Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 1991. 47 Skák Spennandi úrslitaskák á heimsbikarmóti Flugleiða: Chandler hélt jöfnu á elleftu stundu Anatoly Karpov tókst ekki að hrista Vassily Ivantsjúk af sér og ná efsta sætinu óskiptu á heimsbikar- móti Flugleiða sem lauk í gær. Bið- skák hans við Murray Chandler - síðustu skákinni á mótinu - lauk með jafnteíli eftir að Karpov missti niður vinningsstöðu. Þá hafði níutiu og sex leikjum verið leikiö og þeir teflt skáídna í tæpar ellefu stundir. Mis- tök Karpovs gáfu Chandler færi á óvæntri björgunarleið, þrátt fyrir tímahrak, og jafntefli varð ekki umflúið. Karpov og Ivantsjúk deila sigrinum með 10,5 v. Nikolic, Ljubojevic og Khalifmah fengu 9 v., Seirawan 8, Ehlvest og Speelman 7,5, Portisch, Salov og Beljavskí 7, Jóhann Hjartar- son 6,5, Andersson, Timman og Chandler 5,5 og Gulko hlaut 5 v. Stórmeistararnir voru friðsamir í lokaumferðinni. Jafntefli varð hjá Portisch og Salov, Nikolic og Ljubojevic, Timman og Gulko, Speel- man og Beljavskí auk Anderssons og Jóhanns en þeir síðastnefndu tefldu þó til síðasta peðs. Ehlvest átti hins vegar verstu skák sína í mótinu gegn Khalifman og varð að gefast upp eftir aðeins 21 leik. Mestan áhuga vöktu úrslitaskák- irnar um efsta sætið, þar sem Ivant- sjúk og Karpov voru í aðalhlutverki. Utht var fyrir hressilega sviptivinda í skák Ivantsjúks við Seirawan en engu var líkara en að taugar Úkra- ínumannsins hefðu ekki þolað álag- ið. Hann var kominn með ákjósan- lega sóknarstöðu en hristiþá furðu- lega biskupsleiki fram úr erminni og í kjölfarið fylgdi jafnteflisboð. Karpov tefldi frábærlega vel gegn Chandler, skák sem að mörgu leyti er lýsandi fyrir skákstil hans. En í lokin brást honum bogalistin. Um leið hefur Ivantsjúk tekið forystu í heimsbikarkeppninni því að Karpov vann Jóhann en Ivantsjúk gerði við hann jafntefli. Þar eö Jóhann tefldi sem gestur í mótinu teljast skákir hans ekki með til stigaútreiknings. Hvítt: Murray Chandler Svart: Anatoly Karpov Fjögurra riddara tafl 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. Bb5 Bb4 5. 0-0 <M) 6. d3 d6 7. Bg5 Nigel Short dustaði þykkt ryklagið af þessari byrjun - ijögurra riddara tafh - í áskorendaeinvíginu við Spe- elman fyrr á árinu. Svo fer að Chandler og Karpov þræða 6. einvíg- isskák þeirra allt fram í 17. leik. 7. - Bxc3 8. bxc3 Bd7 9. Hbl a6 10. Ba4 Hb8 11. Bb3 h6 12. Bh4 De7 13. Hel Ra5 14. d4 Hbd8 15. h3 Kh7 16. Dcl Rxb3 17. axb3 Bc8! Þessi hógværi leikur er betri en 17. - Bc6?! 18. Hal! Hg8? 19. dxe5 dxe5 Skák Jón L. Árnason 20. Ha5! og peðstap er óumflýjanlegt en þessi örlög hreppti Speelman í áðurnefndri skák við Short. 18. De3 b6 19. c4 Hde8 20. b4 Hg8 21. dxe5 dxe5 22. Bg3 Rd7 23. Hedl f6 24. Rh4 Df7 25. Hb3 Rb8! Hvíta staðan virðist öllu liprari en það er aðdáunarvert að sjá hvernig Karpov sthhr mönnum sínum upp til varnar - og snýr smám saman taflinu sér í vil. 26. c5 b5 27. Hbd3 Rc6 28. c3 a5! 29. bxa5 Rxa5 30. c6!? í stað þess að bíða eftir því að Karpov bæti stöðu sína enn frekar, kýs Chandler að fórna peði. í staðinn kemur hann Karpov í varnarstöðu og það virðist sem hann hijóti að hafa næg færi til að viðhalda jafn- væginu. 30. - Rxc6 31. Hd5 Lakara er 31. Dc5 Dc4 32. Hd5 vegna 32. - Hd8! er svartur hefur fyllstu ástæðu til bjartsýni. 31. - b4! 32. Hc5 £ I I i # A # * i i S á k A . A W Jl A A A l ABCDEFGH 32. - Rb8! Bráðsnjall leikur, sem Chandler hefur e.t.v. vanmetið. 