Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Síða 19
MÁNUÐAOUR14! OKTÓBER1991.
31
Fréttir
Ríkisendurskoðun segir Hlutafélagaskrá ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu:
Eftirlitið er ófullnægjandi
í skýrslu Ríkisendurskoðunar vegna
ríkisreikninga fyrir árið 1989 kemur
fram að Hlutafélagaskrá hefur ekki
haft virkt eftirlit með því að fram-
setning og innihald ársreikninga
hlutafélaga sé í samræmi við ákvæði
hlutafjárláganna. Fram kemur í
skýrslunni að einungis lítill hluti ís-
lenskra hlutafélaga sendi inn árs-
reikninga til stofnunarinnar.
Tekið er fram í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að hjá Hlutafélagaskrá
starfi einungis þrír starfsmenn í
fullu starfl og sinni þeir aðallega
skráningu nýrra hlutafélaga.
„Með hhðsjón af örum vexti á al-
mennum hlutabréfamarkaði á ís-
landi hefur mikilvægi þess hlut-
verks, sem hlutafélagaskránni er
ætlað í lögum, vaxið á undanförnum
misserum," segir í athugasemd Rik-
isendurskoðunar.
AthygU vekur að í fjárlagafrum-
varpinu fyrir næsta ár er gert ráð
fyrir að framlög til skráningar á
hlutafélögum lækki lítils háttar frá
yfirstandandi ári og verði rúmar 12
mUljónir. Gert er ráð fyrir að al-
mennur rekstrarkostnaður hækki
vegna tölvuvæðingar, húsaleigu og
samnings við Skýrsluvélar ríkisins
um skráningu á gögnum. Á móti er
gert ráð fyrir að launakostnaður
minnki. Tekjur Hlutafélagaskrár eru
áætlaðar 50 milljónir.
Að sögn Benedikts Þórðarsonar,
Nýja verslunar- og þjónustumiöstöðin i byggingu. Þar verða 16 fyrirtæki.
DV-mynd Sigrún
forstöðumanns Hlutafélagaskrár, er
gagnrýni Ríkisendurskoðunar rétt-
mæt en hann vonast þó til að úr
rætist á næstunni. Segir hann að eft-
ir að lögum var breytt 1989 sé nú ein-
ungis almenningshlutafélögum skylt
að skila reikningum. Hins vegar sé
það ekki verk Hlutafélagaskrár að
fara yfir reikningana enda séu þeir
ekki til sýnis almenningi eins og tíðk-
ist annars staðar á Norðurlöndun-
um. „Það hlýtur því að vera hlutverk
skattayfirvalda að vinna slíkt verk,“
segir Benedikt.
-kaa
Drifbúnaður
fyrir spil o.f I.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 o
SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER <
Egilsstaðir:
Ný verslunar- og þjón-
ustumiðstöð að rísa
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum;
Nú er í byggingu verslunar- og
þjónustumiðstöð á Egilsstöðum.
Húsið stendur við Miðvang norðan
Fagradalsbrautar gegnt kaupfélág-
inu. Byggingin er 2100 m2 að flatar-
máli á tveim hæðum. Það er hlutafé-
lagið Miðvangur hf. sem byggir og
var raunar stofnað til þess. Fyrsta
skóflustungan var tekin í desember
1990 og áformað er að skila húsinu
tilbúnu undir tréverk um næstu ára-
mót. Þó verður sameign að mestu
fullfrágengin.
í þessu húsi fá inni mörg fyrir-
tæki, líklega allt að 16. Þar verða
Skógrækt ríkisins, Búnaðarsamband
Austurlands, Héraðsskógar og Barri
hf., Ríkisútvarpið á Austurlandi,
svæðisútvarp (Raust). Áfengisversl-
un ríkisins mun opna þar nýja versl-
un, Hans Petersen, Hraðhreinsun
Austurlands, Glókollur, hárgreiðslu-
stofa, auk margra annarra smærri
fyrirtækja og félagasamtaka.
Arkitekt er Björn Kristleifsson á
Egilsstöðum en Hönnun og ráðgjöf
hf. á Reyðarfirði sá um burðarvirki
og lagnir. Áætlað er að fyrstu fyrir-
tækin flytji inn í mars/apríl.
Hornbjarg, glæsilegt hús i alla staði.
DV-mynd Ægir Már
Glæsihús aldraðra á Suðurnesjum
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Fyrir skömmu afhenti Húsanes hf.
Byggingasamvinnufélagi aldraðra á
Suðurnesjum fjölbýlishúsið við
Kirkjuveg 1 í Keflavík sem hefur
hlotið nafnið Hornbjarg. Þar eru 26
skemmtilegar íbúðir, ásamt sjö bíla-
geymslum, hannaðar af Páli Bjama-
syni, á 4 hæðum og með kjallara þar
sem hver íbúð hefur geymslu. Á efstu
hæð er 70 m2 salur. Þar er sjónvarps-
skjár tengdur gervihnattamóttakara.
Halldór Ragnarsson afhenti Ólafi
Björnssyni, formanni BSAS, bygg-
ingima fyrir hönd Húsaness. Ólafur
fLuttí. stutta tölu, rakti aðdraganda
þess að húsið var reist og byggingar-
sögu. Þar kom fram að 18 mánuðir
era frá því fyrsta skóflustungan var
tekin og þakkaði hann Sparisjóðnum
í Keflavík fyrirgreiðslu. Hombjarg
er um 2900 m2 að flatarmáh. Þar era
bílastæði, gangbrautir með hitalögn-
um og í hverri íbúð er neyðarhnapp-
ur ásamt fullkomnu eldvarnakerfi.
íbúum hafa veríð færðar ýmsar
gjafir, m.a. málverk af húsinu'frá
Húsanesi, málað af Erlu Sigurbergs-
dóttur. Því var komið fyrir í and-
dyri. Einnig málverk eftir Ástu Páls-
dóttur frá Sigurði Ragnarssyni í
Eignamiðlun Suðurnesja, sem sá um
sölu íbúðanna, og sjónvarpskjárinn
á efstu hæðinni frá Sparisjóði Kefla-
vikur.
Korkur á eldhúsgólfið
Mjúkt að standa á og
auðvelt að þrífa.
Gólfkorkur er sígilt
gólfefni.
Nýkomin nýjustu
mynstrin og litirnir.
Þ.Þorgrímsson & Co.
Syniiií'iirstilur Aruiii/u 29. snrii 'IIKiK)
o Pústkerfið færðu hjá okkur \
o
0
0
0
0
o
0
Sendum í póstkröfu!
Gott verð ■ Gæðaþjonusta
\
0
0
0
0
0
0
V
ATH. Verslið hjá fagmanninum
Bílayprubúðin
FJOÐRIN
Skeifunni 2
812944