Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
5
Fréttir
Smalinn á Reykjanesskaganum:
Býr í skúr með fjórum
hundum 6 mánuði ársins
- er eiginlega búinn að fá nóg því þetta er voðalegt stríð, segir Theódór Guðlaugsson
„Ég er nú búinn aö vera í þessari
smalamennsku síöan hún byrjaöi,
eða í ein tólf eða þrettán ár. Eg tók
viö þessu starfi af Gunnari Einars-
syni eftir aö hafa starfað meö honum
um tíma,“ sagði Theódór Guðlaugs-
son, smali á Reykjanesskaganum.
Theódór hefur þann starfa að reka
það sauðfé sem gengur laust frá bæj-
arfélögunum á Suðurnesjum og eins
að handsama þau hross sem sleppa
úr girðingum og sekta eigendur.
Gerð hefur verið sérstök girðing frá
Vogunum til Grindavíkur í þeim til-
gangi að halda sauðfénu þar fyrir
innan en hún er opin við Reykjanes-
brautina þar sem Theódór hefur að-
stöðu.
„Ég sinni þessu sex mánuði ársins,
frá miðjum maí og fram í miðjan
nóvember, og bý þá í skúrnum hérna
ásamt hundunum mínum,“ sagði
Theódór en hann er þar með fjóra
sérþjálfaða border collie fjárhunda.
Aðspurður hvort þetta væri ekki
einmanalegt starf sagðist Theódór
hafa félagskap af hundunum.
„Ég tala bara við hundana, það
dugar mér alveg. En það er nú samt
vandamál að maður má eiginlega
aldrei hreyfa hund við Reykjanes-
brautina því að ef maður setur hund
á féð hleypur það yfir brautina og
getur orðið fyrir bíl.
Það hefur þó aldrei komið fyrir
mig að reka kind fyrir bíl. En þetta
er ástæðan fyrir því að ég get ekki
tamið hundana mína, ég er ekki á
frjálsu svæði,“ sagði Theódór.
Hann bætti við að það væri stór-
hættulegt að vera þarna við Reykja-
nesbrautina.
„Ég þarf að passa mig sjálfur því
að ég fer þarna fram og aftur mörg-
um sinnum á dag og umferðin er gíf-
urleg.“
Aðspurður hvort hann óttaðist
ekkert að starfið hans legðist niður
ef tekin yrði upp hólfabeit á skagan-
um, eins og allt virðist nú stefna í,
sagðist Theódór ekki hafa áhyggjur
af því.
„Nei- ekki aldeilis. Starfið mitt
leggst sko ekkert niður við það. Féð
sleppur alltaf út og svo verða hrossin
hérna áfram á Skaganum svo það
verður alltaf að vera eitthvert eftirlit.
Sjálfum fmnst mér að hólfabeitin
eigi að vera framtíðin. Hún á bara
að fara strax í gang, bara næsta vor,
og þá á aldrei að sleppa meir.“
Theódór sagðist hafa horft upp á
hörmuleg slys á Reykjanesbrautinni
vegna lausagöngu sauðfjárins.
„Það er bara hörmung hvernig ail-
ir haga sér. Féð liggur á brautinni
og það er óverjandi að keyrt sé á
það. Þótt eignatjónið hafi e.t.v. ekki
verið mikið í sumar hefur það verið
mikið undanfarin ár og nú er t.d.
versti tíminn eftir þegar fer að
dimma.“
Theódór sagðist vera undrandi yfir
því að það skyldi enn ekki hafa verið
gert neitt stórtækt í þessu máli því
að Reykjanesbrautin væri hraö-
braut.
„Nú, auðvitað koma umsvif mín til
með að minnka ef tekin verður upp
hólfabeit en það er allt í lagi þegar
maður er orðinn svona gamall. Ég
er eiginlega alveg búinn að fá nóg
af þessu því þetta er voðalegt stríð,"
sagði Theódór.
