Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991.
3
dv Fréttir
Bankar lækka
vexti aðeins
Bankar lækkuöu nafnvexti lítillega
: í gær. Af einstökum bönkum var
Landsbankinn duglegastur við að
lækka. Raunvextir, vextir á verð-
1 tryggðum kjörum, eru hins vegar
enn óbreyttir hjá bönkunum.
Landsbankinn lækkaði forvexti
víxla úr 19 í 18,5 prósent og vexti á
algengasta flokki almennra skulda-
bréfalána úr 20 í 19,5 prósent. Á inn-
lánahliðinni lækkaði Landsbankinn
nafnvexti á almennum sparisjóðs-
bókum úr 4 í 3,75 prósent.
íslandsbanki lækkaði forvexti á
víxlum úr 19 í 18,5 eða nákvæmlega
eins og Landsbankinn. Nafnvextir á
almennum skuldabréfalánum ís-
landsbanka eru hins vegar óbreyttir.
Búnaðarbanki og sparisjóðirnir
hreyfa ekki nafnvexti að þessu sinni
á víxlum og almennum skuldabréfa-
lánum.
Eftir vaxtabreytingarnar í gær eru
sparisjóðirnir enn með lægstu for-
vexti á víxlum, 16,5 prósent, og nafn-
vexti á almennum skuldabréfalánum
17 prósent.
Sparisjóðirnir leiddu vaxtalækk-
unina þegar í byrjun október og hafa
haldið forystunni í lækkuninni.
Bankarnir hafa ekki teygt sig niður
íútlánavextisparisjóðanna. -JGH
Grænfriðungar
keyptusér
hvalveiðibann
Rök hafa veriö leidd að því aö
Grænfriðungar hafi keypt sér aðgang
að Alþjóða hvalveiðiráöinu til að
þvinga í gegn bann við hvalveiðum
1982. í bandaríska tímaritinu Forbes,
sem nýtur virðingar vegna skrifa um
efnahagsmál, er því haldið fram að
Grænfriðungar hafl fengið ýmis fá-
tæk strandríki til að sækja um aðild
að hvalveiðiráðinu og greitt kostnað-
inn fyrir þau gegn því að fá fulltrúa
ríkjanna í ráðinu. Þau ríki, sem
nefnd eru í þessu sambandi, eru
meðal annarra Antigua, Panama, St.
Lucia og Seychelles-eyjar.
Á ársfundi hvalveiðráðsins, sem
haldinn var í Reykjavík síðastliðið
vor, fékkst banni við hvalveiðum
ekki aflétt. í kjölfarið hefur þeim
röddum á íslandi og í Noregi farið
fjölgandi sem vilja úrsögn landanna
úrráðinu. -kaa
Keflavíkurflugvöllur:
Orrustuvél-
umfækkað
Ákveðið hefur verið að fækka F-15
orrustuvélum á vegum hersins á
Keflavíkurflugvelli um 6, úr 18 vél-
um í 12. Fækkunin verður á fyrsta
ársfjórðungi næsta árs.
Að sögn Friðþórs Eydal, upplýs-
ingafufltrúa Varnarliðsins, hefur
þessi fækkun engin áhrif á þörflna
fyrir þjónustu á Veflinum eða fjölda
borgaralegra starfsmanna. Fram til
1985 voru aðeins 12 orrustuvélar á
Keflavíkurflugvelli en þá komu F-15
-hlh
Grænlenskt
rokk á Akureyri
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
Akureyringar fá um helgina tæki-
færi til að hlusta á grænlenskt rokk
en hljómsveitin Ole Kristiansen band
leikur á skemmtistaðnum 1929 nk.
sunnudagskvöld.
Hljómsveitin hefur verið á tón-
leikaferðalagi að undaníomu, lék
m.a. á Hróarskelduhátíðinni. Geisla-
diskur hljómsveitarinnar hefur verið
í efsta sæti á grænlenska vinsælda-.
flstanum og seldist í 6 þúsund eintök-
um. Þetta er í fyrsta skipti sem Akur-
eyringum gefst kostur á að „berja
grænlenskt rokk augum“ en talið er
að heimsókn hljómsveitarinnar geti
orðið upphafið á samskiptum þjóð-
anna á þessu sviði.
^vélar hingað.
20 BILAR 1] 30 MILUONIR
VOLVO 940 GLT
VERÐ: 3.190.000,- KR.
CHEVROLET ÐLAZER S-10 FORD EXPLORER XL NISSAN PATHFINDER TERRANO
VERÐ: 3.100.000,-KR. VERÐ: 2.562.000,-KR. VERÐ: 2.413.000,-KR.
ISUZU TROOPER SE 260
VERÐ: 2.400.000,- KR.
SUZUKI VITARA JLX
VERÐ: 1.438.000,- KR.
PONTIAC GRAND PRIX LE CITROEN XM AMBIANCE SUBARU LEGACY WAGON
VERÐ: 2.390.000,- KR. VERÐ: 2.399.000,- KR. VERÐ: 1.473.000,- KR.
NISSAN PRIMERA SEDAN SLX DAIHATSU APPLAUSE 16L NISSAN SUNNY SLX
\ <gHÍi 1]
SUZUKI SWIFT GA CITROEN AX II TRS NISSAN MICRA L 1000
VERÐ: 716.000,- KR. VERÐ: 691.000,- KR. VERÐ: 620.000,- KR.
4
DAIHATSU APPLAUSE 16L VERÐ: 979.000,- KR. NISSAN SUNNY SLX VERÐ: 869.000,- KR. SUZUKI SWIFT GA VERÐ: 716.000,- KR.
í) íl
CITROEN AX II TRS VERÐ: 691.000,- KR. NISSAN MICRA L 1000 VERÐ: 620.000,- KR.
STÖNDUM MEÐ ÞEIM
ÓTRÚLEGIR VINNINGAR • MIÐAVERÐ 450,-KR.
HAPPDRÆTTI
OLYMPÍUNEFNDAR ÍSLANDS
Gísli B.