33. cxb4 Ra6 34. Hc3 Eftir 34. Hb5 væri einfaldlega Murray Chandler - slapp með skrekkinn. DV-mynd E.J. mögulegt að leika 34. - Hd8 er b- peðið hlýtur að falla fyrr eða síöar. 34. - Rxb4 35. Da7 Ra6 36. Hal He6 37. f3 Dd7! 38. Bf2 Hc6! Síðustu tveir leikir sýna næma til- fmningu Karpovs. Eftir uppskipti á hrókum léttir hann þrýstingnum á c-línunni og er nú fyrst farinn að eygja vinningsmöguleika. 39. Hxc6 Dxc6 40. Rf5 He8 41. Re3 Db7 42. Rd5 Dxa7 43. Bxa7 Bb7 44. Hcl Bxd5 45. exd5 Hd8 46. Hc6 Rb4 47. Hxc7 Hxd5 48. Hb7 Rc6 49. Be3 Rd8 50. Hb2 Re6 51. Hd2 Hb5 52. Kf2 Kg6 53. Hd6 Hb2+ 54. Hd2 Hb4 55. Ha2 h5 56. He2 h4 57. Hd2 Kf5 58. Hc2 Rf4 59; Bd2 Ha4 60. Kfl Rh5 61. Kf2 Rg3 í þessari stöðu fór skákin í bið. Staða Karpovs hefur batnað í síðustu leikjum og margir vildu spá honum sigri í biðskákinni. Enski stórmeist- arinn og endataflssérfræðingurinn Jonathan Speelman skoðaði bið- skákina með Chandler og taldi 40% líkur á því að hægt væri að halda jafntefli. Karpov sagðist enga þving- aða vinningsleið hafa fundið. 62. Bel Ke6 63. Hb2 Rf5 64. Hb6+ Kd7 65. Hb2 Kc6 66. Hc2+ Kd5 67. Hd2+ Rd4 68. Hb2 Kc4 69. Kfl Hal 70. Kf2 f5 71. Bb4 Re6 72. Bd2 Kd3 73. Bel Rd4 74. Hd2 + Kc4 75. Hb2 e4 76. fxe4 fxe4 77. Bd2 Kd3 78. Bf4 Ha3 79. Hd2+ Kc4 80. Hb2 Rf5 81. Hc2+ Kd4 82. Hd2+ Kc3 83. He2 Ha4 84. Hel Ha2+ 85. Kfl Kd3 86. Hdl+ Kc4 87, Hcl+ Kd5 88. Hdl+ Ke6 89. Hel Ha4 90. Kf2 Kf6 91. He2 g5 92. Bcl Hc4 93. Hel Hc2+ 94. Kgl Rg3 95. Be3 Kg6(?) 96. Bf2 Kf5 97. Be3 Re2+? Karpov kvaðst eftir skákina hafa misst af vinningi í þessari stöðu, er hann heföi betur leikið 97. - Ha2! en þar stendur hrókurinn betur, eins og ljóst verður af framhaldi skákar- innar. 96. Bf2 Kf5 97. Be3 Re2+ 98. Kfl Rf4 99. Hal! Rxg2 100. Ha5+ Ke6 Áhorfendur héldu hér að Karpov væri að vinna því að ef 101. Bxg5, þá 101. - e3 og peðið verður ekki stöðvað nema með biskupsfórn. Eða 101. Bd4 Rf4! og nú strandar 102. Hxg5 á 102. - Hcl+ 103. Kf2 Rxh3+ og vinnur hrókinn. Chandler hugsaði sig nú lengi um en skyndilega tók hann eft- ir því að Karpov varð sýnilega áhyggjufullur. „Ef Karpov hefði ekki fundið jafnteflisleiðina, hefði Chandler heldur ekki gert það,“ sagði Speelman síðar um þetta ör- lagaríka augnablik. 101. Ha6+! Kd5 Ef 101. - Kf7 102. Bxg5 e3 103. HÍ6+ Kg7 104. He6 og heldur sínu. 102. Ha5+ Kc4 103. Ha4+ Kc3 Eftir 103. - Kd3 kæmi 104. Ha3+ og eftir 103. - Kb3 kæmi 104. He4, sem nú yrði svarað með 104. - Kd3. 104. Bxg5! e3 105. Bf6+! Björgunarleikurinn. Skákin er nú jafntefli. 105. - Kb3 106. He4 Hf2+ 107. Kgl Hxf6 108. Kxg2 Hf2+ 109. Kgl Hf3 110. Kg2 Hg3+ 111. Kfl Hxh3112. Ke2 Ka2 113. Hb4 Einnig vár 113. Hxe3 mögulegt. 113. - Ka3 114. He4 Kb3 115. Hf4 Hhl 116. Kxe3 h3 117. Kf2 Kc2118. Kg3 Kd3 119. Hh4 Og loks sættust þeir á jafntefli. Þar slapp Chandler með skrekkinn og bjargaði sér frá því að hafna í neðsta sæti á mótinu! -JLÁ Fjölmiðlar Ást og rómantík hélt mér hug- fóngnum fyrir framan sjónvai-ps- skerminn í gærkvöldi eins og svo mörgönnur sunnudagskvöld. Með sól í sinni fylgdist ég með háskaleg- um ævintýrum þeirra Pierre-Bapt- ■ iste og Sixtine í liætfinum ástirog alþjóðamál. Við hverja eldraunina falla örvar Amors þvers og kruss um sjónvarpsskerminn ogjafnvel út á stofugólf. Maður fyllist hlut- tekningu þegar söguhetjurnar í bar- áttunni fyrir hinu góöa bjarga börn- um og sjúkum, spinna saman sinn örlagaþráð og svo góðir eru