Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 18
32
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Hús og garðar
Frumkvöðlar skrúðgarða á ísaflrði:
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði:
Það er varla hægt að íjalla um
garðagróður á ísafirði án þess að
nefna tvo frumkvöðla, þá Martinus
Simson ljósmyndara og Jón klæð-
skera Jónsson. Sú garðamenning
sem til varð í bænum fyrr á öldinni
var ekki síst þeirra eljuverk.
Skrúðgarðar Ísaíjarðarkaupstað-
ar eru tveir: Austurvöllur á Eyr-
inni og Efri garðurinn við Bæjar-
brekkuna, rétt við nýja Fjórðungs-
sjúkrahúsið. Margir sem aldrei
hafa til ísafjarðar komið þekkja
Efri garðinn og hvalbeinið þar af
myndum og í baksýn er yfirleitt
gamla sjúkrahúsið sem Guðjón
Samúelsson teiknaði.
Jón klæðskeri var einn af stofn-
endum Blóma- og trjáræktarfélags
ísafjarðar laust eftir 1920. Efri
garðurinn mætti vel heita Jóns-
garður eftir honum. Eftir að félagið
leið undir lok tók bærinn við um-
sjá skrúðgarðanna. Var Jón ráðinn
til að annast þá. Konurnar í bænum
komu mikið til Jóns gamla klæð-
Gamalkunnug mynd frá ísafirði, reyndar tekin sl. sunnudag. í forgrunni er Efri garðurinn, vinstra megin er
gamla sjúkrahúsið sem nú er í þann veginn að fá nýtt hlutverk sem menningarmiðstöð ísafjarðar.
DV-myndir Hlynur Þór
Kr. 995,- fermetrinn
Njóttu sumarsins sem best og fáöu þér grasteppi
sem endist ár eftir ár.
Tilvaliö á svalirnar, veröndina
leikvöllinn, gufubaöiö, sundlaugar-
bakkann og hvar sem þér dettur í hug.
Grensársvegi 13, sími 91-813577,105 Rvk.
skera og fengu hjá honum plöntur
til að fara með heim. Þegar gamli
maðurinn gat ekki lengur sinnt
þessu starfi fóru garðarnir í órækt
og voru þannig í allmörg ár, allt
þar til staða garðyrkjustjóra var
stofnuð fyrir um tíu árum.
„Þá hringdi Bolh bæjarstjóri í
mig,“ segir Ásthildur Cesil Þórðar-
dóttir, „og bað mig að sjá um garð-
ana en þá var ég formaður Garð-
yrkjufélagsins sem stofnað var
1974. Fyrst vann ég ein í þrjá mán-
uði yfir sumarið en nú er svo kom-
Komid og sannfærist um gæðin.
Sólstofur -
Svalahýsi
Sýnum
laugardag og sunnudag
kl. 13-18
sólstofu, renniglugga, renni-
hurðir, útihurðir, fellihurð o.fl.
úr viðhaldsfríu PVC-efni.
ar og Gardhús hf.
DALVEGUR 2A, KÓPAVOGI, SÍMI 44300
ið að ég er með þrjá verkstjóra og
með þeim eru aftur tólf starfsmenn.
Og ekki vanþörf á, þeir mættu vera
íleiri," segir Ásthildur.
Simsongaróur
í Tunguskógi
Inni í Tunguskógi átti Martinus
Simson ljósmyndari sumarbústað
og þar er nú Simsongarður, vöxtu-
legur og fallegur skógarlundur,
einstakur sælureitur, líklega bráð-
um sjötíu ára gamall.
Simson var lengi með garðp-
löntusölu og gaf líka mikið af plönt-
um. Hann rak áróður fyrir ylhnum
og það er ástæðan fyrir því hvað
það er mikið af yhi á ísafirði enn í
dag. Hann er gott tré fyrir ísafjörð,
harðgerður og þolinn og duglegur.
Simson var lengi formaður Skóg-
ræktarfélags Isafjarðar. Hann
ánafnaði félaginu Simsonsgarð og
er hann nú í eigu og umsjá þess.
Það er ekki síst þessum mönnum
að þakka, Jóni gamla klæðskera
og Simson ljósmyndara, þó að ýms-
ir fleiri hafi komið mjög við sögu,
hversu mikið er til af grónum görð-
um á ísafirði, til dæmis við Hlíðar-
veginn.
Þessi mynd er tekin neðan af golfvelli ísfirðinga í Tungudal. Skógarlund-
urinn vöxtulegi er Simsongarður.