Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Side 47
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991.
59
Afmæli
Kári Þórðarson
Kári Þórðarson, fyrrv. rafveitu-
stjóri, Kirkjuvegi 5, Keflavík, verður
áttræður á morgun.
Starfsferill
Kári er fæddur í Króktúni í Land-
sveit og ólst upp þar og í Gríms-
nesi, Tryggvaskála á Selfossi og í
Reykjavík. Hann lærði rafvirkjun
hjá Júlíusi Björnssyni og var með
þeim fyrstu sem tóku sveinspróf í
greininni, eða 1932. Kári tók vél-
stjórapróf 1934, lauk prófi úr raf-
magnsdeild vélstjóraskólans 1937 og
fékk meistararéttindi í rafvirkjun
1939.
Kári rak raftækjaverslun (Ekkó)
og verkstæði í Hafnarfirði í félagi
við annan 1939-58. Hann var raf-
veitustjóri í Keflavík 1958-81 en síð-
asttalda árið lét Kári af störfum
vegna aldurs. Kári hefur verið félagi
í Rotary og Oddfellow og er jafn-
framt einn af stófendum Bridge-
félags Hafnarijarðar og heiðursfé-
lagi þar.
Fjölskylda
Kári kvæntist 24.2.1934 Kristínu
E. Theódórsdóttur, f. 10.9.1914, en
foreldrar hennar voru Theódór
Jónsson og Steinunn Þórðardóttir.
Börn Kára og Kristínar: Katrín, f.
9.8.1933, ljósmyndari, maki Eiríkur
Svavar Eiríksson, deildarstjóri hjá
Flugleiðum, þau eiga þrjár dætur
ogfimm barnabörn; Theódóra
Steinunn, f. 31.3.1935, húsmóðir,
maki Guömundur Hauksson loft-
skeytamaður, þau eiga fjögur börn
og sjö barnabörn; Elín, f. 23.7.1942,
ráðskona á Bessastöðum og fyrrv.
ritstjóri Gestgjafans, maki Hilmar
Bragi Jónsson matreiðslumeistari,
þau eigatvö börn; Hlíf, f. 28.10.1943,
tónlistarkennari, hún á þrjú börn
með fyrrv. manni sínum, Sigurði
Kristinssyni, og eitt barnabarn; Þór-
unn, f. 1.7.1947, bankastarfsmaður,
hún á tvö börn með fyrrv. manni
sínum, Robert Van Laecke; Kristín
Rut, f. 21.12.1950, hárgreiðslukona,
maki Scott Klempan, þau eiga tvær
dætur; Þórður, f. 1.4.1955, slökkvi-
liðsmaður, maki Hólmfriður Sig-
tryggsdóttir skrifstofumaður, þau
eiga tvo syni; Theódór, f. 4.6.1957,
rafverktaki, maki Lára V. Bjarna-
dóttir ritari, Theódór á tvö börn.
Kári á fjögur systkini á lífi, Mar-
gréti, Þóru, Harald Pál og Þórunni.
Foreldrar Kára voru Þóröur Þórð-
arson, f. 12.4.1882, d. 20.6.1925, og
Katrín Pálsdóttir, f. 9.6.1889, d. 26.12.
Kári Þórðarson.
1952.
Kári tekur á móti gestum á heim-
ili sínu á afmælisdaginn kl. 17-19.
Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir kennari, Drápu-
hlíð 6, Reykjavík, verður fertug á
morgun.
Starfsferill
Þórunn er fædd í Reykjavík. Hún
stundaði nám í Melaskóla og Haga-
skóla og síðar í Kennaraskóla ís-
lands en þaðan útskrifaðist hún sem
kennari 1972. Þórunn var í Leiklist-
arskóla íslands og útskrifaðist sem
leikari 1976. Hún kenndi við Mýrar-
húsaskóla 1976-78, við Grunnskóla
Húsavíkur 1978-79, var fóstra á
barnaheimilunum Ösp og Valhöll í
Reykjavík 1979-81 ogforstöðukona
á fyrrnefndri Ösp 1981-83. Þórunn
hefur verið kennari í Laugarnes-
skóla frá 1984.
Þórunn hefur unniö að ýmsum
leiklistarstörfum samhliða
kennslustörfum. Hún hefur leikið í
tveimur útvarpsleikritum, lék í
sjónvarpsleikritinu Póker 1979 og í
tveimur leikritum hjá Leikfélagi
Húsavíkur 1978-79. Þórunn lék með
Alþýðuleikhúsinu 1979-80 í Blóma-
rósum og er ennfremur einn af
stofnendum Breiðholtsleikhússins
og lék í þremur leikritum sem það
setti upp.
