Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Blaðsíða 12
10 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991. Utlönd Króatía: Friðarf undir boð- aðir í næstu viku dag til að reyna að koma deiluaðilum aftur að samningaborðinu. Embættismenn í bandaríska utan- ríkisráöuneytinu hvöttu til þess að komið yrði á tafarlausu og skilyröis- lausu vopnahléi og að deiluaðilar færu að tillögum EB um að binda enda á vopnaskakið. Evrópubandalagið veitti deiluaðil- um á þriðjudag frest til mánudags til að svara áætlun þess um að halda friðarráðstefnu sem fæli í sér gerðar- dóm fimm manna næstu tvo mánuð- ina. Króatía og Slóvenía hafa þegar samþykkt áætlunina og Makedónía og Bosnía-Hersegóvína hafa gefiö já- kvætt svar. Forseti Serbíu, sem var í París í vikunni, sagði að þaö væri Króata að sjá til þess að vopnahléinu væri framfylgt. Hann sagöi aö frið- aráætlun EB væri lögö fram í góðri trú en hann þyrfti að skoða hana betur. Reuter Mikið mannfall varö í nýjum bar- dögum í Króatíu í gær. Júgóslav- neska fréttastofan Tanjug hafði það eftir serbneskum skæruhðum að tuttugu og fimm króatískir þjóð- varðliðar hefðu veriö drepnir í bar- dögum í bænum Topusko, nærri landamærunum að Serbíu. Á öðrum átakasvæöum var htið um bardaga í gær. Enn ríkti þó um- sátursástand í Vukovar, fimmta dag- inn í röð. Evrópubandalagið, RÖSE ráðstefn- an um öryggi og samvinnu í Evrópu og forsætisráð Júgóslavíu tilkynntu í gær að fundir yröu haldnir á þriðju- Vopnaðir Serbar standa vörð við þorp sitt f Króatiu. Simamynd Reuter Helena og Manna eru nýkomnar heim frá London með fullt af nýjum funk og hip hop sporum, allt frá MC Hammer til Paul Abdul. 10 tíma námskeið, mæting 2 .sinnum í viku. Strákar og steip- ur, mætum hress! Aldursflokkur 10-12 ára 13-15 ára 16 ára og eldri. DANSSKOLIAUÐAR HARALDS SKEIFUNNI 11B ★ SAMKVÆMISDANSAR ★ GÖMLU DANSARNIR BYRJENDUR OG FRAMHALD ★ GESTAKENNARAR SKÓLANS FYRIR JÓL VERÐA CONSTAriZA KRAUSS OG WOODY KRAUSS FRÁ ÞÝSKALANDI ★ BARNADANSAR, 3-5 ÁRA ROCK’N ’ROLL 10 tíma námskeið - eldhressir tímar Byrjendur og framhald, mæting einu sinni í viku. Kennslustaðir: Skeifan 11 b, Gerðuberg í Breiðholti, KR við Frostaskjól. Innritun og uppl. í síma 39600 og 686893 kl. 13-19 daglega. DWSS Díana í jarðarför eyðnisjúklings Diana prinsessa kemur sorgmædd (rá jarðartör vinar sins, Adrina Ward- Jackson ballettstjóra, f fylgd mað Nicolas Serota, forstjóra Tate-safnsins. Símamynd Reuter Díana Bretaprinsessa hefur nú fýlgt Adrian Ward-Jackson, fyrrum for- stjóra Konunglega ballettsins i Lundúnum, til grafar. Ward-Jackson lést í síðustu viku úr eyðni og var Díana við sjúkrabeöið þegar hann lést Allt frá þvi eyðnifaraldurinn barst tii Englands hefur Díana látið sér mjög annt um hag sjúklínganna og ásakað yfirvöld um afskiptaleysi í máium þeirra. Margir Bretar eru þó htt hrifnir af þessu áhugamáli prins- essunnar en blöð þar í landi birta oft myndir af henni með eyðnisjúkling- um. Gáfu íþróttakonum karlhormón Saksóknari í Berlin hefur ákveðið að efna til víðtækrar rannsóknar á því hvort austur-þýskir Iæknar hafi gefið afreksíþróttakonum karlhorm- ón til að