Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
->
Menning
Bíóhöllin - Rakettumaðurinn ★★ V2
Leikur að eldibrandi
Rakettumaðurinn er ævintýramynd sem er gerð í
anda gömlu góðu myndanna þegar mestu blótsyrðin
voru „árans“ og nekt var þegar sást í læri. Myndin
gerist í Los Angeles 1938 og ævintýrið hefst á því að
ungur og djarfur flugmaður, Cliff Secord, fmnur tor-
kennilegan hlut undir sæti tvíþekjunnar sinnar. Cliíf
og lærimeistari hans og félagi, Peevy (Arkin), komast
að því að þessi hlutur er í raun þotuhreyfill sem er
ætlað að bera mann hraðar en nokkur flugvél. Eftir
nokkrar tilraunir tekst Secord og Peevy að hemja
hreyfilinn og Secord stenst ekki mátið og prófar hann:
Rakettumaðurinn er borinn í heiminn! En það eru
fleiri á höttunum eftir hreyflinum og sumir þeirra
svífast einskis.
Þessi hreint ágæta mynd er byggð á mjög'stuttri
samnefndri teiknimyndaseríu sem hóf göngu sína 1982.
Það hefur tekist ansi vel að vinna bíómynd upp úr
seríunni og myndin er góð skemmtun fyrir breiðan
aldurshóp.
Fyrri hluti myndarinnar, meðan sagan er aö komast
af stað og persónur kynntar, er sérlega léttur og
skemmtilega gamaldags. Fortíðin er lituö nostalgiu,
allar sviðsmyndir skærar og lýsingin björt. Nýliðinn
Campbell leikur Secord og er óhætt að segja að honum
takist ágætlega upp en hlutverkið er ekkert sérlega
krefjandi. Myndin er líka dálítil ástarsaga því að hin
forkunnarfagra Jennifer Conelly leikur kærustu hans,
Jenny, en hún er að reyna fyrir sér sem leikkona. Hin
upprunalega Jenny sat fyrir á nektarmyndum en það
samræmist ekki ímynd Disneys, sem gerði myndina.
Ástaratlotin standa þó stutt enda vitað að yngri áhorf-
endur eru lítið gefnir fyrir slíkt. Þeir vilja sjá Rakettu-
manninn fljúga og það gerir hann á undraverðan hátt
með aðstoð tæknibrellumanna og víravirkis. Hann fær
ekki að svífa um lengi í friði um loftin blá því glæpon-
ar eru á hæla hans. Einn þeirra lítur út fyrir að hafa
villst úr Dick Tracy, en í raun er hann nákvæm eftir-
líking frægs aukaleikara frá þessum tíma. Glæponarn-
ir eru á mála hjá Hollywood-stórstjörnunni Nevill
Sinclair (Timothy Dalton) og þegar þeim mistekst að
hafa upp á Secord, fer Sinclair á fjörurnar viö Jenny,
sem er aukaleikari j nýjustu mynd hans, sem verið
er að taka. Timothy Dalton, er í Bond-hléi eins og er
og hefur sennilega tekið hlutverki skúrksins fegins
hendi. Hann á glaðan dag sem sjarmörinn Sinclair,
Bill Campell leikur Rakettumanninn. Hann er hér
ásamt Alan Arkin sem leikur vin hans, uppfinninga-
manninn Peevy.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
virtur og dáður af milljónum en leikur tveim skjöldum.
Það er eins og aö sagan flosni aðeins upp þegar á
líður. Eltingaleikurinn við Rakettumanninn er ekki
mjög spennandi þótt það sé alltaf eitthvað að gerast.
Atburðarásin er ójöfn, veður úr einu í annað og atrið-
in tengjast ekki nógu vel hvert öðru. Fyrsta flugsenan
er sú eina stóra og það eru nokkur vonbrigði að ekki
koma fleiri slíkar. Fyrir þetta verður sagan aldrei eins
grípandi eins og í byrjun. En myndin sker sig úr, fyrst
og fremst vegna þess hve hugmyndin er góð.
Það ku víst vera von á fleiri Rakettu-myndum og ég
hefði ekkert á móti því.
