Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Síða 24
t ('
36
LAUCJÁKDAGUR 24Í ÁGtJST 1091.
Helgarpopp
ZJ
Islenskt tónlistarsmnar:
Átak sem skilað hefur árangri
Sumri er tekiö aö halla. Dagur
styttist með hverri vikunni og
k vikasilfurssúlan teygir ekki úr sér
likt og fyrrum, Sumarsins 1991
verður í annálum minnst sem sól-
arsumarsins mikla þegar kulpínd-
ur landinn fékk uppreisn æru.
Aukinheldur sem sól skein á rétt-
láta og rangláta þá skein hún skært
inn i íslenskt tónlistarlíf. Hljóm-
plötuútgefendur og tónlistarmenn
stóðu sameiginiega að baki átaki
sem bar yflrskriftina íslenskt tón-
listarsumar 1991. Svo viröist sem
átakið hafi borið árangur. Plötur
íslenskra tónlistarmanna hafa selst
betur en undanfarin sumur og með
tilllti til fjölda útgefinna titla geta
menn vel við unað. „Það er greini-
legt að hugur fólks stendur til is-
lenskrar tónhstar. Viðbrögðin hafa
verið mjög góð hvort sem litið er
til fjölmiöla eða plötukaupenda,"
sagði Jónatan Garöarsson hjá
Steinum er poppsíðan innti hann
eftir viðtökum við íslenska tónlist-
arsumrinu.
Halldór Bachmann hjá Skífunni
tók í sama streng og kvað menn
þar á bæ ánægða með viðbrögð al-
menníngs við útgáfum fyrirtækis-
ins.
Bubbi og Rúnar
söluhæstir
Þegar litið er á sölutölur nú und-
ir lok ágústmánaöar kemur í Ijós
að ákveönir titlar hafa farið í upp-
lögum sem nálgast góða jólasölu.
Það kemur vart á óvart að Bubbi
Morthens stendur aö baki sölu-
hæstu plötu sumarsins ásamt Rún-
ari Júlíussyni og þeim félögum I
GCD. Plata GCD hefur nú þegar
selst í sjö þúsund eintökum og fer
enn grimmt. Það eiga reyndar flest-
ar plöturnar sameiginlegt að vera
enn í góðri sölu þannig að þær töl-
ur, sem hér eru nefndar, eru í
mörgum tilfellum nokkuð frá því
að vera endanlegar.
Plata Stjórnarim.ur, Tvö líf, kem-
ur næst GCD og hefur selst i rúm-
lega fimm þúsund eintökum.
Bandalög 4 er við það að komast í
gull sem þýðir að þrjú þúsund
stykki hafa farið ofan í poka kaup-
enda.
Kirsuber hljómsveitarinnar Ný
dönsk hefur selst í tvö þúsund ein-
tökum og Við eigum samleið, sem
er saln laga meö Vilhjálmi heitnum
Vilhjálmssyni, hefur farið í hálfu
öðru þúsundi eintaka. Loks er að
geta safnplatnanna þriggja í
flokknum Aftur til fortíðar en milli
sex og sjö hundruö eintök hafa far-
ið af hverri þeirra platna. Þá er
upptalin útgáJFa Steina á íslenska
tónlistarsumrinu og samkvæmt
téðum upplýsingum er heildarsal-
an um það bfi 19 þúsund eintök.
íslandslögin fariö
besthjá Skífunni
Af útgáfu Skífunnar hefúr enginn
plata enn náð gullsölu en á því get-
ur orðið breyting þegar líður fram
á haustiö. íslandslögin, sem er safn
garaalla gullkoma, hefur selst í
hálfu þriðja þúsundi eintaka en
plata Síðan skein sól, Klikkað,
kemur fast á hæla íslandslaganna
með tvö þúsund eintök seld.
Pimmtán ára afmælisútgáfa Skif-
unnar, Fyrstu árin, hefur farið í
sautján hundruö eintökum og Ég
veit þú kemur og Úr ýmsum áttum
eru í kringum fimmtánda hundrað-
ið. Blue Ice rekur lestina af útgáf-
um Skífunnar en fimm hundruð
stykki af þeirri plötu eru komin í
hillur blúsáhugamanna vítt og
breitt um landið.
Heildarmagniö af seldum plötum
Skífunnar er því um það bil tíu
þúsund eintök.
Tölurnar tala sinu máli og þær
sýna svo ekki verður um villst að
islensk tónlist á hljómgrunn hjá
tónlistaráhugamönnum á björtum
sumrum sem og í svartasta
skammdegi. Þegar á haustið b'ður
og vetur konungur knýr dyra geng-
ur í garð ný vertíð í íslenskri tón-
hst og væri óskandi að viðtökur
íslenska tónlistarsumarsins væru
aðeins forsmekkur þess sem koma
skal.
Hljómsveitin Tin Machine og umslagið umdeilda.
„Siðavandir"
- > Fyrir hálfum mánuði fagnaði
poppsíðan frétt af væntanlegri
hljómplötu hljómsveitarinnar Tin
Machine sem flaggar stórstirninu
David Bowie.
Ekkert af því sem þá var sagt hefur
breyst og mun platan koma á markað
í Evrópu þann 2. september. Hins
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
• ^vegar er óvíst að Bandaríkjamenn
' geti farið út í plötubúð þann dag til
að ná sér í eintak af gripnum. Ástæð-
an er grátbrosleg ef ekki hreint og
beint fáránleg.
