Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991. 55 Skák Áskorendaeinvígin í Brussel: Karpov, Short og Timman áfram Skákþing íslands hafið í Garðabæ Indverjinn ungi, Viswanathan An- and, á eflaust eftir aö minnast viöur- eignar sinnar við Anatoly Karpov í Brussel sem einvígis hinna glötuöu tækifæra. Hvað eftir annað missti Anand af vænlegum sigurmöguleik- um en á endanum varð reynsla Karpovs yfirsterkari. í síðustu skák- inni, sem tefld var á fimmtudag, tókst Karpov loks að sýna sitt rétta andlit og vann glæsilega. Eftir mistök snemma tafls lenti Anand í slæmri klemmu og á meistaralegan hátt þjarmaði Karpov að honum. Lokatöl- ur urðu 4,5-3,5, Karpov í vil. Timman varð fyrstur til þess að komast áfram er hann lagði Kortsnoj 4,5-2,5. Hann vann 2. og 3. skákina en öörum skákum einvígisins lauk með jafntefli. Sigur Timmans var afar öruggur - Kortsnoj tefldi illa og hefði auðveldlega getað tapað með meiri mun. Á ýmsu gekk í einvígi Gelfands og Shorts. Sá síðarnefndi haföi vinn- ingsforskot og Gelfand þurfti nauð- synlega að vinna áttundu skákina til að jafna. Lengi var útlit fyrir að það tækist. Gelfand náði sterkri sóknar- stöðu en Short náði að þvælast fyrir og smám saman að snúa taflinu við. Eftir 51 leik gafst Gelfand upp og þar með var einvíginu lokið með 5-3, Short í vil. Aðeins einu einvígi er enn ekki lok- ið. Jusupov náði að jafna gegn ívant- sjúk eftir bráöskemmtilega skák, þar sem Jusupov tefldi í sannkölluðum „Tal-stíl“ - fórnaði mönnum á báðar hendur til þess að komast í návígi við svarta kónginn. Sóknin bar ár- angur og að átta skákum loknum er staöan 4-4. Þeir halda baráttunni áfram í dag, laugardag. Þá tefla þeir tvær skákir með styttri umhugsun- artíma - 45 mínútur á 60 leiki og síð- an 15 mínútur á hverja 20 leiki. Verði enn jafnt, tefla þeir aðrar tvær skák- ir á morgun en takist enn ekki að finna sigurvegara verður hlutkesti varpað. Skoðum snilldarskák Karpovs frá því á fiínmtudag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Karpov tekst best upp þegar mest er í húfi. Hann hefur stáltaugar, svo mikið er víst. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Viswanathan Anand Slavnesk vörn. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. Be2 0-0 8. 0-0 dxc4 9. Bxc4 De7 10. a3!? Breytir lítillega út af fjórðu og sjöttu skákinni, þar sem 10. h3 varð uppi á teningnum. Eftir 10. - c5! tókst Anand að jafna taflið í sjöttu skák- inni en nú kýs hann að ráðast að miðborðinu með e-peðinu. Hugsan- lega er það misráðið. 10. - e5 11. h3 Bc7 12. Ba2 h6? Síðustu leikir svarts orka tvímælis og þessi er sannarlega slæmur. 13. Rh4! He8 Hvítur hótaði 14. Rg6. 