Fjölskylda
Þórunn giftist Halldóri Jónssyni,
f. 7.4.1950, lækni, þau skildu. Þór-
unn giftist aftur Stefáni Ásgeirs-
syni, f. 11.6.1955, garðyrkjuverk-
taka, þau skildu.
Sonur Þórunnar og Halldórs: Jón
Páll, f. 2.4.1974, nemi. Dóttir Þór-
unnár og Stefáns: Unnur Ósk, f. 5.4.
1984.
Systkini Þórunnar: Stefán, f. 3.7.
1945, hæstarréttarlögmaður, maki
Hólmfríöur Árnadóttir, forstöðu-
maður hjá Flugleiöum, þau eiga
þrjú börn; Sesselja, f. 25.10.1946,
leiksýningaframleiðandi og mynd-
bandsgerðarmaður, hún á einn son;
Páll Arnór, f. 5.6.1948, hæstarréttar-
lögmaður, maki Ragnheiður Valdi-
marsdóttir, dagskrárgerðarklipp-
ari, þau eiga þrjú börn; Signý, f. 11.4.
1950, leikhússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar, hún á þrjú börn; Sigþrúður,
f. 22.11.1954, nemi; Anna Heiða, f.
14.51956, forstjóri, maki Hilmar
Ævar Hilmarsson, framkvæmda-
Þórunn Pálsdóttir.
stjóri pg kaupmaður, þau eiga tvö
börn; ívar, f. 26.2.1958, forstjóri,
maki Gerður Thoroddsen lögfræð-
ingur, þau eiga tvö börn en ívar átti
eitt áður. Hálfbróðir Þórunnar,
samfeðra, er Gísli Hlöðver Pálsson,
f. 15.5.1943, starfsm. geimvísinda-
stofnunar Bandaríkjanna í Nýju-
Mexíkó, maki Cindy Hills, þau eiga
eina dóttur. Gísli notar nafnið Jack
Gilbert Hills í Bandaríkjunum.
Foreldrar Þórunnar: Páll S. Páls-
son, f. 29.1.1916, d. 11.7.1983, hæstar-
réttarlögmaður, og Guðrún Step-
hensen, f. 11.5.1919, kennari og
fyrrv. forstöðumaður á barnaheim-
ili en nú starfsmaður Þjóðminja-
safns íslands.
Ásgeir Guðmundur Jóhannesson
Ásgeir Guðmundur Jóhannesson
forstjóri, Sunnubraut 38, Kópavogi,
ersextugurídag.
Starfsferill
Ásgeir fæddist á Húsavík við
Skjálfanda og ólst þar upp. Hann
lauk prófi úr framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans 1952 og hóf þá störf
hjá Kaupfélaginu Dagsbrún í Ólafs-
vík. Þar vann hann til ársins 1959
er hann gerðist starfsmaöur Inn-
kaupastofnunar ríkisins í Reykjavík
og hefur verið forstjóri hennar frá
1966.
Ásgeir hefur gegnt ýmsum félags-
störfum fyrir Samvinnuhreyfing-
una, bæði í Ólafsvík og á höfuðborg-
arsvæðinu. Hann var einnig for-
maður skóla- og sóknarnefndar Ól-
afsvíkur.
Hann sat í bæjarstjórn Kópavogs
fyrir Alþýðuflokkinn 1966-74, var
formaður skólanefndar þar 1978-
1982 og stjórnar heilsugæslustöðv-
arinnar 1982-90. Ásgeir sat í flokks-
stjórn Alþýðuflokksins 1962-84 og í
stjóm Blaðaprents hf. frá stofnun
þess, 1970-78.
Hann var forstjóri Rotaryklúbbs
Kópavogs 1978-79, formaöur Rauða
kross deildar Kópavogs 1977-88 og í
fyrstu stjórn Rauöa krossins
1980-91.
Ásgeir var formaður Sunnuhhð-
arsamtakanna í Kópavogi frá stofn-
un þeirra 1979 og í fyrstu stjórn
SOS-þorpanna á íslandi.
Frá 1963-87 var hann endurskoð-
andi Samvinnubankans, í stjórn
undirbúningsfundar aö byggingu
olíuhreinsunarstöövar 1971 og
formaöur nefndar félagsmálaráðu-
neytisins um íbúðabyggingar fyrir
aldraða.