bæta frammistöðu þeirra í keppni. Rannsóknin beinist einkum að Charite sjúkrahúsinu í Austur-Berlín en grunur leikur á að yfirlyfla- fræðingurinn þar hafi gert tilraunir með karlhormón á íþróttakonum. Harald Mau, forstjóri sjúkrahússins, neitar ásökunum um að slíkar til- raunir hafi farið fram með skipulegum hætti á sjúkrahúsinu en þvertek- ur ekki fyrir að einhverjir af læknunum þar hafi kannað áhrif karlhorm- óna á konur. Einig er verið að rannsaka hvort líffæri hafi verið tekin úr sjúklingum til ígræöslu í aðra áður en þeír voru úrskurðaöir látnir. Forsfjórinn neit- ar að það hafi verið gert en viöurkennir þó að í einhveijum tilvikum hafi brngöið út af almennum reglum í þessum efnum. Skjóta skjólshúsi yfir Aoun Roland Dumas, utanríkisráð- herra Frakklands, hefur fagnað flótta hershöföingjans Michels Aoun frá Beirút og segir aö hann sé kominn til Frakklands þar sem hann fái hæh í framtíðinni. Líklegt er tahð að Aoun dvelji í villu nærri Marseihe á suðurströnd Frakk- lands. Aoxm var í tíu mánuði í franska sendiráðinu í Beirút eftir að hann varð að gefast upp fyrir stjórnar- hernum i Líbanon og hersveitum Sýrlendinga. Stjómin krafðist þess að fá haim framseldan en Frakkar neituðu. í gær var hann fluttur öh- um að óvörum frá sendiráðinu að flotastöð nærri Beirút. Þaðan fór hann með hraöbát um borö í franskan kafbát á Miðjaröarhafi og komst heilu og höldnu til Frakk- lands. Frakkar segja að þessí vilia naerri Marseille verði heimili Michels Aoun og fjölskyidu hans í framtiö- inni þótt ekkert hafi verið látiö uppi um dvalarstað hans. Símamynd Reuter llffe styður hvalveiðar Grænlendinga Uffe EUemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, lýsti því yfir á Grænlandi í gær aö hann væri hlynntur því að Grænlendingar veiddu hér eftir hvali eins og þéir hafa gert til þessa. Grænlendingum þótti sem stuðningur Dana væri ekki nægur á ráöstefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins í Reykjavík nú í vor. Uffe sagði að ekkert mælti gegn því að Grænlendingar veiddu hvah til eigin nota. Hann benti iika á að hvalkjöt væri hollara en innflutt svína- kjöt eða kjúklingar frá Danmörku. Grænfriðungar saka Grænlendinga um að veiða fleiri hvah en þeim er heimilt samkvæmt svokölluðum frum- byggjakvótum fyrir íbúa á norðurslóðum. A blaðamannafundi í Nuuk í gær sagði Uffe að Grænlendingar yrðu að fara að settum reglum en þótt einhverjir menn veiddu hvah ólöglega þá væri það ekki sök allrar þjóöarinnar. Uffe hefur verið á Grænlandi síðustu daga og rætt við landstjórnarmenn um utanríkismál. Lestarstjórinn var timbraður Nú liggur fyrir að flmm létu lífið og 175 slösuðust í lestarslysinu á Manhattan í New York í gær. Stjómandi lestarinnar viðurkennir að hann hafi setíð að sumbli áður en hann hóf vinnu og síðan sofnað við akstur- inn. Slysið er eitt hið alvarlegasta sem orðið hefur í neðanjarðarlestum í New York. Lestarstjórinn, Robert Ray aö nafni, viðurkenndi afglöp sin þegar máhð var tekiö fyrir í gær. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir mann- dráp. Reuter og Ritr.au

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.