Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Side 16
30
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Húsoggarðar
Tilraunatrjárækt í Eyjum:
Trémeð
sérþarfir
Ómar Garðaissan, DV, Vestmaiuiaeyjum;
Bak viö háa girðingu við Heimagöt-
una í Vestmannaeyjum, beint á móti
hraunjaðrinum nýja, eru hjónin Jón
Hjaltason hæstartéttarlögmaður og
Steinunn Sigurðardóttir, kona hans,
að gera merkilegar tilraunir með
trjárækt. Þegar DV leit við hjá þeim
eitt kvöldið var Jón í óðaönn að setja
niður tré í nýjan garð sem þau ætla
að leggja undir ýmsar trjátegundir
sem eiga að standast \estmanna-
eyskar aðstæður, mikla vætu, vind
og seltu. M.a. var Jón að setja niður
alaskavíðir sem kallaður er hrýma.
Þessi tegund af alaskavíði kom mjög
vel út í tilraunum á Landeyjasandi
þar sem aðstæður eru svipaðar og í
Eyjum. Var hann eina tegundin sem
ekki kól.
Jón og Steinunn eru engir nýgræð-
ingar í tijárækt. Voru byriuð að
þreifa fyrir sér fyrir Heimaeyjargos-
ið 1973, en trén grófust undir ösku
og eimyiju eins og annar trjágróður
í Eyjum. Árið 1975 hófust tilraunir
þeirra og urðu þau að byrja frá
grunni, m.a. að fá nýja mold í garð-
inn. Þá var viðjan talin best og viðj-
umar sem þau gróðursettu þá lifa
enn. Viðjuna kelur á köldum voram
en það virðist ekki há henni því hún
heldur áfram að vaxa og hefur hún
dafnað vel hjá þeim. Einnig gróður-
settu þau nokkrar aspir fyrir 15
áram. Fengu þær í jógúrtdósum en
nú era þær að nálgast fjóra metra
og era þéttar og fallegar. Þá hefur
selja spjarað sig vel og er um 3,50 m.
á hæð.
En það er ekki tekið út með sæld-
inni að rækta tré í Vestmannaeyjum
og þar er komin skýringin á hárri
girðingu í kringum garðinn. Þau
segja vonlaust að rækta þau án þess
að trén hafi skjól fyrir öllum áttum
á meðan þau eru að komast yfir erfið-
asta hjallann. Seltan sé ekki versti
óvinurinn heldur vindurinn sem oft
gerir mikinn skaða. Sérstaklega þeg-
ar fer saman vindur og kalt veður.
En svo vikið sé að tilraunum þeirra
þá era þau með nokkrar eldlands-
plöntur í tijáhlífum sem eru orðnar
um 1,70 á hæð. Eina þeirra kól í vor
en virðist en er að ná sér. Af aspar-
tegundum sem komið hafa vel út era
C-10 Haukur, C-10 Iðunn, C-9. Jap-
anslerki kemur líka vel út.
Það er ekki komið að tómum kof-
unum um tijárækt hjá þeim Jóni og
Steinunni og þyrfti miklu lengra mál
til að koma því öllu til skila. En svona
til gamans má geta þess í lokin að
þegar þau sóttu um stækkun á garði
sínum fylgdu öll latnesku heiti
tijánna sem þau ætla að rækta í hon-
um með umsókninni. Á myndinni
má sjá árangur af 15 ára starfi þeirra
hjóna. Baráttan hefur oft verið erfiö
en aldrei vonlaus og enn eru þau að
reyna fyrir sér.
DV-mynd Omar
Jón ofl Steinunn i hinum myndarlega trjágarði sínum
SKÓGRÆKTARFÉLAG
REYKJA VÍKUR
FOSSVOGSBLETT11 - 108 REYKJAVÍK
- SÍMI 641770
1 trjáræktarstöð okkar í Fossvogi fást að jafnaði allar harð-
gerðar trjá- og runnategundir.
Sérstök áhersla er lögð á ódýrar og hentugar skógarplöntur
í sumarbústaðalönd. Einnig margt fleira sem kemur ræktend-
um vel, svo sem trjástoðir, áburður, verkfæri og hin vinsæla
moldarblanda okkar, kraftmold.
Veitum ráðgjöf og upplýsingar um ræktun og notkun trjáa
og runna.
ATH. Sama verd og ífyrra. Verið velkomin.
Hjá Pípugerðinni er ráðlagt að taka 7 cm þykka steina í bílastæði og
innkeyrslur.
Útum stéttar urðu þar..