14. Rf5 Df8 15. Rb5! Bb8 16. Bd2! a5 17. dxe5! Hver þrumuleikurinn á fætur öðr- um. Svartur mátti vitanlega ekki taka riddarann í 16. leik - svarið við 16. - cxb5 yrði 17. Bb4 og drottningin er illa beygð. 17. - Bxe5 18. f4! Bb8 Eftir 18. - cxb5 19. fxe5 opnast f línan einnig hvítum til góða. T.d. 19. - Hxe5 20. Bc3, eða 19. - Rxe5 20. Rxh6+ gxh6 21. Hxf6 með sóknar- stöðu. 19. Rc3 Hd8 20. Bel! Rh7 21. Bh4 Rdf6 22. Hadl Hxdl 23. Hxdl Be6? Hótunin var 24. Rxh6+ gxh6 25. Dg6+ o.s.frv. en textaleikurinn leys- Jafnt er i einvigi Jusupovs og ívantsjúks í Brussel eftir að Jusupov jafnaði i áttundu skákinni. í dag verður skorið úr um það með bráðabana hvor kemst áfram i undanúrslit heimsmeistarakeppninnar. ir ekki vandann. Svartur varð að reyna 23. - Bxf5 24. Dxf5 Ba7 en eftir 25. Bf2 á hvítur góða stöðu. 24. Bxe6 fxe6 25. Db3! De8 Eftir 25. - Df7 er 26. Hd8+ Rf8 27. Rd4 HYá viö. Rxd5 15. Hh4! g616. Hxc8 Dxc817. Rg5 Be7 18. Dg4 Ba6? 19. Dh3 h5 li W # 7 A ii 6 i i* k 5 A 4 h ÉL 3 h & & A 2 A A 1 s * i k 1 ii A i A & a A W A A á, afifi H B H 26. Rxg7! ... og svarta staðan hrynur.' Ef 26. - Kxg7 27. Dxb7 + og vinnur. 26. - Df7 27. Rxe6 Ba7 28. Bf2 He8 29. Rd4 Dxb3 30. Rxb3 Bxe3 31. Bxe3 Hxe3 32. Rxa5 Og Anand gafst upp. Áttunda skák Jusupovs og ívant- sjúks var ekki síöur viðburðarík. Það Skák Jón L. Árnason er sjaldgæft að sjá Jusupov, sem alla jafna hefur þunglamalegan skákstíl, tefla af svo miklum krafti. Svona glæsileg sóknarskák er án efa gott veganesti í bráðabanann í dag. Hvítt: Artur Jusupov Svart: Vassilíj ívantsjúk Nimzo-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 b6 5. Bd3 Bb7 6. Rf3 0-0 7.0-0 c5 8. Bd2!? Rólyndislegur leikmáti, í stað 8. Ra4, sem algengast er. Svartur er talinn svara best með 8. - d6 en ívant- sjúk kýs að tefla gegn „staka peðinu“. 8. - cxd4 9. exd4 d5 10. cxd5 Rxd5 11. Hcl Rc6 Traustara virðist 11. - Rd7 ásamt RdfB. 12. Hel Hc8 13. He4!? Rce7 14. Rxd5 A B C D E F 20. Hxh5!! gxh5 21. Bh7 + Auðvitað var 21. Dxh5? Bxd3 ekki ætlunin er svartur nær auðveldlega að bægja hættunni frá. 21. - Kg7 22. Dxh5 Rf6 Svo virðist sem svartur sé varnar- laus gegn margvíslegum hótunum hvíts. T.d. 22. - Bb4 23. Rxf7! Hxf7 (hótunin var 24. Dg6 mát) 24. Dh6+ Kh8 25. Bf5 + Kg8 26. Bxe6 með sigur- stranglegri stöðu. En nú á hvítur einkar smekklega vinningsleiö. 