Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991. Spumingin Lesendur Ertu búin(n) að taka fram regngallann? Afstaða stjómmálaflokka til Evrópuviðræðna: Guðjón Pétursson, 12 ára: Nei, ég á engan. Magnús Samúel Gunnarsson, 12 ára: Nei, ég er oftast inni. Þórður Ingvason, 11 ára: Nei. Svandís Tryggvadóttir: Nei, það hef ég ekki gert. Jón Traustason dúkkulækhir: Fyrir löngu. Hann er til reiðu. Sýnist þeir allir vera sammála Frá hádegisverðarfundi formanns Framsóknarflokksins sl. laugardag þar sem hann ræddi m.a. Evrópumálin. Magnús Kristjánsson skrifar: Mér flnnsi nú umræðan um aðild okkar að þessu efnahagssvæði Evr- ópuríkjanna og þar með talin hugs- analeg innganga okkar íslendinga í Evrópubandalagið vera farin að verða alleinkennileg. Þrátt fyrir að sumir stjómmálamenn eða stjóm- málaílokkar láti sem þeir vilji ekki fyrir nokkurn mun að við tengjumst þessum bandalögum slá þeir sömu menn svo úr og í að við, þessi hópur sem oft er kallaður almenningur, áttar sig engan veginn á umræð- unni. - Mér sýnist þegar á allt er Ut- ið að í raun styðji alhr stjórnmála- flokkarnir (nema kannski Kvenna- Ustinn) þátttöku okkar í efnahags- bandalaginu - og jafnvel Uka í EB. Hefði síðasta ríkisstjórn (A-flokk- arnir og Framsókn) setið áfram, þá er augljóst, að hún hefði haldið áfram á þeirri braut sem hún var á, þ.e. að ljúka viðræðum við EB með þessum fáu EFTA-ríkjum sem eftir em og reynt að komast að þeirri sömu nið- urstöðu og nú er stefnt að. Nægir að minna á að t.d. fyrrv. for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins sagöi á fundi fyrir nokkmm dögum orðrétt: Við fram- sóknarmenn fylgjum samningum um evrópskt efnahagssvæði. Hann sagðist líka vera samþykkur skiptum á takmörkuöum veiðiheimUdum hér við land - ekki því að veiðiheimUdir komi í stað tollfríðinda. Tollfríöindi eru viðskipti, fiskveiðar tengjast náttúruvemd, sagði hann svo enn- fremur. Þetta höfðu blööin ekki eftir for- manni Framsóknarflokksins þótt öll dagblöðin birtu frétt um fund for- mannsins, flest blöðin tvær fréttir sama daginn. Og talsverður hluti Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins var tileinkaður þessum fundi for- mannsins. - Ég endurtek bara; ég get ekki séð að neinn grundvallarmunur sé á afstöðu flokkanna hér tU aðlög- unar að þeim stefnumiðum sem Evr- ópuríkin hamra nú á. Laugarnar fyrir alla Guðmundur Þ. Harðarson sundá- hugamaður skrifar: Fyrir stuttu skrifaði sundlaugagest- ur greinarkorn í DV undir fyrirsögn- inni „Laugamar ekki fyrir almenn- ing?“ - Grein sundlaugagestsins er tvíþætt, annars vegar gagnrýni á þjónustu í sundlaugunum í Laugar- dal, og hins vegar óánægja yfir því að aðallaugin var lokuð vegna sund- móts. Ekki ætla ég að svara sundlauga- gesti vegna gagnrýni hans á þjónustu í laugunum því ég er þess fullviss að forráðamenn munu hafa skýringar á þeirri gagnrýni. Hvað varðar lokun á aðallauginni vegna sundmóts föstudaginn 14. júní (og reyndar einnig laugadaginn 15. júní) þá vil ég að eftirfarandi komi fram. Þessa umræddu daga fór fram í Sundlaugunum í Laugardal meist- aramót Reykjavíkur í sundi. Vegna þess.að aðsókn að laugunum hefur verið mjög góð í sumar, og þetta sundmót var ekki eitt af þeim stóru, þá ákváðu forráðamenn mótsins og lauganna að hafa laugina opna á meðan mótið fór fram. - Almenning- ur hafði aðgang að grunnu lauginni, heitu pottunum, rennibrautinni og sólbaðsaðstööunni. Þetta er nýjung sem byrjaö var á í fyrra. Vegna þessa hefði sundlaugagestur fremur átt að skrifa lesendabréf og þakka forráða- mönnum lauganna og sundíþróttar- innar fyrir að hafa laugina opna, þrátt fyrir sundmótið. Sundlaugar á íslandi eru yfirleitt byggðar sem þríþarfa laugar. Þetta þýðir að þær eru jafnt til nota fyrir almenning, skóla og íþróttafélögin. í sundlauginni í Laugardal eru haldin 2-3 sundmót á ári, og hefur verið svo síðan laugin var fyrst opnuð. Ég vil einnig benda sundlaugargesti á að þessum tíma voru allar aðrar al- menningslaugar (10 laugar alls) á höfuborgarsvæðinu opnar almenn- ingi. Ég er þess fullviss að sundlauga- gestur getur því átt von á góðum móttökum í laugunum hér eftir sem hingað til. Opið bréf til heilbrigðis- og tryggingaráðherra: Mál sem þarf n- ast athugunar Björn Björnsson skrifar: Þar sem umræða um greiðsluhlut- deild ríkisins í lyfjum manna er í brennidepli þessa dagana er ekki úr vegi