Hann var í sendinefnd íslands hjá
Sameinuöu þjóðunum 1976 og starf-
aði í sérfræðinganefnd EFTA-ríkj-
anna um opinber innkaup á EES frá
1990.
Auk þessa hefur Ásgeir ritað
fjölda greina í blöð og tímarit um
bæjarmál í Kópavogi og öldrunar-
mál.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 19.9.1954 Sæunni
Ragnheiði Sveinsdóttur, f. 23.6.1930,
fulltrúa. Hún er dóttir Sveins Ein-
arssonar, sjómanns í Ólafsvík, og
Þórheiðar Einarsdóttur húsmóður.
Börn þeirra Ásgeirs og Sæunnar
eru: Sigríður Berghnd, f. 15.1.1955,
lögfræðingur og ráðuneytisstjóri,
gift dr. Gísla Ágústi Gunnlaugssyni,
sagnfræðingi og háskólakennara,
búsett í Hafnarfirði, og eiga þau tvö
börn; Lárus Sigurður, f. 3.6.1957,
verkfræðingur og markaðsstjóri,
kvæntur Sigurveigu Þ. Sigurðar-
dóttur barnalækni, búsettur í Kópa-
vogi og eiga þau tvo syni; Þór Heið-
ar, f. 6.4.1964, kennari og nemi í
Boston, kvæntur Sigrúnu Þorgeirs-
dóttur, efnafræðingi og söngkonu,
og eiga þau eina dóttur.
Systkini Ásgeirs eru: Sjöfn, f. 27.10.
1924, húsmóðir, Fjöllum, Keldu-
hverfi, gift Héðni Ólafssyni og eiga
þau sex böm; Sigurjón Jóhannes-
son, f. 16.4.1926, fyrrum skólastjóri
á Húsavik, kvæntur Herdísi Guð-
mundsdóttur og eiga þau sex böm;
Gunnar Páll, f. 28.7.1936, flugaf-
greiðslumaður á Húsavík, kvæntur
Arnbjörgu Sigurðardóttur, nú látin,
og eignuðustþau tvö börn.
Foreldrar Ásgeirs voru Jóhannes
Guðmundsson, f. 22.6.1892, d. 30.9.
1970, kennari, og Sigríður Sigurjóns-
Asgeir Guðmundur Jóhannesson.
dóttir, f. 6.8.1895, d. 11.1.1990, hús-
móðir. Þau bjuggu lengst af á Húsa-
vík.
Ætt
Jóhannes, faðir Ásgeirs, var sonur
Guðmundar, b. á Þórólfsstöðum í
Kelduhverfi, Pálssonar, b. í Austur-
görðum í Kelduhverfi, Vigfússonar
b. í Austurgörðum, Guðmundsson-
ar, b. á Hóli, Pálssonar.
Sigríður, móðir Ásgeirs, var dóttir
Sigurjóns, verkamanns á Húsavík,
Þorbergssonar, b. í Syðri-Tungu á
Tjörnesi, Eiríkssonar, prests á Stað
í Kinn, Þorleifssonar, prests á Staö
í Kinn, Sæmundssonar, prests á
Staö í Kinn, Jónssonar, prests í
Mývatnsþingum, Sæmundssonar,
b. á Brúnastöðum í Fljótum, Þor-
steinssonar, b. á Stóru-Brekku í
Fljótum, Eiríkssonar, ættfóður
Stóru-Brekku ættarinnar.
Ásgeir tekur á móti gestum næsta
laugardag, 9. nóvember, í Félags-
heimili Kópavogs frá kl. 16-19.
Ásgrímur Páll Lúðvíksson
Ásgrímur Páll Lúðvíksson hús-
gagnabólstrari, Úthlíð 10, Reykja-
vík, er75áraídag.
Starfsferill
Ásgrímur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann rak eigið bólstr-
unarverkstæði aö Bergstaðastræti 2
i Reykjavík frá 1940 til 1988. Þá tók
Egill sonur hans við rekstrinum og
hefur Ásgrímur starfað hjá honum
síðan.
Ásgrímur var sæmdur gullmerki
Landssambands iðnaðarmanna 1982
og gullmerki Kaupmannasamtak-
anna 1984.
Hann var einnig sæmdur gullmed-
alíu á Der Deutschen Handwerks-
messa árið 1961 ásamt Friöriki Þor-
steinssyni. Medalían var veitt af for-
seta Bæjaralands, Ludwig Erhard,
fyrir framúrskarandi handverksaf-
rek.