Frábært úrval
af hellum og
hleðslum
Innkeyrslan í bílskúrinn og að-
koman að húsinu og gangstígar í
garðinum verða að vera þokkalega
frágengin til þess að þægilegt sé að
búa í húsinu. Ef aðkoman er ekki
fullfrágengin berast óþolandi
óhreinindi inn í húsið.
En allt kostar þetta peninga. Það
er sennilega oft ástæðan fyrir því
að frágangur utanhúss dregst á
langinn. Fólk á ekkert eftir til þess
að eyða í slíkt.
Hægt er að fá margbreytilegar
gerðir af flísum, steinum og hleðsi-
um. Einnig er skemmtilegt að nota
mismunandi möl í garðstíga.
Pípugerð
Reykjavíkur
Hjá Pípugerð Reykjavíkur, Sæv-
arhöfða 6-12, sími 680405, eru til
a.m.k. sex gerðir af hellum og stein-
um, sem eru framleidd bæði í gráu
og ht. Litaðar hellur og steinar eru
25% dýrari en grá. Fermetrinn af
gráum hellum, 6 cm þykkum, 50x50
cm, kostar 1416 kr. Stærð 40x40 cm
og 5 cm á þykkt kostar 1375 kr.
Fermetrinn af rétthyrndum steini,
7 cm á þykkt, kostar 1570 kr. en
2018 ef steinninn er 10 cm þykkur.
Fermetrinn af I-steini, 5 cm á
þykkt, er 1445 kr. Laufsteinn, 7 cm
á þykkt, kostar 1616 kr. fermetrinn,
7 cm þykkur sexkantur kostar 1525
kr. og 7 cm þykkur blómsteinn
kostar 1678 kr. fermetrinn.
Pípugerð Reykjavíkur hefur
framleitt megnið af rörum í hol-
ræsakerfi Reykjavíkurborgar sl. 40
ár. Áriö 1984 var hafin framleiðsla
á steinum og hellum.
Ós
Ós, Suðurhrauni 2, Garöabæ,
sími 651445, framleiðir a.m.k. tíu
tegundir af steinum og hellum í
garða, gangstíga og bílastæði.
Venjulegar hellur eru til í fjórum
stærðum og þremur þykktum.
Verðið, sem gefið er upp hér, er
allt miðað við fermetra:
20x20 cm stórar hellur, 5 cm á
þykkt, kosta 1605 kr. 20x40 cm stór-
Grassteinninn er einkar skemmti-
legur í bílastæði og undir snúrurn-
ar.
ar hellur, 5 cm á þykkt, kosta 1605
kr. 30x30 cm hellur, 6 cm á þykkt',
kosta 1718 kr. 50x50 cm hellur, 7
cm á þykkt, kosta 1897 kr. Sexkant-
ur, 5 cm á þykkt, kostar 1806 kr.
Munkasteinn, 5 cm á þykkt, kostar
1643 kr. I-steinn, 6 cm á þykkt, kost-
ar 1715 kr. Hertogasteinn, þykkt 6
cm, kostar 1995 kr„ jötunsteinn, 8
cm þykkur, kostar 1925 kr. Þar að
auki framleiðir Ós bæði þrep, kant-
stein, rennusteina og búlka og
brotastein sem notaður er í hleðsl-
ur.
Hellusteypan Stétt
Hellusteypan Stétt, Hyrjarhöfða
8, sími 686211, framleiðir margar
gerðir af steinum og hellum, þrep-
um, múrsteinum og kantsteinum.
Stétt er með fjölmargar fram-
leiðslutegundir, þar af hefðbundn-
ar hellur í ótal stærðum og þykkt-
um. Við getum hér aðeins um verð
á hluta framleiðslunnar og er jafn-
an-átt viö fermetraverð.
Hellur, 40x40x5cm, 20x40x5 cm,
50x50x5 og 25x50x5 kosta allar 1550
kr. Hellur af stærðinni 30x30x5cm
og 15x30x5cm kosta 1600 kr. Stærð-
in 10x30x5 cm kostar 1800 kr. Sex-
kantur, 5 cm á þykkt, kostar 1600
kr„ götusteinn, 6 cm á þykkt, kost-
ar 1660 kr. og 1750 kr. I-steinninn,
6 cm þykkur, kostar 1630 kr. V-
steinn, 7 cm þykkur, kostar 1760
kr. Jötunsteinninn, 7 cm þykkur,
kostar 1760 kr. Grassteinninn, sem
er einkar umhverfisvingjarnlegur
í t.d. bílastæði eða á svæði norðan
í móti við snúrur og öskutunnur,
er 8 cm þykkur og kostar 1840 kr.
-A.Bj.
Hertogasteinn og sexkantur frá Ós.