23. Rxe6+! fxe6 24. Dh6+ Kh8 25. Bf5+ Kg8 26. Dg5+ Kh8 27. Dh4+ Kg8 28. Dg5 + Drottningin er á leið til h3 en ekk- ert liggur á. 28. - Kh8 29. Dh4+ Kg8 30. Dg3+ Kh8 31. Dh3+ Kg7 32. Dg3+ Kh8 33. Dh3+ Kg7 34. Bxe6! Dxe6 Þvingað en hvítur vinnur létt með öll þessi peð. 35. Dxe6 Bd8 36. g4 He8 37. Df5 Bc4 38. g5 Og ívantsjúk gafst-upp. Skákþing íslands í Garðaskóla Keppni í landsliðsflokki á Skák- þingi íslands hófst á fimmtudag. Fjórir stórmeistarar og tveir alþjóð- iegir meistarar taka þar þátt og hefur aldrei verið jafnvel skipað í sæti í 77 ára sögu þingsins. Á alþjóðamæli- kvarða telst mótið í 7. styrkleika- flokki - 8,5 v. þarf til að hljóta stór- meistaraáfanga og 6,5 v. til aö ná áfanga að alþjóðameistaratitli. í fyrstu umferð á fimmtudag lauk öllum skákum með jafntefli, utan Helgi Ólafsson vann nafna sinn Helga Áss og Héðinn Steingrímsson, íslandsmeistarinn frá í fyrra, vann Halldór G. Einarsson. Samkvæmt töfluröð eru keppendur þessir: 1. Helgi Áss Grétarsson 2. Róbert Harðarson 3. Héðinn Steingrímsson 4. Jón L. Árnason 5. Karl Þorsteins 6. Sigurður Daði Sigfússon 7. Snorri G. Bergsson 8. Þröstur Þórhallsson 9. Jóhann Hjartarson 10. Halldór G. Einarsson 11. Margeir Pétursson 12. Helgi Ólafsson Teflt er í Garðaskóla og hefjast umferðir kl. 17 alla daga, nema 27. ágúst og 2. september sem eru frídag- ar. Mótinu lýkur 3. september. EFST Á BAUGI: a: IS i’NSK/ LFRÆ ÍÐI c )RDABÖK1N Sovétríkin Opinb. heiti: Sojúz Sovetskíkh Sotsia- lístítsjeskíkh Respúblík, SSSR (Sam- bandsríki sósíaliskra sovétlýövelda) Stjórnarfar: sambandslýðveldi Höfuðborg: Moskva, 8,53 mljó. íb.86 Stærð: 22 402 200 km* 2 * * 5 * * 8 * * * 12 Íbúafjöldi": 288 mljó. Íbúadreif89:12,8 íb./km2 Ævitikur 97: Karlar 65,1 ár, konur 73,8 ár Helstu trúllokkar: utan trúflokka 50%, rétttrúnaðarkirkjan 32%, múslimar 12% Tungumál: rússneska (opinb.), úkran- íska, hvítrússneska, tyrknesk mál (úzbek- iska, azerbajdzhaní, kasakska), kákasisk mál, baltnesk mál, armenska Helstu útflv.: jarðolía, oliuafurðir, vélar, flutninga- og farartaeki, kol, jarðgas Helstu viðskiptal.: A-Þýskal. Tékkósl., Póll. VÞF á ib: $ 8160 Gjaldmiðill: rúbla = 100 kópekar Veður Vestan til dregur úr norðvestanáttinni. Léttskýjað verður um sunnanvert landið og norðan til léttir einn- ig til, fyrst á Vestfjörðum. í dag fer að þykkna upp suðvestanlands með haegt vaxandi sunnanátt og undir kvöld verður kominn stinningskaldi og rigning. Á norðaustanverðu landinu verða skúrir fram á nótt en siðan léttir til og á morgun verður lengst af suðve- stangola og léttskýjað. í dag hlýnar i veðri um norð- anvert landið en sunnanlands verður svalt. Akureyri skýjað 13 Egilsstaðir skýjaö 14 Kefla vikurflug völlur skýjað 10 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 14 Raufarhöfn skýjað 14 Reykjavik skýjað 10 Vestmannaeyjar hálfskýjað 9 Helsinki léttskýjað 21 Ósló léttskýjað 22 Stokkhólmur léttskýjaó 24 Amsterdam skýjaö 19 Birlin skýjað . 