Fjölskylda
Ásgrímur kvæntist 25.5.1940 Þór-
unni Egilsdóttur, f. í Reykjavík 12.8.
1912, húsmóöur. Hún er dóttir Egils
Þórðarsonar, f. 3.11.1886, d. 6.1.1921,
skipstjóra frá Ráðagerði á Seltjarn-
amesi, og Jóhönnu Halldóru Lárus-
dóttur, f. 9.12.1886, d. 21.12.1962, frá
Gerðubergi í Eyjarhreppi, Hnappa-
dalssýslu.
Börn þeirra Ásgríms og Þórunnar
eru: Egill, f. 1.4.1943, bólstrara-
meistari í Reykjavík, kvæntur Sig-
ríði Lútherdóttur hótelstarfsmanni
og eiga þau tvö böm; Ragnheiður
Margrét, f. 12.3.1946, framhalds-
skólakennari í Reykjavík, gift Guö-
bjarti K. Sigfússyni yfirverkfræð-
ingi og eiga þau þrjú börn; Ásgrímur
Þór, f. 22.11.1948, bólstrarameistari
á Egilsstöðum, kvæntur Mörtu K.
Sigmarsdóttur kennara og eiga þau
fiögur börn, og Jóhann Gunnar, f.
2.6.1952, viðskiptafræöingur í
Reykjavík, kvæntur Herdísi Al-
freðsdóttur hjúkrunarfræðingi og
eigaþauþijúbörn.
Ásgrímur átti tvær alsystur sem
nú em látnar. Þær voru: Guðrún,
f. 9.12.1918, d. 7.4.1933, og Ragnheið-
ur, f. 9.4.1923, d. 16.11.1927.
Hálfsystkini Ásgríms eru: Sveinn
Sveinsson, f. 13.6.1907, d. 17.12.1942,
bakarameistari í Reykjavík, var
Ásgrímur Páll Lúðviksson.
kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur
og eignuðust þau þrjú börn; Margrét
G. Sveinsdóttir, f. 23.1.1912, fyrrum
kaupmaður, gift Jóni Sæther, skip-
stjóra í New York, sem nú er látinn.
Þau eignuðust eina dóttur; Lúðvík
Lúðvíksson, 29.9.1938, stýrimaður
frá Reykjavík, kvæntur Onnu Lauf-
eyju Þórhallsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Faðir Sveins og Margrétar var
Sveinn Guðmundur Gíslason húsa-
smíðameistari í Reykjavík. Móðir
Lúðvíks var Hallfríður Einarsdóttir
úrReykjavík.
Foreldrar Ásgríms voru Lúðvík
Hjálmar Ásgrímsson, f. 29.1.1893,
d. 20.6.1970, pípulagningameistari,
járnsmiður og vélstjóri, og Guðrún
Eiríksdóttir, f. 20.9.1885, d. 9.8.1960,
kaupmaöur í Reykjavík.
Lúðvík var sonur Ásgríms Péturs-
sonar, f. 16.2.1867 að Grund í
Svínadal, V-Hún., d. 22.12.1930, fyrr-
um yfirfiskmatsmanns Norður-
lands, og Guðrúnar JónsdótturJ.
24.12.1863 að Ártúni, Höfðaströnd,
Skagafirði, d. 8.8.1953, húsmóður.
Guörún var dóttir Eiríks Þorkels-
sonar, f. 28.10.1859 að Skálmarbæ í
Meðallandi í V-Skaftafellssýslu, d.
15.10.1944, skútustýrimannsog
Margrétar Guðmundsdóttur, f. 29.1.
1853 að Tungu í Svínadal í Borgar-
firði vestra, d. 23.9.1930, húsmóður.
Lúðvík og Guðrún bjuggu í Reykja-
vík.
Ásgrímur tekur á móti gestum á
milli kl. 16 og 18 á afmælisdaginn í
húsakynnum Landssambands iðn-
aðarmanna að Hallveigarstíg 1.
LÖGREGLUMENN OSKAST
Lausar eru til umsóknar nokkrar lögregluþjónsstöður
í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýslu.
Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið námi frá Lög-
regluskóla ríkisins. Umsóknareyðublöð fást hjá yfir-
lögregluþjóni, Lögreglustöðinni í Keflavík, er veitir
nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til
15. nóv. nk.
Lögreglustjórinn í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og
Gullbringusýslu, Jón Eysteinsson