Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Page 2
2 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991. Fréttir Steinar breyta viðskiptakjörmn: Japis veldur diskastríði Verslunin Japis hefur meö inn- flutningi sínum á geisladiskum valdið miklu diskastríði á tónlistar- markaðnum. Þetta stríð kemur fram í því að Steinar hf. hafa breytt viðskiptakjörum sínum við keppi- nautana Japis, Skífuna og fleiri. Það mál er komið í hendurnar á Verðlagsstofnun sem hefur gefið Steinum viku til að koma með skýringar. „Þetta eru hreinar viðskipta- þvingarnir frá Steinum vegna þess að við höfum flutt inn alla okkar diska beint aö utan, ekki í gegnum Steina, Skífuna eða aöra, og boðið viðskiptavinum okkar geisladisk- ana miklu ódýrar fyrri vikið,“ segir Birgir Skaptason, framkvæmda- stjóri Japis. Bréfið sem Japis, Skífan og íleiri fengu frá Steinum er á þá leiö að afslátturinn á öllum geisladiskum með innlendu efni frá Steinum er lækkaður úr 33 prósentum niöur í 20 prósent. Þá gefa Steinar ekki lengur mánaðarfrest á greiðslum heldur verður að staðgreiða allar pantanir. Birgir segir að Japis hafi fyrir nokkru byrjað sjálft aö flytja inn alla geisladiska að utan til að ná niður verðinu. „Við flytjum alla geisladiska inn beint frá heildsölum ytra. Fyrir vikið er verðmunurinn allt upp í 30 til 40 prósent okkur í hag. Öðru- vísi höfum við ekki verið sam- keppnisfærir." Að sögn Birgis hefur Japis flutt inn geisladiska beint frá heildsöl- um ytra sem bæði Steinar og Skífan hafa haft umboð fyrir hérlendis. Hann segir ennfremur að nú stefni i um helmingsaukningu á innfluttum geisladiskum frá í fyrra. „Við teljum að það sé okkur að Birgir Skaptason, framkvæmdastjóri Japis. Fyrirtæki hans hefur nú hrundið af stað geisladiskastríði með því að ftytja diskana beint inn frá heildsölum erlendis og selja hér á mun lægra verði en keppinautarnir. DV-mynd GVA þakka. Verðið hefur verið allt of hátt í langan tíma og það er ekki fyrr en við brjótum upp þetta verð- lag að fólk fer aö leyfa sér að kaupa geisladiska í verslunum hérna. Jafnframt höfum við fréttir af því aö töskur ferðamanna séu ekki lengur fullar af geisladiskum. Þær eru fullar af fötum núna.“ Þá segir Birgir að verð innfluttra geisladiska hjá Japis hafi verið í kringum 1.400 til 1.500 krónur en um 1.800 til 1.900 krónur hjá öðrum. „Að visu hefur Skífan verið að fikra sig niður en hún er enn mun hærri en við." Það var Skífan sem sendi Verö- lagsstofnun bréf um breytt við- skiptakjör Steina og hefur stofnun- in séð ástæðu til að skrifa Steinum bréf og biðja um viðhlítandi skýr- ingar eða afturkalla ákvörðunina. Að öðrum kosti muni Verðlags- stofnun kæra Steina. -JGH ívar Daníelsson lyfsali afhenti Árbæjarsafni einstaka gjöf i gær í minningu systur sinnar, Önnu Eirikss talsímavarð- ar. Um er að ræða safn sögulegra muna úr dánarbúi Önnu. Munirnir eiga rætur að rekja til kunnra Reykvikinga frá 19. öld og byrjun þessarar aldar. Meðal muna eru stofuhúsgögn, borðstofuhúsgögn, bækur, myndir og fleira. Allir eru munirnir einstaklega vel með farnir. Á myndinni er ivar ásamt dóttur sinni, Guðrúnu inu ívarsdóttur, innan um hluta munanna. DV-mynd Brynjar Gauti 50. fiskiþing: Bullandi ágreiningur á þinginu um kvótakerfið Á hveiju ári, síðan kvótakerfið var tekið upp, hafa verið deilur um það á fiskiþingi. Stundum mjög miklar, stundum litlar og allt þar á milli. Að þessu sinni blossuöu upp bullandi deilur þegar tillaga meirihluta sjáv- arútvegsnefndar þingsins sá dagsins ijós. Þar kom fram hörð gagnrýni á kvótakerfið. í henni var bent á mót- sögn í lögunum um stjórnun fisk- veiða þar sem sagt er að nytjastofn- arnir séu sameign þjóðarinnar en síðan sé skipa- og bátaeigendum út- hlutað veiðiheimildum sem þeir síð- an framselja aö vild fyrir eitt ár í senn eða til endanlegrar eignar. Þetta gerist þrátt fyrir það að í lögunum standi að úthlutun veiöiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkall- anlegt forræði einstakra aðila yfir veiöiheimildunum. Segir og í tillög- unni að þingið mótmæli þeirri rösk- un sem óhjákvæmilega verði í at- vinnumálum landsbyggðarinnar með hinum nýju kvótalögum sem leitt hefur til sölu íjölda smábáta. Einnig segir aö fiskiþing óski eftir því aö lögin verði tekin til endur- skoðunar meö tilliti til ofangreindra staðreynda og byggðarlögum á ein- hvern hátt bættur skaðinn. Mjög miklar deilur urðu um þessa tillögu. Fléttaðist þar inn í hvort inn- an kvótakerfisins ætti að vera afla- mark eins og nú er eða sóknarmark eins og var. Eins það hvort heimilt ætti aö vera að framselja kvóta. Margir sem á sínum tíma studdu