Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
27
Hús og garðar
ísafjörður:
Hvar fást plönt-
urnar, sandurinn
og hellumar?
Hlynur Þór Magnússon, DV, Isafirði:
Þaö eru tveir aðilar sem selja tré
9g runna og aðrar garðplöntur á
ísafirði, annars vegar Skógræktar-
félag ísafjarðar, sem er með trjáp-
löntur og runna, og hins vegar Ást-
hildur C. Þórðardóttir og Elías
Skaftason, sem hafa verið með
töluvert mikla plöntusölu, bæði í
fyrra og nú í ár.
Þau eru smátt og smátt að koma
sér upp garðplöntustöð á landi sem
bærinn úthlutaði þeim til þeirra
hluta upp af kúluhúsinu þeirra.
Ásthildur og Elías eru með tré,
runna og blómplöntur og má bæði
koma á staðinn (einkum á kvöldin)
eða hringja í síma 3351.
Skógræktarfélagið
Daglegri sölu Skógræktafélags
ísafjarðar er nú lokið á þessu ári
en ennþá er hægt að fá trjáplöntur
hjá Magdalenu Sigurðardóttur (s.
3398) eða Sigríði Steinunni Axels-
dóttur (s. 3278).
Sand í garða, bæði undir stéttar
og til íblöndunar, fá ísfirðingar
ýmist niðri í Suðurtanga eða kaupa
hann í Bolungarvík. Þar fæst betri
sandur, sem tekinn er í gryfjum
uppi á þurru landi.
Hröð þróun
í hellulögn
Steiniðjan hf. á ísafirði rekur
hellusteypu og einnig eru Siguijón
Sveinbjörnsson, múrari í Bolung-
arvík, og synir hans með hellu-
steypu. Urvalið fer stöðugt vaxandi
hjá báðum þessum aðilum, enda görðum verið mjög hröð á ísafirði
hefur þróunin í hellulagningu í allra síöustu árin.
W CERAMICHE
fMARAZZI
UTIFLISAR
Vegna hagstæðra innkaupa getum við
boðið gegnheilar útiflísar áótrúlegu verði
20x20 sm. verð frá kr. 1.953,00 pr. m2
30x30 sm. verð frá kr. 2.064,00 pr. m2
# ALFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4 - SÍMI 686755
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til verksins, þegar þú málar húsið það sem grunn undir Kópal-Steintex. Þú
með Steinakrýli frá Málningu hf. Stein- getur málað með þessari úrvalsmálningu við
akrýl veitir steininum ágæta
vörn og möguleika á að að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls er gulltrygg og
því getur þú einnig notað
vatns- lágt
hitastig, jafnvel í frosti. Hún
þolir vætu eftir um eina
klst., hylur fullkomlega í
tveinrur umferðum, veðr-
unarþol cr frábært og litaval
gott.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
imá/ningh/f
- það segir sig sjdlft -