sig úr
Kommúnistaflokknum
Rússneska sjónvarpið skýrði frá
því í gær að fyrmm utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Eduard She-
vardnadze, væri búinn að senda bréf
tU Kommúnistaflokks Sovétríkjanna
þess efnis að hann vUdi segja sig úr
flokknum. Sjónvarpið sagði að She-
vardnadze hefði sent aganefnd mið-
stjómar flokksins bréfið en sú nefnd
var einmitt að rannsaka þátt hans í
stofnun nýs stjómmálaafls í Sovét-
ríkjunum, hinnar lýöræðislegu um-
bótahreyfingar.
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna og aðalritari Kommúnista-
flokksins, sagði að flokkurinn væri
dauðadæmdur ef árásir harðlínu-
manna á efnahagsumbætur hans
héldu áfram. „Ef þessu heldur áfram
og ef flokkurinn ætlar að starfa
áfram í núverandi mynd munum við
tapa öllum stjórnmáladeilum og
kosningum í framtíðinni," sagði
Gorbatsjov í ræðu sem birt var í
Prövdu á miðvikudag.
Reuter