þættirn- ir að það kemur fyrir að ég þarf að þurkatárafkinn. Að mínu mati mætti Sjónvarpið gera meira af því að sýna myndir um ástina. Ég tók eftir þvi á ónefnd- um skemmtistaðum helgina að stór hópur fólks sækist eftir nánari kynnum við hana. Einhverra hluta vegna virðist fólk þó vera feimið við tilfinninguna og leita sér hjálpar Bakkusar, Amori til bölvunar. Það er eins og fólk óttist ástina eða sé feimiö viö hana. Aö þessu leytinu hefur Sjónvarpið, sem upplýsínga- og fræðslumiöill, ákveðnu hlutverki að gegna. Með fullri virðingu fyrir íþróttum, efnahagsmálum og pólitík þá held ég að þörf þjóðarinnar fyrir ást sé slík að engir dagskrárþættir séu vinsælli í raun en þeír sem á henni taka. Eins og svo oft áöur sofnaði ég út frá þættinum Landið og miöin í gærkvöldi. Stjórnandiþáttarins, hinn landsfrægi Sigurður Pétur, var fjarri góðu gamni en í hans stað var mættur Stefán Jón Hafstein. Sem endranær var þátturinn stútfullur af ástarkveðjum og var það skemmtileg tilhreyting að hlusta á Stefan Jón takast á við þær kveðj- ur. Honum fórst það vel úr hendi og tel ég fullvíst að það hafi verið ástrík þjóö sem lagðist til svefns í gær.Lengilifiástin. Kristján Ari Arason BINGQI Hefst kl. 19.30 i kvöld Aðalvinninqur að verðmæti eI _________100 bús. kr.______________ 1! Heildarverðmæti vinninqa um _ TEMPLARAHÖLUN 300 þús. kr. Eiríksgötu 5 - S. 20010 freeMáMs MARGFELDl 145 PÖNTUNARSÍMI ■ 653900 Veöur i dag verður norðvestan- eða norðanátt á landinu með smáéljum vestan- og norðanlands en súld við austurströndina og bjartviðri um sunnanvert landið. i nótt gengur norðanáttin niður að mestu, sunnan til á landinu þykknar upp og fer að rigna en annars staðar verður úrkomulítið. Víða má búast við vægu frosti i fyrstu én yfir daginn verður 1-5 stiga hiti. Akureyri Egilsstaðir Kefla vikurflug völlur Kirkjubæjarklaustur Raufarhöfn Reykjavik Vestmannaeyjar Bergen Helsinki Kaupmannahöfn Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Berlin Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow London LosAngeles Lúxemborg Madrid Malaga Mallorca New York Valencia Vin Winnipeg alskýjað 1 skýjað 2 skýjað 1 léttskýjað 1 rigning 2 léttskýjað 2 léttskýjað 0 skýjað 8 þoka 2 rign/súld 12 þokumóða 7 þokumóða 9 léttskýjað 8 þoka 8 heiðskírt 11 rigning 12 skúr 11 þokumóða 11 þoka 9 skýjað 9 rigning 11 þokumóða 17 þoka 5 alskýjað 11 léttskýjaö 12 hálfskýjað 18 léttskýjað 9 léttskýjað 14 skýjað 12 súld 3 Gengið Gengisskráning nr. 195. -14. okt. 1991 kl.9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 59,660 59,820 59,280 Pund 102,821 103,097 103,900 Kan. dollar 52,850 52,992 52,361 Dönsk kr. 9,1608 9,1854 9,2459 Norsk kr. 9,0223 9,0465 9,1172 Sænsk kr. 9,6945 9,7205 9,7749 Fi. mark 14,4964 14,5353 14,6678 Fra. franki 10,3635 10,3913 10,4675 Belg. franki 1,7156 1,7202 1,7312 Sviss. franki 40,3927 40,5010 40,9392 Holl. gyllini 31,3480 31,4321 31,6506 Þýskt mark 35,3321 35,4268 35,6732 ít. líra 0,04721 0,04733 0,04767 Aust. sch. 5,0187 5,0322 5,0686 Port. escudo 0,4109 0,4120 0,4121 Spá. peseti 0,5598 0,5613 0,5633 Jap. yen 0,46248 0,46372 0.44682 irskt pund 94,463 94,716 95,319 SDR 81.4777 81,6962 81,0873 ECU 72,3348 72,5288 72,9766 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA AÐ VERA ÚSKEMMD og þau þarf að hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöð margfalda áhættu i umferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.