Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1991, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1991.
Fréttir
Eldflörugt uppboð á herrakvöldi á Dalvík á laugardagskvöldið:
Hattur Jóns Baldvins
var sleginn á 42 þúsund
- sama upphæð var borguð fyrir fyrsta dansinn við Bryndísi Schram
Hinn frægi hattur Jóns Baldvins
Hannibalssonar var sleginn á 42
þúsund krónur á herrakvöldi
knattspymudeildar Svarfdælinga
á Dalvík á laugardagskvöldiö.
Hann er nú í eigu Dagmanns Ingva-
sonar sem starfar hjá litlu fisk-
vinnslufyrirtæki á Dalvik. Hattur-
inn verður geymdur á skrifstofu
hans í framtíöinni.
Fyrsti dansinn við Bryndísi
Schram, eiginkonu ráðherrans, var
einnig boöinn upp á herrakvöldinu.
Orri Stefánsson, Dalvíkingur um
tvítugt, steig fyrsta dansinn við
ráðherrafrúna og greiddi einnig 42
þúsund krónur fyrir dansinn. Pen-
ingarnir renna til íþróttastarfsemi
Svarfdælinga.
„Hatturinn fór á góðu verði í
þágu góðs málstaðar. Hann er
þýskur en var keyptur í Búdapest
snemma árs 1989. Það er óhætt að
upplýsa núna að hatturinn kostaði
sem nemur íslenskum krónum
fjórum. Veröið á þessum forláta
grip var ekki hátt,“ sagði Jón Bald-
vin í samtali við DV í gær. Ráðherr-
ann sagði að hatturinn væri hinn
sami og hann hefur sést svo oft
með opinberlega á undanförnum
misserum - „hinn eini sanni“.
- Hvað ætlar þú að gera í höfuð-
fatsmálum þínum núna?
„Ég er búinn að ná EES-samn-
ingnum svo að ég get beðið átekta
með að endurnýja hattinn. Hann
var oröinn eins konar tákn í því
sambandi," sagði Jón Baldvin.
DV spurði Bryndísi hvérnig hinn
dýri dans hefði verið:
„Þetta var ekki vangadans. En
hann var vel fjörugur og ég var að
hugsa um það í dansinum hvað
þetta hefði veriö óþarflega dýrt fyr
ir drenginn. En þetta var ljómandi
fallegur strákur. Svo fékk hann
skrautritað skjal," sagði hún.
„Þetta var meiri háttar," sagði
Ólafur Árnason, formaður knatt-
spymudeildar UMFS. Á annað
hundrað þúsund krónur komu inn
vegna uppboðsins á herrakvöldinu.
Blómaskreytingar og kvenundir-
fatnaður var einnig boðið upp.
„Þau vom heiðursgestir hjá okk-
ur, Bryndís og Jón Baldvin, sem
fyrrverandi togarasjómaður - ekki
ráðherra. Jón var eitt sumar á
Snorra Sturlusyni," sagði Ólafur.
Fyrir herrakvöldið á laugardag var
ekkert ákveðið með hattinn en þeg-
ar ráðherra gekk í salinn með höf-
uðfatið fræga kom tOlaga: „Bjóðum
hann upp.“ Ráðherra samþykkti
það strax.
Kúrekahattur Steingríms Her-
mannssonar var boðinn upp á þingi
framsóknarmanna í mars. Sá hatt-
urfórá32þúsundkrónur. -ÓTT
12 metra langar bárujárnsplötur fuku ofan af þaki fjölbýlishússins Fellsmúla 5-7 aðfaranótt sunnudagsins. Plöturn-
ar fuku um eins og dagblöð og skemmdu meðal annars tvo bíla. Lögreglumenn voru þar með körfubill frá
slökkviliðinu fram eftir nóttu að hemja plöturnar í rokinu. Plöturnar voru í buntum á þakinu vegna fyrirhugaðra
viðgerðaframkvæmda. Ekkert farg var á þeim þrátt fyrir að stormi hefði verið spáð um nóttina. DV-mynd S
Seldu sumarhús fyrir milljónir en notuðu peningana í annað:
Eigandi Transit ákærður
fyrir 12 milljóna svik
- aðeins helmingur af 10 miHjóna skuld við Byko greiddur
Aðalstjómandi fyrirtækisins
Transit hf. í Hafnarfirði hefur verið
ákærður fyrir fjársvik upp á tæplega
12 milljónir króna. Fyrirtækið gerði
árið 1989 kaupsamninga viö einstakl-
inga um kaup á sumarhúsum af
gerðinni Gisella Island. Fjöldi fólks
varð fyrir vemlegu tjóni vegna við-
skipta við Transit hf. Aðalstjómand-
anum er gefið að sök að hafa notað
milljónagreiðslur frá kaupendum án
þess að efna samninga um sumar-
húsin. Hann er sakaður um að hafa
notað andvirðiö til að rétta af halla-
rekstur fyrirtækisins. Málið er til
meðferðar í Sakadómi Reykjavikur.
Ákært er vegna viðskipta við þrjá
aðila. Fólkið, sem þar átti hlut að
máh, greiddi Transit hf. samtals 6,4
milljónir króna fyrir sumarhús.
Greiðslumar voru ýmist í peningum,
víxlum eða skuldabréfum. Stjórn-
andanum er gefiö að sök að hafa
notað fjármunina í allt annað en að
efna kaupin um húsin. Transit hf.
seldi skuldabréfin frá viðskiptafólk-
inu meðal annars til Kaupþings hf.
og notaði afraksturinn í allt öðrum
tilgangi en að efna samninga um
sumarhús.