The Rocketeer (Band-1991) Handrit: Danny Bilson & Paul De
Meo (The Flash). Saga: Bilson & De Meo, William Dear (Harry
& Hendersons) byggt á samnefndri teiknimyndaseriu Dave
Stevens. Leikstjóri: Joe Johnston (Honey, I Shrunk the Kids).
Leikarar: William O. Campbell, Jennifer Connelly (Sisters,
Labyrinth), Alan Arkin (Edward Scissorhands), Paul Sorvino
(Goodfellas), Timothy Dalton, Terry O'Quinn (The Stepfat-
her), Jon Polito (Miller’s Crossing).
Andlát
Egill Jónsson glerslípunar- og spegla-
geröarmeistari, Reykjavíkurvegi 16,
Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum
þann 12. september.
Jardarfarir
Ingólfur Eide Eyjólfsson, Garðbraut
74, Garði, verður jarðsunginn frá
-1 Útskálakirkju laugardaginn 14. sept-
ember kl. 14.
Christian Zimsen fyrrverandi apó-
tekari, lést á heimili sínu 7. septem-
ber sl. Útfbrin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Daníel Þórhallsson, Hátúni 10,
Reykjavík, fyrrv. útgerðarmaður frá
Sigluftrði, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 16.
september kl. 15. .
Þórður Guðmundsson, Sólvallagötu
36 (Höfn), Keflavík, verður jarðsung-
inn frá Keflavikurkirkju laugardag-
inn 14. september kl. 11.
Petrína K. Jakobsson lést 2. septem-
ber. Hún var fædd á Húsavík 4. fe-
T brúar 1910, dóttir hjónanna Valgerð-
ar Pétursdóttur og Jóns Ármanns
Jakobssonar. Petrína stundaði nám
við Handíða- og myndlistarskólann,
var við nám í landmælingum, stærð-
fræði og kortagerð og híbýlafræði
lærði hún í bréfaskóla í Kaupmanna-
höfn. Aðalstarf hennar var að teikna,
fyrst hjá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur 1939-1944 og síðan stjórnaði hún
teiknstofu raforkumálastjóra, siðar
Orkustofnunar, allt til ársins 1977.
Hún giftist Jóhanni Magnúsi Hall-
grímssyni, en hann lést árið 1982.
Útfór Petrínu verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Brjóstagjöf: Ráðgjöf fyrir
mjólkandi mæður
Hjálparmæður Barnamáls eru: Arnheið-
ur, s. 43442, Dagný, s. 680718, Fanney, s.
43180, Guðlaug, s. 43939, Guðrún, s.
641451, Hulda Lína, s. 45740, Margrét Lísa,
s. 18797, og Sesselja, s. 680458.
Félag eldri borgara
Gönguhrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun.
Skíðadeild Fram
Haustæfmgar eru aö byrja. Skráning
nýrra félaga fer fram laugardaginn 14.
september kl. 10.30 á æfingasvæði i Laug-
ardal milli Laugardalsvallar og sund-
laugar. Æfingar fara fyrst um sinn fram
á sama stað. 10 ára og yngri: Þriðjudaga
kl. 17.30, laugardaga kl. 10.30, 11-12 ára
þriöjudaga og fimmtudaga kl. 17.30,12-14
ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.30
og laugardaga kl. 10.30.
Handbókin „í mörg
horn að líta“
Út er komin á vegum Iðntæknistofnunar
ný og endurbætt útgáfa af handbókinni
„I mörg horn að líta“. Fyrri útgáfa, sem
kom út fyrir tæpum tveimur árum, er
uppseld. Bókin er safn vandaðra greina
um stjórnun og rekstur fyrirtækja. Tutt-
ugu höfundar eru að henni sem allir hafa
viðamikla reynslu af fyrirtækjarekstri,
hver á sínu sviði. í nýju útgáfunni hefur
verið tekin út dagbók og ýmsar upplýs-
ingar sem voru i fyrstu útgáfunni. Ætlun-
in er að bókin verði endurskoöuð með
reglulegu millibili framvegis. Bókina er
hægt að panta hjá Iðntæknistofnun. Hún
er bæði til í kilju og hörðu bandi. Bókin
er 208 bls. og prentuð í Prentsmiðju Guð-
jóns Ó.