27 Frankfurt skýjað 24 Glasgow skúr 16 Hamborg rigning 20 London skúr 17 LosAngeles þokumóóa 18 Lúxemborg skýjað 20 Madrid mistur 20 Montreal hálfskýjað 15 Paris skýjað 22 Valencia léttskýjaö 19 Vin léttskýjað 24 Winnipeg skýjað 11 Gengið Gengisskráning nr. 159. - 23 ágúst 1991 kl 915 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 61,100 61,260 61,720 Pund 102,984 103,254 103,362 Kan. dollar 53,449 53,539 53,719 Dönsk kr. 9.1092 9,1331 9,0999 Norsk kr. 8.9992 9,0228 9,0155 Sænsk kr. 9.6846 9,7099 9,7044 Fi. mark 14,4701 14,5080 14,5996 Fra. franki 10,3515 10,3787 10,3423 Belg. franki 1,7089 1.7133 1.7089 Sviss. franki 40.2636 40.3690 40.3004 Holl gyllini 31,2109 31.2926 31,2151 Þýskt mark 35,1705 35,2626 35,1932. Ít. lira 0,04702 0,04715 0.04713 Aust. sch. 4,9973 5,0104 4.9998 Port. escudo 0,4103 0,4114 0.4101 Spá. peseti 0,5633 0,5647 0,5616 Jap. yen 0,44692 0.44809 0,44668 írskt pund 94.033 94,279 94,061 SDR 81,7371 81.9512 82.1172 ECU 72,1622 72.3511 72,2463 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Fiskmarkaðimir Faxamarkaður Þann 23. ágúst seldust alls 38,119 tonn. Magn í tonnum Veróíkrónum eðal Lægsta Hæs Blandað 0,127 33,15 10,00 38,00 Grálúða 0,052 20,00 20,00 20,00 Karfi 3,384 35.99 35,00 39,00 Langa 0,197 44,30 22,00 59.00 Lúða 0,079 26,08 20,00 120,00 Skarkoli 0,485 86,32 20,00 89.00 Skötuselur 0,016 155,00 155,00 155,00 Steinbitur 0,164 69,55 55,00 65,00 Þorskur, sl. 22,466 87,41 73,00 170,00 Ufsi 1,964 43,5C 20,00 58,00 Undirmálsfiskur 0,672 37,23 20,00 71.00 Ýsa.sl. 8.493 107,76 89,00 117,00 Ýsuflök 0,020 170,00 170.00 170,00 Fiskmarkaður Þorlákshafnar. Þann 23. ágúst seldust alls 42,324 tonn Karfi 1,252 44,00 44,00 44,00 Keila 0,004 21,00 21,00 21,00 Langa 663,00 61,51 50,00 62,00 Lúða 0,024 230.00 230,00 230,00 Lýsa 0,030 20,00 20,00 20,00 Skarkoli 2,631 67.50 42,00 70,00 Skötuselur 0,077 180,00 180,00 180,00 Steinbitur 0,108 69,00 69,00 69.00 Þorskur, sl. 11,603 103,36 90,00 114,00 Þorskur, sm. 0,769 71,00 71,00 71,00 Ufsi 14,603 62,42 40,00 65,00 Undirmálsfiskur 0,136 81,00 81,00 81.00 Ýsa.sl. 10,424 97,59 93,00 107,00 Fiskmarkaðurinn Hafnarfirði Þann 23. ágúst seldust alls 67,143 tonn. Lax 0,200 294,85 275,00 310,00 Skötuselur 0,174 185,00 185,00 185,00 Lýsa 0,014 48,00 48,00 48,00 Smáþorskur 0,474 72,00 72,00 72,00 < Ufsi 11,363 66,48 64,00 67.00 ' Ýsa 16,835 91,02 60,00 102,00 29,170 92,45 60,00 97,00 Steinbitur 0,249 70,00 70,00 70.00 0,322 246,26 165,00 305,00 0,268 52,73 43,00 60,00 Koli 1,346 73,01 72,00 76,00 Karfi 6,642 37,38 31,00 39,00 'freeMMi. MARGFELDI 145 PÚNTUNARSIMI ■ 653900 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.