Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Page 17
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991. 17 dv___________________________Vísnaþáttur Ástavisur frá 16. öld Staðarhóls-PáU Jónsson, 1530-98, og bróðir hans, Magnús prúði, 1531-91, báðir lögmenn og skáld, vorum meðal svipmestu manna sinnar aldar. Þeir voru ungir þegar siðaskiptin urðu og Hólafeðgar voru höggnir í Skálholti. Páll eign- aðist sem konu dóttur Ara Jóns- sonar biskupssonar. Hún hét Helga og var ekki fullvaxta er faðir henn- ar var líflátinn en þótti áhtlegur kvenkostur sakir ættar, fríðleiks og erföaíjár. Henni leist vel á Pál og ekki sakaði að hann var lærður, ríkur og hagorður. Hann orti til hennar kvæði þar sem hann kallar hana „yfrið fagurt blóm“ og „Ein- att á mig starði/auðs fyrir fagran róm/sú lystug liljan fróm.“ Þátta- maður birtir hér heil erindi úr kvæðinu þótt það brjóti reglu okk- ar að hér séu aðeins ferhendur: Hún er svo hýr að líta sem hermi eg ungri frá, rétt sem rósin hvita eða renni blóð í snjá. Hún hefur eftir þessum orðum skipt vel litum sem alla tíma hefur þótt prýða konur. Áfram: Enga yfrið nýta eg með augum sá aðra vænni en þá. Síðar í kvæðinu: fram hjá fögrum lundi ferðast gerði eg þá, furðu fagur var sá... stóð eg þá beint með bliðu, því blómstrin voru mér kær, laufið og greinir grænar greiddust yflr mig út, eg haföi ei harmasút. ... Á hádegi lauf með listum þaö leist mér grænt að sjá, með firna mörgum kvistum furðu vænt að ná, í öllum blóma sínum allur lundurinn stóð... Ekki er nú að spyrja að fagurgala skáldanna þegar konur eru annars vegar. Svo hefur verið á öllum tím- um. Mótstaða ættarmanna var þó nokkur en beggja vilji sigraði að lokum. Þessar upplýsingar eru teknar úr hinu merka riti dr. Páls Eggerts Ólasonar; Menn og mennt- ir. Þar segir og: „í fyrstu voru svo miklir kærleikar með þeim að sagt var að þau hafi ekki risið úr rekkju fyrstu sex vikurnar." En síðar gekk á ýmsu með samfarir þeirra, eins og komist er að orði í gömlum bók- um. Loks skildu þau. Og tii er ljót- ur kveðskapur Páls um þá konu sem hann hafði áður lýst svo fagur- lega. Hún mun hafa verið skapmik- il eins og hún átti ætt til. Páll orti: Lítið er lunga í lóuþræls unga, þó er enn minna manvitið kvinna. En nú sneri Páll hug sínum til annarrar konu, sjálfrar biskups- dótturinnar, Halldóru Þorláksdótt- ur á Hólum, sem um þetta leyti þótti bestur kvenkostur á landinu. En hún var ráðskona föður síns og enginn veifiskati, sá jafnvel um Vísnaþáttur kirkjubyggingu og stjórn Hólastóls í veikindaforföllum Þorláks bisk- ups. Henni sendi Páll þessar vísur: Blessi þig guð af allri átt og ævinlega þér hlífi. Vertu blíða baugagnátt, blessuð á sál og lífi. Hugsar blaðið héðan á veg í hendi að lenda þinni. Qg þá á bréfið betra en eg, bagi er að fjarlægðinni. Heilsu og líf á hann, sem gaf, hirðum ekki að kvíða, harmatárin hvörmum af herrann þerrar síðan. Kveð eg svo, væna veigabil, verndin guðs þér hlífi. Ann eg þér, meðan er eg til, af öllu mínu lífi. Er mín bónin, auðarbrú, að mín þiggir kvæði, og að munir mig í trú, meðan lifum bæði. " Þessar vísur mun Halldóra sjálf hafa fengið í hendur en bónorðs- bréfið, sem mun hafa verið sent oftar en einu sinni, að þeirra tíma sið, hafa verið stílað til sjálfs bisk- upsins. Páli mun hafa þótt sér lítill sómi sýndur. Hann var einn af rík- ustu og virtustu mönnum landsins. En fleiri munu vísurnar hafa verið, sem stefnt var til Halldóru. Ein byrjar svona: Má eg hvorki mas né raup mæla ungum svanna. Og munu gjafir hafa fylgt til bisk- ups og dóttur hans. En ekkert dugði. Þegar Þorlákur biskup féll frá á góðum aldri fluttist Halldóra á eignarjörð sína og lifði bóndalaus til hárrar elli. En ekki mun Páll, vonbiðill bisk- upsdóttur, hafa verið í kvenna- hraki. Hann var eigandi stórjarða í flestum eða öllum öórðungum landsins. Hann var kallaður stór- bokki en ekki illa ræmdur. Þó mun Magnús prúði bróðir hans hafa verið talinn meira ljúfmenni. Minnumst hans kannski síðar. En fleiri eru vísurnar Páls sem þykja minna á kvonbænir hans í biskupsgarð: Margir virða, mæli eg nú, mun því illa gagna, lítils sæmd og sanna trú, sundurlyndi fagna. Þó harður einn hafi orðið, út af leysi eg hnútinn, meira hættu hverri hnútinn leysi eg út af, vill guð inna elli, út af leysi eg hnútinn, bundinn hart að hendi hnútinn leysi eg út af. Börn Páls og Helgu voru þijú og eitt átti hann með annarri konu. Þau fengu mikinn auð í arf og áttu barna- láni að fagna. Páll dó háaldraður. Hann var kallaöur mikið skáld á sinni öld og er fleira varðveitt en hér er birt. Einni visu, sem margir kannast við, skal bætt við. Hún er til í tveimur gerðum. Páll átti höfuð- ból í Flatey á Breiðafirði og á Reyk- hólum. Milli þeirra staða sigldi hann en óvinveittur maður hélt sínu skipi til kapps við hann. En þá henti það óhapp að skip Páls lenti sökum ógætni á skeri. Þá orti hann: Snemma á degi, mjög var morgnt, mengið svaraði káta: Skipið er nýtt, en skerið fornt, skal því undan láta. Aðrir vilja hafa vísuna svona: Ýtar sigla austur um sjó öldujónum káta. Skipið er nýtt, en skerið hró, skal því undan láta. Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi Einkar Eftirtektarverð ^^TAÐREYND FIAT FIORINO Verð: 650.000,00 án vsk. tii Fólksbílsþægindi Frábær lánakjör Góð viðhaldsþjónusta frambúðar italska mslunarfétagið M. SKEIFUNNI 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91 688 850 Vélarstærð: 1300 cc, 70 hö. Flutningsrými: 2,7 m3 Flutningsgeta: 500 kg Farkostur í flutningum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.