að kanna fleiri atriði en að auka hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði og að skikka lækna til að ávísa á ódýr- ari lyf. Þar er við búum enn við ein- okun á innflutningi og dreifmgu lyfja er ekki við því að búast að verð þeirra sé yfirleitt raunhæft. Með því að koma á samkeppni í þessari grein verslunar gæti ríkið og sjúklingar sparað sér mikið fé. Hér eru oft og tíðum geröar verö- kannanir milli söluaðila innanlands og stundum er gerður verðsaman- burður við erlenda aðila. Er þá oftast um að ræða matvörur og fatnað. Ég hef hins vegar aldrei séð verðsaman- burð lyfja, hvorki milh lyfjaverslana innanlands né erlendis. Sama máh gegnir um gleraugnaverð, þ.e.a.s. á glerjunum sjálfum fyrst og fremst. - Hvers vegna er ekki gerö verðkönn- un/samanburður á þeim, t.d. við Bandaríkin (eða Júgóslavíu)? Hr. ráðherra, það læðist sá grunur að mér að hér sé á ferðinni mál sem þarfnast athugunar. Hvemig stend- ur á því að t.d. ASPERÍN kostar 10 sinnum meira hér á landi en algeng merki af ásperíni í Bandaríkjunum? Ég hefi keypt asperín (ásamt fleiru) í Bandaríkjunum í mörg ár, enda daglegur notandi, og ég hef sparað mér töluveröa fjármuni með því. Meðf. mynd er af glasi með 250 töfl- um af asperíni sem ég keypti í Se- attle í Bandarikjunum á þessu ári. - Verðið er $ 1,49 eða um 93,00 kr. ísl. ogíEB? Friðrik Friðriksson skrifan Mörgum verður tíðrætt um hvort innganga okkar í Evrópu- bandalagið verði óhjákvæmileg. Sumii- eru þeirrar skoðunar að okkur sé nauðugur einn kostur héðan af, íslenska ríkið verði ekki rekið lengur með erlendum lán- tökum til að viðhalda þeim lifs- kjörum sem hér eru, - Kannski er þetta eina rétta leiðin til að koma á þeim staðli sem við svo iðulega berum okkur saman við, löndin „í kringum okkur“. Ég vildi óska að svo gæti orðið og það fyrir margra hluta sakir. En þá koma hka margar spurn- ingar upp í huga mér. Eins og þessar: Verða hér sömu laun og þar, munu sömu reglur gilda um lífeyrissjóði, tryggingar á bifreið- um, húseignum o.slrv., o.s.frv? Ef kjör manna verða þau sömu get ég ekki séð neina þörf á að mótmæla inngöngu í EB. Saknaðiforystu- mannanna S.G. hringdi: Ég fór í árlega ferð með Verði sl. laugardag í dásamlegu veðri. Ekið var sem leið liggur vestur í Dali og víðar. Svo mikil var feg- urðin í landslaginu og svo vel tókst ferðin öll að ég hef sjaldan notið betri dagsferðar út á lands- byggðina. Þar sem þessi ferð tókst svo eindæma vei furöaði ég mig á og áreiðanlega fleiri að ekki skyldu vera fleiri forystumenn flokksins í ferðinni en formaður- inn og einn þingmaður. Ég saknaði margra ágætra þingmanna fyrir Reykjavik sem oft hafa verið með og lífgað upp á þátttökuna. Einnig hefðu mátt vera þama með einhverjir borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. En enginn þeirra lét sjá sig. - Varla eru allir þessir menn móðg- aðir út í hinn almenna flokks- mann. En hvað á maður að halda? Þulurnar mega hverfa Margrét hringdi: Ég var að heyra að gera ætti meiriháttar uppskurð á „útliti" og fyrirkomulagi sjónvarpsdag- skrár Rikisútvarpsins. í þeirri breytingu sem framundan er hef- ur verið talað um að láta þulurn- ar sem kynna dagskrána hætta. - Ég er alveg hjartanlega sam- mála þeirri framkvæmd. Bæði sparar þetta fé og svo sýnist manni þær vera algjörlega óþarf- ar. Þulumar mega því hverfa af skjánum mér að meinalausu. Hjá Stöð 2 hafa aldrei verið neinar þulur og ekkert hefur ver- ið kvartað yfir því að efnið kom- ist ekki til skila fyrir það. - En það er samt tilhlökkunarefni að Sjónvarpið ætlar að gera andhts- lyftingu á sjálfu sér. Mál var til komiö. JtónÓttarverði utvarpsstjóri Sigurður Einarsson hringdi: Nú þegar enn er óákveðíð hver tekur við staríi útvarpsstjóra vil ég taka undir með einum aöila sem svarar spumingu dagsins í DV sl. mánudag þar sera spurt er hver verði næsti útvarpsstjóri. Þar er stungið upp á Jóni Óttari Ragnarssyni, fyrsta sjónvarps- stjóra Stöðvar 2. Mér flnnst alltaf að Jón Óttar hafl setið óbættur eftir aö hann hafði frumkvæði að því að rjúfa einangrun sjónvarpsreksturs á íslandi með því að setja á stofn aðra sjónvarpsstöð. Það þarf mikla dirfsku til og hana virðist Jón hafa. - En oft er það svo að brautryðjendurnir eiga ekki eft- irleíkinn. Þá koma aðrir og segja: „Nú getum við.“ Það sannaðist á Stöð 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.