Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 12
26
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Hús og garðar
Það er geysilega mikið öryggisatriði að hafa þessar flísar undir rólunum
og leiktækjunum sagði Soffia, forstöðukona á barnaheimilinu við Lamba-
staðabraut, þar sem GV hellan er komin í gagnið. Hins vegar var undirlag-
ið undir hellurnar ekki nægilega vel unnið svo að þær runnu allar til og
risu upp á rönd. Verið var að lagfæra þetta er Ijósmyndarann bar að garði.
DV-mynd Hanna
Ný framleiðsluvara:
GV gúmmíhellur
við sundlaugina
Sífellt eru að koma fram á sjónar-
sviðiö nýjar framleiðsluvörur. Ein
slík er gúmmíhellur eða GV-reitur-
inn. Þessi vara lítur út eins og stein-
hellur og hefur svipað notagildi:
GV-reiturinn kom á markaðinn í vor.
GV-reiturinn er 690 mm á lengd,
345 mm á breidd og 25 mm á þykkt.
Fermetrinn kostar 3.500 kr. Reitur-
inn er mjúkur viðkomu og stamur,
verður því ekki háll, og hentar vel á
sundsvæðum og í kringum heita
potta. Hann hentar vel á gangstíga
og leiksvæði barna, íþróttasvæði, svo
sem í lyftingarsali eða við skauta-
svell.
GV-reiturinn er framleiddur hjá
Gúmmívinnslunni hf. á Akureyri eft-
ir þýskri fyrirmynd. Þar í landi hafa
mjúkir gúmmíreitir verið lögleiddir
á leiksvæði barna.
GV-reiturinn er framleiddur úr
endurunnu gúmmíi. í endurvinnslu-
vörurnar er notaður gúmmísalli sem
fellur til við hjólbarðasólningu, bæði
á Akureyri og í Reykjavík. Á sl. ári
voru notuð 50 tonn af gúmmísalla
sem annars hefði verið hent. Stefnt
er að því að nota 100 tonn á þessu
ári, segir í blaðinu Tæknivísir 1991.
Þar er einnig vakin athygli á að
gúmmíhellan hefur engar hvassar
brúnir, flísar eða nagla sem hægt
væri að slasa sig á, fjöðrun hellunnar
veldur því að ísing molnar af hell-
unni ef á hana er stigið. Þá er hellan
hitaeinangrandi, verður aldrei ísköld
og helst lengi heit.
-A.Bj.
Útlitið er mjög skemmtilegt og fullgengiö frá öllu umhverfis húsin.
Dýrasta húsið sem getið er um í greininni kostar um 155 þúsund dollara (um 9,3 millj.isl.kr.).
Svona byggja þeir í Flórída
Höfum ávallt
fyrirliggjandi:
Gosbrunna,
úti og inni,
styttur, dælur
og Ijós,
garðdverga, fugla
o.fl. til garð-
skreytinga.
Vörufell hf.
Heiövangi 4, Hellu
Sími 98-75870
Opið 14-18
eða eftir samkomulagi.
Lokað þriðjudaga.
Á undanförnum mánuðum hafa.æ
fleiri íslendingar fest kaup á hús-
eignum í Orlando í Flórída. Hyggjast
þessir nýju húseigendur nota húsin
sem sumarbústaði fyrir sig og fjöl-
skyldur sínar og jafnvel lána vinum
og kunningjum um stundarsakir. ís-
lenskur fasteignasali hefur haft
milligöngu um þessi húsakaup.
íslendingarnir kaupa aðallega ein-
býlishús. Þau eru staðsett innan
ákveðins íbúðarsvæðis, þar sem er
að finna öll nútímaþægindi sem fólk
óskar eftir að hafa innan seOingar,
golfvöll, sundlaug, við sum húsin eru
jafnvel einkasundlaugar, klúbbhús,
tennisvelli o.s.frv. Verð á þessum
húsum er frá 98 þúsund dollurum
upp í tæplega 160 þúsund dollara.
(7,7 millj. ísl. kr.-9,6 millj. ísl.kr.)
Odýrustu húsin eru um 140 fermetr-
ar en þau stærstu um 260 fermetrar.
Húsin eru hlaðin og búið að ganga
frá lóðinni í kringum þau með steypt-
um stéttum, blómum og tijágróðri.
Inni fyrir eru gólfteppi á gólfum, sem
viðskiptavinir geta valið sjálfir um.
í eldhúsinu er eldavél og uppþvotta-
vél. Þá er að finna reykskynjara í
öllum húsunum, en innréttingar all-
ar eru úr timbri.
Hús þessi eru mjög falleg og hent-
uglega innréttuð þótt þau séu á flest-
an hátt mjög ólík þeim húsum sem
algengust eru á íslandi hvað varðar
allar innréttingar.
Byggingarsvæðin eru að vonum
einnig mjög ólík, þar sem jarðvegur
og loftslag í Flórída er afar frábrugð-
ið því sem við þekkjum hér á landi.
Byggingaraðilinn sér um að ganga
frá hverri lóð þannig að þegar því
er lokið er engu líkara en að um sé
að ræða gróið hverfi. Oftast er þó
öllum trjágróðri eytt á byggingar-
svæðinu sem er eins og alger eyði-
mörk þegar haflst er handa. Bygging-
arsvæðin eru skipulögð áður en
byggingarframkvæmdir hefjast.
-A.Bj.
Þetta hús kostar um 110 þúsund dollara (um 6,6 millj.
ísl. kr.) Það er einlyft um 140 fermetrar á stærð. Málin
sem gefin eru upp á teikningunni eru fet og þumlungar.
Áður en byggingaframkvæmdir hefjast er alit hverfið
gjarnan skipulagt i kringum golfvöll. Aðrar þjónustu-
stöðvar eins og klúbbhús, sundlaug og tennisvellir eru
því sem næst í miðju hverfinu.