Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991. Útlönd Króatía: Friðarf undir boð- aðir í næstu viku Mikið mannfall varð í nýjum bar- dögum í Króatíu í gær. Júgóslav- neska fréttastofan Tanjug hafði það eftir serbneskum skæruliðum að tuttugu og fimm króatískir þjóð- varðliðar hefðu verið drepnir í bar- dögum í bænum Topusko, nærri landamærunum að Serbíu. Á öðrum átakasvæöum var lítið um bardaga í gær. Enn ríkti þó um- sátursástand í Vukovar, fimmta dag- inn í röð. Evrópubandalagið, RÖSE ráðstefn- an um öryggi og samvinnu í Evrópu og forsætisráð Júgóslavíu tilkynntu í gær að fundir yrðu haldnir á þriðju- dag til að reyna aö koma deiluaðilum aftur að samningaborðinu. Embættismenn í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu hvöttu til þess að komið yrði á tafarlausu og skilyröis- lausu vopnahléi og að deiiuaðilar færu að tiUögum EB um aö binda enda á vopnaskakið. Evrópubandalagið veitti deiluaðil- um á þriðjudag frest til mánudags til að svara áætlun þess um að halda friðarráöstefnu sem fæli í sér geröar- dóm fimm manna næstu tvo mánuð- ina. Króatía og Slóvenia hafa þegar samþykkt áætlunina og Makedónía og Bosnía-Hersegóvína hafa gefið já- kvætt svar. Forseti Serbíu, sem var í París í vikunni, sagði að þaö væri Króata að sjá til þess að vopnahléinu væri framfylgt. Hann sagöi að friö- aráætlun EB væri lögð fram í góöri trú en hann þyrfti að skoða hana betur. Reuter Vopnaöir Serbar standa vörð við þorp sitt í Króatíu. Simamynd Reuter DANSSKOLIAUÐAR HARALDS SKEIFUNNI 11B Helena og Hanna eru nýkomnar heim frá London með fulltaf nýjum funk og hip hop sporum, allt frá MC Hammer til Paul Abdul. 10 tima námskeið, mæting 2 sinnum í viku. Strákar og stelp- ur, mætum hress! Aldursflokkur 10-12 ára 13-15 ára 16 ára og eldri. ★ SAMKVÆMISDANSAR ★ GÖMLU DANSARNIR BYRJENDUR OG FRAMHALD ★ GESTAKENNARAR SKÓLANS FYRIR JÓL VERÐA CONSTANZA KRAUSS OG WOODY KRAUSS FRÁ ÞÝSKALANDI ★ BARNADANSAR, 3-5 ÁRA ★ ROCK’N ’ROLL 10 tíma námskeið - eldhressir tímar Byjjendur og framhald, mæting einu sinni í viku. Kennslustaðir: Skeifan 11 b, Gerðuberg í Breiðholti, KR við Frostaskjól. Innritun og uppl. í síma 39600 og 686893 kl. 13-19 daglega. DANSS Díana prinsessa kemur sorgmædd frá jarðarför vlnar sfns, Adrina Ward- Jackson ballettstjóra, í fylgd meö Nicolas Serota, forstjóra Tate-safnsins. Simamynd Reuter Díana Bretaprinsessa hefur nú fylgt Adrian Ward-Jackson, fyrrum for- stjóra Konunglega ballettsíns í Lundúnum, til grafar. Ward-Jackson lést í síðustu viku úr eyðni og var Díana við sjúkrabeðið þegar hann lésL Allt frá þvi eyðnifaraldurinn barst til Englands hefur Díana látið sér mjög annt um hag sjúklínganna og ásakað yfirvöld um afskiptaleysi í málum þeirra. Margir Bretar eru þó lítt hrifnir af þessu áhugamáli prins- essunnar en blöð þar í landi birta oft myndir af henni með eyðnisjúkling- um. Gáf u íþróttakonum karlhormón Saksóknari í Berlin hefur ákveðið að efna tíl víðtækrar rannsóknar á því hvort austur-þýskir iæknar hafi gefið afreksiþróttakonum karlhorm- ón til að bæta frammistöðu