Það er umslag plötunnar sem veld-
ur úlfaþyt. Það prýða fjórar forn-
grískar styttur af karlmönnum
hverra reðrar eru hnarreistir. Stytt-
'-I umar hafa verið kenndar viö Kouros
í Grikklandi og þykja sýna fyrstu til-
burði forngrískra listamanna til að
greina á milli manna og guða í verk-
um sínum.
Rannsóknarréttur
aö verki?
Nú hefur komiö í ljós að yfir 60%
hljómplötuverslana í Bandaríkjun-
um hafa neitað að stilla „ósóman-
um“ upp í hillur og á þann hátt neytt
hljómplötufyrirtæki Tin Machine til
að breyta umslagi plötunnar í
Bandaríkjunum. Bowie og hinir
meðhmir Tin Machine vom síður en
svo hrifnir af því aö hljómplötufyrir-
tækið léti undan þrýstingi og lögðu
til að límt yrði yfir „ósæmilega"
hluta umslagsins. Hvort það verður
gert er enn ekki vitað á þessu stigi
málsins.
David Bowie lét frá sér fara opin-
bera yfirlýsingu um málið í fyrri
viku þar sem hann sagði meðal ann-
ars: „Eftir því sem ég best veit er
Kanar
þetta í fyrsta skipti sem bandarískum
almenningi er meinaður aðgangur
að klassísku hstaverki. Sú ákvörðun
að hafna umslaginu minnir einna
helst á verk rannsóknarréttarins til
forna.“
Þess má til gamans geta að sama
dag og David Bowie fékk þær fréttir
að umslagið góða kæmi svo við
blygðunarkennd bandarísks al-
mennings að það yrði bannað birtist
stór litmynd af Kouros-styttunum á
forsíðu aukablaðs sem fylgdi helgar-
útgáfu stórblaðsins New York Times.
Það er því greinilega ekki sama Jón
og séra Jón hjá þeim í Ameríku og
birtingin í blaðinu þykir undirstrika
taugaveiklunina sem hinn siðprúöi
meirihluti er haldinn í garð rokktón-
listarmanna. Madonna, Dead
Kennedys og Prince eru dæmi um
tónlistarmenn sem orðið hafa fyrir
barðinu á honum og nú hefur hljóm-
sveitin Tin Machine bæst í hópinn.
Þó á skringhegri hátt en nokkurt
þeirra fyrrnefndu.
Egill Ólafsson
með sólóplötu
Gamli Þursinn og Stuðmaðurinn,
Egill Ólafsson, er þessa dagana að
leggja lokahönd á nýtt spilverk sem
væntanlegt er á markað snemma í
október. Þar er á ferð fyrsta sólóplata
Egils og verður forvitnilegt að heyra
hveria braut söngpípan fetar á vænt-
anlegri plötu sem gengur undir
vinnuheitinu Tifa-Tifa. Poppsíðan
heyrði því hvíslað á ónefndum stað
að Egill væri að gera svipaða hluti
Og Þiu’saflokkurinn sálugi á nýju
plötunni en selur það ekki dýrar en
hún keypti.
Meðal þeirra sem aðstoða Egh á
Tifa-Tifa eru fomvinir hans, Ásgeir
Óskarsson, Diddú, Þórður Árnason
og Tómas Tómasson. Önnur nöfn
hafa heyrst, þ.á m. Simon Kuran
fiðluleikari, Guörún Gunnarsdóttir,
Ami Scheving og Hilmar Örn Hilm-
arsson. Fleiri koma við sögu en of
langt mál væri að telja þá alla upp.
Bono upp á kant við
kaþólsku kirkjuna
Hljómsveitin U2 hefur verið höll
undir boðskap kirkjunnar og með-
limimir, utan Adam Clayton, ekki
farið í grafgötur með trúhneigð sína.
írskur uppmninn gerir það að verk-
um að þeir em uppaldir í kaþólskum
sið. Páfinn og þ.a.l. kaþólska kirkjan
öll hefur forboðið notkun á getnaðar-
vömum og boðað hóglífi í kynferðis-
málum. Bono, söngvari U2, hefur
hins vegar gagnrýnt kirkjuna fyrir
miðaldahugsunarhátt í smokkamál-
um og ber fyrir sig að smokkurinn
geti bjargað mannslífum í baráttunni
gegn eyðni. Bono segist dapur yfir
því að búa í borg (Dublin) þar sem
ekki sé hægt að kaupa smokka nema
gegn lyfseðli eða þá beint af lækni.
Hann sakar kirkjunnar menn um að
vaða villu í myrkri, líku því sem var
á miðöldum. Hugsunarháttur kirkj-
unnar í veriumálunum sé úreltur og
geri ungt fólk fráhverft kirkjunni.
Þessi orð söngvarans hafa kaílað á
hörð viðbrögð kirkjunnar á írlandi.
U2-plata í október
Af U2 er það annars að frétta að
þessa dagana vinnur hljómsveitin
hörðum höndum í Windmill Lane
hljóðverinu fyrir utan Dublin að frá-
gangi nýrrar plötu. Sú á að koma á
markað 7. október. Til að hægt sé að
standa við þá dagsetningu hefur út-
Bono, söngvari U2.
setjarinn, Daniel Lanois, brugðið á
það ráð að kalla Brian Eno sér til
aðstoöar en sem kunnugt er hefur
tvíeykið útsett allar plötur U2 frá
Unforgettable Fire að telja.
Ný smáskífa frá hljómsveitinni er
væntanleg í september og þessa dag-
ana er verið að skipuleggja heims-
reisu hljómsveitarinnar sem mun
standa allt næsta ár.