Aðalstjórnandinn er ennfremur
ákærður fyrir að hafa leynt því að
hann var eignalaus er hann gekkst i
persónulega ábyrgð fyrir Transit hf.
þegar fyrirtækið tók út vömr hjá
Byko fyrir samtals 10,4 mihjónir
króna á tímabihnu apríl th október
1989. Skuldastaða Transit hf. við
Byko í lok þess tímabils var 5,3 millj-
ónir króna. Bú mannsins var tekið
til gjaldþrotaskipta í skiptarétti
Reykjavíkur 18. ágúst 1989. -ÓTT
Hraðfrystihús Stokkseyrar og Glettingur:
Ollu starf sfólki sagt upp störf um
„Það hefur öhum verið sagt upp
hér og eins í Glettingi. Þetta er bara
venjuleg rútína í sambandi við sam-
einingu fyrirtækjanna og það er eng-
in frétt. Þetta er nokkuð sem gerist
ahtaf þegar fyrirtæki sameinast. Ég
get hins vegar ekki svarað þvi á þess-
ari stundu hvort einhver kemur til
með að missa vinnuna. Þetta er
nokkuð sem gerist viö sameiningu
Pg nægir í því sambandi .aO.Jíta. til
Granda og fleiri fyrirtækja. Þegar daginn en uppsagnarfresturinn er
þarf að sameina verður að hagræða mislangur. Samruninn, sem Stefán
en það verður allavega allt gert til talar um, lýtur að Hraðfrystihúsi
þess að enginn missi vinnuna en Stokkseyrar og Glettingi í Þorláks-
þetta er bara þáttur í þeirri hagræð- höfn. Stofnað hefur veriö nýtt rekstr-
ingu sem á sér stað í samruna fyrir- arfélag fyrir bæði fyrirtækin og ber
tækjanna," sagði Stefán Runólfsson, það nafnið Árnes. Gert er ráð fyrir
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss að hið nýja félag taki til starfa um
Stokkseyrar, í samtah við DV. næstu áramót.
Starfsfólk hraðfrystihússins fékk -GRS
_. ..uppsagnarbréfm-íhendurÁfimmtm .—..............................-......
Reykjavíkurborg:
Komin í 1,6 millj-
arða yf irdrátt í
Landsbankanum
Yfirdráttur á hlaupareikningi
Reykjavíkurborgar hjá Landsbank-
anum 30. september síðastliöinn var
koininn í 1588 mhljónir króna og
hefur aldrei fyrr verið svona hár.
„Reykjavíkurborg er líklega
stærsti, besti og traustasti viðskipta-
vinur bankans og þar er ekkert að.
Þar er engin óreiða á nokkrum hlut
og borgin er ekki aldeilis undir sama
hatti og fiskvinnslur og útgerðirnar
sem eiga undir högg að sækja vegna
skerts sjávarafla - það er allt annar
hlutur," sagði Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, um stöðu
Reykjavíkurborgar.
Að sögn Jóns G. Tómassonar borg-
arritara eru margar skýringar á því
hve yfirdrátturinn er mikill.
Hann nefndi fyrst að borgin hefði
ekki selt eignir eins og reiknað var
með að hún gerði. Þar væri um að
ræða eignir upp á hundruð milljóna.
Þá hefur borgin keypt eignir umfram
það sem áætlað var, sem að vísu
koma th greiðslu á löngum tíma. Má
þar sem dæmi nefna Hótel Borg.
Þá hefur lánafyrirgreiðsla borgar-
innar brugðist frá því sem gert var
ráð fyrir í fjárhagsáætlun þessa árs.
Þar er fyrst og fremst um að ræða
lán vegna félagslegra íbúða. Gert var
ráð fyrir að þau lán kæmu jafnt yfir
árið en það hafa þau ekki gert. Á
árunum 1989 og 1990 keypti borgin
samtals 56 íbúðir. Lánsloforð er fyrir
þessum íbúðum en ekkert farið að
koma inn. Þarna lægju eflaust um
200 milljónir króna. Þá fékk borgin
verulega lakari lánafyrirgreiðslu
vegna Lindargötubyggingarinnar
sem er húsnæði fyrir eldri borgara.
Þessi skerta lánafyrirgreiðsla nemur
hundruðum milljóna. Loks nefndi
hann skilunarkerfi við Gjaldheimt-
una sem virkar þannig að það getur
dregið skilun upp á nokkur hundruð
milljónir króna milli mánaða.
„Auðvitað höfum við eytt meiru en
viö höfum aflað í ýmiss konar fram-
kvæmdir, meðal annars vegna þess
sem hefur brugðist og ég nefndi hér
áðan,“ sagði Jón.
Hann var spurður hvað ráðhús-
byggingin væri stór liður í þessu fjár-
hagsdæmi. Hann sagði að ráðhúsið
kæmi ekki beint inn í þetta þar sem
þaö hefur ákveðna fjárveitingu á
fiárhagsáætlun.
„En auðvitað tekur það í fiárhag
borgarinnar, það vita allir hvað það
hús kostar," sagði Jón G. Tómasson.
Yfirdráttur á hlaupareikningi er
eitthvert dýrasta lán sem menn taka.
Þeir voru þann 11. októher síöastlið-
inn 22 prósent, þaö er vextir og heim-
ildargjald.
Þann 30. september árið 1988 var
yfirdráttur borgarinnar í Lands-
bankanum 382 milljónir, árið 1989
var hann 829 mhljónir, 1990 var hann
1263 milljónir og nú 1588 milljónir
króna.
-S.dór/GS
Yfirdráttur Reykjavíkurborgar
í Landsbankanum
— í milljónum króna —
1988 1989 1990 1991