þeirra í keppni. Rannsóknin beinist eínkum að Charite sjúkrahúsinu í Austur-Berlín en granur leikur á aö yfirlyfja- fræðingurinn þar hafi gert tilraunir með karlhormón á íþróttakonum. Harald Mau, forstjóri sjúkrahússins, neitar ásökunum um aö slíkar til- raunir hafl fariö fram með skipulegum hættí á sjúkrahúsinu en þvertek- ur ekki fyrir að einhveriir af læknunum þar hafi kannað áhrif karlhorm- óna á konur. Einig er veriö að rannsaka hvort liffæri hafi verið tekin úr sjúklingum til ígræöslu í aðra áður en þeir voru úrskurðaöir látnir. Forstjórinn neit- ar að það hafi veríð gert en viöurkennir þó að í einhverjum tilvikum hafi brtigöiö út af almennum reglum í þessum efnum. Skjöla skjölshúsi yf ir Aoun Roland Dumas, utanríkisráð- herra Frakklands, hefur fagnað ílótta hershöfðingjans Michels Aoun frá Befrút og segir að hann sé kominn til Frakklands þar sem hann fái hæli í framtíðinni. Líkiegt er talið að Aoun dvelji í villu nærri Marseille á suðurströnd Frakk- lands. Aoun var í tíu mánuði í franska sendiráðinu i Beirút eftir að hann varð að gefast upp fyrir stjórnar- hernum í Líbanon og hersveitum Sýrlendinga. Stjórnin krafðist þess aö fá hann framseldan en Frakkar neituðu. í gær var hann íluttur öll- um aö óvörum frá sendiráðinu að Frakkar segja að þessi vflla nærri flotastöð nærri Beirút. Þaðan fór Marseílle verði heimili Mlchels hann með hraöbát um borð í Aoun og fjölskyidu hans i framtíð- franskan kafbát á Miðjaröarhafi og inni þótt ekkert hafi verið látið komst heilu og höldnu til Frakk- uppi um dvaiarstað hans. lands. Símamynd Reuter Ifffe styður hvalveiðar Grænlendinga Uffe EUemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, lýsti því yfir á Grænlandi í gær að hann væri hlynntur því að Grænlendingar veiddu hér eftir hvali eins og þéir hafa gert til þessa. Grænlendingum þótti sem stuðningur Dana væri ekki nægur á ráðstefnu Alþjóða hvalveiðiráösins í Reykjavík nú í vor. Uffe sagði að ekkert mælti gegn því að Grænlendingar veiddu hvali til eigin nota. Hann benti líka á að hvalkjöt væri hollara en innílutt svína- kjöt eða kjúkiingar frá Danmörku. Grænfriöungar saka Grænlendinga um að veiða fleiri hvaii en þeim er heimUt samkvæmt svokölluöum frum- byggjakvótum fyrir íbúa á norðurslóðum. A blaöamannafundi í Nuuk í gær sagði Uffe að Grænlendingar yrðu að fara að settum reglum en þótt einhveijir menn veiddu hvah ólöglega þá væri þaö ekki sök allrar þjóöarinnar, Uffe hefur verið á Grænlandi siðustu daga og rætt við landstjómarmenn um utanríkismál. Lestarsfjórínn var timbraður Nú liggur fyrir að fimm létu lífið og 175 slösuðust í lestarslysinu á Manhattan í New York í gær. Stjómandi lestarinnar viðurkennir að hann hafi setiö að sumbU áður en hann hóf vinnu og síðan sofnað við akstur- inn. Slysið er eitt hið alvariegasta sem orðið hefur í neðanjarðarlestum í New York. Lestarstjórinn, Robert Ray að nafni, viðurkenndi afglöp sín þegar máhð var tekiö fyrir i gær. Hann á yfir höíði sér ákæru fyrir mann- dráp. Reuterog Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.