-ingo
Akranes:
Tvær milljónir umbúða á 2 árum
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Verndaður vinnustaður á Vestur-
landi, sem annast móttöku einnota
drykkjarfangaumbúða fyrir Endur-
vinnsluna hf. á Akranesi, tók þann
7. ágúst sl. við tveggja lítra plast-
flösku. Flaskan er að því leytinu
merkileg að með henni fyllti tala
móttekinna einnota umbúða tvær
milljónir.
Að sögn Einars Guðmundssonar,
forstöðumanns Verndaðs vinnustað-
ar, hefur innstreymi einnota umbúða
verið jafnt og þétt frá því fyrst var
tekið á móti umbúðum um mánaöa-
mótin júlí/ágúst 1989. Milljónasta
flaskan - dós var það reyndar - kom
í hús í byrjun ágúst í fyrra.
Margir töldu að mjög myndi draga
úr flóði drykkjarfangaumbúða eftir
að mesta bjórvíman væri runnin af
landsmönnum en svo virðist ekki
vera. Júlímánuður í ár var til dæmis
næststærsti mánuðurinn til þessa.
Sagði Einar magn bjórflaskna og
-dósa hafa verið óhemjumikið þann
mánuð.
Sex mánuði á ári hefur Theódór nær eingöngu félagsskap af fjórum fjár-
hundum sem aðstoða hann við smalamennskuna. DV-mynd Hanna
Skagaströnd:
Togaranum Skipaskaga lagt
Nýr varnargarður
gegn úthaf söldunni
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Áhöfn togarans Skipaskaga, sem
Haraldur Böðvarsson hf. gerir út,
hefur verið tilkynnt að togaranum
verði lagt vegna hagræðingar í
rekstri fyrirtækisins. Togarinn er nú
•í síðustu veiðiferð sinni. Ætlunin er
að selja togarann síðan án kvóta.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri HB, sagði í samtali við
DV að þessi ákvörðun væri tekin með
þungum huga en væri engu að síður
nauðsynleg. í ljósi kvótaskerðingar,
sem útgerðin þyrfti að þola, gætu
þrír togarar auðveldlega veitt þann
kvóta sem í boði væri - alls 11.400
tonn.
Tólf menn eru í áhöfn Skipaskaga.
Haraldur sagði allt verða gert til þess
að koma eins mörgum úr áhöfn tog-
arans í vinnu hjá fyrirtækinu og
kostur væri.
Þórhaflur Ásmundsson, DV, Norðurl. vestra:
Grjótflutningum í svokallaðan
vesturgarð hafnarinnar á Skaga-
strönd lauk um helgina en þessi nýi
garður kemur til með að verja gömlu
löndunarbryggjuna fyrir úthafsöld-
unni í framtíöinni. 51 þúsundi tonna
af gijóti var ekið í garðinn frá
Hvammkotsbruna skammt frá þorp-
inu.
Að sögn Magnúsar Jónssonar,
sveitarstjóra á Skagastrónd, er næsta
verkefni við höfnina niðurrekstur 90
metra langs stálþils við garðinn.
Heimamenn vinna nú að undirbún-
ingi verksins. Von er á tækjum frá
Dýpkunarfélaginu á Siglufirði næstu
daga til að grafa rás við garðinn fyr-
ir þilinu. Hafnarmálastofnun leggur
til hamar til niðurreksturs þess og
munu því þung hamarshögg dynja á
Ströndinni um stund.
VERKSMIÐJUUTSAiA
frá 3. september í húsi Sjóklæðagerðarinnar Skúlagötu 51,1. hæð.
Útlitsgallað og eldri gerðir af sport- og vinnufatnaði.
SJOFATNAÐUR
NYLONFATNAÐUR
VINNUVETTLINGAR
STÍGVÉL
KAPP-FATNAÐUR
barna, kvenna, karla
VINNUFATNAÐUR
samfestingar, buxur, jakkar, sloppar
REGNFATNAÐUR
barna, kvenna, karla
Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 10-14.
SNJOBUXUR
barna
sextiu œ sex norður
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF • SKÚLAGÖTU 51