þaö að kvótakerfið yrði sett á snúast nú gegn því. Tómas Þorvaldsson, hinn gamalreyndi útgerðarmaður úr Grindavík, sagði í ræðu sinni að framkvæmd kvótakerfisins nú væri allt önnur en þess kvótakerfis sem hann var fenginn til að samþykkja á sínum tíma. Allir ræðumenn höfðu eitthvaö við kerfið að athuga. Annaö- hvort aflamarkið eða sóknarmarkið eða hvort leyfa ætti kvótasölu eða ekki. Niðurstaðan varð síðan sú aö Ei- ríkur Tómasson úr Grindavík og fieiri báru fram tillögu sem var sam- þykkt meö nokkrum meirihluta. í þeirri tiOögu segir að fiskiþing telji aö núverandi aflamark sé heppileg- ast þeirra leiða sem þekktar eru í dag við stjórnun fiskveiða. Einnig segir í tillögunni að við endurskoðun fisk- veiöilaganna skuli það athugað sér- staklega hvort framsalsrétturinn leiði til þeirrar hagræðingar sem stefnt var að og hvort hann leiöi til byggöaröskunar. Eftir stendur svo bullandi ágrein- ingur fiskiþingsfulltrúa um allt það sem skiptir máli í sambandi við kvótakerfið. Tillaga Eiríks Tómas- sonar var að dómi þeirra fiskiþings- fuiltrúa, sem DV ræddi viö, til þess eins að bera klæði á vopnin. -S.dór ÞingLandssambands smábátaeigenda: Togstreita á milli krókamanna og þeirra sem hafa kvóta „í okkar röðum er togstreita milli krókamanna og þeirra sem hafa kvóta. Þetta er fullkomlega eðlilegt. En kjörorö Landssambands smá- bátaeigenda hefur frá upphafi veriö, og er nnn, krókaveiðar frjálsar. Því banndagakerfi, sem nú er á bátum undir sex tonnum, veröur að við- halda. Það er enginn bátur á milli sex og tíu tonn bættari þó að félagar hans undir sex tonnum verði hengd- ir,“ sagði Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, við setningu aðalfundar sambands- ins. Hann sagði ennfremur í setningar- ræðu sinni: „En mig undrar satt að segja hversu ótrúlegu taki kvótinn nær á mönnum. Ég hef talaö við marga menn sem eiga báta á milli sex og tíu tonn og hafa jafnvel lélegan kvóta og ég hef spurt þá: Ert þú til í að af- sala þér kvótaréttindunum og öllu því sem þar fylgir og netaleyfinu í leiðinni og fá banndagakerfi fyrir handfæri og línu? Enn hefur aðeins einn svarað mér játandi þótt vafa- laust séu þeir fleiri sem til eru í þetta.“ Ein helsta krafa smábátaeigenda er að 25 prósent reglan svokallaöa verði felld úr lögunum um stjórn fiskveiöa. Áður en fundurinn hófst var Þorsteini Pálssyni sjávarútvegs- ráðherra afhentur undirskriftalisti með nöfnum 135 smábátaeigenda á Snæfellsnesi þar sem skorað er á hann aö fella þetta bráðabirgöa- ákvæði úr gildi. í greinargerð með áskoruninni seg- ir meðal annars: „Hjá trillukörlum landsins hefur gripiö um sig geigvænlegur ótti vegna þess ákvæðis í lögum um stjórnun fiskveiða að reynist hlut- deild þeirra af heildarbotnfiskkvóta hafa vaxið meira en sem nemur 25 prósent að meðaltali á árunum 1991, 1992 og 1993 miðað við þá aflahlut- deild, sem þeir áttu kost á árið 1991, skuli þeim hveijum og einum ákvörðuð aflahlutdeild frá og með' fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 1994 og að aflareynsla áðurnefndra þriggja ára ráði þá aflahlutdeild hvers og eins.“ Segja sjómenn að nú óttist hver um sinn hag og allir keppist nú viö að fá sem stærsta hlutdeild i kökunni. Menn æði því á miöin í tvísýnum veðrum og mæti jafnvel bátum sem eru á heimleið vegna veðurs. Sumir i þeirra sem gera út allra minnstu bátana og róa að öllu jöfnu ekki nema yfir sumartímann keppist nú við að útbúa þessi pínulitlu horn með línu- spii og geri út á línu yfir hörðustu vetrarmánuðina þegar allra veðra sé von. -J.Mar íslenska stálfélagið: Engar launagreiðslur og greiðslustöðvunar óskað Miklir fjárhagsörðugleikar hijá nú rekstur íslenska stáiféiagins. Laun voru ekki greidd út nú um mánaðamótin og hafa forsvars- menn fyrirtækisins óskað eftir greiðslustöðvun. Alls vinna um 80 manns hjá félaginu. Vinna lá niðri í gær vegna setuverkfalls starfs- manna. Aö sögn Lars Gunnars Norberg framkvæmdastjóra eru erfiöleik- amir mjög miklir og mikil óvissa um hvort hægt verður að bjarga fyrirtækinu. Þörf sé á auknu fjár- magni sem erfitt sé að fá. Hann vonast þó til að mál skýrist í næstu viku. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að bjarga okkur út úr vandanum,“ segir Lars. -kaa Sjóslysið á Höfn: Leitað áfram að sjómanninum í dag Leit veröur haldið áfram í dag að mánudag. Þyrla Landhelgisgæslunn- Þóröi Emi Karlssyni, frá Keflavík, ar og bátar leituðu í gær auk björgun- sem saknað hefur veriö frá því Mími arsveitarmanna frá Höfn, Njarðvík RE 3 hvolfdi við Homafjarðarós á og Keflavík en án árangurs. : i-Ó'FT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.