Hraðnámstækni
Málaskólinn Mímir, sem er í eigu Stjórn-
unarfélags íslands, kynnir í fyrsta sinn á
íslandi hraðnámstækni í tungumálum.
Nýlegar uppgötvanir um mannsheilann
hafa greinilega sýnt fram á hvernig viö
getum lært tungumál mun hraöar.
Hraðnámstækni notar ákveðna tónlist,
takt, öndunarmynstur og hugaræflngar.
Námsefnið er kennt á sérstakan hátt tii
þess að heilinn læri meira á skemmri
tíma. Hver nemandi í Mími er sérstaklega
prófaður til að finna út hvaða námsað-
ferð hentar honum best. Kennarinn hefur
þaö í huga þegar hann kynnir námsefnið
í bekknum. Auk þess fá nemendur einnig
æfmgar sem styrkja námstækni. Kennar-
ar Mímis hafa verið þjálfaðir af ameríska
sálfræðingnum Söru Biondani (B.S.
M.A.) sem hefursérhæft sig í hraönáms;
tækni. Hún kennir sjálf ensku og er til
staðar til þess að ráðíeggja hinum kenn-
urunum. Sara getur einnig veitt nemend-
um persónulega aðstoö varðandi námið.
Fjöldi alþjóðafyrirtækja og stofnana hef-
ur tekið upp hraðnámstækniaðferðir við
tungumálakennslu.
Kosningavaka í
Norræna húsinu
Kosningar veröa í Sviþjóð sunnudaginn
15. september. Þá veröa kosnir fulltrúar
til þings, landsþings og bæjarstjóma. Af
því tilefni veröur kosningavaka í Nor-
ræna húsinu en fylgst verður með taln-
ingu atkvæða símleiðis og með mynd-
sendi. Sænska sendiráðið leggur fram
tækjakostnað sinn svo aö unnt verði að
fylgjast meö framvindu kosninganna.
Fyrstu tölur verða væntanlega birtar fyr-
ir kl. 19 á sunnudagskvöld og verður
kafflstofa Norræna hússins opin fram
eftir kvöldi af þessu tilefni.
TENNIS
Innitímar hjá Fjölni.
Einkatímar, þjálfun. Upplýsingar í síma 673455
Myndgáta
Lausn gátu nr. 127:
Fer fram úr
rúminu
Myndgátan hér að ofan
lýsir nafnorði.
A2<J
JWv-
Félagsstarf aldraðra,
Gerðubergi
Kl. 12 hádegishressing, e.h. spilað og
spjallað, kl. 15 kaffi. Nánari upplýsingar
í síma 79020.
Hjónaband
Tapað fundið
Drengjaúlpa fannst
við Faxagarð
Græn drengjaúlpa fannst í togaranum
Drangey, sem lá við Faxagarð, í kringum
15.-20. júlí sl. Nokkrir strákar vom aö
veiða um borð á þessum tíma og gleymdu
þeir úlpunni. Upplýsingar í síma 97-41319
eða 985-36034.
Þann 17. ágúst vom gefin saman í hjóna-
band í Neskirkju af séra Guðmundi Ósk-
ari Ólafssyni brúðhjónin Geir Harðar-
son og Nongnooch Put Hratsu. Heimili
þeima er að Vegahúsum 27a.
Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
Þann 10. ágúst voru gefin saman í hjona-
band í Háteigskirkju af séra Bernharði
Guðmundssyni brúðhjónin Kolbrún
Örlygsdóttir og Snorri Sigurðsson.
Heimili þeima er að Ægisgrund 12,
Garðabæ.
Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
Þann 20. júh vom gefin saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af séra Hjalta Guð-
mundssyni brúðhjónin Júlíana Hans-
dóttir og Guðmundur Hjaltason. Heim-
ih þeirra er að Melhaga 8.
Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
Þann 20. júlí vom gefm saman í hjóna-
band af séra Braga Friðrikssyni brúð-
hjónin Sigurborg Geirdal og Jóhann
Ásgeirsson. Heimili þeirra er að Þúfu-
barði 15, Hafnarfirði.
Ljósm. Sigr. Bachmann.